Morgunblaðið - 23.03.1968, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 196«
rz BÓKMENNTIR
Misg; jörðir feðranna Skáldsaga
eftir Gísla Jónsson fyrrverandi
alþinglsmann.
ALLIR íslendingar, sem komnir
eru til vits og ára hafa lengi
vitað, að Gísli Jónsson væri
dugandi kaupsýslumaður og
hefði í mörg ár verið umsvifa-
mikill á sviði íslenzkra stjórn-
mála. En hitt vissu menn ekki
til skamms tíma, að hann hefði
hug á að skrifa bækur í elli
sinni.
Sú hefur þó orðið raunin. Ár-
ið 1966 kom út efitr hann ævi-
saga foreldra hans, og er hún
merkisrit. Lýsing Gísla á foreldr
um sínum og lífsbaráttu þeirra
er merkileg, og ennfremur kem-
ur fram í bókinni glögg lýsing
á Gísla sjálfum. Þá er bókin
einnig allglöggur spegill þess
tíma, sem hún tekur til.
Svo var það á síðastliðnu
hausti, að bókaútgáfan Setberg
gaf út eftir Gísla skáldsögu, sem
heitir Misgjörir feðranna. Það
er allstór bók, fimmtán og hálf
örk. Hún er og vönduð að öll-
um frágangi frá hendi útgefenda
Með forsögu og viðbæti gerist
saga þessi á meira en heilli öld,
en aðalsagan á aðeins einu ári,
og þó að ýmsum lesendum muni
finnast fyrstu tveir kaflarnir all
forvitnilegir, eru þeir í rauninni
óþarfir með tilliti til hinnar
draimatí'sku sögulheildar, og frá-
sögnin af líknaraðgerðum séra
Helga í sögulok er ekki aðeins
óþörf með tilliti til skáldlegs
söguforms, heldur spillir hún á-
hrifum sögunnar, enda ekki laus
við væmni. Áhrifamest hefði orð
ið að skilja við Botnsheiðar-
Guddu sem afturgöngu, er bryt-
ist annað veifið undan breðanum
í hinu djúpa gili og birtist veg-
farendum á heiðinni.
Auðsætt er af lýsingu Gísla
á föður sínum í bókinni, sem út
kom haustið 1966, að Jón Hall-
grímsson hefur verið maðurmjög
tilfinninganæmur og ennfremur
allhugkvæmur. Þá vitnar og lýs-
inginn á móðurinni um miklar til
finningar og óvenju sterka skap
feöranna
gerð. Er engan veginn undarlegt
þó að út af slíkum hjónum komi
skáld. Alkunnugt er, að hið mik-
ihæfa og mjög listræna skáld,
Guðmundur Kamban, var sonur
þeirra, og mér virtist augljóst
af fyrri bók Gísla, að hann væri
ekki einungis gæddur frásagnar
gáfu heldur og allríkri hæfni til
mannlýsinga. Og þó að skáld-
saga hans jafnist ekki á við þá
bók, vitnar hún bæði um rit-
höfundarhæfileika og skáldgafu
Stíllinn á sögunni er ójafn
og óvíða svipmikill, en hann er
oft fjörlegur og svo sem yljaður
sannri frásagnargleði. Ýmsar at-
Akureyri, 21. marz.
Niðursuðuverksimiðja K. Jóns-
somair & Co. tók til starfa í gær
eftír lað vinna hafði legið þar
niðri síðan bruninn varð í velrk-
smiðjuhúsiniu seint í janúarmán-
uði. Þó 'er viðgerðum ekki að
fullu lokið enn og mun ekki
Ijúka fyrr en um páska. Einkum
er eftir máln/ingarvrnna.
Nú er verið að leggja niður
burða- og átakalýsingar eru
skrifaðar af fjöri og glögg
skyggni, og höfundurinn lýsir
stundum íslenzkri náttúru af ein
lægri hrifni og ríkri athyglis-
gáfu. Personulýsingarnar eru
misjafnlega skýrar og á ýmsum
þeirra brotalöm, en þær sýns
ljóslega, að höfundurinn hefur
gert sér far um að lýsa allólík-
um manngerðum og jafnt göllum
þeirra og kostum. Einna lökust
er lýsingin á dusilmenninu Jó-
hannesi Hrafnkelssyni, sem verð
ur um of auvirðilegur, en bezt
tekzt höfundinum upp, þegar
hann lýsir harðlyndu fólki og
skapríku, og á ég þar einkum
við sjálfa Botnsheiðar- Guddu
og Hrafnkel bónda á Kambi, en
milli þeirra eru átökin hörðust.
Samtöl eru vandgerð, en þar
tekst höfundinum stundum furðu
vel — og ekki sízt, þegar í hart
fer.
Þó að sumt í þessari sögu
sé máiað ærið dökkum litum, er
ekki í henni neinn saur eða sori,
og ég býst við að ýmsum muni
þykja hún skemmtilegur tóm-
stundalestur.Víst er og um það,
að gallar sögunnar eru minni og
kostirnir meiri en ætla mætti,
þegar þess er gætt að höfundur
hennar er hartnær áttræður og
ekki er almennt vitað, að hann
hafi skrifað annað fram að half
áttræðu en söguna af för sinni
og nokkurra anarra á Frekjunni
milli landa — að undanskildum
blaðagreinum, nokkrum útvarps
erindum og tillögum og frum-
vörpum, sem hann bar fram á
alþingi.
Guðmundur Gíslason iHagalín.
ikryd'd'síld og verður .því verki
ha'ldið áfram fram í makniánuð.
Fraim að næstu halgi verður
ekiki unnið imeð fulluim aflkiöst-
uim, en frá og með miánudegin-
uim munu vinna í verkisimiðjunni
uim 70 manns, þar af uim 50 kon.
ur.
&mláis'íidarniðursuð'an, sem
stunduð var fyrir brunann verð-
ur ekki tekinn upp afftur fyrr erí
í júnílbyrjun, þar sam smlásilldin
er of ihoruð um þesis'ar mundir
til að vera notbæf. Ef ekki h'e'fði
brunnið hefði þessi niðuTsuða
staðið til febrúarlolka og veitt
um 100 konum atlvinnu.
Niðursuða ýmiis'sa annarra
vörut&gunda mun liggja niðri
um óákVeðinn tima, vegna dós'a-
ieysiis. Er þar aðalle'ga um að
ræða tfiiskíböllur, fiskbúðing,
græmmeti og fileiri vörur, s'em
notið halfa mi'killa vinsælda hjá
neytendum. Fyrirtækið Ihafði
lagt í gijfunlegan Ikostnað við hús
næði og vélakaup til að geta
framleitt þær, en hefux nú misst
af sölu fyrir milljónir króna að-
allega innanlands, vegna vönt-
unar á hentugum dósum, ef'tir
þvi sem Kris'tján Jóns’son, verk-
smiðjustjóri hefur upplýst. Þá
Framhald á bls. 17.
r \ Jke
IrOO joro
í Rangárvallasýslu er til sölu og ábúðar frá næstu
fardögum að telja. Áhöfn getur fylgt með í kaupum.
Skipti á húseign í kaupstað koma til greina.
Upplýsingar gefur Ragnar Ólafsson hæstaréttar-
lögmaður, Reykjavík.
Skrifstofustúlka óskast
Opinber stofnun í Miðborginni óskar eftir að ráða
skrifstofustúlku til ritarastarfa, helzt vana.
Tungumálakunnátta nauðsynleg.
Umsóknir sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir
31. þ.m., merkt: „Miðborg — 8905“.
K. Jónsson tekið
til starfa á ný
BARNASKÍÐI
ADALSTRÆTI
NÓATUNI
Sigurbjöhn Þorkelsson
Himneskt er aö lifa
— 2. bindi sjálfsævisögu
Sigurbjörns Þorkelssonar
NÚ VAR Leiifur að senda frá
sér annað bindið af sjálfsævi-
sögu Sigurbjörns í Vísi. Mun
það fagnaðarefni þeim mörgu,
sem gæddu sér á hans fyrstu
bók í fyrra, svo ágætar viðtök-
ur sem hún fékk bæði meðal al-
mennings og í blaðadómum. Jafn
vel þó að sitefið „Himneiskit er
að lifa“ hefði aldrei fyrirfundizt
í neinni sólbjartri vísu Hannes-
ar Hafsteins, hefði Sigurbjörn
Þorkelsson verið vís til að kalla
æviminningar sínar þessu nafni,
svo þrungnar eru báðar þessar
bækur hans af glaðabirtu frá vor
dögum hins unga íslands á nær
tveimur fyrstu tugum þessarar
aldar.
Það er fáum gefið að geta
skyndilega á efri árum gerzt víð
lesinn og vinsæll rithöfundur. En
þannig hefur farið um Sigur-
björn í Vísi, eftir mjög langan
starfsdag og annasaman í mesta
lagi á allt öðrum sviðum.
Þessi bók er 448 bls, eða um
það bil 20 bls. lengri en sú fyrri,
sem fjöldi manna, eldri og yngri,
úr öllum stéttum, las með
áfergju, einn stuttan kafla eftir
annan, sem gefa útsýn til allra
átta, svipmyndir aí samtíð hölf-
undar og samtíð þeirra, sem slit-
ið hafa barnsskónum fyrir nokk
ru, — menningarsögulegar mynd
ir og minjar, sem munu hafa
sannferðugt framtíðargildi, því
að rithöfundurinn er ekki sagna
skáld, heldur stálminnugur mað-
ur staðreynda, sem engum vill
gera rangt til, en hefur margt
gott og margt hnyttið frá sam-
ferðamönnum sínum að segja. Og
þeir eru fjölda margir, því að
víða kom hann við. Hann hlaut
að verða meðal þeirra, sem ýttu
íþróttahreyfingunni af stað, sjálf
ur magnaður afli og áræði og
frábærri snerpu og Yar að verða
þekktur íþróttamaður (síðar fim
asti klifurköttur í eldlínu
slökkviliðsins á vaxtarárum
þess), og þá ekki síður í félags-
legum átökum íþróttamanna.
Einn af áihugaimestu saimlstar'fs-
mönnum séra Friðr. Friðriksson-
ar. Höf. bregður upp ótal
skörpum augnabliksmyndum af
samstarfsmönnum sínum og and-
stæðingum, enda lendir kastljós
ið aldrei á honum einum á neinu
Einkasoinori
óskar eftir að skipta eða
fcaupa íslenzk frímerki fyrir
1950. Þeir, sem hafa áhuga
eru vinsamlega beðnir að
skrifa á ensku tiil
W.B. Cummings,
952 Houserville Road.
State College, Renna.
U.S. America 16801.
sviði þessara minninga, heldur
fær lesandinn jafnframt kynni af
mörgum mönnum öðrum og oft í
einum samfelldum hóp.
í þessu nýja hefti telst mér
vera 26 kaflafyrirsagnir, en öll-
um köflum skipt í greinar með
undirfyrirsögnum, svo að i þess-
ari bók munu þær vera alls 235
að tölu, hver annarri áhugaverð
ari, og fjölbreytnin í bezta lagi.
Stundum er talað um að blása
lífi í frásögn. Um frásögn Sigur-
björns má öllu heldur segja, að
hún er lífið sjálft með öllum þess
viðbrögðum og starfi, jafnt hans
sjálfs sem margra annarra. Þó
að atvikin séu brosleg og smellin,
eru sum alvarleg og örlagarík.
Hið óviðjafnanlega og einstæða
lífsfjör höfundar hraðstreymir
um alla bókina, og yfir henni
er heiðríkja heilsteyptrar lífs-
skoðunar, sem skín einna bjart-
ast í kaflanum um raunir og
sorg.
Sigurbjörn hefur starfað
margt um dagana, og alltaf af
frábærum áhuga, upprunninn í
sveit, fluttist allslaus til höfuð-
staðarins eins og fleiri, vann sig
áfram með ýmis konar störfum,
sérstaklega á verzlunarsviðinu,
umz bann gerðist kaupmaðUr
sjálfur og verzlaði lengi, sem
kunnugt er, kenndur enniþá
við verzlun sína, VÍSI. Þegar
menn lesa bók eða bæk-
ur Sigurlbjörns, hlýtur at-
hygli að beinast að því meðal
annars, hversu hann minnist
margra með þakklæti, þeirra sem
hann telur hafa rétt sér hönd
fyrr á árum. Sigurbjörn er lif-
andi sönnun þess, að mönnum,
sem temja sér þakklæti til Guðs
og manna, líður vel og hafa
hlýtt hjarta, þó að árin færist
yfir. Allar þær svipríku myndir,
sem S.Þ. bregður upp gegn um
bókina frá upphafi til enda, hafa
varðveizt og lifað fyrir hugskots
sjónum hans svo ferskar og fjör
legar, af því að hann nýtur enn-
þá þeirrar fágætu náðar að eiga
viðhorf og gleði æskumannsins
og baráttumannsins gagnvart um
hverfinu og lífinu í heild. Fáum
auðnast að verða veitandi vinur
eins mörgu fólki í hlýrri við-
kynningu eins og Sigurbirni á
hans löngu ævileið. Ég er sann-
færður um, að allir hafa auðg-
ast af þeirri kynningu, og því
meir sem sú kynning varð nán-
ari. Þeir gleðjast af því að
heyra fjörið í málróm hans á
blaðsíðum þessarar bókar, og
þekkja hjartað, sem undir slær.
Og þeir gleðjast af því, að bók-
in aflar honum nýrra vina. Hafi
þá einnig Leiftur óskipta þökk
fyrir bókina, myndarlegan frá-
gang á henni, og fyrir þá ráð-
stöfun, að gera einnig komandi
kynslóð fært að kynnast höf-
undinum.
Helgi Tryggvason