Morgunblaðið - 06.02.1968, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.02.1968, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1968 MARY ROBERTS RINEHART: SKYSSAN MIKLA — Þakka þér fyrir Gus, mér veitti víst ekkext af því. Þetta er allt og sumt, sem ég man um sjálfa mig þennan morg- un. Ungfrú Mattie kom mér í rúmiið, og þar lá ég skjálfandi, þangað til Gus kom með konjaks flösku. Ungfrú Mattie stóð yfir mér, meðan ég drakk ofurlítið af því, og brátt tók ég að jafna mig. Ég held meira að segja, að ég hafi sloppið sem snöggvast yfir í draumalandið. Eitthvað varð ég sleppa. ÍÞað liðu vikur áður en ég frétti það, sem gerðist þennan morg- un. Bill Sterling sagði, að Bessie hefði verið dáin fyrir mörgum klukkutím'um. Hann hreyfði ekki líkið, en það sem hann gat séð, var það, að höfuðkúpan var brot- in. Líklegast hefði hún dáið strax eða orðið meðvitundarlaus. Ekk- ert benti til þess, að hún hefði verið skotin. Ég held, að Jim hafi þá tekið skammbyssuna upp, með því að stinga blýanti inn í hlaupið og vafið hana í hreinan vasklút. Síð an breiddu þeir aftur yfir líkið og biðu síðan eftir líkskoðaran- um. Reynolds hafði komið út með heitt kaffi. Sumir þeirra drukku það, en Tony ekki. Þegar svo ungur vara-líkskoðari kom á vettvang fann hann nokkra menn standandi yfir líkinu, en hinum hafði Jim skipað að fara að ieita að vopninu. Líkskoðarinn var fljótur að ljúka verki sínu. Hann sneri líkinu við, en Tony leit undan. f sterkri morgunbirtunni var kinnalitur- inn á Bessie óhugnanlegur við fölvan á andlitinu, en svipurinn var rólegur. — Hún hefur líklega aldrei vitað, hvað sló hana, sagði líkskoðarinn, er hann stóð upp og dustaði buxnaskálmarnar sín- 1 - - - - - ar. — En ég verð að skoða þetta betur áður en ég get nokkuð sagt. Svo komu mennirnir frá morð- deildinni með áhöld sín og tæ’ki. Það leið löng stund meðan þeir voru að taka myndir frá öllum hliðum og athuguðu allt þarna í kring. Svo leyfðu þeir, að líkið væri borið inn í húsið, Þegar hér var komið, var O’ Brian kominn á vettvang. Nú var hann ekki eins kjaftfor og áð ur, en hann gat ekkert upplýst, sem að gagni gæti komið. Hann hafði farið klukkan sjö, eins og hann var vanur, og út um bak- dyrnar. Þar eð 'hánn hafði engan bíl, fór hann stytztu leið til þorpsins, framhjá sveitaklúbhn- um, og því ekki séð likið, þar eð trjárunna bar í milli. En hvað snerti kvöldið áður, þá hélt hann því eindregið fram, að hann hefði athugað vestur- dyrnar, eftir að allir voru gengn- ir til náða, og að keðjan hefði verið á 'hurðinni. Hann hafði eng an hávaða heyrt, og að því er hann bezt vissi, hefði allt verið með kyrrum kjörum. — Nema þá það, að hr. Wain- wright og frúin rifust við kvöld- verðinn, sagði hann. — Stúlkurn ar voru eitthvað að tala um það. — Hverskonar rifrildi? sagði Hopper. — Það veit ég ekki, svaraði O’ Brian og leit feimnislega á Tony. — Það ultu bara stólar, og svo- leiðis. Líkskoðarinn hafði farið á eft- ir líkinu upp á loft. Þegar hann kom aftur, sagði hann, að þetta liti út fyrir að vera morð, en gæti hann fengið einhvern morg- unverð? Hann hefði farið á fæt- ur með sólinni. Þá var það eitr- unartilfelli. — Einn þessara ofna með togleðursröri. Hreinasta morðtól, vitanlega. Það var komið með mát á bakka handa honum inn í bóka- stofuna. Hopper var þar og svo Jim, Tony og Bill Sterling. Með- an líkskoðarinn át fl'esk og egg, var Hopper að yfirheyra Tony. — Vitanlega rifumst við. Pat A’bbott var viðstödd. Hún getur sagt yður nánar frá því. — Út af hverju rifuzt þið? Tony hikaði. — Hún er nú dá- in, sagði hann, — og mig langar ekkert til að gera hana að um- ræðuefni. Hún hafði beitt fanta— brögðum og ég var eitthvað að nefna það við hana. En ég myrti hana ekki. Hopper sagði ekkert. Hann fór inn í vinnufólksstofuna og yfir- heyrði fólkið, sem þar var. Eins og ég bef þegar sagt, vildi Reyn olds ekkert ákveðið segja, en hin ir karlmennirnir, Thomas og Steven, voru auðveldari viður- eignar. Stól hafði verið velt um koll, og hr. Wainwright hafði skellt hurðinni þegar hann fór út. Nei, þeim hafði ekki komið vel saman. Þau voru sitt í hvoru herbergi og töluðu helzt ekki ■■■■■■■■■■■■■■■■■ 77 neitt saman þegar þau hittust. Stevens hafði meira segja heyrt síðustu orðin, sem Tony sagði áð- ur en hann fór út og skellti á eft- ir sér. — Það er búið að vera, og það ert þú líka. Reyndu að skilja það. Þú ert búin að vera. Nú þóttist Hopper vera vel á sporinu. Hann sat þarna í þægi- legu starfsfólksstofunni og hélt áfram að spyrja. Han.n ’kallaði á blessaðan heimskingjann hana frú Partridge, svo og Hildu og Noru. Og hann kallaði líka á Ethel, sem tók til hjá Bessiet, og brosti vingjarnlega til hennar. — Segið mér nú. Ethel: Átti frú Wainwright nokkra byssu sjálf? — Já, ég held nú það. Hún svaf með hana undir koddan- um. 6. FEBRÚAR Hrúturinn 21. marz — 20. apríl. 1 dag eru líkur til a'ð þú komist að lang- þráðu leyndarmáli. Ýmsir ósiðir, sem þú hefur tamið þér, hindra þroska þinn. Reyndu að losna við einhverja þeirra. Nautið 21. aprríl — 21. maí. Farðu og hittu vini í dag, eða bjóddu þeim til þín. Þú færð gleðilegar fréttir langt að. Nærð samkomulagi um gamalt deilumál við ættingja þína. Tvíburarnir 22. maí — 21. júni. Taktu á þig rögg og bættu fyrir van- ræktar bréfaskriftir. Reyndu að hitta mann- eskju að máli, sem þú hefur ekki skeytt um lengi. Krabbinn 22. júní — 23. júlí. Góður dagur til rómantískra samveru- stunda. Fadðu í boð eða einhvern mann- fagnað. Ljónið 24. júlí — 23. ágúst. Ef þú ert atvinnurekandi skaltu nú halda blaðamannafund í dag og þú skalt auglýsa meira. Það margborgar sig. Jómfrúin 24. ágúst — 23. sept. öll samskipti við fólk hagstæð. Mundu að aðrir eru ekki eins nákvæmir og áreið- anlegir og þú og hagaðu þér samkvæmt því. Vogin 24. sept. — 23. okt. Fjölskyldu- og athafnalíf í blóma. Komdu til dyranna eins og þú ert klæddur, þú finnur að fólk metur það. Sporðdrekinn 24. okt. — 22. nóv. Viðskiptin ganga vel í dag. Leitaðu fyrir þér um nýjan meðeiganda. Skrifáðu undir samninga. Bogmaðurinn 23. nóv. — 21. des. Þú færð hrós hjá góðum vini fyrir verk þín. Taktu því af hógværð og slakaðu ekki á. Leikhúsferð heppileg í kvöld. Steingeitin 22. des. — 20. jan. Haltu áfram leit þinni að rómantík. Finndu gamla vini að máli og inntu þá frétta. Þú færð góðar hugmyndir. Vatnsberinn 21. jan. — 19. febr. Gakktu að starfinu, glaður í bragði. Þeg- ar heim kemur, skaltu einbeita þér að því að sýna fjölskyldunni ástú'ð. Færðu þeim smágjafir. Fiskamir 20. febr. — 20. marz. Góður dagur til að verzla. Fáðu vini eða nágranna með þér. Þeir munu hjálpa þér að gera góð kaup. — Er það ekki dálítið óvenju- legt? Gerði hitt fólkið það líka? — Nei, nei. — Hvens vegna haldið þér, að hún hafi gert það, Ethel? Þér virðist vera eftirtektarsöm sitúlka. Hún leit nú ekki út fyrir að vera sérlega hrædd. — Ja, það var nú einmitt það, sagði Et'heil og linaðist nú loks- ins. — Hún var einmitt hrædd við eitthvað og það í þessu húsi. Hversvegna skyldi hún annars alltaf hafa læst að sér? — Nú, svo hún gerði það? — Já. Dag og nótt, vikum sam an. Hopper gekk aftur inn í bóka- stofuna. Við skulum fá þessa sögu frá í gærkvöldi aftur, Wain wright, sagði hann. — Hvað gerð uð þér eftir kvöldverð? — Ég átti dálitla vinnu eftir ógerða. Ég var í lesstofunni til klukkan ellefu. Klukfcan hálf ellefu kom Reynolds með viskí til mín. — Hvar vair konan yðar þá? — Reynolds sagði, að hún væri í bókastofunni að lesa. Ég sagði honum að læsa öllu þegar hún færi upp að hátta. Sjálfur sá ég hana aLls ekki. — Hvenær fór ungfrú Abbott? — Strax eftir kvöldverð, held ég. — Þér fóruð að hátta klukkan ellefu? — Já, því sem næst. Þér get- ið spurt hann O'Brian. Ég hitti hann uppi í efri garuginum. — Þér fóruð ekki út úr her- berginu yðar eftir að þér komuð upp? Hopper sat hreifingarlaus. En þegar hann talaði aftur, var rödd in rám. Sjáið þér nú tiil, hr. Wain wright. Þér hötuðuð konuna yð- ar, og vildiuð hana feiga. Mér skilst, að þér hafið verið að leita upplýsinga um fortíð hennar. Og meira að segja veit ég, að það hafið þér. Og líklega hefur yður ekki líkað það, sem þér funduð. — Nei, rétt er það. En þar með er ekki sagt, að ég hafi kál- að henni. — Það hef ég heldur ekki sagt, sagði Hopper, — en hitt segi ég að þér eruð ástfanginm af ann- arri konu, og konan yðaæ vildi ekki gefa yður eftir skilnaðinn. Kannski hefur hún sett upp stór- fé fyrir það. Og kannski vi'U hún helzt hafa allt óbreytt eins og það er. Þetta lítur ekki vel út, Wain- wright. Þér ógniuðuð henni og .. . — Ég hef aldrei ógnað henni. Ekki með líkamlegu ofbeldi. — Gott og vel. Við sbulum segja það í bili. Við höfum haft þrjú dauðisföH hér og öli af mannavöldum. Ég skal viður- kenna, að einir tólf menn hefðu getað viljað Morgan feigan. En hvern langaði til að myrða móð- ur yðar? Afsakið, að ég skuli þurfa að fara að rifja það upp. En lítum á erfðskrána hennar. Hver græddi á henni? Þjónustufólkið fékk eitthvert líti'lræðd. Elliott fær tuttugu þúsund, sem er smá- ræði fyrir hann. Pat Abbott fær fimm þúsund og armband, en hún hafði ekki hugmynd um, að hún ætti von á neinu. Talsvert fór til góðgerðastarfsemi, en við getum ekki látið okkur detta í hug, að presturinn við Markúsar kirkjuna ’hafi framið glæp, til þess að fá nýtt orgel í kirkjuna sína. Nei, ég er ekki að gera að gamni mínu. — Gott og vel. Konan yðar fékk einn dal, en húii hefur yð- ur í bakhöndinni. Og þér fáið all ar eignirnar. — Svo að ég á þá að hafa myrt hana móður mína? Og kon una mína á eftir? Guð minn góð- ur! Hann reiddi til höggs við lög- reglumanninn, en Jim náði nógu snemima í han. — Rólegur, Tony, sagði hann. — Hvaða þýðingu' hefur þetta? Þú ert ekki að hjálpa neinum, sízt sjálíuim þér. Hopper lét eins og ekkert Verkstæðishúsnæði óskast til kaups eða leigu. Stærð um 200—600 ferm. á tfaml hæð. Má vera fokhelt eða ófrágengið. Gott athafna- svæðr á lóð nauðsynlegt. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 10. febr. merkt: „5475“. 4ra herb. íbúð í Ilafnarfirði til leigu strax. Upplýsingar í síma 51466 milli kl. 20 og 22 á kvöldm. Atvinna óskast Ungur maður með Samvinnuskólamenntun óskar eftir verzlunar- eða skrifstofustarfi. Tiliboð óskast send afgreiðslu blaðsins merkt: „Vanur — 5354“. r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.