Morgunblaðið - 18.01.1968, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.01.1968, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. JAN’ÚAR 1968 Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald Sími 14970 Eftir lokun 14970 eSa 81748 Sigurður Jónsson BÍLALEIGAIM - VAKUR - Sundlaugavegi 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. yy——j BfiAtfrnA/f RAUDARARSTlG 31 SfMI 22022 Nýr sími 23-222 SENDIBÍLAR HF. Einholti 6. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu AUDVITAÐ ALLTAF ★ Að kveða rímur Ingþór Sigurbjörnsson skrif- ar: „Svo mikið skyn sem fólk al- mennt ber þó á alls konar ljóðagerð (og létta stakan á enn almenna hylli), hef ég oft undrazt þá hugtaksvillu, hve margir kalla allan vísnakveð- skap: rímnakveðskap, og það þó að sé verið að kveða lausa- vísur, jafnvel eftir unga höf- unda, sem alls ekki eru kunnir fyrir neinn rímnaskáldskap. Þetta hefiir mér samt fund- izt keyra alveg um þvert bak í dagskrárkynningum Útvarps- ins. Nú á síðustu kvöldvöku er fluttur var gamall kveðskapur Jóns heitins Lárussonar frá Hlíð á Vatnsnesi, var sagt, að hann kvæði rímur. Jafnt þeim sem iðka söng sem kveðskap, er fuli-ljóst hugtakið LAG- BOÐI, og mátti ölium ljóst vera, er á hlýddu, að hann kvað lagboða, þ.e. aðeinis einu sinni hvert kvæðalag og tilgreindi jafnframt, eftir hverjum það væri bafit, rétt eins og þá er höfundar sönglaga eða annarra tónverka eru kynntir. Hvernig stendur þá á þessum hugsanagraut? Er það máske af sömu rót og notkun orðanna kvæðalög og rímnalög, er virðast oft notuð sitt á hvað í sömu merkingu, rétt eins og orðin hver og hvor, að ekki er gerður gréinarmunur á tvítölu og fleirt&lu. Að vísu var samfeldasta notkun kvæðalaga þá rímur voru kveðnar, en þar sem slíkt er nú mjög fáheyrt, virðist mjög fráleitt að nota það orð yfir það óskyldasta af kveð- skapnum, lausavísur og lag- boða. Á maður máske von á því, að einhvern tíma, ef rím- ur væru kveðnar í útvarpið, að þá yrðu tilkynnt, að kveðnar yrðu lausavísur? Það væri ekk- ert meira. ýý Stakan er verndar- vættur móðurmáls- ins Sá, er hnoðar saman stökum, glímir við málið og verður á því ýmisLegt ljóst, sem enginn skóli mundi kenna honum. Honum verður eðlileg hreinni málsgreining, fleiri og hreinni hugtök. Orðið Björn Það er oft verið að finna að málsmeðferð blaðamannanna, en við eigum ekki síður mikið í hættu, ef útvarpsmenn hætta að nenna að bera fram ís- lenzk kjarnyrði, svo að þeir, sem á hlýða síendurtekið, venjist t.d. af að segja hið svip- hreina orð: Björn, og fari að dæmi þessara finu manna að segja bara hljómlaust og svip- laust: Bjönn. Eru þá nokkur undur, þó að ég fái bréf með utanáskriftinni Bjösson? Ingþór Sigurbjs.". ýý Hraði I. A. skrifar: „í sumar birtust í Velvak- anda Morgunblaðsins greinar um Lasergeislann og um þá uppgötvun, að hann getur farið með níföldum ljóshraða. Þessi uppgötvun mun hafa komið allmiklu róti á hugarheim þeirra vísindamanna og ann- arra, sem hingað til hafa talið, að venjulegur ljósgeisli fari með mestum hugsanlegum hraða. Nú langar mig til að beina eftirfarandi spurningum til eðlisfræðinga eða annarra vís- indamanna: 1. Hver er hraði aðdráttar- afisins? 2. Við vitum um mismun- andi stig hraða: hijóðhraða, ljóshraða. Er óhugsandi, að til sé hraðastig, sem fer eins langt eða lengra fram úx ljóishraðan- um eins og ljóshraðinn fer langt fram úr hljóðhraðanum? 3. Er slík hraðgeislun óþekkt og órannsökuð með öUu hér á jörðu, eða þekkist hún í ein- hverri mynd og getur hún haft eitthvert hagnýtt gildi? Fróðlegt væri, ef einhverjir vísindamenn vildu svara þess- um spurningum eða ræða þessi mál á einhvern háitt. I. A.“. Velvakanda minnir nú, að þetta með nífaldan hraða, hafi verið einhver misskilningur, en vonandi verður einhver vís- indamaður til þess að svsira þessu í stuttorðu bréfi. 'A Umferðarmál „Einn af Suðurnesjum" skrifar: „Kæri Velvaksindi! Þegar mér verður hugsað til þeirra tíðu umferðarslysa, sem orðið hafa á Suðurnesjavegi undanfarið ár, dettur manni í hug, að einhverju sé ábótavant í sambandi við öryggisútbúnað bifreiða. Nú er t.d. frumvarp á alþingi um öryggisbelti í bíla, og eru það orð í tíma toluð. En af hverju erum við íslending- ar, sem öpum flestar nýjungar eftir nágrannaþjóðum okkar, svo lengi að taka það upp, sem aðrar þjóðir telja sjálfsagðan hlut? Ég vil benda þeim mönn- um, sem með þessi mál hafa að gera, að það hefur verið lögð mikil áherzla á, að aur- hlífar væru á bílum, sem hafa svo gefið misjafna reynslu. En því ekki að skylda alla bílaeigendur að hafa rúðu- sprautur á bílum sínum, því að flestir okkar vegir eru malar- vegir, og þegar ekið er fram úr bíl eða bílar mætaat á blaut- um vegum, vill oft koma fyrir, að ökumaður blindast >af aur- slettum, sem byrgja útsýn bíl- stjóra. Þetta væri hægt að úti- loka, ef rúðusprautur væru á hverri bifreið. Svo er annað mál, sem ég tel hið brýnasta, en það er, að ef þarf að skilja bíl eftir út á veg- um einhverja orsaka vegna, þá eru engin aðvörunarljós til að gefa það til kynna, nema stöðu- ljós, og þau lýsa samt í dimmviðri. Því ekki að taka upp þann hátt sem t.d. Banda- ríkjamenn hafa á. Ef bíll bilar, t.d. sprmgur á hjólbarða, þá er sérstakur rofi, sem hægt er að setja í samband við stefnu- ljós, og þau lýsa samt í samtímis með vissu millibi’L Þjóðverjar hafa þann hátt á, að þeir setja luktir bæði fyrir framan og aftan bílinn, sem ætti ekki að vera verra, en ég held, að sú fyrri væri hand- hægari. Það myndu kannske einhverjir segja, að það væri 'hægt að misnota þessi ljós, en ég vil benda á: hvað er ekki hægt að misnota í sambandi við ljós, t.d. dem.pa ekki ljós fyr- ir toíl, sem á móti kemur eða gleyma að taka stefnuljós af, og svo mætti lengi telja. Einn af Suðurnesjum“. — Aðvörunarmerki, til að setja fyrir aftan og framan kyrrstæða bíla, munu fáat hér. Fyrirspum svarað Vegna fyrirspurnar Velvak- anda í Morgunblaðinu í dag, 16. þessa mánaðar, vil ég upplýsa eftirfarandi, svo sem um var spurt: 1. Á liðnu ári (1967) hefur emibættið móttekið frá toUaf- greiðslunni í flugstöðvarbygg- ingunni á Keflavíkurflugvelli, áfengi 146 flöskur, áfengi 346 peiar, áfengi minitúr flöskur 25, létt vín 12 f.löskur auk 52ja lítilla flaska af rauðvínL Áfeng.t öl 331 flaska, vindlingar 165 pakkalengjur, vindlar 819 styktki. 2. Áfengi og tóbak er sent til ÁTVR og eru hér til staðar kvittanir fyrir móttöku þess. Áfengu öli er hellt niður og slíkt er gert með réttargjörð. 3. Matvæli eru brennd og það gjört í votta viðurvist. Sér- stakur brennsluofn er hér til staðar. Séu einhverjir, er telji sig hafa orðið fyrir ólögmætri toll- afgreiðslu, er sjálfsagt fyrir viðkomandi að leita réttar síns. Með þökk fyrir birtinguna. Lögreglustjórinn á Keflavík- flugvelli 16. janúar 1968 Björn Ingvarsson. Útgerðarmenn - skipstjórar Höfum fyrirliggjandi þriggja og fjögra kílóa neta- stein. IIELLUSTEYPAN. Sími 52050 og 51551. Húsfélög IMú er hagstætt að fá gólfteppalagnir í stigahús. Endingar- góð gólfteppi, eru ódýrari en dagleg ræsting dúka. Leitið tilboða. Álafoss ÚTBOÐ Tilboð óskast í gatnagerð og lagnir í Ártúnshöfða, iðnaðarhverfi, 2. hluta. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn 3.000 króna skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 6. febrúar n.k. kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Vonarstræti 8. — Sími 18800.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.