Morgunblaðið - 04.02.1968, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1968
— Jeane Dixon
Framhald af bls. 10
hann verði áfram í kjöri. Hann
mun vinna landinu gagn eftir að
hann hættir störfum varaforseta.
Eins og ég benti á árið 1965
mun Romney ríkisstjóri ekki
hljóta útnefningu flokks síns.
Rockefeller ríkisstjóri, hefur
áhuga á henni. Richard Nixson
mun standa sig mjög vel. Percy
öldungadeildarþingmaður heldur
traustum höndnim um annað sæt
ið. Pólitísk framtíð Regans kem-
ur í Ijós smám saman, og örlaga-
nornirnar eru honum hliðhollar.
Á þessu stigi er ég treg til
að vera nákvæmari um útnefn-
ingu Repúblikana og sömuleiðis
um það ,hver sigrar í forsetakosn
ingunum. Árið 1966 spáði ég
sigri Regans í Kaliforníu og ég
varð þrumu lostin, þegár ég
komst að því, að margt fólk tók
spádóminn eins og æðri vísbend-
ingu og sneri baki við Brown
ríkisstjóra af þeirri ástæðu.
Síðar mun ég hugleiða, hvort
ráðlegt sé að birta nafn manns-
ins, sem vinnur kosnigarnar í
nóvember.
Af þeim fjórum mönnum,
t
Eiginkona mín, systir okk-
ar og mágkona,
Sigrún Andersen,
lézt að heimili sínu, Skrav-
erup, Danmörku 2. febrúar,
Christian Andersen,
Jenny Guðbrandsdóttir,
Hermann Guðbrandsson,
Oddný Þórarinsdóttir.
t
Eiginkona mín, móðir og
dóttir,
Sólveig Hjaltadóttir,
sem andaðist í Landspítlan-
um þann 28. fyrra mánaðar,
verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju mánudaginn 5.
febrúar kl. 1.30.
Skúli Helgason,
Elísabet Skúladóttir,
H.jalti Einarsson.
t
Tengdafaðir okkar og afi,
Ágúst Jósefsson,
fyrrv. heilbrigðisfulltrúi,
verður jarðsunginn frá Frí-
kirkjunni þriðjudaginn 6.
febrúar kl. 2 e. h.
Arinbjörn Þorkelsson,
Sigurður Stefánsson
og barnaböm.
t
Minningarathöfn um móður
mína og tengdamóður,
Jónínu Arnesen,
fer fram í Fossvogskirkju
þriðjudaginn 6. febrúar kl.
13.30.
Geir Amesen,
Ása Jónsdóttir.
t
Þakka innilega auðsýnda
samúð og vinarhug við and-
lát og jarðarför bróður míns,
Finnboga Rúts
Kolbeinssonar
frá Unaðsdal.
Fyrir mína hönr og annarra
vandamanna,
Elísabet Kolbeinsdóttir.
sem sækjast eftir forsetaembætt-
inu er aðeins einn þeirxa, sem
gæti stjórnað landinu, svo að vel
væri. Hinir þrír mundu valda
miklum skaða, án þesis þó að ætla
sér það. En ég hef sterkt hugboð
um, að fylgi repúblikana aukizt
og þeir vinni þingsæti og verð-
ur þá meira jafnvægi í þinginu
en nú er.
Fjórða pólitíska aflið mun
verða bandarísku þjóðinni þungt
í s'kauti. Það mun spretta upp
af kynþáttamálinu og verður
stjórnað af Sovétmönnum. Ég sá
dimmt ský yfir síðasta fundinum
í Chicago, þegar hin nýja vinstri
hreyfing kom þar saman.
Þetta fjórða afl, sem skipulags
snillingar frá Moskvu munu
stjórna, mun valda sundur-
þykkju á fundi Demókrata í Chi-
cago. Ég hef séð þrjá háttsetta
útsendara Sovétríkjanna aka um
í skrautvagni sem þrír hestar
draga. Ég sé stafinn S í sam-
bandi við nafn foringjans og ég
er viss um að það er Suslov.
Hinir áttu stafina A og P.
Morðið á Kennedy: James Garri-
son, saksóknari í New Orleans,
er á réttri leið í rannsókn sinni
á morðinu á Kennedy. Lee Har-
vey Oswald var ekki einn. Tvær
byssur voru notaðar við morðið.
En ýmis öfl, bæði innan Banda-
ríkjanna og utan, beita öllum
kröftum til að niðurlægja Garri-
son. Hann verður þvingaður til
að hætta rannsókninni og
kannski kemst sannileikur-
inn í máliinu ekki upp, að
minnsta kosti ekki meðan við
lifum. Ein'hvern veginn og ein-
hvern tíma mun það samt eem
áður komast upp að Clay Shaw
(sem er fyrir rétti í New Orle-
arus í sambandi við morðið)
hafði sambanda við háttsetta
menn í Washington.
Og einhvern tíma og einhvern
veginn mun það og komast upp,
að Kennedy forseta var kunnugt
um samsæri til að myrða Castro,
skömmu áður en hann var sjálf-
ur ráðinn af dögum.
Löndin fyrir botni Miðjarðar-
hafs: Það verða miklar styrjald-
ir í framtíðinni. Styrjöldin sem
við heyjum nú í Vietnam, er smá
vægileg í samanburði við það,
sem ég sé, að er í uppsiglingu í
öðrum löndum heims. Og mest-
ir verða atburðirnir í Austur-
löndum nær.
Nú eru herflokkax sem búa
sig undir þessa styrjöld að flytja
sig frá Sovétríkjunum til ýmissa
fylgiríkja þeiirra í Evrópu og
jafnvel til bandamannalanda
Bandaríkjann<a. Miklir herflutn-
ingar eru og til Vietnam. Sov-
ézkir flugmenn stjórna flugvél-
um Araba.
Sovétríkin: Smám saman mun
komimúnisminn eins og við þekkj
um hann núna eyðast. Einn góð-
an veðurdag munu Banidaríkja-
mena gera bandalag við Sovét-
menn gegn Kínverjum. Frelsi
einstaklingsins mun aukast í Sov
étríkjunum, og færast nær
Bandaríkjamönnum, enda munu
þeir taka ýmislegt úr bandarísku
lýðræði sér til fyrirmyndar. Það
er öruggt mál að kommúnism-
inn mun að minnsta kosti ekki
verða yfirsterkari. Leiðtogarnir í
Kreml munu horfaist í augu við
miklar breytingar í innsta hringn
um á þessu ári.
Dean Rusk: Mjög bráðlega og
löngu fyrÍT kosningarnar 1968
mun Dean Rusk láta af embætti.
Hann gerir það að eigin ósk tii
að taka að sér annað starf. Ann-
ar ráðherra, Fowler, mun láta í
ljós að hann hefur einhverja
breytingu í huiga.
Jackie Kennedy: Frú Jacque-
line Kennedy er ekki að hugsa til
giftingar. Hún giftir sig ekki fyrr
en tíminn hefur grætt sárin um
morðið á eiginmanni hennar og
andlát ungbarnsins, Patrick
Bouvier Kennedy. Undir lok árs
ins, og ekki fyrr, mun 'hún vænt
anlega hugsa til giftingar.
Krabbamein: Margir og miklir
áfangar nást í baráttunni gegn
krabbameini, en sem stendur sé
ég ekki að við munum sigrast á
þessuim hræðilega sjúkdómi í
eitt skipti fyrir öll.
Hjartagræðsla: Nauðsynlegt
er að rannsaka hjartagræðslu
meira, og sé, að nokkrir erlendir
aðilar muni gera eitthvað þvert
ofan í það sem búizt var við í
þessu efni. Fimm ár munu líða
unz slfkur uppskurður er örugg-
ur.
Efniáhagur: Efnahagsmál
Bandaríkjanna verða stöðug allt
árið. Einhver vandamál steðja að
á kauphallarmarkaðinum og hafa
í för með sér sveiflur, sem kunna
að verða hættulegar. Enska pund
ið verður fellt aftur og doHarinn
er í hættu árið 1968 og verður
ef til vill felldur. Margar atrenn-
ur verða gerðar að dollaranum
og er þar um að ræða samsæri
De Gaulle og Sovétríkjanna.
Suður-Ameríka: Kúba verður
áberandi. Kúba er mjög hættu-
leg. Hún heldur rýtingi á lofti og
miðar að Suður-Ameríku og
Bandaríkjunum. Vegna eyðingar
afla frá ítaliu og Kúbu verður
víða ókyrrð í Suður-Ameríku.
Þonsti þeirra í framfarir gerir þá
að auðveldri bráð svikulla vina.
ég sé brosandi andlit, en að baki
þeirra sjakala.
Fidel Castro hverfur skyndi-
lega af sjónarsviðinu einhvern
tímia í framtíðinni og það verður
ekki vegna eðlilegs dauðdaga.
Framtíð hans sést að ákveðnu
marki ,en hverfur þá snögglega
í hyldjúpt myrkur.
Afríka: Þetta er heimsálfa
mikilla blóðsúthellinga, sem
sprottin eru af miklu hættuspili
Sovétmanna og Kínverja.
Tízkan: Miniskirt-in halda vin-
sældum meðal kornungra
stúlkna, en þær sem eldri eru
munu síkka pils sín, kannski alit
að þumlungi niður fyrir hné.
Piltar halda áfram að líkjast
stúlkum, og stúlkur piltum. Þrátt
fyrir það glata stúlkur ekki kven
legum þokka sínum, né piltar
karlmennskuLegu yfirbragði —
nema síður sé.
Náttúruhamfarir: Vegna þess
að ég vil ekki valda óþarfa skelf
ingu vil ég aðeins segja að ég
sé — án þess að tiLgreina stað-
ina — mikla hvirfilbylji í febrú-
ar og ég finn jarðskjálfta á miðju
sumri, verða þeir sumir þar sem
sízt var hialdið.
— Um Jeane Dixon
Framhald af bls. 10
hún stofnaði til hjálp'ar nauð-
stöddum börnum, hvar sem er í
heiminum.
Margir lesendur þekkja að
nokkru feril Jeane Dixon. Með-
al margra spádóma hennar, sem
reynzt hafa réttir eru þegar hún
sagði fyrir um dauða Franklin
D. Roosevelt Bandaríkjaforseta,
morðið á Ma'hatma Gandhi, ósig-
ur Churchills árið 1945, endur-
kosning Trumans 194í8, skipting
Indlands, valdataka kommúnista
í Kína, fyrsti Spútnik Rússanna,
valdataka Krúsjeffs og fail hans,
úrslit í sex forsetakosningum í
Bandaríkjunum frá 1944 til 1964,
sigur Ronalds Regan í Kali-
fomíu, flqgslysið er Dag Hamm-
arskjöld fórst, sjálfsmorð Mari-
lyn Monroe og svo mætti lengi
telja.
Margir þessara spádóma eru
skjalfestir í bókinni „A gift of
Prophecy: The phenomenal
- SPÁDÖMAR
Framhald af bls. 10
Tvíburarnir 21. maí—20. júní.
Gott tækifæri til heillaríkra viðskipta.
Settu skoðanir þínar fram á einarðan
og rólegan hátt. Farðu að öllu með gát
í peningamálum þótt útlitið sé gott.
Krabbinn 21. júní—22. júlí.
Reyndu að standa við allar skuldbind-
ingar þínar, og kipptu í lag því sem þú
hefur ef til vill vanrækt yfir helgina.
Þú munt eiga góð samskipti við fólk í
dag. Brostu.
Ljónið 23. júlí—22.ágúst.
Taktu daginn snemma og notaðu vel
orku þína. Leitaðu nýrra frétta og þú
skalt bregða skjótt við, ef tækifærið
býðst.
Jómfrúin 23. ágúst—22. sept.
Ágætur dagur fyrir verzlunarferðalög.
Skipztu á hugmyndum við samstarfs-
menn sína. Sýndu fólki sem veit hefur
á verk þín, eða það sem þú ert að vinna
að.
Vogin 24. sept.—22. okt.
Dagurinn er sérstaklega ákjósanlegur
til hvers konar verzlunarviðskipta, en
gleymdu ekki að fá þér góðan hádegis-
verð í ró og næði. Þú færð góða hug-
mynd.
Sporðdrekinn 23. okt.—21. nóv.
Þú verður að hafa sérstaklega góða
stjórn á skapi þínu og sýna mikla kænsku
og stillingu í samskiptum við ákveðna
aðila. Þú getur forðast leiðindi og angur
með því að sýna samstarfsvilja. Vinur
þinn mun gera sér sérstakt kostaboð.
Bogmaðurinn 22. nóv.—21. des.
Leggðu alla krafta þína í starfið í dag.
Viðskipti munu blómstra. Þegar þú
kemur heim, skalt efna til fagnaðar, sem
allir hafa gleði af.
Steingeitin 22. des.—19. jan.
Fundir og hvers konar mannamót hag-
stæð í dag. Það getur verið að þú kynn-
ist nýju fólki í dag, sem mun ráða þér
heilt nú og síðar.
Vatnsberinn 20. jan.—19. febr.
I dag er gott að nota tímann til að
skrifa bréf og koma með tillögur. Athug-
aðu hvort tryggingar eru í gildi og hækk-
aðu þær ef þörf er. Vertu heima við
eða á vinnustað frekar en fara í heim-
sókn.
Fiskarnir 10. febrúar—20. marz.
Þú skalt hlusta frekar en tala í dag.
Gefðu gaum að því sem við þig er sagt
og hvað þér er boðið og settu fram skoð-
anir þínar á hógværan hátt. Sýndu öðr-
um traust.
Jeane Dixon“, sem gefin var út
1965 og er höfundur hennar
Rut'h Montgomery. Sú bók hefur
síðan birzt á fjölmörgum tungu-
málum og mun hafa selzt í meira
en þremur milljónum eintaka.
Margir hafa tekið djúpt í ár-
inni, þegar þeir hafa lofað Jeane
Dixon fyrir yfirnáttúrlega gáfu
hennar og nákvæmni í spádóm-
um. Blaðið „The Christian Her-
ald“ segir að spádómar Dixon
séu merkastir allra spádóma ef
frá eru taldir spádómar Biblíunn
ar.
Jeane Dixon segir, að sýnim-
ar séu sjaldgæfastar. Stundum
séu henni gefmar þrjár sýnir á
einu ári, önnur ár alls engar.
Hún segir, að sýnin sé heilög
og guðdómleg og birtist henni,
þegar guði sé það þóknanlegt.
Jeane Dixon notar yfirleitt kriist-
alkúlu til að spó, en segiist í
rauninni ekki þurfa hana, en hún
geti stundum hjálpað sér.
Wall Street Journal segir 17.
nóvember 1965, að Jeane Dixon
hafi nokkrum sinum birt spá-
dóma, sem sannað sé að hafi
verið rangir. En sé á heildina
litið séu spádómar hennar svo
réttir og nákvæmir, að yfimátt-
úrlegt megi telja. Jeane Dixon
hefur skýrt ástæðu fyrir því að
sumir spádómar hennar eru ekki
réttir. Hún hafi séð hin réttu
tákn, en hafi lesið rangt úr þeim.
Sumir spádómamir séu tíma-
bundnir og standist ekki alltaf,
þar sem viðkomandi menn geti
skipt skyndilega um skoðun.
Jeane Dixon er fædd í Med-
ford í Wiscounsin, en ólst upp í
Santa Rosa og Los Angeles í
Kaliforníu. Fljótt fór að bera á
yfirnáttúrulegum hæfileikum
hjá henni og fyrstu kristalskúl-
una fékk hún að gjöf þegar hún
var aðeins átta ára gömuL
Rúmlega tvítug giftist hún
James L. Dixon, og hafa þau
hjónin verið búsett í Washing-
ton, þar sem James Dixon rekur
fasteignasölu, í meira en tuttugu
ár. Hún varð fljótlega mjög
þekkt í Washington fyrir spá-
dómsgáfu sína, ekki sízt meðal
ýmissa embættism.anna, stjórn-
málamanna og erlendra sendiráðs
starfsmanna, sem mikinn áhuga
höfðu á spádómum hennar.
Jeane Dixon er grönn, bláeygð
og jarphærð. Hún er kaþólskrar
trúar og sækir guðsþjónustur á
hverjum degi. Hún hvorki reykir
né drekkur ,neytir hollrar fæðu,
einkum ávaxta og grænmetis.
Þekktur geðlæknir, dr. Regis
Riesenman sem hefur að áhuga-
máli að rannsaka starfseipi miðla
er ákafur aðdáandi Jeane Dixon.
Hann hefur sagt um hana: „Hún
er einn af tveimur eða þremur
stórkostlegustu miðlum og sjá-
endum okkar tíma, vegna þess,
að hún hefur aldrei gert gáfu
sína að verzlunarvöru og hún of-
metnast ekki. Ég tel frú Dixon
vera heilaga manneskju. Við
rannsóknir mínar á þekktum
miðlum hefur ýmislegt komið í
Ijós, en aldrei nokkurn tíma hef
ég reynt frú Dixon að svikum
og óheiðarleika".
Innilegar þakkir fyrir
margvíslega vináttu og hlýj-
ar kveðjur, á 60 ára brúð-
kaupsafmæli okkkr 23. janú-
ar sl.
Gúð blessi ykkur öll.
Sigurbjörg Gunnarsdóttir,
Steinn Þórðarson,
Kirkjulæk.
/