Morgunblaðið - 20.02.1968, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.02.1968, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1968 5 Hverjir bera ábyrgö á göllum í nýbyggingum? ÞRIðJUDAGINN 13. febrúar sl. var kveðinn upp dómur í Hæstarétti, þar sem m.a. var kveðið á um ábyrgð arkitekta vegna galla, sem fram komu á nýbyggðu húsi, var höfðað skaðabótamál á hendur viðkom- andi arkitektum og þeir krafð- ir skaðabóta ásamt öðrum aðilum byggingarinnar. Málavextir eru sem hér grein ir: Á árinu 1957 lét byggingar- samvinnufélag Reykjavíkur reisa vegna félagsmanna sinna fjöl- býlishusið Kleppsvegur 8 -10 - 12 - 14 - 16 í Reykjavík í hús- inu eru 12 fjögurra herbergja íbúðir og 8 tveggja herbergja íbúðir eða alls 32 íbúðir. Eftir að íbúðirnar voru full- gerðar, tilteknir félagsmenn hlot ið þær og farið að búa í þeim, komu í ljós byggingargallar, sem fóru vaxandi með ári hverju íbúðarhafar undu þessu illa og eftir nokkrar viðræður milli stjórnar húsfélagsins og stjórn- :ar Byggingarsamvinnufélags Reykjavíkur varð sameiginlegt álit þessara aðila að beina yrði bótakröfum á hendur þeim, sem byggðu húsið og báru faglega ábyrgð á verkinu. Flestallar íbúðirnar voru gall aðar á þá leið, að gólfskemmdir voru í þeim svo og leki. Varð að ráði að ein í búðanna skyldi sérstaklega tekin sem sýnishorn til skoðunar og mats dóm- kvaddra manna. Síðan skyldi reynt að ná samkomulagi við byggendur hússins um bóta- greiðslur vegna vansmíði og efn isgalla og ef ekki næðist sam- komulag skyldi farið í prófmál fyrir dómstólum vegna þessarar einu íbúðar og skyldi síðan leggja þann dóm til grundvall- ar frekari bótakröfum. Matsmenn voru síðan dóm- kvaddir og skiluðu þeir mats- gjörð 1. nóvember 1963 og var sú matsgjörð lögð til grundvall ar í þessu máli. Fjallaði mats- gjörðin um aðalbyggingargalla í búðarinnar, sem var skemmdir á einangrunarlagi á gólfum og kostnað, er af því leiddi Nið- urstaða matsmannanna að því er kostnaðinn við úrbætur snerti, var sú, að kostnaðurinn yrði kr. 38.400,00 og var það stefnufjár- hæðin. Stefnandi í málinu var Byggingarsamvinnufélag Reykja víkur, en hinir stefndu voru Byggir h.f., Verklegar fram- kvæmdir h.f., arkitektarnir Gunnlaugur Halldórsson ogGuð mundur Kr. Kristinsson og Jón Eiríksson, múrarameistari og voru þeir krafðir til greiðslu ofangreindrar fjárhæðar ásamt vöxtum og málskostnaði. f matsgjörð matsmanna segir svo um skemmdirnar í gólfum: „Hitalögn er í gólfi, „geislahit- un“, og til einangrunar hefur verið sett vikursteypa ofan á steinplötu, ca. 4 cm. þykk og sléttuð. Hefur hún molnað og myndað polla og dældir í gólf- ið. Sjáum við ekki annað ráð en taka dúkinn upp og fjarlægja vikurinn og setja í staðinn ein- angrunarlag, t.d. kork, vírnet og múrhúðun og má sennilega n ota gólfdúkinn að miklu leyti aftur.“ Afstaða hinna stefndu inn- byrðis var sú, að Verklegar framkvæmdir h.f. höfðu á hendi teikningar á hitalögn og járna- lögn byggingarinnar. Byggir h.f. annaðist að einhverju leyti um framkvæmd byggingarvinnunn- ar, þó að fyrirtækið teldi sig ekki hafa verið verktaka. Arki- tektarnir gerðu aðalteikningar og sérteikningar, en áttu ekki að sjá um daglegt eftirlit. Jón Eiríksson var múrarameistari hússins. Byggingarsamvinnufélag reykja víkur reisti kröfur sínar á því, að gólf íbúðarinnar væru göll- uð, en á þeim göllum bæru allir hinir stefndu fébótaábyrgð. Eigi væri unnt að benda á neina á- kveðna ástæðu fyrir göllunum, heldur væri þar um að ræða samverkandi ástæður. Kæmi þar helzt til, að einangrunarlagið hefði verið of veikt, framkvæmd verksins hefði ekki verið svo sem vera bar og meðferðin á gólfunum eftir ílögnina, hefði ekki verið með þeim hætti sem skyldi. Af þessum ástæð- um stefni stefnandi öllum hin- um stefndu aðilum in solidum (þ. e. til sameiginlegrar ábyrgðar). Allir hinir stefndu aðilar kröfð ust sýknu. Verklegar fram- kvæmdir h.f. reistu sýknukröfu Dönsku MANILLA húsgögnin komin PERSÍA LAUGAVEGI 31. SlMI 11822. sína á því, að þeir hefðu ein- göngu haft á hendi teikningar á hitalögn og járnlögn bygg- ingarinnar, en gallarnir gætu á engan hátt átt rætur að rekja til þeirra starfa. Stefndi, Byggir h.f. byggði sína sýknukröfu á því, að hann hefði ekki verið verktaki við bygginguna eða séð um bygging una að öðru leyti. Hefði fyrir- tækið einungis fengið ákveðna þóknun fyrir verk sitt, þ.e. ráðn ingu vinnuflokka og útvegun efnis, en ekki tekið greiðslur sem verktaki. Múrarameistarinn, Jón Eirsks son, byggði sýknukröfu sína á því, að gallarnir á gólfum íbúð- arinnar yrðu ekki raktir til mis- taka af hálfu hans eða starfs- manna hans. Arkitektinn, Gunn laugur Halldórsson, hefði gefið fyrirmæli um alla tilhögun verks ins. Gunnlaugur Halldórsson og Guðmundur Kr. Kristinsson töldu, að margnefndir gall- ar yrðu á engan hátt rakt- ir til arkitektastarfa þeirra við bygginguna eða vanrækslu þeirra í því sambandi. Upphaflega hefðu þeir í teikningum sínum gert ráð fyrir því, að frauðsteypa yrði notuð sem einangrun á gólfin og 2 cm slitlag þar á ofan. Forráðamaður Byggis h.f. hefði talið sig hafa slæma reynslu af frauðsteypu og þá hefði verið ákveðið að nota vikurblöndu eft ir að reynsla með prufu hefði sýnt, að slík einangrun væri nægilega sterk, ef í gólfin yrði lagt samskonar efni og á réttum styrkleikahlutföllum og prufurn ar voru gerðar úr. Þeir hefðu ekki á hendi daglegt eftirlit með framkvæmd byggingarinnar, enda ekki ráðnir til að hafa slíkt eftirlit. Niðurstaða málsins í héraði varð sú, að Verklegar fram- kvæmdir h.f. og Byggir h. f. voru sýknaðir, en Jón Eiríks- son, múrarameistari og arkitekt arnir tveir, sem fyrr eru nefnd ir, voru allir dæmdir til að greiða in solidum kr. 33.800.00 auk vaxta og kr. 10.000.00 í máls- kostnað. f Hæstarétti var staðfestur sýknudómurinn yfir Verklegum framkvæmdum h.f. Um hina að- ilana segir svo í forsendum að dómi Hæstaréttar: „Eins og áð- ur er greint, var vikureinangr- unin mjög gölluð. Aðaláfrýjend- urnir, Gunnlaugur og Guðmund ur, sögðu fyrir um efni og blönd un nefndrar einangrunar og á- kváðu þykkt slitlagsins ofan á vikrinum. Þessi einangrunarað- ferð við geislahitalögn var þeim lítt kunn, eins og tilraunir þeirra bera með sér. Þrátt fyrir það fylgdust þeir frá upphafi eigi sem skyldi með framkvæmdum verksins og hvernig einangrun- in reyndist, þá er á hólminn kom. Aðaláfrýjandinn, Jón Ei- ríksson, múrarameistari, hafði verkið á hendi. Honum varljóst að einangrunin fullnægði eigi þeim gæðaskilyrðum, sem gera bar til hennar. Ingvar Þórðar- son, trésmíðameistari, fór með verkstjórn á heildarframkvæmd um byggingarinnar fyrir hönd stefnda Byggis h.f. og annaðist kaup á vikursalla þeim, sem not- aður var í einangrunina, en lét hvorki kanna gæði vikursins, svo sem arkitektarnir kváðust hafa gert ráð fyrir, né hafði nægilegt eftirlit með framkvæmd verksins. Af hendi allra aðal- áfrýjenda og stefnda Byggish.f. hefur samkvæmt framsögðu ver ið sýnd vangæzla við undirbún- ing og framkvæmd vikureinangr unarinnar og eftirlit með henni og verða þeir því að bera ó- skipt fjárábyrgð á tjóni (Bygg- DIVERTIMENTO Mozartis fyrir óbó, tvö horn og strengjasveit í D-d'úr verður fyrst á efnisskrá Sinfóníuhljómsveiitar íslands á 11. tónleikum hennar n.k. fimmtudagskvöld. Verkið samdi Mozart í júlí 1776, tvítugur að aldri, en það er taliið vera 251. tónsimíð meistarans. Þá verður 103. sinfónia Haydns leikin, næst seinasta sinfónían, sem hann samdi. Hún er ein af tólf svokölluðum Lundúnasinfón- íum, en þær voru krýningin á sinfónískum skáldskaip hans. Sinfónía þessi hefur gælunafn, eins og önnur vinsælustu verk Haydns. Bún er þekkt annað hvort undir enska beitinu „The Drum Roll“ eða hinu þýzka „Paukenwirbel“. „Bumlbuþyrl" væri hliðstætt íslenzkt heiti. Þriðja verkið á tónleikunuim verður annar píanókonsert Rach- í KVÖLD hefst Boðsmót Tafl- félags Reykjaivíkuæ 1968. Gestur mótsins verður Rúbek Rúbeksen frá Færeyjum, en Rú'beksen kom s.l. sunnudag hingað til lands á vegum Taflfélags Reykjavikur. Tilhögun mótsins verður þann- ig háttað, að tefldar verða sjö umferðir eftir Monrad-kerfi og fær hver þátttakandi 1% tiíma til umráða á 36 leiki og skal síð- an Ijúka skákinni á hálfri klukkustund. Sérstakir gestir mótsins verða ennfremur þeir Sigurgeir Gísla- son, Þórir Ólafsson og Guð- mundur Þórarinsson. Öðrum meistaraflokksmönnum er frjáls þátttaka. Á s.l. ári fór einn félagsmaður Taflfélags Reykjavíkur, Jóhann Sigurjónsson, til Færeyja í boði Taflfélagsins í Þorshöfn og tók þar þátt í alþjóðlegu skákmóti. ingarsamvinnufélags Reykjavík- ur)“. Samkvæmt þessu voru arki- tektarnir, Gunnlaugur Halldórs son og Guðmundur Kr. Krist- insson, múrarameistarinn Jón Eiríksson og Byggir h.f. dæmdir til að greiða Byggingarsamvinnu félagi Reykjavíkur kr. 33.800.00 með vöxtum og kr. 30.000.00 1 málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti. maninoffs. Konsertinn á sína sérkennilegu sögu, því að erfið- lega gekk að ljúka við ha-nn, vegna þess, að höfundurinn hafði misst allt sjálfsálit, en svo hefur konsertinn orðið meðal vinsæl- ustu píanókonrseta sögunnar. Einleikari verður Ferry Geto- hardt. Gebhardt var einu sinni undra barn og lék á tónleikum einn eða með hljómsveitum um alla álf- una. Síðar gerðist hann nemandi og samstarfsmaður Edwins Fisdhers, og léku þeir mikið saman á tvö píanó á tónleikum og tónlistarhá'tíðum. Síðan 1950 hefur Gebhardt verið prófessor og yfirmaður píanódeildar tón- listarháskólans í Hamborg, jafn- framt tíðu tónleikahaldi. Stjórnandi tónleikanna verður Bohdan Wodicko. Margeir Sigurjónsson, stórkaiup- maður, hefur haft alla milli- göngu um þessi samiskipti Taifl- félags Þór^hafnar og Taflfélags Reykjavíkur. Boðsmótið he'fst kl. 20. Teflt verður í Skákheimili Taflfélags Reykjavíkur að Grensásvegi 46. Lond'on 16- febr. AP EKKERT svar hefur enn borizt frá yfirvöldum í Kína um að þau ætli að láta lausan frétta- ritara Reuters, Anthony Grey, sem handtekinn var þar á sL ári. Frá þessu var skýrt í neðri málstofu brezka þingsins í gær og ítrekað, að aldrei hefðu feng izt uipp gefnar neinar áistæður fyrir handtöku Greys, né held- ur hvernig á því stæði að fyrór spurnum varðandi hann væri ekki svarað. RENAULT 4L Renault 4 L 4ra dyra er til sölu. Bíllinn er nýuppgerður. Upplýsingar veitir Ólafur Kristófersson Kalmanstungu. Sími um Síðumúla. Feny Gebhard leikur píanókon- sert með Sinfóníuhljómsveitinni Boðsmót Tnflfél. hefst í kvöld ASS&iA I8LENZK—AMERÍSIÍA FÉLAGIÐ Skemmtifundur verður haldinn í Sigtúni 22. febrúar kl. 8.30 stundvíslega. Til skemmtunar verður: 1. Ávarp — Hannes Kjartansson, sendiherra. 2. Gítarleikur. 3. „The Cauliflowers“. 4. Midnight surprise item. Ýmsir leikir. — Dansað til kl. 1 e. m. STJÓRNIRNAB.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.