Morgunblaðið - 20.01.1968, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1968
5
v.
5
■
.
• ' 'A-"
Margir stórir kranar féllu niður í óveðrinu. Þessi tarundi ofan í þurrkvína við taöfnina i
Greenock.
Fjórar manneskjur fórust, ier skorsteinn hrundi niður í
gegnum þakið á taúsi einu.
GfFXJRLEGUR veðurofsi var
í Norður Evrópu aðfaranótt
miánudagsins sl. og varð veð-
urhæðin einna mest í Glasg-
ow í Skotlandi, þar sem þök
og bílar fuku og nokkrir fór-
ust af völdum veðursins.
í Glasgow búa nokkrir ís-
lendingar og þar hafa m.a.
Flugfélagsmenn bækistöð
sína. Mbl. átti símtal við einn
þeirra, Pétur Ingason, vél-
virkja.
— Óveðrið kom hér rétt
fyrir miðnætti og stóð fram
undir morgun, sagði hann.
Þetta var reglulegt íslenzfct
rok. Ofsinn í því var svo ægi
legur, þeir sögðu að vindhrað
Tveir af mjölmörgum bílum, sem skemmdust er þakplötur og annað drasl fauk á þá
Veðurofsinn var ægilegur
— segir Pétur Ingason, vélvirki Flugfélagsins í Glasgow
inn hefði komizt upp í 110
mílur á kist. Tré fuku, víða
urðu skemmdir á bílum og 11
manns fórust, mest við að
lenda undir rústum.
— Hvar voruð við? Gátuð
þið sofið?
— Nei, fæstir gátu sofið.
Ég var heima með konu og
tveimur börnum. Við búum
í Brediland, sem er um 7 míl
ur frá Glasgow.
— Voruð þið nokkuð búin
að búa ykkur undir þetta ó-
veður? Voru gefnar út nokkr
ar aðvaranir eins og í Dan-
mörku, þar sem einn veður-
fræðingur bjargaði frá stór-
tjóni.
— Nei, það var engin aðvör
un. Hér var einmitt talað um
það á eftir, að enginn hefði
fengið neina aðvörun. Veður í
breyttist víst svo skyndilega.
— Sáuð þið nokkuð af þess
um iskemmdum sem urðu?
— Nei, ekki meðan það
gerðist. Tjónið varð víst
rnest í gömlu hverfunum, þar
sem eru lélegri hús. í nýrri
hverfunum varð miklu minna
tjón. Þegar við komum hér
út um morguninn sáum við
eyðilegginguna. Þar voru upp /
rifin tré, sem sums staðar )
höfðu tekizt á loft og lágu
utan í húsunum. Og þetta eru
engin ismá tré. Og þakplöt-
ur lágu um allt, þar sem víða
hafði fokið járn af húsaþök-
um og bílskúrum.
— Annars var veðrið milt
um nóttina og hægviðri strax
morguninn eftir. Ekkert frost
fylgdi þessu óveðri. Um nótt
ina var hlýtt, um 8 stiga hiti,
en nökkur rigning fylgdi rok
inu.
— Úti á flugvellinum varð
Mtið tjón. Að vísu fauk allt
lauslegt, sem fokið gat. Ekfci
urðu aðrar sikemmdir á flug-
vélum en af smédóti sem
fauk utan í þær. Engin flug-
vél var á vellinum frá Flug-
félagi íslands, hún kom ekki
fyrr en diaginn eftir og þó
var allt með eðlilegum hætti.
— Hefurðu frétt að nofcfcur
Íslendingur hafi orðið fyrir
tjóni?
— Nei, ég held að enginn
hafi orðið fyrir neinu. Að
minnsta kosti höfum við ekki
frétt um það
llm skattfrádrátt
að námi loknu
Fjölmenn drshntíð Sjdlfstæðis-
félngnnnn í V-Barðnstrandnrsýslu
UM skattafrádrátt aS námi
loknu vegna námskostnaSar,
segir frá upplýsingaskrifstofu
stúdentaráðs.
í lögum nr. 90/1965 um tekju-
skatt og eignarskatt segir í 13.
gr. E lið, að námskostnað, sem
stofnað er til eftir tuttugu ára
aldur megi draga frá tekjum
næstu 5 árin, eftir að námi er
lokið, enda sé fullnægjandi
grein gerð fyrir kostnaðinn.
í regluigerð nr. 245/1963 um
tekjuskatt og eignarskatt segir
í B lið 35. gr., að nemanda beri
árlega að gera grein fyrix náms-
kostnaði sínum eftir 20 ára
aldur, ef hann vill njóta náms-
frádráttar fyrstu 5 árin að
námi loknu.
Einnig skal skattþegn, er
njóta vill frádriáttarins, leggja
fram með fyrsta framtali sínu
að námi loknu sundurliðað
heildaryfirli't yfir námekostnað
auk annarra nauðsynlegra upp-
lýsinga.
Ríkisskattstjóri hefur látið
gera sérstök eyðublöð, þar sem
námskostnaður er skráður og
síðan ber að senda með skatt-
framtali. Eyðublöð þessi fást í
Háskóla íslands 2. hæð, suður-
álnrni. Þar má einnig fá yfirlit
yfir námiskostnað í ýmsum
deildum Háskóla íslands og upp
ÁRSHÁTÍÐ Sjálfstæðisfélag-
anna í Vestur-Barðastrandar-
sýslu var haldin í Skjaldborg á
Patreksfirði sl. laugardag. For-
maður fulltrúaráðs Sjálfstæðis-
lýsingar um dvalarkostnað á
Görðunum, sem stúdentaráð
hefur láti'ð taka saman.
Stúdentaráð rekur nú eins og
sl. ár sérstaka upplýsingaskrif-
stofu, þar sem aðstoð verður
veitt til þess að fylla út náms-
kostnaðareyðublöðin gegn hóf-
legu gjaldi. Skrifstofan tekur til
starfa mánudaginn 22. janúar í
kjallara Nýja Garðs og verður
opin daglega frá kl 2 — 5 e.h.
fraim á föstudaginn 26. janúar.
Ragnar Þór Magnússon, stuid.
oecon., veitir skrifstofunni for-
stöðu*.
(Frá Stúdentaráði
félaganna í Vestur-Barðastrand-
arsýslu, Ásmundur B. Olsen odd
viti setti samkomuna og stjórn-
aði henni. Ræður fluttu Matthías
Bjarnason, alþm. og Ásberg Sig-
urðsson, sýslumaður. Þá var
sameiginleg kaffidrykkja og hóp
söngur við undirleik Magna
Steingrímssonar. Að lokum var
dansað. Samkoman var mjög
fjölsótt og hin ánægjulegasta.
Sjálfstæðiskonur á Patreksfirði
stóðu fyrir öllum veitingum,
sem voru hinar myndarlegustu.
Nauðungaruppböð
Að kröfu tollstjórans í Reykjavík og innheimtu-
manns ríkissjóðs í Gullbringu- og Kjósarsýslu verð
ur haldið við Bílaverkstæði Hafnarfjarðar í dag,
laugardaginn 20. janúar.
Seldar verða eftirtaldar bifreiðar: G-1829,
G-3423, G-4322, R-6344, R-16481, R-16548 og
R-19756.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.