Morgunblaðið - 18.01.1968, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FiMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1968
Undirbúningur hafinn á
svæði ÍR í Fossvoginum
Erlendur Valdimarsson setti 15
unglingamet á s.l. sumri, en Jón
Þ. Ólafsson vann beztu afrekin
AÐALFUNDUR ÍR var haldinn
Erlendur Valdimarsson ÍR setti 15 unglingamet á árinu — og
er hér við hlið Guðmundar H ermannssonar KR, sem setti 10
íslandsmet. Met Erlendar voru í kúluvarpi og kringlukasti,
en met Guðmundar í kúluvarpi inni og úti.
í Þjóðleikhúskjallarannum 10.
des. sl. Formaður félagsins,
Gunnar Sigurðsson setti fundinn.
Fundarstjóri var kjörinn Reynir
Sigurðsson, en fundarritari Þór-
ir Lárusson.
Formaður flutti skýrslu stjórn
ar, sem bar vott um mikið o.g
gott starf. Alls hélt stjórnin 35
bókaða fundi á starfsárinu. Lögð
var áherzla á að lagfæra IR-hús-
ið, það var málað að utan og
auk þess lagfærð böð og fim-
leikagólf. Einnig var endurbætt
hitakerfi.
ÍR var úthlutað svæði undir
starfsemi sína í Fossvogsdal á sl.
ári í tilefni 60 ára afmælis fé-
lagsins, sem var 11. marz. Und-
irbúningur er hafinn um skipu-
lagningu og mælingu svæðisins,
en það tók að sér verkfræðiskrif
stofa Sigurðar Thoroddsen.
Stjórnin leggur áherzlu á, að
skipulagning svæðisins verði vel
undirbúin og framkvæmdum
verði þannig hagað, að það bygg
ist upp með byggðinni í Foss-
vogsdal, svo að frumbyggjarnir
þar laðist strax að þessu íþrótta
svæði. Gísli B. Kristjánsson las
og skýrði reikninga, sem voru
samþ. einróma.
Sex íþróttadeildir
Innan ÍR eru starfandi sex
íþróttadeildir, skíðadeild, hand-
kn attleiksdeild, körfuknattleiks-
deild, frjálsíþróttadeild, sund-
deild og fimleikadeild.
Skíðadeildin starfaði af mikl-
um þrótti sem endranær. Skíða
skáli ÍR í Hamragili var mikið
notaður af skíðafólki félagsins.
í sumar var skálinn leigður út
sem barnaheimili og er í ágætu
ásigkomulagi. Dráttarbraut var
endurbætt og mikið notuð. Deild
in keypti ný tímatökutæki, sem
gerir framkvæmd móta mun
auðveldari, en áður var. Skíða-
fólk ÍR stóð sig með ágætum á
öllum kappmótum eins og mörg
undanfarin ár. Deildin sá um
framkvæmd Reykjavíkurmótsins,
sem tókst vel. Formaður Skíða-
■— —'
Dýrasta
félagslið
Breta
TOTTENHAM hefur ekki tek
izt að komast í efstu sætin í
ensku deildakeppninni í vet-
ur, en eigi að síður á félagið
dýrasta lið sem nú er leik-
andi í Englandi. í síðustu
viku keypti félagið 23 ára
gamla skyttu frá Southamp-
ton, Martin Chijyk fyrir 125
þús. pund.
Er þá kaupverð liðsmanna
Tottenham nú komið upp í
750 þús. pund eða rösklega
100 millj. isl. kr.
Framkvæmdastjóri félags-
ins leitar nú að góðum varn-
armanni til að styrkja lið
sitt og kveðst reiðubúinn að
borga 100 þús pund fyrir
hann, fái hann mann sem
hann sé ánægður með.
deildar ÍR er Reynir Ragnarsson.
Handknattleiksdeildin er að
mesetu skipuð ungu fólki, sem
starfaði vel á sl. ári. Handknatt
leiksmenn ÍR tóku þátt í öllum
flokkum karla fslandsmótsins.
Meistaraflokkur var í öðru sæti
2. deildar íslandsmótsins með 9
stig af 16 mögulegum. Efnt var
til afmælismóts, sem tókst ágæt
lega. Formaður Handknattleiks-
deildar ÍR er Þórarinn Tyrfings-
son, en aðalþjálfarar Sigurður
Bjarnarson og Jón Sigurjónsson.
ÍR-ingar tóku þátt í öllum
helztu sundmótum ársins. Bezt-
um árangri náðu Hrafnhildur
Guðmundsdóttir og Hörður B.
Finnsson. Allmargt ungt fólk
æfir nú sund innan félagsins,
sem á eftir að ná langt í fram-
tíðinni. Efnt var til afmælismóts,
sem tókst með ágætum. Nýr
þjálfari var ráðinn til deildar-
innar á sl. ári, Ólafur Guð-
mundsson og starf hans hefur
þegar borið góðan árangur. For
maður Sunddeildar ÍR er Örn
Harðarson.
Frjálsíþróttadeildin starfaði
af miklum dugnaði sl. ár. í
yngri flokkum hafði ÍR mikla
yfirburði yfir önnur félög og
framfarir voru miklar í flokki
ALLAR horfur eru nú á því, að
enn fleiri Danir gerizt atvinnu-
menn í knattspymu. Má það ef
til vill teljast nokkur von, því
bæði blaðamenn og eins forráða
menn knattspyrnumálanna, virð
ast alls ekki standa í vegi fyrir
slíku — heldur þvert á móti
hvetja þá frekar til þess.
Dregið í
happdrætti
* *
ISI
Dregið hefur verið hjá Borgar-
fógetanum í Reykjavík í Lands-
happdrætti Í.S.Í.
Upp komu eftirfarandi númer:
1. Jeepster jeppi 46479
2. Johnson vélsleði 41533
3. Johnson vélsleði 19059
4. Bátur m/utanborðsvél 6314
5. Þvottavél Hoover 31127
6. Þvottavél Hoover 7814
7. Þvottavél Hoover 13898
8. Kæliskápur 53725
9. Kæliskápur 8993
10. Saumavél Husqvarna 4145
11. Saumavél Husqvarna 27269
12. Saumavél Pfaff 28898
13. Saumavél Pfaff 20805
14. Saumavél Pfaff 30934
15. Saumavél Pfaff 10769
(Frá íþróttasambandi íslands)
þeirra eldri. Kvennaflokkur fé-
lagsins efldist mjög á árinu.
ÍR-ingar fóru í keppnisför til
Nor'ðurlanda í fyrrasumar, sem
tókst vel. Félagið var í öðru
sæti í Bikarkeppni FRÍ, en árið
áður voru ÍR-ingar í þriðja
sæti. Mesti afreksmaður deild-
arinnar var Jón Þ. Ólafsson —
en mestar framfarir sýndi Er-
lendur Valdimarsson, sem setti
15 unglingamet. Hinn gamal-
kunni þjálfari Guðmundur Þór-
arinsson réðist til félagsins á sið
ksta ári og vann þar geysimikið
og gott starf. Formaður Frjáls-
íþróttadeildar ÍR er Karl Hólm.
Körfuknattleiksdeild ÍR
er ein öflugasta deildin innan
ÍR. Starfið var gott á sl. ári
eins og mörg undanfarin ár. Fé-
lagið hlaut sigurvegara bæði í
íslands- og Reykjavíkurmótum.
í meistaraflokki karla var ÍR í
öðru sæti á báðum mótunum. Á
mótum sl. haust er greinilegt, a'ð
mfl. iR er í mikilli framför,
sigraði t. d. í Hraðkeppni KR um
jólin.
Formaður Körfuknattleiks-
deildar ÍR er Gunnar Petersen,
en aðalþjálfari er Einar Ólafs-
son.
Starf Fimleikadeildar er ekki
mikið og stjórn deildarinnar er
í höndum aðalstjórnar. „Old
boys“ og frúarflokkar störfuðu
á árinu.
Gunnar Sigurðsson var ein-
Til hamingju !
Það vakti mikla athygli, þeg-
ar formaður dönsku landsliðs-
nefndarinnar, Erik Hansen, lét
svo ummælt þá er hann vissi
um undirskrift fimmmenning-
anna á dögunum (landsliðsmann
anna John Steen Olsen, Erik
Dyreborg og Henning Boel, sem
fóru til Bandaríkjanna, og Tom
Söndergaard og Finn Laudrup,
sem gerðust atvinnumenn í Aust
róma endurkjörinn formaður ÍR,
en með honum í stjórn eru Hauk
ur Hannesson, Gísli B. Krist-
urríki), að hann óskaði þeim
innilega til hamingju og gæfu
og frama í atvinnumennskunni
og kvað þá hafa verið og von-
andi verða öðrum ungum dönsk-
um knattspyrnumönnum for-
dæmi.
Fimm nýir
Nú hefur þessi sami Erik Han-
sen valið fimm menn til sér-
stakra landsliðsæfinga í sitað
hinna fimm sem undirritað hafa.
Hinir nýju eru: Henning Munk
Jensen, Aab, miðframvörður,
Henrik Bernburg, AB, h. inn-
herji, Keld Bak, Næstved, h. inn
hverji, Ben>t Jensen, B1913, mið-
jánsson, Ágúst Björnsson, Öm
Harðarson, Pétur Sigurðsson og
Kristmann Magnússon.
herji og Vagn Hedager Esbjerg,
v. innherji.
Fleiri fara
Og Erik Hansen sagði:
— Ég er reiðubúinn að glíma
við og leysa fleiri vandamál í
sambandi við val .lamdsliðs. Það
kæmi mér ekki á óvart þó velja
yrði næstum nýtt lands.lið, áður
en kem-ur að fyrsta verkefni
þesis — pressuleik 28. maí. Ég
væri himinlifandi ef bara færu
þeir 5 sem farnir eru.
En reyndar mymdi það ekíki
koma mér á óvart þó að sam-
tals færu 25—30 leikmenn yfir
í atvinnumennsku, fyrst skriðan
er farin af stað. Og varðandi
hina nýju „fimmmenninga" þá
eru þeir allir vanir „andrúms-
loftinu hjá landsliðinu" í Söborg
Dad, Hafa allir verið þar nema
einn þeirra, Bent Jensen.
*
Og allt bendir til að spádóm-
ur þessa hugumstóra landsliðs-
nefndarformanns Dana muni
rætasit. Nú hafa þrir Danir lýst
sig fúsa að taka tilboði um 3
vikna „æfingaferð" til Bandaríkj
amna, þar sem þeir gætu einnig
kynnst bandarískum félögum og
skrifað undir. Hafa um 20 menn
í Danmörku, Svíþjóð og aðal-
lega þó í Þýzkalandi fengið slík
tilboð — og munu, að því að
fullyrt er, allir fá tilboð fyrir
vestan, og e.t.v. ekki sinúa heim
í bráð.
BROTIZT var tnn á heimili
frægs ítalsks kappgöngu-
manns, sem er m.a. Olympíu
meistari frá OL 1964 í 50 km.
göngu. Var stolið öllu safni
verðlaunagripa hans, svo og
skartgripum konu hans.
Undanúrslit um
deildabikarinn
FYRRl leikir undanúrslita
deildabikarsins enska fóru
fram í gærkvöldi og urðu úr-
slit þessi:
Derby County—Leeds United
0-1
Arsenal—Huddersfield Tn 3-2
Arsenal hefur ekki unnið
neina af stærri keppnum í
enskri knattspyrnu síðan
1953, en framkvæmdastjóri
félagsins Bertie Mee er afar
bjartsýnn um að félagið kom-
ist nú í úrslit í deildabikam-
um, en fyrst verði það að
sigra Derby County með sam-
anlagðri markatölu í tveimur
leikjum.
Leeds United er talið sigur-
stranglegast í þessari keppni,
er í öðru sæti í fyrstu deild,
og unnið fimm síðustu leikina
í röð í fyrstu deild — þá tvo
síðustu me’ð 10—, samanlagt.
Úrslitaleikurinn stendur
væntanlega milli Arsenal og
Leeds, en hann fer fram á
Wembley-leikvanginum í
næsta mánuði.
Framhald á bls. 28.
Danska landsliðið splundrast og
25-30 gerast atvi nnumenn
— segir form. landsliðsnefndar sem þó
er alls ekki svartsýnn