Morgunblaðið - 24.03.1968, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. MARZ 1968
23
sem sr. Þorsteinn gerir.
Síðar á árum lágu leiðir okkar
saman vestur í Djúpi. Ég átti
þess kost, vegna starfs míns að
kynnast nokkuð, svo að segja,
hverju heimili í sóknum hans
við Djúp og hafði auk þess nokk
ur kynni af sumum fyrrverandi
sóknarbörnum hans í Stranda-
sýslu. Ekki fóru dult vinsældir
og virðing þeirra hjóna meðal
fólksins í héraðinu. Var mikill
söknuður við burtför þeirra frá
Stað og síðar er þau fluttu frá
Vatnsfirði. Bar hér margt til.
Sr. Þorsteinn er ágætur kenni
maður og syngur inessur af mark
vissri smekkvísi og án allrar til-
gerðar. Hann er fagurberi í list-
um orðs og tóna. Þess gætir
mjög í ræðum hans og prestlegri
þjónustugarð. Fáum hefi ég
kynnst, sem vandað hafa jafn-
vel og hann ræður sínar og
flutning þeirra. Guðsþjónusta
hans var boðun fagnaðarerindis,
umburðarlyndis og kærleika, án
þess að dekrað væri við ódyggð-
ir. Styrkur hans sem prests og
sálusorgara er falinn í því, hve
mannlegur hann er, hvað hann
er einlægur í leit sinni að því,
sem gott er og fagurt í veik-
lundaðri manneskjunni. Hann er
laus við að hreykja sér hátt
yfir aðra, en sjálfgert að halda
virðingu sinni fyrir hverjum sem
er.
Vatnsfjarðarheimilið var í tíð
þeirra hjóna víðfrægt fyrir
rausn og greiðasemi við gest og
ganganda. Prófastshjónin voru
búendur góðir og höfðu stórt bú
meðan hægt var að fá fólk til
starfa. Hið forna höfuðból mað
um sínum hlunnindum, selveiði
varpi og fuglatekju þurfti mik-
inn mannafla, ef fullnýta fá
skyldi. Þegar mannekla varð
hlaut búskapurinn að dragast
saman.
Sr. Þorsteinn var fornbýll að
heyjum og hafði góða forsjá á
búi sínu. Á hörðu og köldu vori,
þegar að þrengdi leituðu marg-
ir utan úr þorpunum og ná-
grenni þeirra til bóndans íVatns
firði til þess að fá búi sínu
borgið. Var þá vel við brugðist
og sköruleg úrlausn veitt. Sam-
starf okkar sr. Þorsteins var
mest að skólamálum, þar sem ég
var skólastjóri en hann formað
ur skólanefndar og prófdómari.
Þessi samskipti urðu mér í senn
ómetanleg í sjálfu skólastjóra-
starfinu og ógleymanleg, vegna
starfshæfni hans, kunnáttusemi
og drengskapar í öllum greinum.
Sem prófdómari var hann sann-
gjarn og frábærlega glögg-
skyggn á hvað eðlilegt væri að
ætlast til af ungum nemendum
á þroskaaldri. Ef út af bar um
raunsæi okkar kennaranna í þess
um efnum áttu nemendur vísan
og öruggan málssvara í þessum
fyrrverandi námsgarpi. Þar kom
til rétt mat hans, stutt sann-
girni hans, nærgætni og mildi.
Engu að síður var hann kröfu-
harður um það, sem eðlilegt
mátti teljast innan þeirra marka
sem námsefni og námsþroski
leyfðu.
Á þessum tímamótum í ævi sr.
Þorsteins Jóhannessonar leitar
margt á hugann. Yfir þeim minn
ingum er fyrst og fremst vor—
og sumarblær. „Fegurð himins-
ins“ er óvíða jafn töfrandi og
í Djúpinu, þar sem saman lágu
leiðir okkar í önn daganna og
á yndisstundum „góðra vina-
funda“. Þegar báðir vorum við
á góðum aldri — og á hverju
bóli vor manndómur í vexti,
gróska á báðar hendur, vax-
andi æskufólk, sem átti framtíð-
ina fyrir sér einhversstaðar á
vettvangi þjóðlífsins.
Ég leyfi mér í nafni okkar
allra sóknarbarna, nágranna, ana
arra heimilisvina og eigi sízt
þeirra, er þá voru á þessum
slóðum að vaxa úr grasi, að
flytja sr. Þorsteini, konu hans
og börnum einlægar þakkir, hon
um fyrir það, sem hann var okk-
ur sem embættismaður þjóðkirkj
unnar og sálusorgari, forsjárs-
maður kennslumála og fyrir það,
sem Vatnsfjarðarheimilið var um
hverfi sínu og byggðarlaginu
öllu, og síðast en ekki sízt hvað
þið voruð okkur sem félagar og
vinir. Enn heldur þetta fólk
tryggð við prófastshjónin frá
Vatnsfirði, Laufeyju og Þorstein
og munu ávalt minnast þeirra
með þökk og virðingu. Hjá þessu
fólki dvelur einnig hugur þeirra
hjóna, samúð þeirra og um-
hyggja, sem segir til sín þegar
á reynir í lífsbaráttu þess.
Ef ég ætti þess kost að njóta
á ný nokkurra liðinna sólskins-
stunda ævinnar, tel ég líklegt
að ein af þeim, sem fyrir val-
inu yrði, væri sú að við hjón-
in mættum þeysa á góðhestum
„yfir ísi lagða slóð“ undan norð-
austan næðingi og særoki heim
í hlað á Vatnsfjarðarstað og
ganga á ný til stofu á heimili
Laufeyjar og sr. Þorsteins og
njóta þar eins og svo oft áður,
ekki aðeins rausnarlegra veit-
inga, heldur fyrst og fremst kyrr
látrar yndisstundar samfunda
góðra vina, þar sem gleði, góð-
vild og mannlund húsbændanna
yljaði gestum þeirra svo, að þeir
voru innan stundar albúnir að
halda út í næðinginn, þótt þá
væri í móti að sækja.
Á sjötugsafmæli sr. Þorsteins
sendum við honum, konu hans,
börnum þeirra og öðrum ástvin-
um hugheilar hamingjuóskir og
einlægar þakkir.
Affalsteinn Eiríksson.
Geymsluhíisnæði
450 ferm. geymsluhúsnæði (stálgrindahús) við
Kópavogshöfn er til leigu nú þegar.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu minni. Til-
boð sendist undirrituðum fyrir 10. þessa mánaðar.
22. marz 1968.
Bæjarverkfræðingur Kópavogs.
Lagerhúsnæði
Viljum taka á leigu um 100 ferm. húsnæði undir
lager, frá 1. maí n.k
Upplýsingar á skrifstofunni.
Trésmiðir óskast
Viljum ráða nokkra trésmiði.
helzt frá Hafnarfirði.
Uppl. í síma 52438 mánudag og þriðjudag.
Hochtief — Véltækni
Straumsvík.
Undirfatnaður í úrvali
ARTEMIS — KÓRAL
6 gerðir Náttkjólar
8 — Undirkjóla
8 — Millipils
Fjölbreytt litaúrval.
Sími 10095.
PLASTMALNING
Höfum tekið að okkur sölu á mjög ódýrri
og góðri plastmálningu, sem þekur mjög
vel.
3ja lítra kr. 180.—
6 — kr. 350.—
15 — kr. 830.—
Stórlækkað verð. — Gerið verðsaman-
burð.
Miklatorgi.
Vefoaðarvöruumhoðsmaður
Eitt af stærri 'fyrirtækjum í Danmörku sem fram-
leiðir prjónagarn, óskar eftir reyndum umboðs-
manni, þóknunarfyrirkomulag.
Þeir sem hafa áhuga eru beðnir að senda uppl.
merktar: „519“ Gerlach & Raffel, reklamebureau,
Bröndbytoften 11, 2650 Hvidovre, Danmark.
Tilkyning frá Rókinni h.f.
Bókasöfn og bókamenn athugið!
Höfum mikið úrval af fágætum tímaritum og bók-
inn þessa daga.
Gerið svo vel og lítið í gluggana í dag.
BÓKIN H.F., Skólavörðustíg 6.
Lúxus einbýlishús
á Flötunum
Grunnflötur hæðar er 256 ferm. 5 svefnherb., 2
stofur, húsbóndaherbergi, eldhús, 2 baðherbergi og
þvottaherbergi. í kjallara, sem er um 140 ferm. er
knattborðsstofa, saunabað, geymslur og fl.
Húsið er nú þegar rúmlega tilbúið undir tréverk.
FASTEIGNASALAN, Hátúni 4a.
Símar 21870 og 20998.
Hilmar Valdimarsson, fasteignaviðskipti
Jón Bjarnason, hæstaréttarlögmaður.
TOGSKIP
Tveir togbátar óskast til leigu frá vertíðarlokum
eða fyrr. Leigtuími til 1. október. Bátastærðir sem
til greina koma eru 100—250 rúmlestir. Til greina
koma kaup á togveiðarfærum bátanna ef til eru.
Æskilegt er að vélstjórar fylgi bátunum. Einnig
lsemur til greina að taka á leigu 50—70 rúmlesta
bát með kraftblökk til nótaveiða um 2—3ja mán-
aða tíma í sumar. Tilboð er greini nafn báts, gerð
og stærð togvindu, leiguupphæð og annað er máli
skiptir skulu send Mbl. fyrir n.k. mánaðarmót,
merkt: „Togskip 8865“. Farið verður með tilboð
sem trúnaðarmál.
Frá Sjálfstæðis-
kvennafélaginu Vörn
Konur á Akureyri og í nágrenni.
Vörn efnir til sýnikennslu í blómaskreytingum
(einkum með tilliti til hátíðisdaganna og ferming-
anna fram undan) í Sjálfstæðishúsinu miðvikudag-
inn 27. marz kl. 14—18.
Konur geta mætt hvenær sem er á þessum tíma.
Leiðbeinandi Ringelberg í Rósinni Reykjavík.
Kaffiveitingar á boðstólum.
i Allar áhugakonur velkomnar, en félagskonur eru
einkum hvattar til að mæta.
NEFNDIN.
Lífstykkjavörur í úrvali
KANTERS — LADY — BELLAVITA.
14 gerðir 8 litir brjóstahaldara,
13 gerðir 3 litir magabelti,
6 gerðir 3 litir buxnabelti,
4 gerðir 3 litir corselett.
Verzlið þar sem úrvalið er mest.
Sendum í póstkröfu um allt land.
Sími 10095.