Morgunblaðið - 04.02.1968, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 04.02.1968, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1968 MARY ROBERTS RINEHART: SKYSSAN MIKLA safna s'kuldum. Hún átti nóga au$a. — Já, ég skil. Hún átti nóga aura. Það var næg ástæða, var ekki svo? Þetta hlýtur að hafa verið þægileg tekjulind, meðan það var. En nú er það hara ekki lengur. Reyndu að gera þér það ljóst. Þú ert búin að vera. Hann stóð snöggt upp, velti stólnum og skellti hurðinni um leið og hann fór út. Þetta hiýtur að hafa látið í eyrum eins og bardagi, hjá þeim, sem í búrinu voru. Að minnsta kosti var þann- ig skýrt frá því næsta dag, þegar lögreglan kom að yfirheyra Reyn olds. — Þér segið, að þau hafi rif- izt? — Já, það heyrðist mér. Hr. Tony virtist æstur. — Heyrðuð þér nokkuð, sem hann sagði? — Hann sagði, að þessu væri lokið. Hann sagði, að frú Wain- wright væri búin að vera. Meira get ég ekki munað. — Og skildi hann við hana þarna í borðstofunni? — Já, hann velti stólnum um leið og hann stóð upp. Þegar ég heyrði hurðina skella, fór ég þangað. — Og var frú Wainwright þá þar enn? — Já, hún var að kveikja sér í sígarettu. 36. kafli. Bessie fannst snemma næsta morgun. Andy McDonald var á leið í þorpið í bíllnum sínum, sá eitthvað litsterkt rétt utan við vesturdyrnar. Hann steig út til þess að aðgæta þetta betur, og þetta var þá Bessie — ennþá íklædd eldrauða kvöldkjólnum sínum, sem hún hafði verið í kvöldinu áður. Hún lá á grúfu, og perhiskefta skammbyssan lá við hliðina á henni. Hún virtist ekki hafa haft svigrúm til að nota hana. Hann laut niður yfir hana, og sá, að hnakkinn á henni var blóðugur og brotinni. En ’hann ar nærfærinn, eins og Skota sæmdi. Hann hringdi dyrábjöllunni og skipaði Reyn- olds að ná í lögregluna. Síðar stóð hann á verði. Hann leyfði engum að koma nærri líkinu, og sjálfur snerti 'hann það ekki. — Farið þið frá, sagði hann við þjónustufólkið, sem var farið að flykkjast út. Farið þið frá, eða ég lem ykkur í hausinn. Svona var aðkoman hj'á mér, þegar ég kom akandi morguninn eftir. Eftir andvökunótt. Þarna 76 var Andy á verði, Bessie liggj- andi á jörðinni, hliðardyrnar opn ar og Reynolds að stugga fólkinu frá. Andy vildi ekki einu sinni lofa bílnum mínum að komast framhjá, eða mér að stíga út. — Vertu kyrr þarna, sagði hann. — BLANCHARD-uppþvottavélar Loksins er uppþvottavélin orðin að einföldu og öruggu heimil- istæki, sem allir geta eignazt. Kanadísk framleiðsla — knúðar vatnsþrýstingi — innbyggðar — einföld uppsetning — þvo upp á 3 mínútum — reksturs- og viðhaldskostnaður úr sögunni. UMSAGNIR ÍSLENZKRA EIGENDA: A) Við vitum ekki lengur hvað uppþvottur er. B) Ég var hrifin fyrst, en er ennþá hrifnari núna. C) Örugglega snjallasta nýjung á sviði heimilistækja í langan tíma. Tveggja ára ábyrgð. Verð m. sölusk. kr. 9.355.— Greiðsluskil- málar. Söluumboð: Nýborg, Hverfisgötu 76. Eldhúsið s.f., Laugavegi 133. Haraldur Eiríksson, Raftækjaverzl. Vestmannaeyjum. Einkaumboð: Alur h.f., Reykjavík, sími 13051. — Hvar er bankabókin þín? Hver veit nema einhver spor séu hérna. — En hvað er að? sagði ég, ringluð. — Er hún ....? — Já, hún er dauð, sagði hann. — Ég kunni nú aldrei við hana. En 'hún hefur verið myrt, og lög- in eiga að ganga fyrir öllu öðru. Mér varð óglatt. Ég var eins og Andy með það að 'hafa aldrei kunnað við hana, en hún hafði elskað lífið. Á því höfðu einmitt höfuðgallar hennar byggzt — þessi græðgi að fá sem allra mest út úr lífinu. Nú var hún ekki ann að en aldrauð hrúga, fyrir neð- an þnepin við vesturdyrnar. Lá þarna bara. Ekki svo að skilja, að ég hafi verið að hugsa allt þetta. Þarna var enginn tími til neinna þenk- inga. Ég heyrði í 'bdl fyrir aftan mig og sá mennina úr talstöðvar- bílnum fara fram hjá mér. Ég sá Reynolds rétta fram teppi til að hylja hana með, en Andy veifaði honum frá. Einnig sá ég Jim koma og lúta yfir hana'. En þetta var allt óeðlilegt. Ég áttaði mig ekki til fulls fyrr en Tony ýtti gapandi fólkinu í dyrunum tii hliðar og kom út. Það var nístingskalt. Mennirn- inir, að Tony meðtöldum, stóðu þarna og horfðu á hana. Jim hvæsti úr sér einhverri skipun, og Reynolds rétti bonum teppið. Húsdyrunum var lokað og að- eins fimm menn — Andy einn þeirra — urðu eftir úti. Ég gat ekki séð framan í Tony. Jim gekk um og horfði til jarðar. Thomas kom með yfirfrakka handa Tony og færði hann í hann. Um leið sneri hann sér við til hálfs og sá mig. Hann sagði eitt- hvað við Jim og þeir gengu til mín, þar sem ég sat í bílnum. Tony leit út líkt og mér leið — honum var óglatt. Það var Jim, sem rauf þögnina. — Farðu heim, Pat. Þú ert bara fyrir hérna, en getur ekkert gert. — Getið þið ekki farið með hana inn. Það er svo kalt hérna úti. — Við erum að bíða eftir hon- um Bill Sterling. Ég skalf af kulda. Tony seild- ist inn í bílinn og setti hitann á. Hann hafði enn ekki sagt orð. — Það bætir ekki úr skák þó að þú fáir lumgnabólgu, sagðihann lágt. Farðu inn og fáðu þér heitt kaffi. Og það spillir ekki að setja ofur- lítið konjak út í það. Þeir vildu ekki, að ég væri þarna. Ég var eins og villt í þess- um heimi tómra karlmanna, sem einir gátu fengizt við annað eins og þetta, karlmenn, sem vildu ekki, að ég sæti þarna í bílnum og væri að glápa á þá, karlmenn, sem biðu þarna rólegir og biðu eins í viðfoót og létu Bessie liggja á frosinni jörðinni. Ég sneri bílnum við. Þarna voru fleiri menn á veginum, hestasveinar, bílstjórar og nokkr ir garðyrkjumennirnir. Andy hafði haldið þeim í fjarlægð, en þarna stóðu þeir — einir tuttugu talsins, eða fleiri. Mtorð voru sýnilega karlmannsverk. Hvað hafði Amy sagt? Allt kemur þris- var. En mennirnir vor.u ekki þrír og þrír. Mennirnir ...... — Gus! kallaði Tony hvasst. — Aktu henni ungfrú Pat niður í þorpið. Og segðu henni ungfrú Mattie Sprague að koma ihenni í rúmið. Ég var nú við fulla miðvitund, en ég hríðskalf. Ég færði mig til og Gus settist í ökusætið og setti bílinn í gang. Við mættum Bill rétt við hliðið, en hann tók ekki einu sinni eftir okkur. — Ef yður er óglatt, ungfrú, þá beygið böf- uðið niður milli hnjánna. Ég gerði það og Gus studdi mig með annarri hendinni. — Það var rétt og! sagði han-n. Ég skal koma yð- ur heim í hvelU. Ungfrú Mattie á kannski eitthvað sterkt handa yður. — Það fougsa ég ekki og ég vil það foeldur ekki. — Þá skal ég ná í það hjá Nel- son, sagði Gus, fullur umhyggj.u. Og þér skuluð taka það, hvoxt sem yður langar í það eða ekki. Þetta er allsherj armeðal karl- mannanna, hugsaði ég og þerraði augun. Bessie liggur dauð á jörð inni og Tony og Gus vilja hella í mig áfengi. Ég rak upp hlátur og samstundis varð klappið hjá Gus að barsmiið. Ég varð svo hissa, að ég hætti að hlæja og glápti á hann. — Fyrirgefið, en ég varð að gera það, sagði hann. — Það dug ar ekki, að þér farið að sleppa yður. Ég vona, að þér gleymið þessu. Ég var talsvert æstur sjálfur. RANNVEIG OG KRUMMI HLJÓIViPLATAN SEM SELDIST upp á svipstundu í desember, er nú komin í hljómplötuverzlanir Hljómplötuútg. S/F.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.