Morgunblaðið - 05.10.1968, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.10.1968, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 196« 13 Lokunartímamalið: Verða „kvöldverzlanir" opnaðar í Reykjavík? — Rætt við kaupmenn og fulltrúa verzlunarfólks Mikið ósamræmi virðist nú rikja í lokunartíma matvöru- búða í Reykjavík. Samkvæmt borgarsamþykkt er lokunartíml verzlana kl. 18. síðdegis alla daga vikunnar nema föstudaga er heimlld til að hafa opið til kl. 22. að kvöldi og laugardaga til kl. 16. Sú staðreynd blasir hinsveg- ar við, að stór hluti matvöru- verzlana í Reykjavík er opinn lengur en borgarsamþykktin ger ir ráð fyrir. Þeir aðiiar, sem ætlað er að framfylgja samþykkt inni virðast hafa gefist upp á því og bíða nú eftir að borg- arstjómin taki af skarið með nýrri reglugerð. MBL taldi rétt að gefa Ies- endum sinum kost á að kynnast nokkrum sjónarmiðum, sem tíl greina kæmu við samningu nýrr ar samþykktar. REGLUGERÐIN ÚR SÖGUNNI MBL bað Sigurð Magnússon framkvæmdastjóra Kaupmanna- samtakanna að skýra frá afstöðu þeirra til ástandsins sem nú hefði skapazt í lokunartímamál- unum. Sigurður sagði: — Við á- lítum, að þessi mál séu nú í ó- fremdarástandi, sem hæglega geti leitt af sér mjög óæskilega þróun. Bæði frá sjónarhó'li þeirra, sem við verzlunina starfa svo og borgaranna og bæjarfé- lagsins. Eins og allir vita voru þessi znál mikið á dagskrá á árunum 1962-’64 en þá átrti ég sæti í borgarstjórn og hafði ásamtt borgarlögmanni mikið með þau að gera. Þegar sú samþykkt, sem Sigurður Magnússon, f ram k væmdast jóri. ég í algjörri andstöðu við hana. Nú, fjórum árum seinna er öll um ljóst sem sjá vilja, hvers konar ringulreið hún hefur leiitt til. Embættismenn í löggæzlu og heilbrigðismálum sem sjá eiga um að samþykktinni sé fram- fylgt, hafa lýst því yfir viðmig í einkasamtölum að málin séu í þvílíku öngþveiti, að algjörlega sé útilokað að halda áfram á sömu braut. Samþykktin eins og hún lá fyrir fól m.a. í sér á- kvæði um kvöldþjónustu. Skemmst er frá því að segja, að eftir 6 mánaða reynklu af skipti verzlun kom í ljós að árangur- inn var svo lélegur þ.e. viðskipt in voru svo lítil að henni var hætt. SKIPTTVERZLUNIN Samþykktin fól líka í sér aðra hluti, sem ég var andstæður og samtökin einnig. Vörulisti sölu- turna var aukinn til svo mikilla muna, að við töldum að þar væri um dúlbúnar matvöru verzlanir að ræða. Þar var sölu turnum gert kleift að verzla með flestar algengustu og þægileg- ustu vörur eftir lokunartíma verzlana. Þetta töldum við ó- réttlæti gagnvart matvörukaup- mönnunum, sem eðlis síns vegna verða að verzla með allar al- gengar neyzluvörur. Þægilegar og erfiðar, með hárri og lágri álagningu eftir atvikum. Lokun artími þeirra verzlana var hins vegar ákveðinn með reglugerð- inni og þeim gert að skyldu að fara eftir henni. Þannig var á- kveðnum aðilum í rauninni hygl að af borgárstjórninni með því að leyfa þeim að hafa opið á kvöldin eftir að almennum verzl unartíma lyki. Eftir að skiptiverzlunin hafði sannað sig að því að vera ófram- kvæmanleg vegna lítilla við- skipta, byrjaði sú þróun, að á- kveðnir kaupmenn töldu sig til neydda að opna söluop til sam- keppni við kvöldsölustaðina. Þetta hefur síðan leitt ti'l þess, að hver kaupmaðurinn á fætur öðrum hefur hafið kvöldsölu. Nú er ástandið slíkt, að reglu- gerðin hefur fallið um sjálfa sig og yfirvöldin sjá sér ekki fært ið framkvæma hana lengur. — En hver er þá stefna kaup- manna í lokunartímamálinu? — Við teljum, að í öllum að- alatriðum sé afgreiðslutíminn frá kl. 9 að morgni til 6 síðdegis nægur fyrir fólk til að gera inn- kaup sín. Hinsvegar gerum við okkur líka ljóst, að í einstökum tilfellum er kvöldþjónustu þörf. Sú þörf er þó alls ekki svo brýn að lengja þurfi opnunartíma allra matvöruverzílana um 50- 60 prs. Henni er hægt að ful-1- nægja á allt annan og viðráðan- legri hátt. Apótekarar hafa t.d. leyst sín kvöldsölumál þannig að reka sam eiginlega helgar og kvöldþjón- ustu. Sama væri hugsanlegt um kaupmenn. Settar yrðu á stofn t.d. þrjár verzílanir, sem veittu alhliða þjónustu með matvöru og jafnvel fleiri vörutegundir eins og búsáhöld og blóm. Þessar búðir tækju þá við, að loknum hefðbundnum lokunartíma og yrðu í eigu kaupmanna sameig- inlega. — Hvað þá um kvöldsölu ann arra eins og söluturna? — Ég tel að samhliða því, að rekstur slíkra kvöldverzlanna hæfist yrði að takmarka til muna núverandi vörulista söluturna og söluopa. Við skiljum ósköp vél, að fólk gerir kröfu til að fá þar ákveðnar nauðsynjar, en það má bara ekki verða til að grafa und an eðlilegri matvörudreifingu og skapa ófremdarástand eins og nú. Ég vil benda á að erlendis er sala í Slíkum söluturnum bund- Suðurnes 1 nágrenni Keflavíkurfl/ugvallar er til sölu Htið íbúð- arhús, með 3 hekt. að nokkru leyti ræktuðu landi, steinsteyptri hlöðu, bílskúr og byrjunarframkv. á við- bótarbyggingu við íbúðarhús. Tilbúið til innflutnings nú þegar. Verðið er hagstætt ef samið er strax. Upplýsingar í síma 11195. in við tóbak sælgæti og blöð. Ég tel að þessar vörur eigi m.a. líka að vera fyrir hendi í kvöldsölu, að viðbættu öli og gosdrykkjum. AUGLÝSIR Að imdanförnu hafa birzt í dagblöðum og útvarpi auglýsing ar frá verzluninni Herjólfi, að þar sé opið alla daga vikunnar til kl. 8 að kvöldi. Við héldum því á fund verzlunareigandans Braga Kristjánssonar og spurð- um hann nokkurra spurninga við víkjandi lokunartimanum. — Hver er skoðun þín á því ástandi sem nú hefur skapazt í lokunartímamálinu? — Þetta er orðinn hreinn glundroði og hann er í rauninni ástæðan til þess, að ég hef búð- ina opna á þessum tíma. Það er tiltölulega stutt síðan ég greip til þessa ráðs. Ég rek hér einn- ig söluturn í húsinu eftir kl. 6 og hafði þar á boðstólum vörur samkvæmt samþykktum vöru- lista. En þegar aðrir kaupmenn hér í hverfinu og annars staðar tóku upp á lúgusölunni á öllum fyrirliggjandi vörum, breyttist afstaða mín. Bragi Kristjánsson, í Herjólfi. OPNAÐIVERZLUNINA Síðan önnur hver verzlun hefur tskið upp lúgusöluna fannst mér í raunninni lang hreinlegast að opna verzlunina til kl. 8 alla daga vikunnar, og reka með full um mannskap. Ég get ekki séð, að það sé á nokkurn hátt for- dæmanlegra en láta eina mann- eskju rétta vöruna út um lúgu. Ef verzlunin er opin á annað borð, vil ég reka hana eins, hvort sem er að degi eða að kvöldi, virka daga jafnt s em helgidaga. Það er borgarinnar að setja reglur. Þeim er ég reiðubúinn að hlíta, þegar þær reglur verða settar og menn látn ir sitja við sama borð. Skoðun mín er því í stuttu máli. Annað hvort verði settar fastar reglur og þeim framfylgt eða álgjört frelsi verði um lokunartímann. Ég held, að allt annað leiði til pukurs og óeðlilegra viðskipta- hátta. KV ÖLDVERZLANIR — En hvað um þá tillögu, að þrjár verzlanir í sameign kaup- manna verði látnar sjá um kvöld söluna? — Ég er hálf hræddur um að sú tillaga sé betri á pappírnum en í framkvæmd. Gagnvart kaup mönnunum virðist mér, að við höfum þegar fjárfest það mikið til uppbyggingar nýtízku verzl- ana að þar sé mælirinn fullur. Ég held að við ættum frekar að reyna að nýta betur það sem fyr ir er en fara að bæta við verzl- unum. Hvað ábata snerti stæði Magnús L. Sveinsson hjá V.R. hugur minn hvort eð er lítt til að leggja fé í slíkt fyrirtæki. En gagnvart neytendunum get ég heldur ekki séð að kröfunni um kvöldþjónustu sé fúllnægt ineð þremur verzlunum í sitt hvor um borgarhlutanum. Vegalengd- irnar eru nefnilega orðnar all miklar innan borgarinnar og ef verðlagið í þessum búðum á að vera hærra en að deginum, veit ég ekki hvort neytendur kynnu að meta „þjónustuna" eftir allt saman. — Við verðum að gera okkur ljóst, að það sem fólkið fer fyrst og fremst fram á er að geta keypt nokkrar ákveðnar vörur að Framhald á bls. 16 íbúð til leigu Góð 3ja—4ra herbergja íbúð í rólegu húsi á bezta stað í Austurbænum til leigu nú þegar í um 9 mánuði. Afnot af útvasrpi, síma og sjónvarpi, teppi og glugga- tjöld fylgja og húsgögn að mestu. Reglusemi og góð umgengni skilyrði. Sanngjörn leiga. Sími 15979 í dag. VOLKSWAGENEIGENDUR ☆ Höfum fyrirliggjandi: BRETTI - HURÐIR - VÉLARLOK OC GEYMSLULOK á Volkswagen í allflestum litum. Skiptum á einum degi með dags■ tyrirvara fyrir ákveðið verð. Reynið viðskiptin BÍLASPRAUTUN GARÐARS SIGMUNDSSONAR Skipholti 25 — Símar 19099 og 20988.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.