Morgunblaðið - 04.01.1968, Page 15

Morgunblaðið - 04.01.1968, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1968 15 Guðrún Jónsdóttir frá Látrum — Minning f DAG er til moldar borin Guð- rún Jónsdóttir frá Látrum í Að- alvík, N-ísafjarðarsýslu. Hún kenndi lasleika síns fyr- ir rúmum 3 árum, gekk hún undir erfiðan og mikinn upp- skurð, og kom þá í ljós, að ekki var um bata að ræða. Veikindi sín og dauðastríð bar hún með þolinmæði og ró, veit ég þó hún vissi gjörla að hverju dró. Guðrún var fædd 1. des. 1900, dóttir hjónanna Karítasar Guðnadóttur og Jóns Hjálmars- sonar, bæði hjónin ættuð úr Sléttuhreppi. Ég þekkti Gunnu eins og hún var oftast kölluð, frá því ég man eftir mér. Barnæska okk- ar var mjög tvinnuð saman. Það var sérstaklega gott fyr- ir lítið barn að koma inn í litlu fátæklegu en hreinlegu íbúðina - MINNING Framhald af bls. 14 flestu en við áttum annas stað- ar að venjast. Þar sveif tónlist snillinganna yfir vötnunum og þar hefi ég heyrt skemmtilegast sagðar sögur, og furðar mig á því enn í dag, hve annars ó- skemmtilegir menn gátu orðið skemmtilegir á kvöldvökunum þar. Mest hissa hljóta þeir þó að hafa orðið sjá'lfir. Það var and- rúmsloft heimilisins sem gerði þetta, — menn felldu grímuna sem þeir annars báru, og urðu eðlilegir og óþvingaðir. Þarna voru samankomnir húmoristar sem ég hefi þekkt mesta, og þar komst ég að þeirri skrýtnu nið- urstöðu sem stendur öhögguð enn í dag, að það er ekki á ann- arra færi en húmorista, að segja dulmagnaða sögu svo, að loft allt verði lævi blandið og hroll- unaður hríslist fram í fingur- góma. Það var íslenzkum littera- túr slys að Þórbergur sky'ldi ekki leggja leið sína í Bankastr. 2 Ef ég ætti að rekja ættir Sigríðir Björnsdóttur, færi ég ekki í þjóð skrána þeirra erinda, þó hún gæfi að vísu þau svör sem hver og einn mætti miklast af, — heldur mynd; ég segja: Hún Sigríður er af ætt Bergþóru sem lét eitt yfir sig og bónda sinn ganga. — hún er afkomandi hinnar spart- versku móður, er sagði syni sín- um að ganga feti framar í orrust unni, er honum þótti sverð sit of stutt, — en formóðir hennar var Geirríður sú. er byggði skála um þjóðbraut þvera og veitti öll- um sem um veg fóru. Hún hefir nú yfirgefið leikinn, og tjaldið hefir verið dregið fyrir í síðasta sinn. Mér er Ijóst að ekki er til neins að hrópa da capo. því lei'k urinn er á enda og verður ekki endursýndur. Það bætti mér aft- ur á móti miki] tíðindi og góð, ef savt yrðí einhvern tíma um aðra konu: Hún er eins og hún Si«r.'«,,r { Bankastræti var. Á nvársdag 1968. Atli Már. foreldra hennar. Móðir hennar var barngóð og kunni að ræða við lítil börn — gerði hún tím- ann þar svo stuttan en þó skemmtilegan, að þegar stundin var komin að kveðja fannst manni tíminn hafi liðið einum of fljótt en þó skilið eftir vel- líðan og gleði. Þannig fannst mér er ég kom þangað. Guðrún ólst upp í stórum syst kinahóp, alls voru þau níu, en aðeins sex af þeim komust til fullorðins ára, en með dauða hennar er aðeins eitt eftir af þeim á lífi. Við Guðrún áttum margar góðar minningar og þá sérstak- lega frá okkar bernsku, barna- skólaárum. Hún var greind, hafði mikinn áhuga á því að læra — gerðum við okkur stóra dagdrauma. En það fór sem oft- ar að örlög og fátækt ráða fram- tíð manna og svo fór einnig hér. 17 ára gömul fór hún í vist til Reykjavíkur. Leyfðu hús- bændur hennar henni að ganga í kvöldskóla. Kom þar fram strax greind hennar og áhugi. Hún vann sér fljótt álit kenn- ara sinna, sem undruðust kunn- áttu hennar og leikni og ekki var undrunin minni er hún sagði þeim hvaðan hún væri; frá einum afskekktasta stað landsins. 19 ára gömul missti hún sína ágætu móður — og fór þá heim til þess að standa yfir moldum hennar — hennar, sem hún unni svo heitt. Hún fór samt aftur suður til að vinna og hjálpaði föður sínum sem hún gat fjár- hagslega, þótt kaupið væri lít- ið. 1923 kom hún alkomin til föður síns, því faðir hennar þurfti á hjálp hennar að halda. 1926 giftist hún Finnboga Friðrikssyni, einnig frá Látrum. 6 börn áttu þau, en eitt af þeim dó nýfætt. Elzt af börnunum er Karítas, f. 29. okt. 1926. Hún er gift Kristjáni Þórðarsyni múrara, búsett í Keflavík. Kjart- an og Grétar, tvíburar, f. 28. maí 1928. Kjartan er lögreglu- varðstjóri á Keflavíkurflugvelli, giftur Gauju Magnúsdóttur, bú- sett í Keflavík. — Grétar lög- regluþjónn á Keflavíkurflug- velli, giftur Kristínu Vigfúsdótt ur, búsett í Hafnarfirði. — Ragna, f. 12. jan. 1930, búsett í Reykjavík. — Þóra Guðbjörg, f. 6. júní 1933, búsett í Banda- ríkjunum. Fósturdóttur ólu þau upp, sem er dótturdóttir þeirra, Sigrún Halldórsdóttir, f. 24. des. 1949 og var Guðrún henni sem bezta móðir getur verið. Guðrún og Finnbogi fluttu frá Látrum til Hnífsdals 1943 og voru búsett þar til 1949 er þau fluttu til Keflavíkur. Guð- rún og maður hennar lifðu við mjög fátækelg kjör vestra og var oft lítið um björg í bú hjá þeim en hagar hendur og gnægð af móðurumhyggju og hlýju voru til staðar og bættu oft sKortinn. Áður en þú tókst síðustu and- vorpin mundir þú eins og alltaf áður eftir fólki þínu og baðst fyrir börnum þínum og barna- börnum. Nú ert þú horfin og komin yfir á hina ókunnu strönd. Þar veit ég að tekið hef- ur verið á móti þér með þess- um orðum: „Yfir litlu varstu trú, yfir mikið mun ég setja þig-“ Eg kveð þig með þakklæti fyrir góðu árin okkar er við vorum saman. — Far þú í friði. — Drottinn þig blessi. Ég votta manni þínum, börnum og barna börnum mína dýpstu samúð. Vinkona. RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA SÍMI 10«100 I r»/- SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM ggjflPl kaupsýslumenn í Lissabon voru viðriðnir. Mál þetta leiddi meðal annars til þess, að Antunes Var- ela dómsmálaráðherra varð að segja af sér að kröfu stjórnar- innar, sem reyndi að þagga mál- ið niður. I sama skyni var frétta riturum nokkurra erlendra blaða, þeirra á meðal fréttarit- ara „New York Times“, vísað úr landi. ÉG HEF sannfærzt um synd mína við að hlusta á yður í útvarpinu. Ég er sextán ára gömul og er í menntaskóla. Ég hef átt stefnumót um nokkurt skeið við mann einn, sem er ekki kristinn. Ég óttast, að ég hafi brugðizt kristilegri skyldu minni um að vera öðrum til fyrirmyndar, með því að vera í of nánu sambandi við hann. Ég er í vanda stödd. Hvað á ég að taka til bragðs? ÞÚ MÁTT þakka fyrir, að þú finnur til sektar út af þessu máli. Flest ungt fólk virðist svala hvötum sínum, án þess að samvizkan ónáði það hið minnsta, og svo flýtur það sofandi að feigðarósi — og áttar sig ekki, fyrr en allt er komið í óefni. Hvað þú átt að taka til bragðs? Fyrst og fremst áttu að láta öllu vera lokið milli ykkar. Hættu- merkin hafa leiftrað, og þú veizt, að þú lendir í ógöngum. Segðu piltinum, að þú harmir þetta sam- band ykkar og að þú viljir binda enda á það, af því að þú viljir vera sannkristin. Þetta verður honum mikið áfall. En hann mun að minnsta kosti komast að raun um, að það er til fólk, sem lætur samvizku sína hafa afskipti af slíkum málum, og vera má, að einnig hann sjái að sér. Bið þú Drottin að leiða þig í ástamálum þínum. Flest ungt fólk lætur augu og eyru ráða í þessum efnum. Kristinn maður notar umfram allt bænina. Einhvers staðar er sá kristni piltur, sem Guð hefur ætlað þér og vill eiga hlutdeild með þér í markmiði þínu og trú. Nýtt ldrviðar- skáld í Bretlandi London, 1. janúar. — NTB CECIL Day-Lewis, eitt helzta ljóðskáld Bretlands, var á mánu dagskvöld útnefndur sem nýtt hirðskáld i landi sínu á eftir John Masefield. Cecil Day-Lew- is hefur verið í hópi helztu bók menntamanna Breta frá því eft- ir 1930, en þá tilheyrði hann mjög vinstri sinnuðum stúdenta hópi við háskólann í Oxford. Önnur skáld í þessum hópi voru W. H. Auden, Stephen Spender og Christopher Isherwood. Hið nýja lárviðarskáld er fætt 27. apríl 1904 og er því 63 ára að aldri. - ERLENT YFIRLIT Framhald af bls. 13 inn því að landið verði aftur lýð- veldi bendir eklkert til þess að hann sé reiðubúinn að bjóða Juan Carlos konungstign. Konungssinnar á Spáni eru heldur ekki sammála um hvor- um eigi heldur að bjóða kon- ungstignina, Juan Carlos, eða föður hans, Don Juan af Bour- bon, greifa af Barcelona, sem er &4 ára gamall. Þrír aðrir prinsar kioma einnig til greina og gera kröfu til konungstignar: Xavier prins af Bourbon-Palma, sem er Juan Carlos: Tekur hann við konungdómi? 77 ára gamall, sonur hans, Carlos Hugo prins, sem er 37 ára gam- all, og frændi þeirra, Alfonso B'oui'bon prins, sem er 31 árs gamall. Faðir Juan Carlos, Don Juan, er nú búsettur í Estoril í Portú- gal. Hann fór úr landi ásamt föð- ur sínum, Alfonso konungi XIII, sem lagði niður völd 1934 og lézt í útlegð í Róm. Don Juan af B'oufbon er maður frj'álslyndur og hefur löngum verið ' á önd- verðum meiði við Franco, og þess vegna er hershöfðinginn mótfallinn því að hann taki við konunigdómi. Juan Carlos prins, sem er kvæntur systur Konstantíns Grikkjakonungs, Soffíu prins- essu, hefur hlotið menntun sína á Spáni samkvæmt samkomlagi sem faðir hans gerði við Franco hershöfðingja. Margt bendir til þess. að Franeo háfi ætlað hon- um konungstignina, og hefur prinsinn meðal annars komið fram við opinber tækifæri og verið margvíslegur sómi sýnd- ur. Hann hefur lagt stund á stjórnvísindi og hlotið foringja- menntun í her, flota og flugber Spánar. Hann mun hafa sagt í viðtali við spánskt dagblað, að hann sé einlægur aðdáandi Franco, en ekki er vitað hvort aðdáunin er gagnkvæm. Ef Franco fellur frá án þess að útnefna eftirmann verður að styðjast við stjórnarskrána, sem er tvíræð. Samkvæmt henni verð ur annað hvort kjörinn konung- ur eða skipaður ríkisstjóri, og ekki er óhugsandi að slíkt stjórn arform þróist í forsetastjórn. Taugaspenna í Portúgal LEIÐTOGI lýðræðissinnaðra stjórnarandstæðinga í Porútgal, lögfræðingurinn Mario Soares, hefur verið handtekinn. Ekkert hefur til hans spurzt síðan 12. desem'ber þegar hann sneri aftur til Lissabon úr ferðalagi til nokkurra landa, þar sem hann ræddi meðal annars við starfs- menn brezka utanríkisráðuneyt- isins, Tager Erlander, forsætis- ráðherra Svía, og Pietro Nenni, varafiorsætisráðherra ftala. Þótt portúgölsk yfirvöld hafi enga skýringu gefið á hvarfi Soares virðast einkum tvær ástæður búa á bak við handtök- una: • Soares hefur verið lögfræð- ingur Inciao Palma, sem var fé- lagi í svokédlaðri „pólitísku vík- ingasveit" stjórnarandstæðinga, sem réðist inn í bankann Figu- eira de Frotz í Lissabon í þeim tilgangi að afla stjórnarandstöð- unni fjár. Inciao Palma var seinna handtekinn í París og portúgalska stjórnin krafðist þess að hann yrði framseldur á þeirri fórsendú að Palma hefði gerzt brotlegur við Ihina al- mennu hegningalöggjöf með þátttöku í bankaráni. Hins veg- ar voru færðar sönnur fyrir því í réttanhöldum í París, að árásin á bankann hefði verið af póli- tískum toga spunnin og því ekki refsiverð, svo að hann var látinn laus. • Mario Soares stóð í sambandi við erlenda blaðamenn í Lissa- bon á sama tíma og fréttir kom- ust á kreik um hneyksli, sem nokkrir ráðherrar og þekktir Bardogarí Kanton London, 30. des. — (NTB) MOSKVU-ÚTVARPIÐ hermdi í dag að alla síðastliðna viku hefðu geisað bardagar í stór- borginni Kanton á suðurströnd Kína milli stuðningsmanna og andstæðinga Mao Tse tungs. Sagði Moskvu-útvarpið að hermenn hefðu tekið virkan þátt í bardögunum gegn and- stæðingum Maos og fjöldi manns hefði verið handtekinn. Þá sagði og í fréttum útvarpsins að tvö herfylki hefðu verið send í miklum flýti til Hunan-fylkis til „refsiaðgerða". Sagði Moskvu-útvarpið að efnahagsöngþveiti það og lífs- kjaraskerðing sem menningar- byltingin hefði haft í för með sér neyddi nú Kínverja til þess æ oftar að grípa til vopna í baráttunni fyrir réttindum sín- um - BANKASKOLI Framhald af bls. 5 bæjarútibúi Landsbanka íslands, Helga Jónsdóttir, Landsbanka íslands. og Sigrún Gunnarsdótt- ir, Landsbanka íslands. Auk aðalnámskeiðs skólans fór einnig fram tungumála kennsla á vegum skólans fyrr á árinu. Kennarar voru allir er- lendir nema í þýzku. Kennd var enska, franska og þýzka. Tungu- málanámskeiðið var fyrir alla starfsmenn bankanna, og voru nemendur samtals 74. Eftir áramótin er fyrirhugað annað tungumálanámskeið og einnig kennsla í vélritun. Þá hef- ur skólanefnd skólans í athugun að efna til framhaldsnámskeiða við skólann. Yrðu þá teknir fyrir vissir þættir bankalögfræði, er- lend bankaviðskipti, peningamál, starf Seðlabankans og uugsan- lega fleira. Jólagjöf handa prinsie®su? Á jólaskemmtuin Keele-há- skóla, sem halda á í þessari viku, mun Margrét prinsessa taka í höndina á einum stúd- entanna, sem verður klæddur í gervi jólasveins. Flestir- gestanna á skemmtuninni munu einnig fá gjafir, en er síðast spurðinst hafði ekki verið ákvæðið, hvort viðeig- andd væri, að prinsessan tæki við gjöf frá jólasveiniinum, eins og aðrir. I danssalnum verður stig- inn dans í átta klukkustundir samfleytt. Einn hinna fyrstu, sem dansa eiga við Margréti prinsessu er formaður stúd- entafélagsins, Malcolm Clark. Hann 'viðurkenndi fýrir skemmstu, að hann sækti nú dansnámskeið af kappi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.