Morgunblaðið - 20.02.1968, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1968
Nú, — hvað er þetta, er sendillinn ekki farinn heim úr vinn-
unni?
ist smellandi kliður ritvélarinn-
ar yfir röddu frúarinnar.
Ritvél Irene var ein af guðs
góðu gjöfum. Hún gat strokið
allan harm af hinu hörmulegasta
morðmáli, gert það jafn hvers-
dagslegt og aldinmauksþjófnað
drengja úr ísskáp móður sinn-
ar. Irene heppnaðist líka að
þjappa hinni orðmörgu skýrslu
frúarinnar saman í nokkrar
hnitmiðaðar setningar. Síðan
fylgdi hún henni aftur inn u
skrifstofu Nemetz.
— Þér verðið að skilja að
fyrirkall yðar, sagði frú Halmy
æst, mun reynast árangurslaust
gagnvart manni mínum. Hann
mun hafa það að engu. Segja að
hann sé alveg upptekinn í sjúkra
húsinu. Þessi bylting kemur sér
mjög vel fyrir hann. Hann mun
nota hana sér til afsökunar.
— Við munum áreiðanlega
finna hann, greip Irene fram í.
Skrifið aðeins undir, og látið
okkur um hitt.
Frú Halmy gekk að skrifborð-
inu, tók penna og skrifaði und-
ir, með fyrirmyndar rithönd
skólastúlkunnar. Svo sneri hún
sér frá þeim og gekk til dyra.
Nemetz kom síðar í hug að nokk
urt hik var á henni, um leið
og hún gekk út — eins og henni
væri nauðugt að yfirgefa það
öryggi, sem staðurinn veitti
henni.
— Svona svikakvendi, sagði !
Irene. Hún þykist vera hrædd |
við manninn sinn, en þorir að
ganga um allar götur, þó rúss-
neskur her sé þar á ferð. Hvers-
vegna er hún ekki hrædd við
Rússana?
— Annað hvort er hún það,
eða þá að hún er það ekki,
svaraði Nemetz.
Til klukkan tíu um kvöldið
hafði verið tiltölulega rólegt um-
hverfis lögreglustöðina. Stöku
sinnum heyrðist að vísu spreng-
ing. Rússneskur varðflokkur
lagði frá sér særða inní portið,
þar sem þeir skyldu bíða, í
nokkru vari, eftir sjúkravagni.
Kona, með augljóst taugaáfall,
krafðist verndar fyrir sig og
unga dóttur sína, en þær voru
einar eftirlifandi í íjölskyld-
unni. Irene bjó um þær á skrif-
stofu Porkais. Klukkan tíu var
umferð að mestu lokið. Nemetz
var einmitt að festa blund, þegar
Koller sakamálafulltrúi rak höf-
uðið inn úr dyrunum.
— Hafðu þig nú heim, gamli
vinur. Nú tek ég við vaktinni,
sagði hann hátt og ákveðið.
Nemetz hristi af sér svefninn
og settist upp.
— Hversvegna ert þú ekki
sjálfur heima? Þú ert búinn að
vera hér á vakt þrjár nætur
í röð.
— Emigrantinn er enn í víga
hug, svo ég kýs að halda mig
í fjarlægð. Hún komst að öllu
saman með okkur Irmu.
„Emigrantinn" var kona hans.
Hún var frá Milano. í vexti var
hún einna líkust víntunnu, og
vó 250 pund. Ekkert orð kunni
hún í ungversku, þótt hín væri
nú búin að búa í Budapest í
30 ár. Börnin gengu í ungversk-
an skóla, og vinnukonan var
ungversk. Þrátt fyrir þetta
heppnaðist henni að einangra sig
í sínum eigin heimi, innan um
rauð gluggatjöld, dýrlingamynd-
ir, Gigli-plötur og feiknin öll af
spag'hetti.
— Emigrantinn er orðin erf-
ið í seinni tíð, sagði Koller. Hún
er orðin sannfærð að það hafi
verið ég, sem hleypti bylting-
unni af stað, bara til að geta
verið að heiman um nætur.
— Hún hefur þó nokkuð til
síns máls, sagði Nemetz glettinn.
Hann fór að hafa sig 1 frakk-
ann sinn, en Koller skýrði hon-
um frá ástandinu í bænum á
meðan. Enn geisuðu bardagar
við Kilian-fher'búðirnar. Rúss-
arnir flæmdir burtu af svæði 5.
Á Lenin-stræti höfðu skóia-
börn sprengt í loft upp heila
skriðdrekasveit. Nú köstuðuþau
Molotov-kokteilum, í stað þess
að leika borðtennis og fótbolta.
Það var komið logn og gat-
an var auð, þegar Nemetz lagði
af stað heimleiðis. Hann hafði
herbergi hjá mágkonu sinni, sem
var ekkja, og bjó í Arpad-götu,
rösklega tuttugu mínútna gang
frá lögreglustöðinni. Það var
svalt, jafnvel biturt. Aðeins
Dóná var hulin blógráu, þungu
þokuteppi, eiris og hún vildi hlíf-
ast við að sjá hina eyðilögðu
hafnarbakka sína.
Leið hans lá gegnum Perc
Koez. Hinar látnu konur lágu
enn framan við brauðgerðarhús-
ið. Einhver hafði lagt trékross
yfir brjóstið á beirri, sem næst
lá götunni. Ofurlítill blómvönd-
ur lá við fætur þeirrar næstu.
Eins og í leit að einhverju, kom
ofurlítill vindsveipur og lyfti
bréfinu, sem að nokkru huldi
þá háu, ljóshærðu. í daufri
skímu götuljóssins greindi hann
hið öskugráa andlit hennar, sem
vissi nú til himinhæða. Ásjónan
öll hafði tekið á sig hinn sama
blæ og sú jörð, sem innan
skamms mundi umvefja hana.
4
Þrjár manneskjur sátu í
skugga við næstu götudyr. Mað
ur og kona, samanhnipruð í sorg
sinni, og skammt frá þeim stúlka
á fermingaraldri. Með stuttu
millibili gaf konan frá sér hljóð,
sem minnti einna helzt á brak
í nýjum skóm. Unga stúlkan sat
þögul, nema hvað tennurnar
glömruðu í munni hennar. And-
lit hennar var að mestu hulið
óstýrlátu dökku hári, sem
flæddi undan ljósri húfu. Káp-
an hennar var minnst einu núm-
eri of lítil, og auðvitað allt of
þunn fyrir árstímann. Han
minnti Nemetz á mynd á gömlu
póstkorti: „Foreldralaust barn“.
Hann hafði þegar gengið fram
hjá staðnum, þegar hann fékk
á tilfinninguna eitthvað, sem
hann gat ekki, á stundinni, gert
sér grein fyrir. Hann nam því
staðar. Slíkt og þvílíkt hafði áð-
ur borið við. Undirmeðvitund
hans vakti oft hugboð um það,
20. FEBRÚAR.
Hrúturinn 21. marz — 20. apríl.
Þú lendir sennilega í einhverjum óþæg-
indum í dag, taktu því öllu með stillingu.
Peningamálin dálítið á reiki. Gættu þín í
umferðinni.
Nautið 21. apríl — 21. maí.
Þú hefur unnið vel að undanförnu og
ættir nú hvað úr hverju að hljóta umbun
fyrir erfiði þitt. Ekki skaltu verða vonsvik-
inn þó að þér finnist ekki allir meta þig a’ð
verðleikum.
Tvíburarnir 22. maí — 21. júní.
Þú ættir að athuga, hvort þú hefur sett
þig nógu rækilega mn í mál, sem þér hefuf
verið falið í hendur. Kynntu þér ekki alltaf
aðeins yfirborð hlutanna.
Krabbinn 22. júní — 23. júlí.
Góður dagur til hvers konar athafna.
Reyndu ekki of mikið á þig. Leggðu nokkra
fjárupphæð fyrir í dag. Bjóddu vinum þín-
um heim og gerðu þeim góða veizlu.
Ljónið 24. júlí — 23. ágúst.
Láttu ekki blekkjast af fögrum orðum og
hástemmdum loforðum. Treystu eigin dóm-
greind og farðu að öllu með gát. Vertu hóf-
samur.
Jómfrúin 24. ágúst — 23. september.
Það er ánægjulegt fyrir þig að njóta jafn
mikillar aðdáunar og raun ber vitni um.
Vinir þínir elska þig og dá. Þú gætir reynt
að sýna þeim að þú metur vináttu þeirra.
Vertu gætinn og hófsamur þegar líður að
kvöldi.
Vogin 24. september — 23. október.
Þú hefur verið alltof eyðslusamur upp á
síðkastið vegna óvæntra fjárróða. Taktu
peningamál þín til endurskoðunar.
Drekinn 24. október — 22. nóvember.
Gefðu engin bindandi loforð í dag.
Gleymdu ekki, að vinur þinn þarfnast hjálp-
ar þinnar í neýð og sýndu honum að þú
viljir reynast honum vel. Ekki skaltu vinna
of lengi í dag.
Bogmaðurinn 23. nóvember — 21 desember.
Vertu ekki að pukrast með einhverjar
upplýsingar, sem öðrum koma kannski að
gagni. Vertu hreinskilinn og skorinorður,
en þú skalt varast að særa neinn með ó-
gætnislegum orðum.
Steingeitin 22. desember — 22. janúar.
Sýndu skynsemi í innkaupum í dag og
láttu ekki ginnast til að kaupa það sem þú
hefur engin not fyrir. Hafðu samband við
fjarstaddan vin. Bjóddu vinum heim í
kvöld.
Vatnsberinn 21. janúar — 19. febrúar.
Ýmsir kunningjar þínir eru að reyna að
troða upp á þig hugmyndum og sköðunum,
sem þú ert frábitinn. Sýndu sjálfstæði. Þú
skalt vinna vel og rösklega, en fara snemma
í rúmið.
Fiskarnir 20. febrúar — 20. marz.
Það er aldrei þægilegt að liggja undir
grun hjá vinum, en sennilega verður þú
fyrir pví í dag. Kunningjar þínir eru tor-
tryggnir í þinn garð, hver veit nema ástæða
sé til þess.
wjE-iív
♦
Hvað kostar ríkjandi landbúnaðar
stefna neytendur?
Bjarni Helgason. Óli Þ. Guðbjartsson.
Almennur félagsfundur Heimdallar F.U.S. n.k. miðvikudag kl. 20.30
í Himinbjörgum, Valhöll v/Suðurgötu.
Frummælendur verða dr.
Bjarni Helgason, jarð-
vegsfræðingur, og Óli Þ.
Guðbjartsson, kennari.
STÓR-ÚTSALA
á kjólefnum
hefst í dag.
Mikið af alls konar kjólefnum
mun verða selt fyrir ótrúlega lágt
verð. Komið meðan úrvalið er mest.
Austurstræti 9.