Morgunblaðið - 06.02.1968, Qupperneq 32
Þar af föður með tveimur sonum sínum
VÉLBÁTSINS Heiðrúnar II ÍS 12 er saknað og var
hennar leitað í allan gærdag og fram á kvöld. Ekk-
ert hafði þá spurzt til hennar, en um borð eru 6
menn frá Bolungarvík, þar á meðal faðir ásamt
tveimur sonum sínum 19 og 17 ára. Síðast var haft
samband við skipið á miðnætti í fyrrinótt og áttu
skipverjar þá í erfiðleikum vegna ísingar, sem m.a.
settist á ratsjá skipsins og loftnet og er búizt við
að það hafi slitnað af ísþunganum.
Mikið mannskaðaveður gerði
í ísafjarðadjúpi í fyrradag. sivo
sem kunnugt er og'fórst þá m.a.
brezkur togari skammt frá þeim
stað, sem Heiðrún hélt sig á.
Heiðrúnu varð eigi vært fyrir
sjógangi við Brimbrjótinn i
Bolungarvík og var því tekið
til bragðs að flytja hana inn til
ísafjarðar. Skipstjóri Heiðrún-
ar, Jón Eggert Sigurjónsson og
1. vélstjóri, Anders Guðmunds-
son voru veðurtepptir á ísafirði
og því ekki um borð. Norðaust-
an 12 vindstig og talsvert frost
var á með stórhríð.
Erfiðleikar vegna ísingar.
Skipverjar áttu í erfiðleikum
með ratsjá og önnur siglingar-
tæki, vegna mikillar ísingar og
var talstöð skipsins einnig í ó-
l<agi og var ekki unnt að kalla
í hana nema á einni bylgju.
Vissu skipverjar ekki hvar þeir
voru, en skipstjórinn Jón Eggert
var um borð í vélbát á ísafirði
og reyndi að leiðbeina þeim í
hvívetna.
Varðskipið Óðinn var í ísa-
fiarðardjúpi umrædda nótt og
hugaði að Heiðrúnu á milli þess,
að það athugaði brezka togar-
ann. Um kl. 23.15 fann varð-
skipið Heiðrúnu og gaf henni þá
upp staðarákvörðun. Var skipið
þá statt 1.2 sjómílur frá Bjarn-
arnúp, en þá hafði ofsaleg feing
einnig sezt á varðskipið og trufl
i það ratsjá þess. Yfirgaf varð
skipið þá Heiðrúnu og hélt að
Grænuhlíð í var til þess að unnt
yrði að ná af ísingunni, enda
virtist Heiðrún þá ekki í yfir-
vofandi hættu.
Fann ekki Heiðrúnu.
Er varðskipið kom aftur und
an Grænuhlíð og ætlaði á ný að
halda til Heiðrúnar, fann það
ekki skipið 1 sortanum. Birti þó
dálítið til upp úr miðnætti. Eins
og áður er sagt rofnaði samband
ið við Heiðrúnu um miðnættið,
eða skömmu eftir það.
Að því er Högni Torfason,
fréttaritari Mbl. á ísafirði segir
íeituðu tólf bátar í gær um mest
allt ísafjarðardjúp, Jökuifirði
og um 70 til 80 manns frá Slysa-
Heiðrún II IS 12. Myndin er tekin af skipinu, er það bar nafnið Páll Pálsson GK 360, og kom
í fyrsta sinn í þáverandi heim ihöfn sína Sandgerði árið 1963.
varnardeildunum i Bolungarvík,
Hnífsdal, ísafirði og Súðavík
ahfa leitað á landi á svæðinu
allt frá Bolungarvík og inn
á Eeyðisfjörð. Hafa fundizt
lóðabelgir úr Heiðrúnu við
Kambsnes í Álftafirði og einnig
við Kirkjubólshlíð fyrir innan
Arnardal. Auk þess leitaði Marv
in Kjarval, bóndi á Heimabæ í
Arnarda! og einnig mun Hall-
dór Ágústsson á Eyri í Seyðis-
firði hafa leitað í fjöru á Kam.bs
íesi og um allan Seyðisfjörð. Þá
mun einnig hafa verið leitað af
bænum Skarði og fyrir Ögurnes.
Leitinni af landi stjórnaði Guð
mundur Guðmundsson, formað-
ur Slysavarnardeildarinnar á
ísafirði, en leitinn: af sjó stjórn
Nær 160 milljón kr. tollalækkun
100 millj. sparnaöur á ríkisútgjöldum
aði Hálfdán Einarsson, skipstjóri
á Sólrúnu frá Bolungarvík.
Kom þeim saman um það síð-
degis 1 gær, eftir að skyggja
tók, að litlar líkur væru á því
að leitað yrði í nótt, því að þreif
andi bylur var í gær í Djúp-
inu og var enn vonzkuveður í
erkvöldi. Hins vegar verður
leit hafin á nýjan leik strax í
birtingu og mun m.a. verða leit-
sð af sjó innar í Djúpinu, en
gert var í gær.
beitinni haldið áfram í dag.
Samkvæmt upplýsingum
Högna Torfasonar á ísafirði
skk veðrið þar nokkuð niður
í gær og var skaplegt þar, nokk
urt hvassviðri, en heita mátti úr
komulaust. Skyggni var þó lít-
.ð. f ísafjarðardjúpi var hins
vegar mik l veðurhæð og sorti,
sem háði leitarskipum.
Framhald á bls. 31
- Tollalækkunin nær m.a. til almennra
neyzluvara og hráefna innlends iðnaðar
- almenn tollalækkun á hráefnum málmiðnaðar
- 10°/o hœkkun áfengis og tóbaks
í GÆR var lagt fram á Al-
þingi frv. ríkisstjórnarinnar
nm tollalækkanir og er gert
ráð fyrir lækkun tolla að
upphæð 159 milljónir króna.
Þessi fyrirhugaða tollalækk-
un hefur áhrif til Iækkunar
á vísitöluna um 1,56 stig. —
Helztu tollalækkanir sem
frv. gerir ráð fyrir eru þess-
ar:
4 Tollalækkanir á almennum
neyzluvörum til þess að
vega á móti verðhækkunum
á erlendri vöru vegna geng-
isbreytingarinnar. Tollur á
matvörum lækkar um 30—
50 prósentustig en fatnaður
um 25 prósentustig úr 90%
í 65% toll.
4 Tollalækkanir á hráefnum
íslenzks iðnaðar, sem leiðir
af lækkun tolla á fullunni
vörur svo og almenn tolla-
lækkun á hráefnum málm-
iðnaðarins.
4 Almennar lækkanir hæstu
tolla í 100% úr 125%.
4 Tollalækkanir á ýmsum
vörum, sem fluttar hafa ver-
ið inn án tollafgreiðslu svo
og sem talið er að mikið
sé smyglað.
4 Tollalækkanir vegna aðildar
að GATT o. fl.
í framsöguræðu sinni fyrir
frv. í gær upplýsti Magnús
Jónsson f jármálaráðherra að
ríkisstjórnin hyggðist
4 spara 100 miljónir króna á
útgjöldum ríkisins,
4 hækka áfengi og tóbak um
10%, sem veitti 50 milljón-
ir í auknar tekjur,
til þess að mæta 320 milljón
króna útgjöldum vegna sjávar-
útvegsins en auk þessara að-
gerða hefði fyrirhuguð tolla-
lækkun verið færð úr 270 millj-
ónum í 159 millj. Eftir væri þá
að brúa 50 milljón króna bil og
væri það nú í athugun. Hækk-
un áfengis og tóbaks kom til
framkvæmda í gær.
Frásögn af ræðu fjármálaráð-
herra er é bls. 12.
Tollalækkun á almennum
neyzluvörum nemur um 86 mill-
jónum króna og er þar um að
ræða matvörur, fatnað, ýmisar vör
ur úr vefnaði, skófatnaður, hrein
lætisvörur, sjónvarps — og út-
varpstæki o.fl. Til frekari skýr-
ingar miá geta þessa að tollar á
nýjum banönum og appelsínum
verða lækkaðir úr 40% í 15%,
á aprikósum og blönduðum á-
vöxtum úr 70% í 40% og af epl-
um úr 15% í 12%. Þá lækka toll
ar af tei úr 50% í 10%, stór-
Framhald á bls. 12
Imibrot um
helgina
FIMM innbrot voru framan að-
faranótt sunnudags og farið var
i tvo bíla við Sólheima 23. I
flestum innbrotunum var litlu
sem engu stolið, en skemmdir
urðu nokkrar.
Brotizt var inn í mjólkurbúð
og Vogaver, Gnoðavogi 46-48.
Rúða var brotin í Lóubúð, Star-
mýri 2 og brotizt var inn í
Brautarnesti við Miklubraut.
Þá var brotin rúða í sýningar-
glugga Ulrichs Falkners »ð
Laugavegi 28 b og einftiverju
stolið af úrum, en það var ekki
fullkannað í gær.
Farið var í tvo bíla við Sól-
heima 23 og telkið dót úr hanzka-
hólfunum.