Morgunblaðið - 24.03.1968, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 24.03.1968, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNTJDAGUR 24. MARZ 1968 11 Sólarferðir til beztu baðstrandar Spánar með betri kjörum en nokkru sinni COSTA DEL SÖL og LONDON 17 DAGA SÓLARFERÐIR FRÁ KR. 7.900.- Eftir voli hófela og brottfarardaga Söluskattur innifalinn í verði. BROTTFARARDAGAR: 22. maí — 5. júni — 19. júní — 3. júlí — 17. júlí — 31. júlí — 14. ágúst — 28. ágúst — 11. september — 25. september — 9. október og 23. október. FERÐIN L & L bjóða sumarið 1968 ferðir til vinsælustu, veð- ursælustu og beztu baðstrandar Spánar — Costa del Sól — sem eru hagkvæmari og ódýrari, en áður hefur þekkzt hér á Iandi . Dvalizt verður Jiálfan mánuð á baðströndinnl og tvo heila virka daga í London á heimleið. Flogið er með íslenzkum leiguflugvélum frá Loftleiðum til Spánar og beztu fararstjórar spönsku-mælandi — starfa á vegum okkar þar syðra. Við bjóðum mikið úrval af hótelum á ströndinni, þannig að hver og einn getur fundið og valið sér gistingu að vild. Costa del Sól er syðsta baðströnd Spánar — hún er ekki á eyju og því eru miklir ferðamöguleikar bæði um landið sjálft og t.d. til Norður-Afríku. f Torremolinos, þar sem öll hótelin eru staðsett, er fjölbreytt og líflegt skemmtanalíf og' einnig er nýstárlegt að kynnast skemmtanalífinu í Tangier i ferð okkar til Marokko. STRÖNDIN Costa del Sól. Sólarströndin eins og hún heitir á ís- lenzku, er syðsta baðströnd Spánar, og er öll strand- lengjan milli Malaga og Gibraltar. Ströndin hefur hin síðustn ár verið ein eftirsóttasta baðströnd Ev- rópu vegna einstakrar veðursældar. VEÐURFAR Ef borið er saman við Mallorka, þá er hlýrra á Costa del Sól vor og haust, þannig að hægt er að nota sjóinn og á sumrin verður ekki óþægilega heitt. Meðalhiti í maí er um 19 gráður og í ágúst 25 gráður. Hvergi á Spáni eru fleiri sólardagar ár hvert og má nefna að í mánuðunum júlí og ágúst rignir aldrei. VEÐURFAR SÍÐUSTU 30 ÁR maí júní julí ág. sept. okt. meðalhiti sjávar 17.4 20.7 20.9 24.2 21.2 18.3 meðalhiti á C’ 19.0 22.2 24.5 25.4 23.1 19.5 sólardagar 28 28 31 31 27 27 rigningardagar 3 2 0 0 3 4 FERÐAMÖGULEIKAR Á Costa del Sól eru margir ferðamannastaðir, en þeirra vinsælastur er Torremolinos, en þar eru öll hótelin ,sem við bjóðum. Sandurinn við Torrenmolin- os er fínn og mjúkur og allan þann tíma sem hópar okkar dveljast þar syðra má nota sjóinn. Stutt er til Malaga ,sem er merk borg fyrir margra hluta sakir, og einnig má fara ferðir til hinnar nafn- toguðu Granado og lengri ferðir til Sevilla og Cor- doba. Nautaat er reglulega í Malaga og Marbella, og enn má nefna, að mjög skemmtilegt er að fara ferð um Andlúsíu, sem teija má einn spánskasta hluta Spánar. Varðandi ferðalög má að endingu nefna ferðalög til Marokko. Pangað gengur ný ferja, með sundlaug og öllum þægindum og er komið til Tangier eftir nokkra tíma siglingu. Dvalizt er í tvo daga í þessu ævintýra- landi. HÓTELIN Það skal tekið fram strax, að öll liótelin, sem notuð eru, eru bæði með baði og W.C. Fulltrúi fyrirtækis- ins hefur nú nýlega verið á staðnum og sérstaklega valið þessi hótel, samkvæmt þeirri revnslu, sem við höfum varðandi ströngustu kröfur islenzkra ferða- manna. 1. PIZARJIO: Ódýrasta hótelið sem er í boði og það eina sem að- eins morgunmatur fylgir. Það er í sjálfum bænum Torremolinos og um 200 metra frá ströndinni. Hótel- ið er gott og hreinlegt, með öllum þægindum. 2. LAS PALOMAS: Nýtt hótel — opnað í marz sl. Þar eru öll þægindi, sem finna má á fyrsta flokks hótelum. Stór sundlaug og skammt er á bezta hluta baðstrandarinnar. Nætur- klúbbur. Öll herbergin með svölum. 3. COSTA DEL SOL: Hótel sem nýtur mikilla vihsælda. Þar rikir skemmti- legt andrúmsloft. Öll þægindi, sérstók baðherbergi, lyfta, barir, góðir veitingasalir og sérstök sundlaug, Herbergin eru með loftkælingu og stutt á ströndina. 4. JORGE V. Hótelið stendur við ströndina og aðebis örfá skref í sjóinn .Eitt skemmtilegasta hótelið á allri strönd- inni, byggt í spönskum stíl. Maturinn og þjónustan er rómuð á Jorge V, herbergin eru loftkæld ©g með sérstöku baði og svölum. 5. TORRE DE LA ROCA: Hótel í lúxusklassa, svokallað aparthótel. Ekki er um að ræða eitt hótelherbergi heldur heila íbúð. Öll þæg- indi sem nöfnum tjáir að nefna og veitingasalirnir eru mjög glæsilegir og veitingarnar eftir því. Hótel- inu fylgrir sundlaug. 6. NAUTILUS: Einnig í lúxusflokki og talið fcitt bezta hótelið á Suð- ur Spáni. Það stendur við bezta hluta baðstrandar- innar og hefur tvrer sundlaugar. Þar er saunabað og nuddstofa, verzlanir og hárgreiðslustofa. Margir veit- ingasalir og barir. FARARSTJÓRAR Fararstjórar okkar, þeir Guðmundur Steinsson og Svavar Lárusson hafa starfað á veguin L& L í mörg ár. Þeir þekkja báðir Spán eftir margra ára ferðir um landið og tala að sjálfsögðu spönsku. Guðmundur Steinsson Svavar Lárusson INNIFALIÐ í VERÐI: A. í Torremolinos: Gisting í tveggja manna her- bergjum, fullt fæði nema á Pizarro, þar er aðeins morgunverður, islenzkur fararstjóri. B. I London: Gisting í tveggja manna herbergjum með morgunverði, íslenzkur fararstjóri, ferð um London, ferð um London um kvöld. C. Flugfargjald, ferðir milli flugvaUa og hótela, flug- vallarskattar og söluskattur. Afsláttur fyrir börn: Innan tveggja ára frítt, 2ja-10 ára 25% afsláttur. Okkar verð eru raunveruleg verð, það sem við bjóðum er bezta baðströnd Spánar, vinsælasta ferðamannalands Evrópu, beztu hótelin á þeirri strönd og leiðsögn beztu og reyndustu fararstjóra. Leitið nánari upplýsinga. LOND & LEIÐIR Aðalstræti 8,simi 24313

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.