Morgunblaðið - 05.10.1968, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.10.1968, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1968 19 Hin síðari ár, eða eftir að „Leðurvöruverzlun Björns Kristjánssonar" hætti starf- rækslu, vann Ólafur hjá „Menn- ingarsjóði" og sá um afgreiðslu bóka, og naut þar sama trausts og hylli eiris og allsstaðar ann- arsstaðar. Um allt þetta er mér svo vel kunnugt, þar sem við höfum alla tíð verið nánir vinir í öll þessi ár, og er það gott að geta sagt me'ð sanni, að milli okkar hefir aldrei hallað orði, og þakka ég honum það meira en mér. Þegar ég hugsa um vin minn, Ólaf Jónsson, þá minnist ég gjarna orða Epiktetosar — „Lifðu grandvöru lífi — og vaninn gerir þér það hug- ljúft.“ Ekki veit ég hvað Ólafur sjálf- ur hefir hugsað í þessum efn- um, en á þennan hátt kom hann mér fyrir sjónir í allri hegðun og hátterni, og má með réttu segja, að það var eins og grand- varleiki og fáguð framkoma væri honum meðfædd og í blóð borin. iÞað er oftlega minnzt á það, að eins og maðurinn sái, muni hann uppskera. Og okkur mönn- unurn finnst að þetta lögmál sé svo nærri því rétta, eða í flest- um tilfellum í samræmi við sam vizku okkar. Þess vegna finnst okkur mörgum, að það ætti frekar að vera okkur mönnun- um til hags en hnekkis á öðru tilverusviði, ef vel væri ávaxt- að það pund sem okkur væri falið hér í þessari jarðvist. Og ef nú þetta skyldi vera rétt, þá veit ég að Ólafur vin- ur minn á gó'ða heimvon vísa, hjá þeim sem þessa hluti dæm- ir, og úthlutar laununum rétt- látlega. Glóa um göfgan mann geislar, sem buga húm. Dagrenning hittir hann handan við tíma og rúm. (G. Friðj.) Ég, kona mín og börn, flytjum eftirlifandi eiginkonu Ólafs, og börnum þeirra, okkar innileg- ustu samúðarkveðjur og biðjum þeim allrar blessunar. En harm- bót má það vera þeim nokkur, að þau kveðja góðan mann og göfugan, — en góð minning lif- ir lengi. Sveinn Þórðarson. t Ólafur Jónsson............ 5555 1 DAG fer fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík útför Ólafs Jónssonar, verzlunarmanns, Tún götu 47, Reykjavík. Fregnin um lát Ólafs kom mér, eins og mörgum öðrum, mjög á óvart. Ég hafði ekki heyrt á það minnzt að hann hafði fyrir nokkrum dögum kennt sér lasleika og að lækn- isráði átt að draga sig í hlé frá störfum um stundarsakir. Föstu- daginn 27. september sl. fékk 'hann þó heimsókn gestsins, er við eigum öll í vændum að heimsæki okkur að lokum. Ólaf- ur varð bráðkvaddur á heimili sínu þennan dag. Andlát hans bar því að svo brátt, að við vin- ir hans eigum ennþá bágt með að trúa því að hann sé búrnn að yfirgefa okkur, en við dóm- arann þýðir ekki að deila í þesis- um efnum, Ólafur er horfinn héðan, að vísu fyrir aldur fram, kvaddur til nýrra starfa handan landamæranna miklu. Ólafur var fæddur að Eið- stöðum við Bræðraborgarstíg í Reykjavík 14. október 1899. For- eldrar hans voru Jón Guðmunds son frá Ánanaustum og kona hans Þórunn Einarsdóttir, fædd í Skólabænum í Reykjavík. Ólafur er því fæddur og alinn upp í gamla vesturbænum í Reykjavík og þar átti hann heima alla tíð síðan. Systkini Ólafs voru fjögur, Ásta, Guð- munda Margrét, Jón Einar, lát- inn fyrir nokkrum árum og Hjalti. iHús sitt reisti Ólafur á móti sameignarmanni sínum og æskuvini Sveini Þórðarsyni, fv. bankagjaldkera, við Túngötu í Reykjavík, skammt frá æsku- stöðvunum, og hefur búið þar með fjölskyldu sinni síðan. Á yngri árum lædði Ólafur skósmíði hjá Oddi Bjarnasyni skósmið á Vesturgötunni. Þessi iðngrein átti þó ekki eftir að verða ævistarf hans, enda þótt hún ætti eftir að koma honum að góðum notum síðar á lífsleið- inni. Árið 1926 réðst Ólafur til Verzlunar Björns Kristjánsson- ar, Vesturgötu 4 hér í borg og gerðist deildarstjóri leðurvöru- deildar verzlunarinnar. Leður- vörudeild VBK rak umfangs- mikla verzlun með léðurvörur og alls konar efni til skósmíða og átti viðskiptavini um allt land. Munu margir vafalaust minnast Ólafs frá þessum árum, en öll störf sín þar vann hann af mikilli skyldurækni og trú- mennsku, jafnt gagnvart hús- bændum sínum sem viðskipta- mönnum veraiunarinnar. Ólafur vann við leðurvörudeild VBK samfleytt í 25 ár, en þegar deildin hætti störfum á árinu 1951, réði Ólafur sig til Bóka- útgáfu Menningarsjóðs og Þjóð- vinafélagsins í Reykjavík og vann þar sem sölustjóri við bókaútgáfuna allt til dauðadags. Svo hefur forstjóri stofnunar- innar, hr. Gils Guðmundsson, sagt mér að samvizkusemi og trúmennska Ólafs hafi verið sérstök og hafi hann unnið þess- ari stofnun eins og hann ætti hana sjálfur. Hann var framúr- skarandi vinsæll í starfi, dug- legur og ósérhlífinn til hinzta dags. Framkoma hans var þann- ig að hann ávann sér vinsælda allra, er hann átti vfðskipti við. Skipti engu máli í hverju störf- in voru fólgin, hann var jafn vel liðinn og vinsæll, hvort sem hann vann við sölu og dreifingu eða við miður vinsælli störf eins og t.d. innheimtustörf. Ólafs er nú sárt saknað af forstjóra bóka- útgáfunnar og samstarfsmönnum hans öllum við þessa stofnun. Ólafur hafði sjálfur mikið yndi af góðum bókum og las alla tíð mikið þjóðlegt og annað bók- menntalegt fræðiefni. íslend- ingasögurnar voru honum mjög hugstæðar og kunni hann á þeim prý'ðileg skil. Hinn 6. apríl 1935, á afmælis- degi móður sinnar, kvæntist Ólafur eftirlifandi konu sinni, Jarþrúði Jónsdóttur, Jónassonar kaupmanns á Stokkseyri. Þau eignuðust þrjú böm, Jón Hilm- ar, búfræðing á Laugardælum, kvæntur Rósu Haraldsdóttur, Örn, er stundar nám í íslenzk- um fræðum við Háskóla Is- lands og Þórunni, húsfrú, sem gift er Baldri Ásgeirssyni stýri- manni. Fá hjónabönd veit ég far- sælli og ástúðlegri en hjónaband þeirra Ólafs og Jarþrúðar, þar féll aldrei hiinn minnsti skuggi á. Hún, bömin og barnabörnin eiga fagrar minningar um kær- an lífsförunaut góðan föður og afa. Þeirra er söknuðurinn sár- astur og votta ég þeim mína innilegustu samúð. Unz við hittumst aftur hand- an móðunnar miklu, kveð ég þig nú, kæri frændi, með vidðingu og trega. Allir sem þig þekktu, eru sam mála um að þú hafið verið drengur góður, og hvað er hægt að óska sér betra. Þín er sárt Ráðskona Bandarískur blaðamaður sem ferðast mikið óskar eftir ungri ráðskonu til að anruasit þrjú böm, 6, 7 og tíu ára. Þarf að kunna matreiðslu og þykja vænt um böm. Byrjunarlaun 45 dollarar auk fæðis og húsnæðis. Mynd og upplýsingar um reynslu sendist til Jack Kestner Ledger Star, Norfolk — Virgina U.S.A. saknað af frændum og vinum. Guð blessi þá, sem þér voru kærastir hér á jörðu, konu þína, börn og barnabörn. Systkini Ólafs, frændfólk, vinir og venzlamenn eiga öll góðar endurmiinningar um sam- veruna og geyma minningu hans í þakklátum huga. Arni Þorsteinsson. BfLAR Volkswagen árgerð '66, fastback, bensín- miðstöð. Clœsilegur Volkswagen 1967 Volvo Amazon árgerð '66, góður einkabíll. Volkswagen 1500, árg. '67. Volvo 144, árgerð '67. GUOMUNDAR Berrþðrof ðtn 3. Sfmar 1M3X, 20070 Þar sem salan er mest eru blómin bezt. Gróðrarstöðin við Miklatorg. Símar 22822 og 19775. Hand- og listiðn- aðarsýningin — aðeins 2 dagar eftir. Norrœna Húsið Allíance Francaise F rönskunámskeið Námsskeiðin hefjast í næstu viku. Kennt verður í mörgum flokkum. Franski sendikennarinn Jacques RAYMOND kennir í framhaldsflokkum. Innritun og allar nánari upplýsingar í Bókaverzlun Snæbjarnar Jónssonar & Co., Hafnarstræti 9. Sími 1-3 9-36 og 1-31-33. Væntanlegir nemendur eru beðnir að koma til við- tals í -háskólann, 3. kennslustofu (2. hæð) þriðjudag 8. október kl. 18.15, Bókasafnið Bókasafn félagsins, Hallveigarstg 9, verður opið í vetur fimmtudaga kl. 20 — 22. ^^SKAUNN Bílor of öllum gerðum til sýnis og sölu f glæsilegum sýningarskóla okkor oð Suðurlandsbraut 2 (við Hallarmúlo). Gerið góð bilakaup — Hagstæð greiðslukjör — Bílaskipti. Tökum vel með forna bila I um- boðssölu. Innonhúss eða uton .MEST ÚRVAL. —MESTIR MÖGULEIKAR BÍLASÝNING Á MORGUN. Bronco 8 cyl. áirg. '68, klæddur. Bronco árg, ’66, klædur. Scout árg. ’67 Hillman station árg. ’66. Gloria árg. ’67. Toyota 2300 1967. Vol'kswagen árg. ’66. Taunus 12M árg. ’63. Zephyr árg. ’62. Cortina áirg. ’64. Saab árg. ’65, 66. Volivo Amazon árg. ’65. Rambler Classic árg. ’65. Opel Record árg. ’64. Benz 220 S árg. ’60. MG sportbíll árg. ’63. Hanomag sendiferðabif reið árg. ’68. Mjög glæsilegur hrað'bátur. Opið til kl. 4. HR. KRISTJÁNS50N H.F. II II 0 II II I fl SUÐURLANDSBRAUT 2, VIÐ HALLARMÚLA 1,1 0 U U ' U SlMAR 35300 (35301 — 35302). SKODA — ÞJÓNUSTA Þjónustuverkstæði Skodaumboðsins, Elliðaárvogi 117, hyggst nú taka upp enn aukna þjónustu við eigendur Skodabifreiða. Eftirtalin þjónusta verður framvegis veitt á verkstæðinu: ir Almennar viðgerðir. ★ Mótorstillingar og almennt eftirlit. ★ Ljósastillingar. ★ Smurstöð. ir Þvottur og bónun. ★ Vélarþvottur, keðjuásetning og frostlagarmæling. HAGSÝNIR KAUPA — SKODA — ÁHYGGJULAUSIR AKA SKODA. Þjónustuverkstæði Skodaumboðsins Elliðaárvogi 117, sími 82723.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.