Morgunblaðið - 04.01.1968, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 196«
Aðeins tveir leikir
pólska liðsins hér
Liðið mætir Fram á laugardag
og FH á stmnudag
í KVÖLD eru væntanlegir hing-
að til lands leikmenn pólska
liðsins Spójnia, sem hingað
kemur í boði Hauka. Haukar
Hingað konia Pólveriarnir á
miðvikudag að norðan og halda
utan á fimmtudaginn.
í næstu keppni, sem háð var
í Garmisch PartenkÍTchen vann
Wirk'ola með miklum yfirburð-
um og hefur tekið forystu í sam-
anlöðum úrslitum með ujþ.b.
10 stig umfram A-iÞjóðverjann
— og síðan koma aðrir stökk-
kappar Norðmanna í röð.
Wirkola stökk 92.5 m í síðustu
keppni og bætti lengdarmetið í
þessari frægu Olymp'íubraut.
Um 20 þús. manns sáu keppn-
ina um nýárið, og sýnir það
nokkuð vinsældir stökksins á
þessum slóðum.
UMFK vann
stórn sigrn
Milli jóla og nýárs fór fram
hin árlega handknattleikskeppni
milli UMFK og Knattspyrnufé-
lags Keflavíkur. Úrslit í einstök-
um leikjum urðu þessi:
Framhald á bls. 17
hafa reynt að fá þrjú leikkvöld
til heimsóknarinnar hér, en það
hefur ekki tekizt og verða leik-
kvöldin hér tvö, á laugardag og
sunnudag og hefjast báða dag-
ana kl. 4 síðdegis.
Eins og við höfum áður skýrt
frá er þetta pólska lið nú í for-
ystu í pólsku deildakeppninni,
að hálfnuðu keppnistímabili.
Liðið hefur á að skipa mjög
reyndum mönnum og hafa meðal
annars 9 leikmenn félag.sins, sem
hingað koma leikið með p>ólska
landsliðinu einhverntíma, en
fjórÍT leikmanna liðsins hafa
leikið í landislðinu á þessu
keppnistímabili, m. a markvörð-
urinn og bezta skytta liðsins —
og lands’iðsins.
Það eru íslandsmeistarar Fram,
sem fyrstir reyna sig gegn þessu
ágæta póLska liði. Verður sá
leikur á laugardaginn kl. 4. Á
sunnudag mæta Pólverjarnir evo
liði FH.
Á mánudaginn verður haldið
ti'l Akureyrar flugleiðiis og keppa
Haukar við Pólverjana nyrðra á
mánu'dagskvöldið en á þriðju-
dagskvöld keppa Pólverjarnir við
lið íþrótta'bandalags Akureyrar.
Danir töpuðu síðari
leiknum hka 10 gegn 12
DANIR töpuðu einnig síðari
Iandsleik sínum við Svía í hand
knattleik. Leikurinn fór fram í
Forum í Kaupmannahöfn 30.
des. og lyktaði með sigri Svía
12 mörk gegn 10.
Sænska liðið átti mjög góðan
Foldi tennur
FURÐULEGASTA knattspyrnu-
sagan er (auðvitað) frá S-Am-
eríku, nánar tiltekið í Campas,
Perú. Pedro noikkrum Cajara var
vísað af leikvelli fyrir að fela á
sér tennur dómarans, sem missti
þær út úr sér í hita leiksins.
Það þurfti ekkert minna en lög-
regluna til að leita á aumingja
Pedro og að lokum fundust tenn
urnar, en Pedro var vísað úr
leiknum, eins og fyrr segir.
dag, einkum þó og sér í lagi
markvörður liðsins, sem varði
hvað eftir annað meistaralega
vel. Danska liðið lék nú miklu
betur en í fyrri leiknum, sem
Danir töpuðu með 13 mörkum
gegn 20. En það var varnar-
veggur Svíanna sem skapaði
sænskan sigur.
Carsten Lund var eini mað-
urinn sem Svíarnir réðu ekki
fyllilega við. Hann skoraði 6 af
10 mörkum Dana. Þrjú önnur
voru skoruð úr vítakasti og að-
eins einn leikmaður annar
danskur „komst á blað“ í leikn-
um. Þessir leikir tveir eru all-
mikið áfall fyrir danskan hand-
knattleik, sem nýverið hafði
unnið þan sæta sigur að bera
sigurorð af tékknesku heims-
meisturunum.
Þetta eru meistarar Sovét-
ríkjanna í knattspyrnu, lið
Dynamo Kiev. Liðið vakti
mikla athygli í haust, þá er
það sigraði Glasgow Celtic,
Evrópubikarhafa meistaraliða
frá í fyrra, og sló þá þannig
úr keppninni. En örlög Rúss-
anna urðu síðan að falla úr í
næstu umferð fyrir meistara
liði Póllands. En þetta virð-
ast hinir snaggaralegustu
knattspyrnumenn.
Japanskur þjállari
JÚDÓDEILD Glímufélagsins
Ármanns tók til starfa í haust
i nýjum og vistlegum húsakynn
um að Ármúla 14. Aðsókn hef-
ur verið mjög mikil að æfingum
hjá deildinni, enda aðstæður
allar hinar beztu.
Ný námskeið hefjast í judó
að nýju mánudaginn 8. janúar,
og verða það bæði námskeið
fyrir byrjendur og þá, sem
lengra eru komnir. Allar upp-
lýsingar um æfingatíma og þ.h.
eru veittar hjá judódeildinni,
Rongers, Celtic
skildu jöin
sími 83295, kl. 5—9 síðdegis.
Það skal tekið fram, að nám-
skeið verða bæði fyrir karla,
konur og unglinga.
Eins og kunnugt er, kom
hinn heimfrægi judósnillingur
Kiyoshi Kobayashi hingað til
lands í byrjun desember í boði
júdódeildar Ármanns, og varð
það félaginu mikil lyftistöng.
Þessi ágæti gestur er væntan-
legur aftur til deildarinnar um
mánaðamótin febrúar-marz, og
mun þá leiðbeina hér. Eftir þá
heimsókn mun Kabayashi út-
vega júdódeild Ármanns hátt
gráðaðan, japanskan þjálfara,
sem dvelja mun hér í þrjá mán
uði sem þjálfari.
(Fréttatilkyning).
Wirkola ■
sérflokki
i stökki
HIN mikla og árlega sk'íðastökk-
keppni í fjórum af stærstu stökk
bratum Mið-Evrópu er nú hálfn-
uð. A-Þ-jóðverjinn Dieter Neuen-
d'orf sigraði í þeirri fyrstu en
Norðmaðurinn Björn Wirkola
varð 3.
NOK'KRIR leikir í skozku deild-
arkeppninni fóru fram á mið-
vikudag. M.a. mættust þá erki-
fjendurnir Glasgow Celtic og
Glasgow Rangers. Jafntefli varð
2:2. Af öðrum úrslitum má
nefna:
ARGENTÍNSKA knattspyrnu-
félagið Bocca Juniors frá Buenos
Aires hefur boðizt til að greiða
portugalska félaginu Benfica
uppthæð, sem s'varar til 41.1
milljóna króna, en Booca Juni-
ors vill í staðinn frá Eusébio og
Simoes framberjanna frægu úr
heimsmeistarakeppninni 1966.
Samt furðar engan, sem til
þekkir, að Benfica hafnaði þessu
boði. Portugalska félagið þarf á
öllu sínu að halda þessa dagana.
Benfica er í 8 liða úrslitum í Evr
ópubikaranum, þó þeir hafi rétt
„skriðið" í gegnum tvær fyrstu
umferðirnnar og verið afar
heppnir í keppninni til þessa.
Eusebio
Hearts — Dunfermlina 1-2
Kilmarraock — Stirling 5-2
Motherwall — Morton 2-1
Rait'h Rovers — Hibernian 2-2
Aberdeen — St. Johnstone
Patrick Thistle — Clyde 2-0
frestað.
Bjóða 41,1 millj. kr.
í Eusebio og Simoes
Danska sjónvarpið greiðir 6,1
milljón krónur fyrir knattspyrnu
ÞAÐ erkunnara en frá þurfi
að segja, að sjónvarpsstöðvar
um víða veröld greiða himin-
háar fjárhæðir, þá er þær fá
leyfi til birtingar fréttamynda
frá kappleikjum og íþrótta-
viðburðum.
Þessari hlið mála eru ís-
lenzk íþróttayfirvöld enn
ókunnug og menn gera sér
varla grein fyrir þeim fjár-
hæðum sem sjónvarpsstöðvar
greiða.
Danska sjónvarpið hefur
nýlega í aðalatriðum gengið
frá samningum við Danska
knattspyrnusambandið. Fyrri
samningur sem gilt hefur í
tvö ár, rennur út 1. apríl og
einhvern tíma á næstunni
verður nýr samningur undir-
ritaður.
Engar breytingar verða á
samningnum nema greiðslan
sem knattspyrnu'sambandið
fær hækkar um 100 þús. kr.
danskar.
Danska sjónvarpið greiðir
þá knattspymusambandinu
800 þús. d. kr fyrir sjón-
varpsréttinn eða nálega 6.1
milljón ísl. kr. Þetta fé fær
sambandið til umráða auk
mjög góðe árshagnaðar í ár
auk annara styrkja. Mun
knattspyrnuisambandið því ríf
lega geta styrkt einstök fé-
lög, sem nota peningana aftur
til k-ennsilu unglingaiiða
o. s .frv.
Danska sjónvarpið hefur —
fyrir áðurnefnda upphæð —
rétt tii að senda út fyrri hálf-
leik af landisleikjum heima
etftirá en miá senda samtímás
og lei'kur fer frarn mynd af
landlsleikjuim erlendis í heild.
Þegar hafa Danir samið um 4
landsleiki næsta sumar og
síðan verða minnst þrír leikir
í undankeppni HM úrsli't bik-
arkeppninnar (eftirá) en leik-
ir danskra liða í Evróputoilk-
arkeppni eru ekki með — um
þá verður að semja sérstak-
lega við félögin sem að þeim
standa hverju sinni. Hvidövre
afþakkaði 40 þús. d. kr. til-
boð sjónvarpsins fyrir að
sjónvarpa leik liðsins og Real
Madrid á liðnu sumri, og gert
er ráð fyrir að næsta sumar
verði greiðslur fyrir slíka
leika talsvert hærri