Morgunblaðið - 23.03.1968, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1968
in. Og þér vitið vel, að hrafn-
arnir kroppa ekki augun hver
úr öðrum. Starfsfólk? Vinnukon
an, hún Lilla. Hana hafið þér
hitt, svo að þér getið skapað
yður skoðun á henni. Sjálfur
held ég nú ekki, að hún sé
neinn morðingi að upplagi. Hún
gæti vitanlega blandað eitri í
matinn en varla nema óviljandi.
Vinir? Þar er ég hræddur um,
að ég geti ekki hjálpað yður
mikið.Við konan mín áttum ekki
neina vini, í þeim skilningi. Tók-
um ekki þátt í neinum samkvæm
um. Rétt eftir að við vorum gift,
fór ég með hana í samkvæmi hjá
fólki, sem ég hafði alizt upp með.
En það varð ekkert úr því. En
það var annars mest sjálfri
henni að kenna. Hún var sann-
færð um, að þetta fólk liti niður
á hana, sem kannski líka var,
og svo slepptum við alveg af
þeim hendinni. Hvort þetta fólk
sleppti okkur eða við því, get
ég ekki fullyrt neitt um. Við
hættum að minnsta kosti að um-
gangast það.
— En systir yðar? Hvernig
samband var með henni og kon-
unni yðar? því að þér eigið
systur, er ekki svo?
— Jú, sjáum til, þarna hafið
þér fest fingur á nokkru. Hún
hataði Önnu af öllu hjarta. Yf-
irgaf mig alveg þegar við gift-
umst. Við sættumst nú annars
seinna, víð systir mín. En hún
lét aldrei undan hvað Önnu
snerti. Hélt áfram að nauða á
mér að skilja við hana. Vitan-
lega minntist hún aldrei á morð,
heldur bara skilnað. En — þeg-
ar ég hugsa nánar um, hefur
hún nú kannski haft morð
í huga. Hún var þannig skapi
farin. Það lægi ekki nema beint
við að gruna hana, ef hún hefði
ekki flutzt búferlum til Kanada
fyrir átta árum, og átt þar heima
síðan.
Nemetz beið meðan læknirinn
kveikti sér í enn einum
vindlingi. Hann leit á hendur
hans. Það var enginn skjálfti á
þeim.
— Hvað var það í fari kon-
unnar yðar, sem systir yðar og
vinir gátu ekki þolað? Var það
umhverfi hennar eða innræti.
— Hvorttveggja og bæði, gæti
ég trúað. Að minnsta kosti átti
það við um systur mína. Ég
hitti konuna mina, þegar hún
vann hjá móður minni. Var
vinnukona. Og það var ekki einu
sinni fyrsta vistin hennar. Hún
var verulega sæt í svörtum kjól
og með hvítan kraga, stífaða
svuntu, en það var líka allt og
sumt, sem hún lét heimilinu í
té. Hún var blóðlöt á alla hús-
vinnu, en þar sem hún hafði
aldrei komizt hærra en í barna-
skóla, var vist það eina, sem
hún gat komizt í. Og sannast
að segja, held ég, að hún hafi
þá ekki getað hugsað sér neitt
hærra en það eitt að ná sér í
karlmann, sem gæti séð íyrir
henni, svo að hún þyrfti ekki
neitt að gera. Foreldrar hennar
voru verkamannafólk. Faðir
hennar var dyravörður við leð-
urverksmiðjuna Veritas. Þetta
var 1943. Seinna forframaðist
hann í langtum merkilegri stöð-
ur: verkstjóri, ráðningastjóri og
svo, fyrir svo sem tveimur árum,
forstjóri alls fyrirtækisins. Ég
þarf vitanlega ekki að taka fram
að hann er í Flokknum. Og mjög
starfandi þar, einkum síðan 1948.
Þegar ég hitti hann, 1943, var
hann tiltölulega meinlaus déli.
Hann var vanur að koma og
heimsækja dóttur sína. Ég man
hann vel, þegar hann sat á kolli
í eldhúshorninu. Húfuna hafði
hann í hendinni og í hvert sinn
sem eitthvert okkar kom inn,
þaut hann upp eins og stálfjöð-
ur. Hann var með yfirskegg eins
og Hitler, en var svo klókur
að raka það af sér, áður en
Rússarnir komu til Budapest. Ég
hef nú aldrei kært mig mikið
um hann, en líklega hefur það
verið af því, hvað hann var
andskoti ljótur. Og þegar ég
komst að því, að hann var ann-
að en bara Hitlersskegg og
kjánabros, var það ofseint. Þá
var hann fyrir löngu kominn
fram úr horninu og hafði þegar
sparkað 1 fleiri en einn eldhús-
koll.
20
Hann leit á úrið sitt og tók
að stika um gólfið, langstígur og
taugaóstyrkur. Nemetz hallaði
sér aftur í stólnum og beið þess
rólegur, að hann héldi áfram.
Eitthvað í bókahillunni vakti eft
irtekt læknisins. Hann stanzaði
og dró út eina bókina. — Journ-
al of the Americans Institute of
Criminal Law, las hann. —Ekki
vissi ég, að þetta væri skyldu-
námsgrein hérna.
— Það er það heldur ekki,
svaraði Nemetz.
Hann leit á einar fimm bækur
aðrar í sömu grein. — Eigið þér
þessar sjálfur?
Nemetz kinkaði kolli.
— Þér talið þýzku, frönsku og
ensku? spurði Halmy.
— Ég tala vel þýzku, já, og
frönsku _ er ég slarkfær í. En
ensku. Ég get varla sagt, að ég
tali hana. Ekki almennilega. Nem
veitingahúsið
ASKUR
BÉdHU
BVÐUR
YÐUR
HELGARMATINN
í handhcegum umhúðum til að taka
HEIM
GRILLAÐA KJÚKLINGA
ROAST BEEF
GLÓÐARSTEIKT LAMB
/ GLÓÐARSTEIKT NAUTAFILLÉ
GLÓÐARST. GRÍSAKÓTELETTUR
HAM BORGARA
álfwl#
r Gleðjið frúna —
• fjölskjlduna — vtnina —
V — njótið
\ hinna Ijúffengu rétta
£ beima i stofujðar.
Ef þér óskið
getið þér hringt og pantað •
við sendum leiguhíl
með réttina heim
tiljðar.
ÆSKUR matreiáirfyriryðwr
dUa daga vikunnar
Sudurlamhbraut lf sími 38550
— Komdu með þann jairpa Olli minn, en gleymdu ekki að
skella fyrir augu hans augn hlífunum.
etz stóð seinlega á fætur og
gekk að hillunni. — En ég skil
hana. Þó betur á bókina en tal-
aða. Einu sinni tók ég tíma í
Berlitz skólanum. En það var
ekki nema eitt ár. En því miður
fékk ég ekki tækifæri til að
nota það við að, tala. En ég hef
lesið mikið um glæpafræði, og. .
hann hikaði dálítið ... glæpa-
reyfara. Allt frá Conan Doyle
til Mickey Spillane. Allt, sem ég
gat náð í.
Læknirinn var hættur að
ganga um, en settist samt ekki.
Hann hallaði sér upp að veggn-
um og askan datt af vindlingn-
um hans niður á óhreint gólfið.
Svo sagði hann og fremur við
sjálfan sig en Nemetz. — Móðir
mín var mikill Bretavinur, Ein
frænka hennar giftist Englend-
ing — það var einhver landað-
alsmaður í Sussex, og manrna
var tvö ár í Englandi þegar hún
var krakki. Ég held, að eftir Það
hafi hún aldrei kunnað almenni-
lega við sig í Ungverjalandi. En
vitanlega nefndi hún það aldrei.
Það hefði auðvitað sært tilfinn-
ingar okkar hinna — pabba,
systra minna og mínar. Og hún
gerði aldrei neitt sem var óviðeig
andi. Hún var af Hankiss—ætt-
inni. Þér þekkið það. Það voru
margir ráðherrar í þeirri ætt og
prófessorar og rithöfundar —
skáldið Lorant Hankiss.
— Fínt fólk, sagði Nemetz.
— Það var skaði, að þeir skyldu
ekki vera fleiri. Við hefðum vel
getað notað fleiri þessháttar.
— Ætli nú það? Þetta land
þarfnast stjórnenda en ekki
draumóramanna. Mér hefur allt-
af fundizt eins og Hankissarnir
hafi verið minnst fimmtíu árum
á eftir tímanum. Þetta var sinn
hópurinn úr hverri öldinni. Fyr-
irfram dæmdur til að deyja út.
Vitið þér það, að enginn lifði
af hvorki stríðið, nazistana né
Rússana? Rétt að einstöku ekkj
ur þeirra eru enn uppihangandi.
— Það er illa farið, sagði Nem-
etz, og honum var alvara.
— Ojæja, hún mamma var nú
alveg jafnómöguleg og öll hin.
Kannski ennþá ómögulegri, ef
við reiknum þessa Bretadýrkun
23. MARZ.
Hrúturinn. 21. marz — 19. apríl.
Þú ættir að létta þér rækilega upp í kvöld, dansa af krafti
en tala því minna. Þú munt sjá það gefur góða og ánægjulega
í raun.
Nautið. 20. apríl — 20. maí.
Hvatningar frá í gær um að hlífa þér eru hér með endurtekanr
í dag. Hittu nýtt fólk, sem mun gefa þér ferskar og góðar
hugmyndir.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní.
Svo kann að virðast að allir þeir sem þú umgengst reglulega
hafi misst kímnigáfuna í dag og líti alltof alvarlegum augum
á hlutina. Reyndu að hressa þá upp.
Krabbinn. 21. júní — 22. júlí.
Þú skalt fara snemma heim úr vinnu, ef þú mögulega getur
og aðstoða maka þinn eða félaga við að undirbúa veizlu í kvöld.
Hún mun takast prýðilega.
Ljónið. 23. júlí — 22. ágúst.
Þú færð ágætar fréttir í dag, sem án efa munu gleðja þig, enda
áttu það skilið efir ýmil leiðindi og mæðu að undanförnu. Vertu
heima í kvöld.
Jómfrúin. 23. ágúst — 22. september.
Þú skalt ekki snerta við innstæðum þínum í peningastofnunum,
en reyna heldur að fitja upp á nýjum fjáröflunarleiðum.
Skemmtu þér með vinum, en forðastu að lenda í þrætu eða
öðrum leiðindum.
Vogin 23. september — 22. október.
Þú hefur sýnt þolinmæði síðustu daga, en oft átt í vök að
verjast, þú getur nú búist við að um hægist og allt fari að snúast
á betri veg.
Drekinn 23. október. — 21. nóvember.
Þú skalt leyfa vinum þínum að lifa í þeirri blekkingu, sem
þeir hafa gert sér, ef þú telur það þeim til góðs. Vertu heima
við í kvöld.
Bogmaðurinn. 22. nóvember — 21!.desember.
Hætt við að þú lendir 1 þrefi við hitt kynið I dag, en
kipptu þér ekki upp við það, það stendur ekki djúpt. Heim-
sæktu vin þinn í kvöld og sýndu honum, að þér þykir vænt
um hann.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
Heiðarleik, hreinskilni og kimnigáfa hafa fleygt þér yfir
mörg sker og þú skalt ástunda þessa eiginleika þlna 1 hvað
ríkari mæli i dag.
Vatnsberinn. 20. janúar — 18. febrúar.
Gefðu þér góðan tíma til innkaupa í dag. Kann að vera þú
rekist á hlut sem þú hefur lengi leitað að. Vertu heima í kvöld
og hlustaðu á uppbyggjandi tonlist.
Fiskarnir. 19. febrúar — 20. marz.
Borgaðu reikninga þina áður en þú hefur eytt öllum peningum
þínum I hálfgerða eða algera vitleysu. Samvizka þin verður
ólíkt betri eftir.