Morgunblaðið - 05.10.1968, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 196«
Ásgeir Jakobsson:
Nú gildir þaö
HVERN dag byrjum við auð-
vitað á því að lofa guð fyrir
að vera íslendingar og næst
tökum við til að bölva veðr-
inu, en til þess höfum við
venjulega góða og gilda
ástæðu og það var ég ein-
mitt að gera, þegar ég labb-
aði framhjá Leifsstyttunni
og niður Skólavörðustíginn
að morgni dags í norðangarð-
inum á dögunum. Hríð á Vest
fjörðum og fyrir Norður-
landi, 8—9 vindstig og stór-
Hannyrðanámskeið
Námskeið í ýmsum hannyrð-
um, efni verður ódýrt vegna
t þess að konur undirbúa teikn-
ingar að nokkru leyti sjálfar.
Allar uppl. og innritun í síma
13788 næstu daga frá kl. 1—3.
Annað námskeið í fatasaumi.
Aherzla lögð á þjóðbúning-
ana, sérstaklega upphluti,
knippla og baldira sjálfar eða
kúnstbródera borðana. Uppl. í
sama síma.
Bjarnfríður Einarsdóttir.
sjór við Horn, Siglunes og
Raufarhöfn.
Ég vissi af bátkopp á leiðinni
norður í haf á síldarmiðin. —
Þeir fengju í nefið, karlagreyin.
En báturinn var vel fyrirkallað-
ur og þar yrði sjálfsagt ekkert
að, en ég öfunda'ði ekki skipin,
sem voru hlaðin á leið til lands
af miðunum, ekki sízt af því að
hann var víst tvísjóa, hann var
suðaustan austur undan og lík-
legt að síldarskipin lentu einmitt
á leið sinni í þessum sjóamótum,
en þá er ógemingur að verja
hlaðið skip, og þó að norðan-
belgingurinn úr Flóanum næddi
illa um feitan búk minn eftir hin
góðu ár, þakkaði ég mínum sæla
fyrir að hafa nú fast land undir
fótum og í rauninni ekki áðrar
áhyggjur en þær að ég var á
nýlegum skóm, sem særðu mig
í hælinn.
Þegar ég kom niður á móts
við Skólavörðustíg 16, þar sem
áður var Húsgagnaverzlun Aust-
urbæjár um margra ára skeið,
sá ég þar menn fyrir dyrum,
sem ég kannaðist við. Þar voru
á ferð nokkrir af forystumönn-
um í félagsmálum sjómanna —
Sjómannadagsráðsmenn. — Sjó-
mönnum veitir ekki af ötulum
mönnum í landi, þeir eru sjálfir
dreifðir við atvinnu sína og
SÓLBRÁ, Lnuguvegi 83
KULDAÚLPUR á skólabörn.
UNGBARNAFATNAÐUR og LEIKFÖNG í úrvali.
Op/ð til kl. 4 í dag
Ljós í úrvali
Ljós og hiti,
Garðastræti 2.
<E3>SKÁLINN
IFord Bronco árgerð 1968
8 cyl. klæddur.
ciö KR. KRISTJÁNSSDN H.F.
II M R (1 fl I fl SUÐURLANDSBRAUT 2, VIÐ HALLARMÚLA
U SÍMAR 35300 (35301 — 35302).
GRÆNMETISMARKAÐINUM
LÝKUR Á SUNNUDAG.
Gulrætur, hvítkál, tómatar, agúrkur, rófur, íslenzkar
kartöflur.
Gróðrarstöðin v/Miklatorg v/Sigtún, sími 36770.
Símar 22822 og 19775.
Pétur Sigurðsson
löngum fjarri þeim vígstöðvum
þar sem atvinnustéttir landsins
skipta upp úr ríkiskassanum.
Þarna var í fararbroddi Pétur
Sigurðsson, alþingismáður, sem
stundum hefur verið kallaður
Pétur sjómaður. Það er mikið
heiðursheiti og Pétur ber það
með sér í fasi og framkomu
hvar hann hefur mótazt, því að
hann er laus við þann sléttleik
og yfirborðsslepju, sem er farin
að fara svo mjög í taugarnar á
mörgum og kennd er, misjafn-
lega réttilega þó, við stjórnmála
menn okkar.
—• Hvað stendur til hér, þing-
maður góður?
— Hér stendur mikið til. Við
ætlum að selja hverjum einasta
Reykvíkingi happdrættismiða í
því happdrætti, sem við efndum
til á sjávarútvegssýningunni, Is-
lendingar og hafið, síðastliðið
vor, og á að vera til að afla fjár
til þeirra framkvæmda að
byggja sumardvalarheimili fyrir
munaðarlaus sjómannaböm,
fyrst og fremst, og önnur þau
börn, sem ekki búa við eðlilegar
heimilisástæ’ður.
— Hver er saga þessa baráttu-
máls sjómannasamtakanna?
— Sjómannasamtökin hér í
Reykjavík og Hafnarfirði hófu
fyrir nokkrum árum (1962)
rekstur sumardvalarheimilis í
heimavistarskólanum að Lauga-
landi í Holtum. Skólahúsið
þarna var prýðilega til þess fall-
ið að hafa þar slíkan rekstur.
Okkur þótti þó leigan há miðað
við þá starfsemi, sem þarna var
um að ræða.
Þama dvöldu fyrsta sumarið
40 börn, en vom orðin 60, þeg-
ar við urðum a’ð hætta rekstr-
inum.
— Hvað olli því, að þið urðuð
að láta þessa þörfu starfsemi
falla niður?
— Okkur var sagt, að á þvi
væri hætta, að skólastjórinn
hyrfi frá skólanum, ef hann
fengi ekki húsnæðið til umrúða
fyrir sig og fjölskyldu sína í
sumarleyfi sínu og skólanefnd-
in eða forráðamenn húsnæðisins
vildu ekki taka á sig slíkar ill-
hleypur.
— Það er einmitt það — 60
börn — skólastjóri í sumarleyfi
— og hvað gerðist síðan?
— Starfsemin hefur legið niðri
undanfarin tvö ár en samtökin
ákváðu síðan að vinna að því
að koma dvalarheimilinu aftur á
fót og þá á jörð, sem samtökin
áttu austur í Grímsnesi og hafði
meðai annars verið keypt í
þessu augnamiði.
Á síðastliðnu sumri festum
við kaup á 2 íbúðarskálum, sem
sænsku verktakarnir höfðu reist
fyrir hið erlenda starfsfólk sitt
hér. Þessum húsum fylgdi mik-
ill búnaður og þau voru hentug
fyrir þá starfsemi, sem við höfð-
um í hyggju. Húsin þurfa til-
tölulega lítillar lagfæringar og
breytinga með og ættiun við að
geta tekið þau í notkun næsta
sumar. Þau fara austur einhvern
daginn, en við höfum þegar
steypt undir þau grunnana. 1
þessum húsakosti ættum við a’ð
geta haft um 60 börn og starfs-
fólk.
— Hvernig verður rekstri
þessa heimilis -háttað?
— Það verður, eins og áður,
rekið af Sjómannadeginum í
Reykjavík og Hafnarfirði. Mun-
aðarlaus börn sitja í fyrirrúmi
og eins og áður segir, en síðan
önnur þau börn, sem eiga um
sárt að binda af einhverjum
ástæðum. Meðan við rákum
heimilið að Laugalandi voru þar
börn á aldrinum 4—9 ára og svo
verður vafalaust enn. Auk þessa
langar okkur til að koma á fót
drengjabúðum, þar sem drengir
á aldrinum 10—13 ára gætu
dvalið einhvern tíma á sumrinu,
við störf og leik.
— Gátuð þið sinnt eftirspurn,
meðan þið rákuð Laugalands-
heimilið?
— Nei, það gátum við aldrei
og við kynntumst sárlega hinni
ríku þörf, sem er hér í þéttbýl-
inu fyrir starfsemi af þessu
tagL
Fró Tónlistarskólu Kópavogs
Skólasetning fer fram í dag 5. október kl. 2 e.h.
í Félagsheimili Kópavogs, efri sal. Hafið stundaskrá
meðferðis. — Mætið stundvíslega.
SKÓLASTJÓRI.
BÓKFÆRSLU- OG
VÉLRITUNARNÁMSKEIÐ
hefst 8. okt. Kennt í fámennum flokkum. Innritim fer
fram á Vatnsstíg 3, III. hæð, daglega. Einnig í síma
22583 til kl. 7 e.h. og 18643 eftir kl. 7.
SIGURBERGUR ÁRNASON.
Flugvirkjar
Félagsfundur verður haldinn að Brautar-
holti 6 4. hæð í dag laugardaginn 5. okt.
kl. 14.00.
Fundarefni:
Kosning fulltrúa félagsins á þing A.S.f.
Önnur mál.
STJÓRNIN.
— Hver var dvalarkostnaðux-
irm?
— Við miðuðum dvalarkostn-
aðinn við sumardvalarheimili
Rauða kross íslands. Það fór
stöðugt í vöxt, þessi sumur, sem
við rákum heimilið, að aðildar-
félög að samtökum okkar hefðu
hönd í bagga með vistum barn-
anna og oft á tfðum var dvalar-
kostnaður margra barnanna
greiddur af sjúkra- og styrktar-
sjóðum viðkomandi félaga. Þá
ber þess að geta, að konur úr
Slysavarnadeildinni hér í
Reykjavík söfnuðu miklu fé með
kaffisölu á Sjómannadaginn og
létu það ganga til greiðslu fyrir
dvöl fátækra barna á heimilinu
og til rekstursins almennt og var
að því mikill styrkur. Það var
samt ævinlega halli á rekstrin-
um og var hann greiddur af
Sjómannadeginum í Reykjavík.
Dvalartími var 1—2 mánuðir og
verður það sjálfsagt svo áfram.
— Hvernig hefur salan á
happdrættismiðunum gengfð
fram að þessu?
— Illa, og þess vegna frestuð-
um við drætti til 15. október og
erum nú að búa okkur undir
lokaátakið. Þó að við hyggjumst
reisa heimilíð á ódýran hátt, eru
þetta samt allfjárfrekar fram-
kvæmdir og okkur verður fjár-
vant, ef sala happdrættismið-
anna gengur ekki að óskum. Nú
gildir það því, að allir velunn-
arar sjómannastéttarinnar og
auðvitað sjómennirnir sjálfir
leggi þáð á sig að ganga hér við
á Skólavörðustíg 16 og kaupa
miða. Við erum að vinna hér að
nauðsynjamáli og væntum að-
stoðar almennings. Fyrst við er-
um að þessu spjalli, vil ég nota
þetta tækifæri til að þakka hús-
ráðendum hér að Skólavörðu-
stíg 16, en það eru nokkur verka
lýðsfélög hér í Reykjavík, fyrir
áð lána okkur hér ókeypis hús-
næði í hjarta bæjarins. Happ-
drættismiðiin kostar ekki nema
25 krónur og hér er um verð-
mæta vinninga að ræða: mynd-
segulbandstæki til heimilisnota,
120 þús. króna virði, gúmbátur
ásamt utanborðsmótor fyrir 6—
8 menn, 81 þús. kr. virði og vél-
sleði 66.500 kr. virði.
Hér verðum við á vaktinni
til 15. október.
Svo mörg eru þau orð. Fjár-
söfnun í mannúðarskyni er mörg
um orðin hvimleið. Ekki er það
þó af því að það komi svo illa
við pyngju manna, þó að þeir
kaupi miða og miða í happ-
drætti, sem efnt hefur verið til
í góðu skyni, heldur leiðist fólki
kvabbið. Það er ekki nægjanlega
gild ástæða til þess að draga
ekki upp veskið og kaupa sér
miða, þegar um þarft málefni er
að ræ’ða. Við búum í velferðar-
þjóðfélagi, en góðir borgarar,
það er víða eymd og bágindL
Velmegun undanfarinna ára
hefur gert okkur sinnlaus og við
treystum á nefndir og ráð og
stofnanir.
Það er hættulegt traust. Það
dugir ekkert minna, en allir
leggi nokkuð af mörkum til að
létta þeim lífið, sem bágt eiga
og styðji því við bakið á þeim
sjálfboðalíðum, sem ganga fram
fyrir skjöldu í mannúðarstarfi.
Það væri óskandi að þetta
skyndihappdrætti Sjómanna-
dagsráðs yrði okkur öllum til
sóma.
TEMUS
MÚSAEITUR
er ómissandi þegar þér
gangió frá sumarbustaðnum
fyrir veturinn.
FÆST i APÓTEKUNUM