Morgunblaðið - 06.02.1968, Síða 19

Morgunblaðið - 06.02.1968, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1%S 19 lands, gædidur fjölbreyttum yfir- burSamannkostuim, var hniginn að velli fyrir aldur fram. í dag verður hann lagður til hinztu 'hvíldar í faðm fóstur- jarðarinnar, sem hann unni alHaf heitt. f dag er hann kvaddur hinztu kveðju með tregandi htjarta og þakkir færðar guði, sem gaf hann. Ég hefi engan mann þekkt, sem hefir verið búinn jafnmiklu andlegu atgervi, siðrænu og vit- rænu í senn. Gáfur hans voru afburðafjölbreyttur, næmi mikið, skilningur 'hvass og smekkvísi og listfengi, svo að frá bar. f skóla var hann jafnvígur á húimaníisk- ar greinar og stærðfræðigreinar, en hann valdi hinar fyrrnefndu m.a. af því, að þær áttu betur við eðli hans og áhugamál. Áhuga- svið hans spannaði einkum yfir bókmenntir, málfræði, sögu og listir, en ekki sízt var það mað- urinn sjálfur, hugur hans, eðli, breytni og þroski, sem honum var hjartfólgnasta viðfangsefnið. Honum stóð löngum stuggur af véLum og tækni, vildi ekki aka ■ bíl og talaði ekki í hljóðnema, ef hann komst 'hjá þVí. íslenzkt mál lék honum á tungu, hreint, tært og skýrt, og þegar hann talaði, lagði gervöli þjóðin við hlustir. Hann hafði talltaf einhvern boðskaip að flytja, sem öUum var uppbyggi- legt að ihuga, ungum og gömlurn, þó að hann beindi máli sínu oft- ast til nemenda sinna. Ræður hans voru mikil listaverk, yfir- skyggð hreinleika hu'garfarsins, manngöfgi og mannbótavilja. Þar vógu salt tilfinningahiti við- kvæms geðs og stál skarprar hugsunar, djúp ihygli i mann- leg vandamál og einurð tii að segja til vamms og leiðbeina á hollar brautir. Tjáningin var um búðalaus, formið einfalt og hvert orð féll að þeirri merkingu, sem því var ætlað að tjá. Skýrle'V hugsunarinnar og skýrleiki orða- lags og orðavals héldust í hend- ur. Ekkert vantaði, og engu var ofaukið. Ekkert efni var svo flók ið og torskilið, að það yrði ekki undarlega einfalt og augljóst, þegar Þórarinn var búinn að kioma orðum að því. í skólaræðum sínum vó hann óspart að ýmsum meinsemdum þjóðfélagsins og einstaklingsins, grófst fyrir ræturnar og leitað- ist við að uppræta illgresið, svo að skrúðgresi og nytjagróður kæmist fyrir vikið til þess þroska, sem framast yrði auðið að ná. Þroski einstaklingsins, ábyrgð- arkenndog réttsýni voru þeir eiginleikar, sem hann framar öUu öðru kostaði kappis um, að nemendur hans fengju öðlazt. Þar var hann sjálfur hin mikla lifandi fyrirmynd þeirra. Skyld- um sínum gleymdi hann aldrei og tók afar nærri sér, ef störfin gengu ekki eins vel og hann viidi eð erfiðleikar urðu óvenju- miklir. En hann lét þá aLdrei buga sig, flýði aldrei frá þeirn, he.ldur tók þá fangbrögðum. Ekki er fjarri mér að ætla, að kapp hans og skyldurækni í störfum og áhyggjur, sem af þeim leiddu og stríddu á huga hans, hafi að nokkru orðið tii að stytta líf hans. f kennarastól var Þórarinn Björnsson ógleymanlegur, og tel ég á engan haliað, þegar ég segi, að hanin sé bezti kennarinn, sem ég hefi kynnzt. Hann sameinaði á sjaldgæfan hátt þjóðdega og alþjóðlega menntun. Hann batt sig ekki um of við bækur, held- ur Lagði jafnan rnikið til frá sjáif um sér. Hann hafði ekki einung- is lag á að halda athygli nem- enda vakandi, heldur einnig að gera námið að heillandi skemmt- un, ljúka upp bergimu. Hann glæddi í senn fróðleiksþrá og skildingsgleði. ÖLlum þótti svo vænt um hann ,að enginn dirfð- ist að gera honum það á móti skapi að kunna ekki fræðin, hver eftir sinni getu, enda hefði það verið illa gert og ómaklega og beiniínis brot á náttúrulögmáli. Þó að þekking Þórarins væri mikil og víðfeðm og lærdómur hans stæði víða traustum fótum, var hamn gjörsamlega laus við allan þekkingar- og lærdóms- hroka. Dram'bsemin var honum f jarlæg, af því að hann var and- lega frjáls maður. Hann gat blandað geði við hvern sem var, þó að sá væri smátækari honum sjálfum í andlegum efnum. Þar kotm til Ljúflyndi hans og elsku- legt viðmót, sem ávann homum vináttu allra, sem homum kynnt- ust. En hann kunni einnig að greina skarplega milli þekkingar og vizku. f einni skólaslitaræðu sinni komst hann svo að orði í ávarpi sínu til nýstúdenta: „Fyil- izt aldrei þekkingarþótta. Þekk- ingin má aldrei spilla þeirri auð- mýkt hjartans, sem er uppspretta hinnar æðstu vizku.“ Þessa auð- mýkt hjartans átti hann í ríkurn mæli. f annarri ræðu sagði hann: „Góðleikurinn og kærleikurinn eru vitsmunir hjartans. En gáfað ir menn, sem svo eru kallaðir, geta því miður stundum verið hjartahermskir". Gáfuð illmenni eru heims- byggðinni hættuleg, hættulegri en heimsk illmenni. Menn eins og Þórarinn Björnsso eru alltof sjaldgæfir, — góðvMjaðir gáfu- men, sem jafnframt eru einarð- ir atgervismenn. Af þeim og störfum þeirra stafar samtíðinni mikil blesisun. Þess vegna er þungur harmur að okkur ölLum kveðinn við fráfail Þórarins skólameistara, þjóðin öll hefir beðið öbætt tjón. Ég er svo Lánsamur að hafa átt vináttu Þórarins Björnssonar rösk þrjátíu ár og hafa fengið að kynnast honum ved. Að vísu hefir hann aLLtai verið veitand- inn, en ég þiggjaindin. í lil ár bjó hann á heimili foreldra minna, og allt frá þeim fyrstu kynnum hefir hann verið mér eins og eldri bróðir. Fyrir öll samskipti okkar flyt ég honum nú hjartans þökk, þegar hann ýt ir frá landi út á eiiífðardjúpin. Öli þjóðin á honum skuld að gjalda, sem þó verður aldrei goldin. Ég sendi ekkju hans, frú Margrétu Eiríksdóttur, og börn- um þeirra einlægar samúðar- kveðjur í sorg þeirra. Ég bið all- ar hollar vættir að styrkja þá, sem næstir honum stóðu og nú eiga um sárast að binda. Við skólaslit vorið 1952 lauk Þórarinn Björnsson ræðu sinni með þessum orðum: „Gangið ótrauðir að hvaða verki, sem lífið kann að færa ykkur, og reynið jafnframt að hefja það í æðra veldi sannrar menningar. Verið minnugir þess- ara orða Einars Benediktssonar: „Hvað vannstu drottins veröld til þarfa? Þess verðurðu spurður um sólalag.“ Menntaskólinn á Akureyri ósk ar þess, að þið verðið ekki var búin að svara þessari spurningu, þegar þar að kemur“. Nú er komið að Þórarni sjálf- um að svara. Honum þarf vissu- lega ekki að verða svarafátt. Ef 'hógværðin meinar honum um svars, verða áreiðanlega margir til að svara fyrir hann. Af nógu er að taka. Örlög sín fær enginn flúið og hjá dauðastundinni enginn kom- izt. Okkur tekur jafnan sárt að missa okkar beztu menn. En gott er að eiga góða menn að missa. Minningin um Þórarin Björnsson skólameistara er björt og hlý. Hún getur ekki dáið. Blessun okkar og þökk fylgir honum út yfir djúpin bLá. Sverrir Pálsson. In memoriam Orð gerast vanmáttug gildisfelld fánýt. Freista skal þó tjáningar andspænis þessum ókleifa vegg: Enn ljóma myndir í hug dregnar mildum rómi þínum. beina okflcur veg um brattan stíg. Býr í djúpinu minning um bjarta sól snjóinn hvítan á heiðum. Hjarta þitt umlukti okkur: stórt 'hlýtt hús með mörgum opnum gluggum fögnuður ástúð í söngvum vindanna. Dveljast hér jafnan þessir heiðbláu dagar þessi hverfula stund sungin þúsund röddum einni sál . . . Enn ómar strengur í hug strokinn mildum rómi þínum. stráir geislum á veg gegnum myrkrið. Þökk vor og klökkvi brúa tímann senda liðnar stundir á vit framtíðar. Ólafur Haukur Ámason. HREMMDUR Á FÖGRU FLUGI. EITT stærsta og hlýjasta hjarta þjóðarinnar er sprungið. Einn mesti heili landsins er brostinn. Einn sannmenntaðasti and- inn blæs ekki framar að glóðum göfugra hugsana. ímynd látlteys- is er horfið. Hárfínar tilfinn- ingar hafa troðizt niður í ná- kalt svaðið með miiskunnarlausu höggi dauðans. Hinn gráðugi rán fuigl hremmidi bráð sína, að hætti þess sterkara, sem velur sér oftast þau fórnarlömbin fyrst, sem við þörfnumst hvað mest í óbilgjarnri og vitskertri veröld. Þau eru oft sætasti og ljúffeng- asti bitinn í kjafti okkar illfygl- anna í fuglageri þjóðfélagsins. Dauðastungur og launmorðin felast óafvitandi í okkur sjálf- urn, samferðafólkinu, og beinast dýpsí að þeim, sem við spörk- um í og tröðkum á til eigin frama, og lenda ósjaldnast að þeim beztu og göfugustu. Þess vegna eru þeir líka jafnframt í svo sorglegum minnihluta og mangur skynjar ekki fyrr en um seinan. Og sárastur söknuður í brjóstum þeirra, sem skilja og „geta fundið til“. Samíhljóma gæði hans og einstæðar gáfur, ‘huglægur sjarmi og andlegt víð- sýni eru vandfundin alitaf og a'lls staðar, svo var um alla hans hófsemi á lystisemdir lífsins. Hans eina óhóf var takmarkalaus og mér liggur við að segja ban- væn samvizkusemi í stjóm þeirr ar stofnunar, er hann helgaði líf sitt og krafta. Fögur fórnarlund, sem hættir til að vera misnotuð af öðrum. Ég sakna hans miest allra manna af því að ég el'skaði hann frá því, að ég man fyrst eftir mér, jafnvel meir en bróð- ut. Ekki af því, að hann var hálfgildis fósturbróðir minn. Ekki af því, að hann var svili minn, en slík fjölskyldubönd og sifjatengsl geta odt verið ís- köld og fjarlæg, heldur af hinu, að hann var sá sannasti, bezti, hlýgáfaðasti, samúðarfyll'sti og skilningsríkasti maður, sem ég hefi kynnzt. Milljónaþjóðir gætu verið stoltar af slíkum syni. Það orkar tvímælis um smekk og sjálfrýni að bera slíkar einka- játningar á torg alþjóðar. En ég get ekki annað við andlát míns bezta vinar, Þórarins Björnsson- ar, skólameistara. Örlygur Sigurðsson. ÞÓRARINN Björnsson skóla- meistari var fágætur mannkosta- maður, hár í mennt, frábær kenn ari og mikMsvirtur skólameistari, góður félagi og vinur nemenda sinna. Andlát hans, langt um ald- ur fram, verður fjölda manna um land allt harmafregn, svo marg- ir áttu honum þakkir að gjalda, gamlir nemendur og vandamenn þeirra. Rætur Þórarins stóðu djúpt í fögnu héraði í Norður-Þingeyj- arsýslu. Hann var fæddur og al- inn upp á Víkingavatni í Keldu- hverfi, miklu menningarheimili. Þar hafa forfeður hans búið í margar aldir, og þar býr Sveinn bróðir hans nú. Hann sagði ávaLlt „heim“, þegar hann ræddi um Víkingavatn. í skóla reyndist Þórarinn af- burðagóður námsmaður, og segja þeir, sem gerst þekkja til, að hann hafi verið jafnvígur á all- ar greinar. Að loknu námi við Sorbonne- háskóla í París haustið 1932 hvarf Þórarinn heim til íslands og hóf kennslu við Menntaskól- ann á Akureyri í ársbyrjun 1933, og urðu aðalkennslugreinar hans franska og latína. Háskóilanám hans miðaði að því, að hann tæki við þessu starfi, því að það mun hafa verið fastmælum bundið með honum og Sigurði Guðmunds syni skólameistara, að hann kæmi tM starfs í símum gamla skóla að háskólanómi loknu. Sig- urður lagði ávallt rnjög mikla alúð við að velja skólanum góða og hæfa kennara, og hafði hann lengst af völdu liði á að skipa. Það var mjög að vilja Sigurðar, að Þórarinn varð eftirmaður hans í embætti í ársbyrjun 1948. Námsdvölin í Paris um fimm ára skeið hafði veruleg áhrilf á Þórarin alla ævi. Hann bar með sér svipmót hins fjölmienntaða heimsborgara, hvar sem hann fór, var léttur og hlýr í viðmóti öllu og svo fjörmikill og kvik- ur, að framkoma hans öll virtist suðrænnar ættar. Þórarinn var kennari svo að af bar. Kom þar ti'l djúptæk þekk- ing á kenmslugreinum, skörp og rökvís hugsun, óvenjulegur skýr leiki í framsetningu, eldlegur á'hugi og fjör. Það er aðeins á færi mjög fárra útvaldra að kenna með sama glæsibrag og Þórarinn gerði. Segja m'á, að kennslan væri honuim „lífsnautn- in frjóa". „í kennslunni gleymdi ég áhyggjium af öllu öðru, en það er oft erfitt utan kennslu- stunda", segir hann í afmælis- viðta-li sextugur. Hann gekk öðrum fremur heils hugar að hverju starfi, en hann gerði líka miklar kröfur til nemenda sinna um alúð við nám. Bonum sárnaði, ef hann fann, að nemendur köstuðu höndum til verka. Hann var svo ör í lund og viðkvæmur, að ýmislegt fékk á hann. En flestir virtu hann svo mikils og þótti beinlínis svo vænt um hann, að fáir gerðu honum á móti skapi. Sjálfur var hann maður um- burðarlyndur, og munu fáir aðrir hafa verið skilningsríkari en hann, þegar fjallað var um aga- brot skólaþegna á kennarastofu. Honum var mjög fjarri skapi að varpa mönnum fyrir borð og vildi reyna drengskap hvers til þrautar. Orðstír hans sjálfs óx af verkum hans. Sæmid skólans var hans eigin sæmd. Þórarinn bar mikla tryggð til nemenda sinna og fylgdist vel með hag þeirra og velgengni, eft- ir að þeir luku námi í Mennta- skólanum á Akureyri. Þeir voru aufúsugestir á heimili þeirra skólameistarahjóna, frú Margrét- ar og hans, enda voru þau bæði gestri'snir böfðingjar heim að sækja. HLýr menningarblær Lék þar um sali Þórarinn var mjög fínger mað- ur og hrifnæmur. Hann hafði næmt listaskyn og hreifst af aLlri fegurð, hvort heldur sem hún birtist í svip landsins, ljóði, tón- um eða mannLífinu sjálfu. Hann var mikill meistari hins ritaða og talaða orðs. Áður er að því vikið, að Þór- arinn hafi haft tM að bera óvenju miiklar gáfur, og vissulega mat hann þá gjöf guðanna mikils, en með iangri reynsflu í skólameist- araistörfum gerði hann sér þó mjög vel Ijóst, að gáfur eru ekki einhlítar, og kvaðst hann hik- laust meta siðgæði meira en gáf- ur. Mjög mikii eftirsjá er að Þór- arni Björnssyni skólameistara á góðum aldri. Honum virtist þó öðrum fremur vera sköpuð hin eilífa æska. Hann sagði sj'álfur sextugur, að sér væri „þakklætið til lífsins efst í huga“ á þeim tímamótum. Við fráfail hans hlýtur okkur nemendum hans að vera þakklæti efst í huga fyrir að hafa átt hann að drengilegum vini og samiferðarmanni um lang an veg. Frú Margréti og bðrnum sendi ég ríkar samúðarkveðflur. Runólfur Þórarinsson. MÉR kom það ekki á óvart, þeg- ar hringt var til min sunnudag- inn 28. jan. sl. og mér tilkynnt andilát æskuvinar m'íns og frænda Þórarins Björnsisonar frá Víkingavatni, skólameistara á Akureyri. Hann hafði um langt árabil gegnt eri’lsömu og ábyrgðarmiklu starfi og sinnt því af slíkri alúð og kostgæfni, að einsdæmi mun vera. Líkamlega var hann veik'byggð ur, með næma og viðkvæma lund og lét menntaskólanum í té alla starfsorku sína, án þess nokkurntíma að spyrja um eig- in þörf til hvíldar eða fristunda. Því fór sem fór. Þórarinn Björnsson var kom- inn af gáfuðu og mikilhæfu fólki langt í ættir fram. Faðir hans, víkingurinn Björn, var sonur Þórarins Björnssonar, Þórarinsisonar, Pálssonar, Arn- grímssonar, sem allir bjuggu, hver fram af öðrum, góðu búi á Víkingavatni. Og nú býr á sömu jörð Sveinn, bróðir Þórarins skólameistara og kona hans Guð- rún Jaköbsdóttir £rá Halti undan EyjafjöLlum. Móðir Þórarins, Guðrún Hall- grímsdóttir, var komin af góðu bændafólki í Keldúhverfi. Hún var allmikið yngri en maðúr hennar og tók við húsmóður- störfum ung að árum. Eigi að síður var hún mikiihæf húsmóð- ir og ráðdeildarsöm og þó svo raiusnarleg matmóðir, að alldrei gekk neinn svangur frá borði hennar, og öll föng, sem bóndi hennar dró að búi virtust auk- ast og margfaldast í höndum hennar, svo að aldrei varð þar skortur matvæla, þrátt fyrir gestagang mikinn og rómaða gestrisni húsráðtenda. Jafnframt var hún sívakandi um veiferð aUra á heimilinu, bæði manna og húsdýra og mátti ekkert aumt sjá án þess að reyna úr að bæta. Björn faðir Þórarins var fjöl- hæfur gáfumaður, víðlesinn, eink um í fornbókmenntum og sögu, manna mælskastur og skemmti- legastur og hafði yndi af að fræða aðra og segja sögur. Man ég marga kvöldstund í gömlu baðstofunni á Víkinga- vatni, þar sem húsbóndinn sat og táði ull eða spann hrosshár á snældu en við krakkarnir þyrptumst í kringum hann og biðum eftir sögu. Sú bið varð sjaldnaist löng og frá vör*im hans streymdu langir kaflar úr Njálu eða Grettlu, snurðulausir á sLéttu og felldu máli, svo sem iesið væri af bók. En því miður bilaði heilsa hans á tifltölulega góðum aildri og lá hann rúmfastur síðustu 20 ár ævinnar. Blessuð sé minning þessara mætu hjóna. Þarna fæddist Þórarinn og ólst upp, í fögru umhverfi við hið undurfríða Víkingavatn með mörgum hólmum, vöxnum fjöl- breyttum gróðri, víkum og vog- um og grösugum engjum, sem næstum umlykja vatnið. En stór vaxin stör og fergin vaxa útí vatnið í allt að 1 meters dýpi. — Og í vatninu synda sMungar með sporðaköstum, en í hólmium og nesjum gera endur sér hreiður í þúsunda tali.. Þá er gaman að rísa úr rekkju á 'hei'tum og kyrrum vormorgni, ganga niður að spegMsléttu vatn- inu, hlusta á kvak og söng fugl- anna og sjá hvað niáttúran er rík af fegurð og hamingju. í þessu umhverfi fæddist Þór- arinn Björnsson 19. des. 1905. — Og nú er hann allur. Við Þórarinn voruim æsku- félagar, leikbræður, skólabræður og starfsfélagar. Örstutt var á milli heimila okk ar og lágu túnin saman. Sam- vinna og vinátta var jafnan mik- il milli foreldra okkar og bar aldrei skugga þar á. Við Þórarinn urðum því fljótt samrýmdir og nánast uppeldis- bræður og hélzt vinátta okkar á meðan guð gaf báðum líf. Við andlátsfrétt Þórarins var sem nútíð og fiortíð rynnu sam- an og við mér blöstu myndir lið- inna daga og viðburða. Ég man Fraimhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.