Morgunblaðið - 05.10.1968, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.10.1968, Blaðsíða 1
28 SIÐUR 218. tbl. 55. árg. LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1968 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Mynd þessi var tekin í Tlalteloco-hverfinu í Mexikóborg aðfaranótt fimmtudags. Sýnir hún her- mann munda byssu til að skjóta táragassprengjum, en í baksýn er brennandi strætisvagn. Ferðamenn varaðir við að heimsækja Mexíkó Stúdentar hóta frekari mótmœlaaðgerðum Mexíkóborg, 4. okt. (AP-NTB) • Allt var með kyrrum kjörum í Mexikóborg í dag eftir átökin miklu milli stúdenta og lögreglu á miðvikudagskvöld og í gær. • Ljóst er að um 30 manns biðu bana í átökunum, en ekki hefur verið kastað tölu á þá, sem særð- ust. Vitað er þó að þeir skipta hundruðum. • Fréttamaður AP í borginni segir í dag, að upp hafi komizt um sérstakan „þjóðfrelsisher", sem talið er að staðið hafi fyrir manndrápunum aðfaranótt fimmtudagsins. Hafi „her“ þessi gefið út tilkynningu fyrir hálf- um mánuði, þar sem ferðamenn eru varaðir við því að koma til borgarinnar. Fréttaritari AP, Stratford G. Jones, barst í dag fréttatilkynn- ing „þjóðfreisishersins“, sem dag sett er 20. september sl. Segir þar meðaf annars, að stofnað hafi verið til hersins til að segja „glæpsamlegri ríkisstjórn Gust- avo Diaz Ordaz, forseta, stríð á hendur“, eins og komizt er að orði. „Vi'ð afneitum allri ábyrgð á því, sem koma kann fyrir þá, er heimsækja land þar sem raun- verulega ríkir borgarastyrjöld," segir í tilkynningunni. Er þar ber sýnilega verið að vara væntan- lega áhorfendur og þátttakendur í Olympíuleikunum við að koma til Mexikó. Bent er á að leyniskyttur þær, sem héldu uppi skothríð á veg- farendur við „Torg siðmenning- anna þriggja" aðfaranótt fimmtu dags hafi verið búnar hríðskota byssum, og hafi komið sér vel Hernámsliö áfram í Tékköslóvakíu Moskvuviðræðum lokið c>g tékk- nesku leiðtogarnir iarnir heim Moskvu. 4. okt. (AP-NTB). TVEGGJA daga viðræðum leiðtoga Tékkóslóvakíu og So vétríkjanna lauk í Moskvu í kvöld, og eru tékkóslóvakísku leiðtogarnir nú farnir heim til Prag. Að viðræðunum loknum var gefin út yfirlýsing þar sem segir meðal annars að leiðtogarnir hafi orðið sam- mála um að hluti hernámsliðs Varsjárbandalagsríkjanna verði áfram í Tékkóslóvakíu eftir að ástandið er þar kom- ið í „eðlilegt“ horf. Ekki er þess getið hve mikill hluti er- lenda herliðsins verður áfram í landinu, en óstaðfestar fregn ir hafa skýrt frá því að so- vézku leiðtogarnir hafi kraf- izt þess að fá að hafa áfram um 100 þúsund manna lið við landamæri Tékkóslóvakíu og Vestur-Þýzkalands, en boðizt þess í stað til að kalla heim það sem umfram er, eftir því sem ástæður leyfa. Er þar um að ræða hálfa milljón her- manna. Viðræðurnar fóru fram með mikilli leynd, og voru aðeins þrir fulltrúar viðstaddir frá hvoru landi. Fulltrúar Tékkóslóvakíu voru þeir Alexander Dubcek flokksleiðtogi, Oldrich Cernik forsætisráðherra og Gustav Husak flokkslei’ðtogi í Slóvakíu, en fulltrúar Sovétríkjanna voru Leonid Brezhnev flokksleiðtogi, Alexei Kosygin forsætisráðherra og Nikolai Podgorny forseti. Engir túlkar voru viðstaddir, því viðræðurnar fóru fram á rússnesku. Ekkert var tilkynnt Framhald á bls. 27 SKOTIN A STUTTU FÆRI Lýsing á hryðjuverkum sambandshersins í Nigeriu á evrópsku hjálparfólki Stokkhólmi, 4. október NTB Sænski Rauða kross- starfs- maðurinn, Robert Car’lsson, jú góslavneski læknirinn Drajau Hercog og brezku trúboðshjón- in Albert og Majorie Savoury voru skotin til bana af ör- stuttu færi af nigeriönskum her manni, segir Carl Swartz, sænski sendiherrann í Lagos í skýrslu um þetta mál til sænska utanríkisráðuneytisins. Um hádegisbil 30. september sl. sótti herlið sambandsstjórn- 5 veitas tjórnar- í Finnlandi kjör Helsingfors, 4. okt. (NTB). EFNT verður til sveitarstjórna- kosninga í Finnlandi á sunnudag og mánudag, og er ekki búizt við neinum meiriháttar breytingum á fylgi flokkanna. Verða alls kjörnir um 12 þúsund fulltrúar í bæja- og sveitastjórnir um allt Finnland, þó ekki á Álandi. Kosningabaráttan hefur farið mjög rólega fram, og er búizt við minni kosningaþátttöku en í síð- ustu kosningum. Alls eru fram- bjóðendur um 61 þúsund, eða rúmlega fimm keppendur um hvert stjórnarsæti að meðaltali. Skiptingin í dag er þannig, að Framhald á bls. 27 arinnar inn í bæinn Okigwi og framhjá sjúkraskýli, sem liggur í útjaðri bæjarins. Starfsfólkið þar hafði leitað skjóls bak við vígi, sem það hafði komið sér upp með þurrmjólkursekkjum, en fólkið var fljótlega umkringt af um það bil 30 sambandsstjórn arhermönnum. Var starfsfólkinu skipað að ganga fram, en síðan misþyrmdu nokkrir hermenn sænska Rauða kross-manninum Bengt Rehnström og júgóslav- neska lækninum Mischa Vucine, að því er fram kemur í skýrsl unni, og tæmdu vasa þeirra. Allt í einu hóf einn hermann anna skothríð á örstuttu færi. Brezku hjónin, Hercog og Sví- inn biðu samstundis bana, en annar Svíi, Percy Nilsson, særð ist alvarlega. Höfðu fimm kúlur hæft hann í hægri öxlina. Einn, ef til vill tveir liðsfor- ingjar, eða liðþjálfar —■ einkenn ismerki þeirra höfðu þeir tekið af sér fyrir bardagann — reyndu árangurslaust að skipa hermönnunum að fara burt, bæði á undan og eftir að morðin áttu sér stað. Major í sambandshern um tókst þó fljótlega að koma stjórn á og þau, sem eftir lifðu voru fyrst flutt til sjúkrahúss og síðar til aðalstöðva fimmtu liðsveitar sambandshersins, þar sem þau héldu fyrir um nótt- ina, unz þau gátu haldið áfram ferð sinni. Ekki hefur verið unnt að fá það staðfest, hvort hermaðurinn sem skaut, hafi verið drukkinn, eins og áður hafði verið skýrt frá, segir í skýrslu sænska sendiherrans. Framhald á bls. 27 Djilos til London Belgrad, 4. okt. — NTB — JÚGÓSLAVNESKI rithöfundur- inn Milovan Djilas fór í dag ásamt fjölskyldu sinni til Lond- on. Eftir tíu daga dvöl þar held- ur hann áfram til Bandaríkjanna þar sem hann mun flytja fyrir- lestra við Princeton háskólann. Er þetta fyrsta utanför rit- höfundarins til vestrænna ríkja eftir að hann var leystur úr haldi árið 1966 samkvæmt fyrirmælum Títós forseta. Djilas hefur marg- oft verið dæmdur til fangelsis- vistar, síðast árið 1962 eftir að hafa verið sakaður um að ljósta upp ríkisleyndarmálum í bók sinni „Viðtöl við Stalín". Var hann þá dæmdur til fimm ára fangelsisdvalar. Við komuna til London sagði Djilas, sem var varaforseti Júgó slavíu þar til árið 1954, þegar hann var rekinn úr flokknum, að Júgóslavar óttuðust innrás Sov- étríkjanna, en þeir mundu verj- ast. Sagði hann að ef Sovétrík- in gerðu innrás í Júgóslavíu, yrðu Vesturveldin að veita Júgóslöv- um hernaðarstuðning — jafn- vel þótt það leiddi til kjarnorku- styrjaldar. „Það er betra að berj ast við Adríahafið en við Erma- sund“, sagði hann. Umsátrinu lokiö John James í vörzlu lögreglunnar Wellington, Englandi, þeirra hjóna í gislingu, og hót 4. okt. (AP). aði að skjóta hvern þann, er LOKIÐ er rúmlega hálfs reyndi að komast inn í hús- mánaðar umsátri lögreglunn- ið. Sat hann lengi á verði við ar um hús bóndans Johns glugga á efri hæð hússins með James við Wellington, hlaðna haglabyssu. skammt norð-vestan við Ættingjar Johns James Birmingham í Mið-Englandi. hafa fært honum mat og vist- Lokaði James sig inni hinn 18. ir, sem þeir hafa skilið eftir september síðastliðinn eftir við útidyrnar. Hafa þeir marg smávægilegt umferðarbrot, sinnis skorað á bónda að gef- sem lögreglan þurfti að fá ast upp, en ekkert orðið skýrslu um. Hélt hann konu ágengt. í dag komust fjórir sinni og fjórum börnum Frambaia á bis. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.