Morgunblaðið - 18.01.1968, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1968
7
og svo lagðist hann aftur I still-
ur og hreinviðri, og fór vel á því,
enda margir, sem halda því fram,
að þá sé fegurð íslands mest, þeg-
ar tunglskinið skín á hjarnið eða
spegilslétta firðina, hálfstirðnaða í
vetrarkuldum, norðurljósin braga
yfir höfðum okkar og jafnvel
Karlsvagninn tekur á sprett ásamt
hinum stjörnunum, bregður á leik
yfir himinhvolfið af einskærri
kátínu og gleði yfir fegurð him-
insins.
Sem ég nú lagði leið mína niður
á Lækjartorg til að huga að mann-
lífinu, sem alla jafna er líflegast í
kringum þá makalausu Persil-
klukku, sem orðin er eitt af eilífð-
armálunum, óumbreytanleg, þótt
stúlkumyndin breytist, og er þó
vel, að þeir klæddu hana ekki í
stutt pils — hitti ég mann á Út-
vegsbankahominu, sem var i happ-
drættisskapi:
Storkurinn: Hvað kætir hjarta
þitt svo mjög, manni minn?
Maðurinn í happdrættisskapinu:
Og ekki nema það, að nú hef ég
fundið lausnina á miklu vanda-
máli, sumsé því, hvernig á að fá
fólk til að una glatt við skatta
sina og útsvör. Það fer nefnilega
ekki á milli mála, að fslendingar
eru ein happdrættisglaðasta þjóð
veraldar, og þó víðar væri leitað,
eins og sagt er, og hvers vegna
mætti nú ekki efna til happ-
drættis í sambandi við skatta-
skýrslurnar.
Nota mætti nafnnúmerin fyrir
happdrættisnúmer, og í vinning
væri svo annaðhvort niðurfelling
á sköttum og útsvari það árið eða
einhver lágmarksvinningur, eins-
konar kauptrygging eins og hjá
sjómönnum. Mætti raunar hafa
vinningsnúmer fleiri en eitt Svo
þegar skattskrá yrði lögð fram
yrðl dregið með pomp og dragt,
og sannaðu til, fólk yrði þræl-
spennt, lifði a.m.k. I voninni um
stund, og myndi ég telja þetta með
bjargráðum.
Ja, þú segir nokkuð, manni
minn, sagði storkur, en einhvem
fyrirvara yrði að hafa á þessu, til
dæmis þann, að fólk hefði þó talið
fram í tíma, varla er þó hægt að
krefjast þess, að það teldi alveg
rétt fram, enda slíkt ekki lands-
siður, en allt um það, þá aðhyllist
ég tillögu þína, mér finnst ekkert
að þvi að bæta einu happdrætt-
inu við hin, sem fyrir eru, þetta
er hvort sem er allt ekkert annað
en happdrætti, og svo geta menn
sungið við raust eins og ég ætla
að gera, þegar ég kveð þig, manni
minn:
„I.ánið elti Jón, lét í friði mig.
Lánsami Jón, ég öfunda þig“.
FRÉTTIR
Æskulýðsfélag Laugarnessóknar
Fundur í kirkjukjallaranum I
kvöld kl. 8.30. Fjölbreytt fundar-
efni. — Séra Garðar Svavarsson.
Náttúrulækningafélag
Reykjavíkur
heldur félagsfund í matstofu fé-
lagsins, Kirkjustræti 8, mánudag-
inn 22. janúar kl. 9. Björn L. Jóns-
son læknir flytur erindi. Allir vel-
komnir.
Hrannarkonur —
Skipstjórnarmenn
Munið árshátíðina í Domus
Medica laugardaginn 20. jan. —
Hefst með félagsvist kl. 9 stund-
víslega. Dansað til kl. 2.
Heimatrúboðið
Almenn samkoma í kvöld kl.
8.30. Verið velkomin.
Næturlæknir í Hafnarfirði
aðfaranótt 19. jan. er Bragi Guð-
mundsson, sími 50523.
Frá Guðspekifélaginu: Guðjón B.
Baldvinsson flytur erindi í kvöld á
vegum Reykjavikurstúkunnar, í
Guðspekifélagshúsinu Ingólfsstræti
22. Erindið nefnir hann: „Glataði
sonurinn".
Verkakvennafélagið Framsókn
minnir félagskonur á spilakvöld-
ið fimmtudaginn 18. jan. kl. 8.30
i Alþýðuhúsinu. — Þriggja kvölda
keppni. Góð verðlaun í boði.
Filadelfía, Reykjavík
Vakningasamkoma hvert kvöld
vikunnar kl. 8.30. — Ræðumaður:
Victor Greisen, trúboði frá Banda-
ríkjunum. Allir velkomnir.
Kvenfélag
Fríkirkjusafnaðarins
heldur skemmtifund fimmtudag-
inn 25. janúar í Sigtúni. Spiluð
verður félagsvist og fleira. Takið
með ykkur gesti.
Stúdentar MR. 1958
Stúdentar frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1958
Fundur verður í Leikhús-
kjallaranum fimmtudaginn
25. janúar kl. 20.30. Fundar-
efni: 10 ára jubileum. Mæt-
um öll. — Bekkjarráð.
Kristniboðsvika
d Akranesi
Á samkomu kristniboðsvikunnar
I Akraneskirkju I kvöld kl. 8,30
talar Benedikt Arnkelsson guð-
fræðingur. Sýndar verða myndir
frá kristniboðsstarfinu. — Kristni-
boðssambandið.
Kvennadeild
Borgfirðingafélagsins
heldur fund fimmtudaginn 18.
janúar kl. 8.30 í Hagaskóla. Frú
Sigriður Þorkelsdóttir, snyrtisér-
fræðingur, mætir kl. 9.
Systrafélag Keflavíkurkirkjn
Fundur verður haldinn í Tjam-
arlundi fimmtudaginn 18. janúar
kl. 8.30.
Tilkynning til sóknarfólks
Símanúmer mitt er 16337 og
heimilisfang Auðarstræti 19. Séra
Ragnar Fjalar Lárusson, sóknar-
prestur í Hallgrímsprestakalli.
Breiðfirðingafélagið
Fyrsta skemmtikvöld ársins verð
ur haldið í Breiðfirðingabúð.
fimmtudaginn 18. jan. kl. 9. Fé-
lagsvist og dans. Heildarverðlaun,
farseðlar til Kaupmannahafnar
báðar leiðir.
Kvenfélag Kópavogs
heldur fund í Félagsheimilinu,
uppi, fimmtudaginn 18. janúar kl.
8.45.
Mæðrafélagskonttr.
Munið fundinn að Hverfisgötu
21 fimmtudaginn 18. jan. kl. 8,30.
Spilað verður Bingó.
Skagfirðingamótið 1968
verður haldið á Hótel Borg
laugardaginn 20. janúar og hefst
með borðhaldi kl. 7. Húsið opnað
kl. 6.30. Minni Skagafjarðar flytur
Ólafur B. Guðmundsson. Heiðurs-
gestur kvöldsins er Eyþór Stefáns-
son. Guðrún Á. Símonar syngur
lög eftir Eyþór Stefánsson. — Að-
göngumiða skal vitja fimmtudag-
inn 18. jan. í suðurdyrum á Hótel
Borg.
Þann 16. desember voru gefin
saman af séra Þorsteini Björns-
syni, ungfrú Helga Jónsdóttir,
Ljósvallagötu 32, og Fredrik Rioe.
Heimili þeirra er í Pettsburg, V-
Þýzkalandi. (Studio Guðmundar).
Þann 6. janúar voru gefin sam-
an í hjónaband í Dómkirkjunni af
séra Jóni Auðuns, ungfrú Klara
Hilmarsdóttir og Þórður Krist-
jánsson. Heimili þeirra er að
Garðastræti 21. (Studio Guð-
mundar).
Á annan í jólum opinberuðu trú-
lofun sína Ragnheiður Narfadóttir,
Hvassaleiti 85, og Gunnar Helgi
Guðmundsson, Litlagerði 6.
T áningadansleikur
í Glaumhœ
AHir vita, að táningarnir heimta
sina dansa, Vatusi, Sneeker, Cha-
polka, Cha, cha, cha, eða hvað þeir
nú heita, en ekki er alveg víst, að
allir kunni hin réttu spor.
Þess vegna ætlar dansskóli Her-
manns Ragnars að kynna þessa
nýjustu táningadansa i Glaumbæ
í kvöld. Sjálfsagt flykkjast táning-
ar á vettvang, og hér að ofan er
mynd af einu ungu paranna í dans-
skólanum.
Og svo er bara að stíga dansinn.
Iðnaðarhúsnæði til leigu, hentar vel fyrir saltfiskverkun eða verk- stæði. Sírni 16637 og 18828. íbúð til leigu Fámenn fjölskylda getur fengið 2ja—4ra herb. íbúð strax, gegn því að annast fatlaðan, eldri mann. Uppl. í sima 81990.
Aðstoða við skattframtal byggingarskýrslum og fl. Verð kl. 450—750. Innifal- ið 'kærur og bréfaskipti síðar ef með þarf. Sig. S. Wium, sími 40968. Reykjavík — Kópavogur Lítið hreinlegt iðnaðarhús- næði (um 20—30 ferm.) óskast til leigu. Tilb. send- ist Mbl. fyrir föstudagskv. merkt: ..Hreinlegt — 5243“.
Dömur Saumið kjólana sjálfar, — sníð, þræði og máta síða og stutta kjóla. Sími 24102. Oddný Sigtryggsdóttir, dömuklæðskeri. Skuldabréf ríkis- og fasteignatryggð, tekin í umboðssölu. Fyrir- greiðsluskrifst., Austurstr. 14, sími 16223. Þorleifur Guðmundsson heima 12469.
Ung kona óskar eftir atvinnu margt kemur til greina. Uppl. í síma 83578 3ja—4ra herb. íbúð óskast til leigu nú þegar. Axel Mogensen, simi 33104 eftir kl. 5.
Ráðskona óskast á fámennt heimili í þorpi á Suðurlandi Tilboð sendist Mbl. merkt: ,,Tvennt í heimilj nr- 5241“. Skipstjóri Vanur skipstjóri óskar eftir góðum vertíðarbát nú þeg- ar. Uppl. í síma 19698 milli kl. 13—18 í dag, fimmtudag
Húsbyggjendur athugið G’etum bætt við okkur smíði á innréttingum. Vönd uð vinna, valið efni. Leitið tilboða. Innbú sf., Skipholti 35, sími 36938. Herbergi eða lítil íbúð óskast 1. febrúar eða fyrr, helzt í Kleppsholtinu. Uppl. í síma 34814 frá kl. 2 e. h. í d&g.
Loftskeytamaður með starfsreynslu hjá Landssímanum óskar eftir atvinnu Margt kemur til greina. Uppl. í sima 32646. Hefilbekkir Notaðir hefilbekkir og blokkþvingur til sölu á Vatnsstíg 3, bakhúsinu.
Keflavík Líti'l íbúð óskast strax. — Uppl. í síma 1422. Sjónvarpsloftnet Annast uppsetningar og við gerðir og breytingar fyrir Keflavíkurstöðina. Uppl. í sfma 36629 og 52070 dag- lega.
Orðsending
Að marggefnu tilefni viljum við undirritaður sæl-
gætisframleiðendur aðvara þá, sem kaupa eða selja
söluturna eða verzlanir, sem verzla með okkar vör-
ur. Fari sala fram, án þess að áður hafi verið leitað
samninga við okkur um greiðslu á útistandandl
skuldum, munum við ekki afgreiða neinar vörur
til hins nýja eiganda.
Hlutaðeigendur eru beðnir að hafa þetta í huga
nú og framvegis.
Reykjavík, 15. janúar 1968 Sælgætisg. Opal
Sælgætisg. Freyja — Móna
— Víkingur Efnablandan h.f.
— Vala H. F. Nói.