Morgunblaðið - 06.02.1968, Page 2
2
MORGUISrBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1968
OFSAVEÐUR - margvíslegt tjdn
- bátar og mannvirki skemmdust
- símalínur slitnuðu - raf magns-
truflanir - fólk veðurteppt
- engin slys á landi
VÍÐA urðu skemmdir á
mannvirkjum af völdum ó-
veðursins, sem gekk yfir
Vestur- og Norðurland um
helgina, en ekki er kunnugt
um nein slys í landi. Fólk
tepptist víða vegna veðurs-
ins, símalínur slitnuðu og
miklar rafmagnstruflanir
urðu á vestanverðu Snæ-
fellsnesi og á Vestfjörðum.
Á Siglufirði féll snjóskriða
á íbúðarhús og olli stór-
skemmdum, báta rak á land
í Stykkishólmi og trillubát-
ur sökk í höfninni á Húsa-
vík. Járnplötur fuku af hús-
um í Hellissandi, Stykkis-
hólmi, Hvallátrum í Breiða-
firði, Bolungarvík og víðar
urðu miklar skemmdir á
mannvirkjum. Tveir bátar
skemmdust í höfninni í
Stykkishólmi og Bolungar-
víkurbátar leituðu vars á
ísafirði.
Ekki er kunnugt um tjón
á sunnanverðum Vestfjörð-
um né í Skagafirði eða Eyja-
firði.
Er þetta eitthvert versta
veður, sem menn muna eft-
ir, og er því helzt líkt við
Halaveðrið mikla, sem
mjög er frægt.
Skólastarf stöffvast í Miklaholts-
hreppi.
Borg, Miklaholtshreppi, 5. febr.
SÁ vetur, sem nú ríkir, byrjaði
hér óvenju snemma og var sauð-
fé komið í hús um mánaðamót-
in október — nóvember. Segja
má. að hér hafi verið stöðug ó-
tíð og umhleypingar, frosthörk-
ur tíðar og svellalög hafa gert
haglaust.
Með komu þorra hefur þá enn
hert vetrarhörkuna. Fyrsti þorra
dagur heilsaði að vísu með 2
stiga hita, en upp úr hádegi
þann dag gerði norðan ofsa byl
með 10 stiga frosti.
Sumir bændur áttu fé sitt úti
þann dag, en veðurofsinn var
skammær, svo fé sakaði ekki, en
erfiðlega gekk sums staðar að
koma því í hús.
Á laugardaginn var hér stillt
veður og kom þá fólk saman
í félagsheimilinu B-eiðablik og
spilaði félagsvist. Um miðnætti
skall á norðan stórhríð og átti
fólkið í erfiðleikum með að kom
ast heim. Nokkuð af fólkinu
komst að Vegamótum og Gröf og
beið þar það sem eftir var næt-
ur. Sumir komust ekki heim fyrr
en síðdegis í gær og þeir síðustu
ekki fyrr en í dag.
Nemendur Laugagerðisskóla
fóru heim í helgarfrí á föstu-
dag og áttu að mæta í skólann
aftur í dag. en nú hafa allar
leiðir lokazt og er óvíst, hvenær
kennsla getur hafizt að nýju.
AUan daginn í gær og í nótt
hefur geisað hér stórhríð sam-
fara afspyrnuroki. Ferðir mjólk-
urbílsins hafa fallið niður. en
engu farartæki er fært í þessum
veðurofsa.
Ekki er kunnugt um neina
stórskaða, eða slys af völdum
þessa veðurs, sem er það versta
á þessum vetri.
— Páll.
Nokkrir skaffar á Húsavík
AF óveðrinu. sem hér gekk yfir
aðfaranótt sunnudagsins, urðu
nokkrir skaðar hér á Húsavík.
Trillubáturinn Sigurpáll, eign
Karls Pálssonar, sökk á höfninni
og er álitið, að rekís, sem var í
höfninni hafi sökkt honum.
Tvær stórar hurðir á Kísiliðju-
skemmunni fuku upp og eyði-
lögðust, en aðrar verulegar
skemmdir urðu ekki á skemm-
unni.
Símabilanir urðu nokkrar og
línan milli Húsavíkur og Lind-
arbrekku er slitin, svo að sam-
bandslaust er nú við Kópasker
K. M.)
og Raufarhöfn. Línan milli Húsa
víkur og Akureyrar er biluð, en
þó samband á henni. Sveitalín-
ur biluðu víða. — Fréttaritari.
Versta veffur í sextán ár.
Stykkishólmi, 5. febrúar.
í Stykkishólmi fóru tveir bát-
ar upp í óveðrinu og flóabátur-
inn Baldur og Eyfellingur rák-
ust saman í höfninni og urðu
nokkrar skemmdir á báðum
bátunum.
Á flóðinu á sunnudagskvöld j
náðust bátarnir tveir, - Sigurfari I
og Nonni, á flot og voru þeir |
lítið sem ekkert skemmdir.
Járnplötur fuku af þökum tré-
smiðjunnar Ösp í Stykkishólmi
og pakkhúsi kaupfélagsins á
staðnum. Vinnuskúr, sem verið
var að setja niður við skipa-
smíðastöðina Skipavík, fauk al-
veg.
Að Hvallátrum í Breiðafirði
fauk einn fjórði af öðru fjár-
húsinu og járnplötur fuku af
þaki hins. Af smiðahúsi Aðal-
steins Aðalsteinssonar fuku
margar járnplötur.
Bóndinn að Hvallátrum. Jón
Davíðson, tjáði fréttamanni Mbl.
í gær, að annað eins veður hefði
ekki komið þar í ein sextíu ár.
Á sunnudag rak íshroða inn
í höfnina í Stykishólmi og í dag
nær íshroðinn inn undir Brokey
og langt út frá Stykkishólms-
höfn.
— Fréttaritari.
Litlar skemmdir á ísafirffi.
ísafirði, 5. febrúar.
ÞEGAR veðrið skall á aðfara-
nótt sunnudags voru margir Boi
víkingar og Hnífsdælingar stadd
ir á ísafirði og uvðu þeir veð-
urtepptir, gistu ýmist á hótelum
bæjarins, Hjálpræðishernum og
Mánakaffi eða um borð í vél-
bátnum Guðmundi Péturs frá
Bolungavík, sem lá hér í höfn-
inni. Allmargir ísf rðingar voru
istaddir í Hnífsdal og lögðu
nokkrir þeirra f stað um nótt-
ina eftir að veðrið var skollið
á og festust nokkrir bílar á Eyr-
arhlíð milli Hnífsdals og ísa-
fjarðar. Munu 13 manns hafa
verið í þessum bílum og brauzt
maður e nn í bæinn í sótsvarta
byl og ofsaveðri, og gat tilkynnt
hvernig komið var.
Klukkan 7 á sunnudagsmorg
un var hjálparsveit skáta kvödd
MBL. hefur borizt eftirfarandi
fréttatilkynning frá Verka-
mannasambandi íslands. Síffar
verffur skýrt frá helztu sam-
þykktum þings þess:
3. þing Verkamannasambands
íslands var haldið í Reykjavík,
í Lindaibæ, 3. og 4. febrúar
1968.
Þingforseti var Hermann Guð
mundsson formaður Verka-
mannafélagsins Hlífar í Hafnar-
firði og varaforsetar Jóna Guð-
jónsdóttir formaður Verka-
kvenna félagsins Framsókn í
Reykjavíkur og Óskar Garíbalda
son formaður Verkalýðsfélags-
'ns Vöku Siglufirði. Ritarar
þingsins voru Hallgrímur Pét-
ursson, Hafnarfirði og Tryggvi
Emilsson, Reykjavík.
Auk skýrslu sambandsstjórn-
?r, reikninga sambandsins fyrir
árin 1965 og 1966 og fjárhags-
áætlunar fyrir árin 1968 og
1969, voru aðalmál þingsins
kjara- og atvinnumálin.
út og beðin að fara í skyndi út
á Eyrarhlíð með fatnað og heitt
kaffi. Um kl. 8 lögðu skátarnir
af stað og gátu fært fólkinu föt
og hressingu. Rétt eftir hádegi
fóru svo skátarnir aftur með
hlífðarföt til þess að fólkið gæti
komizt í bæinn. Fólkið í bílun-
um var ekki útbúið til að ganga
í þessu veðri, en þó mun ekk-
ert hafa orðið að því.
Veðurofsinn var svo mikill og
sort nn, að skátarnir tóku það
ráð, að hafa línu á milli sín.
Þegar þeir lögðu af stað til ísa-
fjarðar með fólkið, höfðu allir
línu á milli sín.
Tókst þetta ágætlega og
komst fólkið klakklaust til
bæjarins með aðstoð skátanna.
Eftir hádegi í gær fór annar
hópur úr hjálparsvelt skáta upp
á Seljalándsdal, til aðstoðar
skólabörnum, sem voru í útilegu
í skíðaskálanum. Voru ungling-
arnir í Harðarskálanum orðnir
olíu- og matarlitlir, en leið að
öðru leyti vel. Skátarnir fóru
síðan aftur í dalinn í birtingu
Þá var einnig rætt um Iögin
um atvinnuleysistryggingar og
samþykkti þingið tillögu um að
skora á Alþingi að gera á þeim
ákveðnar breytingar.
Stjórn sambandsins var að
mestu endurkjörin, en hana
skipa:
Formaður:
Eðvarð Sigurðsson, Reykjavik.
Varaformaður:
Biörn Jónsson, Akureyri.
Ritari:
Hermann Guðmundsson Hafn-
arfirði.
Gjaldkeri:
Björgvin Sigurðsson Stokks-
eyri.
Meðstjórnendur:
Björgvin Sighvatsson, ísafirði,
Guðmunda Gunnarsdóttir,
Vestmannaeyjum,
Herdís Ólafsdóttir, Akranesi,
Jóna Guðjóndóttir, Reykjavík
Óskar Garíbaldason, Siglufirði,
í morgun, til að flytja börnin i
bæinn og voru þau öll komin
hingað eftir hádegi í dag ,og
hafði ekki orðið meint af útivist
inni.
í þessu veðri hafa orðið nokkr
ar símabilanir, m.a. er sam-
bandslaust við bæina í ísafjarð
ardjúpi.
Hér í bænum munu litlar
skemmdir hafa orðið í þessu
veðri, að öðru leyti en því, að
loftnet hafa víða slitnað niður.
í gærkvöldi voru lítilsháttar raf
magnstruflanir, en þær komu
ekki að sök. Slökkt var á götu-
ljósum, til þess að meira raf-
magn væri í heimahúsum.
Mikinn snjó hefur sett niður
í þessu veðri, en er þó hvergi
jafnfallinn, því í veðurofsanum
hefur skafið mikið og víða hef-
ur dreg'ð í mikla skafla. Þung
færð er á götum bæjarins og
margir bílar sitja fastir og allir
vegir úr bænum eru ófærir. Ó-
fært er til Bolungavíkur og Súða
víkur og sömuleiðis inn á flug-
völl og á_ Eyrarhlíð milli Hnífs-
dais og ísafjarðar er sagt að 8
bílar séu í kafi í snjó.
Mikið fannfergi er á Óshlíð
og vegunum hér í grennd og má
búast við að mikið verk verði
að ryðja þá.
Öllum skemmtunum, sem áttu
að vera í gærkvöldi hér á ísa-
firði var aflýst vegna veðurs.
— Högni.
Húnveíningar tepptir í Ásbyrgi.
Staðarbakka, 5. febrúar.
ADFARANÓTT sl. sunnudggs
skall hér á norðan- og norðaust-
an ofviðri með snjókomu, sem
hefur haldizt fram til þessa, en
nú er heldur að lægja og hríð-
arlaust orðið að minnsta kosti
í innsveitum. Færð er slæm á
flestum vegum, en þó munu
jeppar hafa komizt eitthvað um
enda orðið frostlaust.
Á laugardagskvöldið var á
annað hundrað manns á þorra-
blóti í félagsheimilinu Ásbyrgi.
Héldu flestir þar kyrru fyrir til
morguns, en þá fór fólkið að ó-
kyrrast og lagði út 1 ofviðrið.
Lentu ýmsir í nokkrum hrakn-
ingum á heimle.ðinn, en ekki
hlauzt slys af.
Eins og oft er þegar svona
kemur fyrir kemst fólk að því,
að það er ekki nægilega vel út-
l búið til að lenda í ofveðri og
var svo í þetta sinn. Gengur
okkur illa að muna, að veður
getur oft breytzt skyndilega hér
I á landi. — Fréttaritari,
Ragnar Guðleifsson, Keflavík,
Sigfinnur Karlsson, Neskaup-
stað.
Varamenn í sambandsstjórn:
Guðm. J. Guðmundsson, Rvík,
Sigurrós Sveinsdóttir, Hafnarf.
Halldór Björnsson, Reykjavík,
Þórunn Valdemarsdóttir, Rvik,
Páll Árnason, Raufarhöfn.
Endurskoðendur:
Hallgrímur Pétursson, Hafnar-
firði og Sigurður Árnason,
Hveragerði.
Til vara:
Björn Sigurðsson, Reykjavík.
Annríki b Aþenu
Aþenu 5. febrúar, AP.
GRÍSKA ríkisstjórnin til'kynnti í
dag. að 21 foringi í gríska flug-
hernum hefðu verið látnir hætta
störfum, vegn,a meintrar þátt-
töku þeirra í gagnbyltingartil-
raun Konstantíns Konungs í des-
ember.
Stjórnin birtir nær daglega til
kynningar af slíku tagi um að
fjöldi háttsettra manna innan
hersins hafi verið settir úr em-
bættum vegna hollustu við Kon-
stantín.
í storminum í fyrrinótt, fauk upp hluti af gluggaröff á þaki Tollvörugeymslunnar. Vaktmaffurinn
varff þessa strax var og var þegar hafizt handa við viffgerff. Engar skemmdir urffu á vörum í
Tollvörugeymslunni og gert er ráff fyrir aff fullnaffarviffgerff Ijúki í kvöld. (Ljósm. Mbl. Ól.
3. þing verkamanna-
sambandsins