Morgunblaðið - 30.08.1968, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 30.08.1968, Qupperneq 24
Jft •'U’ '\\\\\W'Vnn %É# .Js>. Jt|# •< flflHllnll’WIIIP Wlllllllilllllp1 KSKUR Sutiurlandsbraut 14 — Simi 38550 FERflfl-DG FflBflNOURS FÖSTUDAGUK 30. AGUST 1968 Þrjú taugaveikistilfelli í Kópavogi og Garðahr. ÞRÍR sjúklingar liggja nú I þriðji er úr Garðahreppi. Ekki sýktir af taugaveikibróður í ein hefur tekizt að hafa upp á því, angrun í Borgarspítalanum. Tveir hvernig sjúklingarnir úr Kópa- þeirra eru úr Kópavogi en hinn I vogi hafa sýkzt, en ljóst er að Lýst yfir gjaldþroti Kaupfél. Snæfellinga —■ Lokun Kaupfélagsins kemur illa við útvegsmenn og bœndur Ólafsvík, 29. ágúst. KAUPFÉLAG Snæfellinga í Ólafsvík var lokað á dögunum, eins og sagt var í fréttum fyrir skömmu. Ekkert hefur rætzt úr því máli, og mun vera ákveðið, að lýsa yfir gjaldþroti kaup- félagsins, þar sem enginn grund- völlur mun vera fyrir áfram- haldandi rekstri þess í núver- andi mynd. Kaupfélag Snæfellinga var fyrir nokkrum árum sameinað kaupfélaginu á Hellissandi, og átti að gera tilraun til að reka þessi kaupfélög í stærri mynd með því móti. En árangurinn hefur orðið sá, að nú er búið að loka báðum þessum kaupfélög- um, og er allt í óvissu hvert áframhald verður á starfsemi Guðmundur Frímann Guðmundur Frí- munn heiðruður Akureyri, 29. ágúst. MENNINGARSJÓÐUR Akur- eyrarbæjar heiðraði í dag, á af- mælisdegi Akureyrar, Guðmund Frímann, skáld, me* 50 þúsund króna heiðursgjöf. Afhending heiðurslaunanna fór fram í kaffi samsæti að hótel KEA nú í kvöld. Formaður sjóðstjórnar, Bragi Sigurjónsson, forseti bæjarstjóm ar, ávarpaði Guðmund og flutti honum þakkir fyrir skáldverk hans í bundnu og óbundnu máli. Kvað hann þessa heiðurs- gjöf vera vott þakklætis og virðingar Akureyringa en Guð- mundur hefur verið búsettur á Akureyri í 44 ár. Guðmundur Frímann þakkaði þennan heiður með stuttri en snjallri ræðu. Sv. P. kaupfélagsins á þessum stöðum úr því sem komið er. í framlhaldi af framansögðu hefur útgerð átt í vandræðum með að fá fyrirgreiðslu í við- skiptum hér í Ólafsvík, þar sem þetta var langstærsta verzlun hér á staðnum. Hafa bátar orðið að leita eftir viðskiptum úti í Rifi, og er það í alla staði mjög óþægilegt ef ekki ómögulegt, er til lengdar lætur. Er því mjög brýn nauðsyn á, að sem fyrst verði hægt að bæta úr þessu ástandi Eins kemur lokun kaup félagsins illa við bændur, því að Framh. á bls. 23. ekkert samband er þar á milli. Á hinn bóginn er talið að sjúkl- ingurinn úr Garðahreppi hafi sýkzt erlendis. Morgunblaðið átti tal við Kjart an Jóhanns'son, héraðslækni Kópa vogskaupstaðar, og tjáði hann okkur, að ekki hefði orðið vart fleiri tileflla af taugaveikibróð- ur í Kópavogi. Annar sjúklingur inn hefði sýkzt fyrir nokkuð löngu, og hefðu sjúkdómsein- kenni ekki komið fram á fólki á heimili hans né í niágrenninu. Sömu sögu væri reyndað að segja um hitt tilfellið — engir á heimili þess sjúklings virtuzt hafa sýkzt. Málið er í frekari rannsókn. Óðinn fer út fyrir helgi VARðSKIPIð Óðinn, semver ið hetfur á hinum fjarlægu síld armiðum en kom til Reykjavdk ur í vikunni, mun fara aftur á miðin nú fyrir helgina. Með hon um fer dr. Snorri Hallgrímsson, yfirlæiknÍT á Lanidsspítalanum, og ennfremur viðgierðarmenn, siem eiga að vera íslenzika flot- anum til trausts og halds. : Við lá að umferðarteppa myndaðist við Sænsk-íslenzka frysti húsið í gærdag, því á hárri b árujámsgirðingu sat hrafn, sem vakti mikla athygli ökumann a. Hann var hinn spakasti og kjaftaði á honum hver tuska, þótt enginn skildi málið. Margir urðu til að gefa honum gras strá í gogginn, eins og pilturinn á myndinni, og þakkaði han n fyrir sig með háværu krúnki. Yfirgangur rússneska flotans á síldarmiðunum 8ýna yfirgang og skjóta að íslenzku skipunum — KOMIÐ hefur nokkram sinnum í sumar til alvarlegra árekstra milli íslenzkra síldveiðiskipa og rússneskra á síidarmiðunum við Bjamarey. Sýna rússnesku skipin þar ókurteisi og virða ekki siglingalög. Liggja þau á síldartorfunum, helga sér þær og skjóta ljóskúlum og einhvers- konar pílum á íslenzku skipin komi þau nærri torfunum. ís- lendingarnir hafa ekkert getað gert við þessu og hafa þeir orðið að láta í minni pokann. Mbl. 'hafði í gær tal af tveim- ur skipstjórum ,sem um þessar mundir eru í fríi. Fyrst var rætt við Runólf Halltfreðsson. Hann sagði, að Rússarnir léku það að keyra niður torfurnar fyrir íslendingunum og reyni í hvivetna að eyðileggja og trutfla veiðar þeirra. Sagði Runólfur, að íslendingarnir skildu ekkert í þessu, einkum er komið hefði í ljós, að Rússarnir ihafi látið Norðmennina í friði. Kom það í ljós í viðtali, er Jakofe Jakobs- son .tfiskifræðingur, átti við norska skipstjóra. — Þeir virðast beinlínis leggja okkur í einelti, sagði Run ólfur, — en til slíkra árekstra hefur ekki komið fyrr en í sum- ar. í rússnesk-íslenzkum samn- ing um Ijósaútbúnað við veið- arnar hafi verið samþykkt að hafa uppi rautt blikkljós um leið og nótinni hafi verið kastað, en Rússarnir kveikja Ijósin þá þeg- ar þeir finna torfu og virða eng- in alþjóðalög. Eru þeir strax uppi með ljósið og von er á veiði og heiga þeir sér stóra bletti á sjónum. Þá sagði Runólfur, að ís'lend- Nauthólsvík lokuð vegna mengunar SJÓ- og sólbaðstaðnum við Naut hólsvík verður að þessu sinni lokað frá og með 1. september. Eins og undanfarin sumur hef ur staðurinn verið mjög fjöl- sóttur alla sólardaga, og er á- ætlað að um 14 þúsund manns hafi sótt staðinn í sumar. , Startfsmenn borgarlæknisem- bættisins hafa eins og undan- íarin sumur fylgzt með mengun sj'ávarins, og um miðjan ágúst var mengun og gerlamaign hans orðið það mikið, að ráðlegt var talið að hætta sjóböðum. Síðan hefur staðurinn ein- göngu verið notaður til s ólbaða. Að lokum skal það tekið fram, að öll umtferð ökutækju um stað inn er bönnuð. (íþróttaráð Reykjavikur) ingarnir óttuðust mjög afleiðing- ar þessarar frekj.u og yfirgangs Rússanna er dimimt væri orðið. Yngvi Einarsson, skipstjóri, taldi, að þessir árekstrar hlytu að stafa af misskilningi ein- stakra rússneskra skipstjóra á reglunum um ljósin. Hann kvað Rússana helga sér 'hverja torf- una á fætur annarri og komi skipin nálægt skjóti þeir ein- hvers konar blysum að þeim og getur það verið stórhættulegt og valdið íkveikjum að hans dómi. Þá styggja rússnesku skip in gjarnan torfurnar fyrir ís- lenzku skipunum. Yngvi taldi þetta ástand geta orðið alvarlegt í haust, er rökkva tæki. Hann sagðist ekki hatfa orðið fyrir aðkasti Rúsb- anna sjáltfur, en hafa heyrt mik- ið um kvartanir í talstöðinni. Einn sikipstjóranna, er Mbl. hafði fregnir af, telur, að þessi yfirgangur Rússa á síldarmiðun- um rýri afla ís'lenzku skipanna um allt að 20 af hundraði. « Brúðorgjöfin vor silfurskúl GJÖF forseta íslamds, herra Kristjéns Eldjárns og konu hans, tiil brúðhjónanna Haralds ríkis- aitfa Noregs og Sonju Haraidsen, var silfurskál með íslenzkri hötfða 'letursáletrun, og var hún smíð- uð atf Leifi Kaldal. Agætur afli tog- ara í júlímánuði VEIÐI togaranna í júlímánuði var mjög sæmileg. Voru land- anir hérlendis 36 að tölu og afli samtls 7853,6 lestir. Togar- arnir sem lönduðu á SV-landi, veiddu aðallega karfa og var hann mest veiddur út af Vest- ur- og Suðvesturlandi. Megin uppistaða í afla norðlenzku tog- aranna var þorskur. Togarar seldu afla sinn sex sinnum í Bretlandi, samtals 886.9 lestir fyrir 7.183 þúsund krónur, með- alverð 8.10 kr. á kg. Togararnir sem lönduðu voru Surprise sem seldi í Grimsby 185.6 lestir fyrir rúml. eina millj. kr., Úranus, sem landaði tvívegi- is í Grimsby og Aberdeen — og seldi 122.8 lestir í fyrra skiptið fyrir 1.3 millj. kr. en 142 lestir í seinna skiptið fyrir tæplega 1.2 milljónir kr. Marz seldi einn- ig tvívegis — í Aberdeen 156 lestir tfyrir 1.1 millj. kr. en 123 lestir I Grimsby fyrir 800 þús. Þá seldi Neptúnus í Hull 156 lestir fyrir 1.7 miilj. kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.