Morgunblaðið - 05.10.1968, Blaðsíða 20
20
MOHGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 196«
Verðlagsgrundvöllur
landbúnaðarvara
Greinargerð yfirnefndar
Á FUNDI í Sexmannanefnd þann
4. sept. sl. var ákveðið að undan-
genginni sáttatilraun Sáttasemjara
ríkisins að skjóta til yfirnefndar
skv. 6. gr. laga nr. 101-1966 ágrein
Ingi í nefndinni um ákvörðun verð
lagsgrundvallar fyrir landbúnaðar
vörur fyrir framleiðsluárin 1968-
1969 og 1969-1970.
Skotið var til yfirnefndar að úr-
skurða:
1. Alla gjaldaliði verðlagsgrund-
vallar.
2. Bústærð og afurðamagn.
3. Verð á ull og gærum.
í yfimefndina tilnefndu fulltrú-
ar framleiðenda Inga Tryggvason,
bónda Kárhóli, en fulltrúar neyt-
enda notuðu ekki rétt sinn til til-
nefningar og skipaði því félags-
málaráðherra, skv. 6. grein laga
nr. 101-1966, mann I nefndina, sem
er Jón Þorsteinsson, alþingism.
Oddamaður er Guðmundur Skafta-
son, lögfræðingur og löggiltur end-
urskoðandi tilnefndur af Hæstarétti
en 1 Sexmannanefnd hafði ekki orð
ið samkomulag um val odda-
manns.
Umboðsmenn aðila hjá yfirnefnd
inni em þeir Gunnar Guðbjarts-
son vegna framleiðenda og Ottó
Schopka vegna neytenda.
Á fundi yfimefndar þann 16.
sept s.l. lögðu umboðsmenn aðila
fram tillögur sínar til verðlags-
grundvallar ásamt greinargerðum
og gögnum, sem þeir óskuðu eftir
að koma að I málinu.
Af hálfu neytenda var lögð fram
sú aðaltillaga, að yfirnefndin á-
kvarði verðlagsgrundvöll landbún
aðarafurða i samræmi við það sam
komulag, sem fulltrúar fram-
leiðenda og neytenda gerðu með
sér í september 1966 og notað var
sem grundvöllur við verðlagningu
framleiðsluárið 1966-1967. Við út-
reikning á verðlagi yrði stuðst við
framreikningsreglur frá 4. 7. 1960.
Ennfremur að áætlað verð á ull og
gærum yrði í samræmi við væntan-
legt útflutningsverð og allar bú-
greinar látnar taka sömu hlutfalls-
legu hækkun.
Til vara lögðu þeir fram þá til-
lögu, að verðlagsgrundvöllurinn
yrði ákveðinn á grundvelli „400 ær
gilda bús“ þar sem eingöngu væri
tekið tillit til kostnaðar og tekna
vegna nautgripa og sauðfjár.
Lögðu þeir fram tillögu um upp-
stillingu á verðlagsgrundvelli
byggða á slíku búi.
í þessari tillögu fulltrúa neyt-
enda er gert ráð fyrir bústærð, sem
samanstendur af 10 kúm, 3,5 geld-
neytum og kálfum og 180 fjár. Af
urðamagnið er tilfært 29.500 lítrar
mjólkur, 501 kg. nautgripakjöt,
2754 kg. kindakjöt, 551 kg. gærur,
325 kg. ull og 180 slátur.
Fulltrúar framleiðenda leggja til
að I verðlagsgrundvelUnum verði
miðað við „400 ærgilda" bústærð
og sleppt verði öllum aukabúgrein
um öðrum en garðrækt til heim-
ilisnota og ennfremur, að sleppt
verði öllum vinnutekjum utan
heimilis. Þeir leggja til að naut-
gripaafurðir verði ákveðnar þann
ig: Mjólk 26,550 ltr., nautakjöt 420
kg. og húðir á 430 kg. Sauðfjáraf-
urðir verði ákveðnar 3060 kg. kjöt
STAPI
DANSLEIKUR í KVÖLD KL. 9.
Pónik og Einar
STAPI
612 kg. gærur, 340 kg. ull og 200
slátur. Þá leggja þeir til að garð-
ávextir verði ákveðnir 1000 kg.
Ennfremur gera þeir tillögur um
uppstillingu á gjaldahlið verðlags-
grundvallarins. Þá gera fulltrúar
framleiðenda kröfur til, að verði
samsetningu búsins breytt skulj
breyta gjaldaliðum verðlagsgrund
vallarins til samræmis við það og
tilgreina þeir flutningskostnað sér
staklega. Ennfremur gera þeir þá
kröfu, að við ákvörðun gjaldahlið-
ar verði reiknað með hækkunum,
sem leiðir af innflutningsgj aldi skv
bráðabirgðalögum nr 68 frá 3 sept.
s.L
tölum til skatts leiða í ljós, að bil
ið milli nettótekna skv. verðlags-
grundvelli og samkvæmt úrtakinu
hefir vaxið á síðustu árum fram-
leiðendum í óhag.
Verðlagsgrundvellir, sem gilt
hafa á undanförnum árum, rafa
lítið breyzt í megin-atriðum, þótt
á sama tíma hafi átt sér stað veur
legar breytingar í búrekstrinum.
Þannig hefir t.d. bústærðin sam-
kvæmt grundvellinum tekið litlum
breytingum, þótt búin hafi yfir-
leitt stækkað. Sumir aðalgjaldalið-
irnir svo sem kjarnfóður og á-
burður hafa ekki tekið breytingum
sem séu í samræmi við breyting-
Báðir aðilar gera tillögu um upp stillingu á gjaldahlið verðlags- grundvallar eins og áður greinir miðað við „400 ærgilda bú“. Til- færður er hér hver einstakur gjalda liður eftir tillögu hvors aðila i fjár hæð króna, en sundurliðunum sleppt. ar á innflutningi, sölu og notkun þessara vara. Þegar á þetta er litið þykir yfir- nefndinni rétt að ákveða nýjan verðlagsgrundvöll með hliðsjón af varatillögum neytenda og tiUög- um framleiðenda svohljðóandi: Bústærðin ákveðist: 10 kýr, 2
1. Kjarnfóður 2. Áburður 3. Viðhald og fyrn. húsa 4. Viðhald girðinga 5. Kostn. við vélar 6. Flutningskostnaður 7. Vextir 8. Annar kostnaður 9. Laun o. fl. Till. fulltr. neytenda kr. 50.537,00 — 46.754,00 — 15.579,00 — 4.413,00 — 45.214,00 — 17.604,00 — 36.043,00 — 11.241,00 — 264.505,00 Till. fulltr. framleiðenda kr. 61.320,00 — 62.046,00 —• 16.000,00 — 4.413,00 — 55.100,00 — 19.320,00 — 80.652,00 — 20.000,00 — 311.357,00
kr. 491.890,00 kr. 630.208,00
Aðilar höfðu lagt fram I Sex- manna-nefnd tillögur um gjalda- aðrir nautgripir, sem samsvara 20 ærgildum og 180 kindur
_
hlið verðlagsgrundvallarins eins og
þær, sem að ofan greinir að þvi
frátöldu, að I tillögum neytenda
er launaliðurinn tilfærður kr.
283.900.00 og flutningskostnur kr.
19.320.00. Fulltrúar framleiðenda
taka fram, að launaliður I tillögu
þeirra kr. 311.357.00 sé settur fram
án tillits til fríðinda launafólks, en
í fyrra hafi verið upplýst, að þau
væru um eða yfir 4 prs.
Eigi var ágreiningur milli aðila
um verðlag á kjarnfóðri eða á-
burði.
Meðal þeirra gagna, sem nefnd-
in hefur aflað eða hafa verið lögð
fram í málinu eru eftirfarandi:
1. Verðlagsgrundvöllur landbún-
aðarvara frá 1.9. 1967- 1. 9. 1968.
2. Framreikning Hagstofu ís-
lands á verðlagsgrundvellinum
miðað við ágústmánuð s.l.
3. Niðurstöður úrtakskönnunar
Hagstofu íslands eftir sérúr-
taki 89 búa úr aðalúrtaki land-
búnaðarframtalanna 1968.
4. Úrvinnsla Búreikningaskrif-
stofu landbúnaðarins fyrir Sex
-manna-nefnd úr 61 búreikn-
ingi fyrir árið 1967 ásamt út-
reikningum á notkun kjarn-
fóðurs og áburðar á ærgildi s.l.
5 ár.
5. Skýrslur Kristjáns Karlssonar
og Óskars Guðmundssonar um
vinnuathuganir fyrir Sex-
manna-nefnd 1966, 1967 og 1968.
6. Skýrslur Hagstofu íslands um
innflutning og sölu á fóður-
bæti og áburði.
7. Skýrslur og úrtakskannanir
tekjur iðnaðarmanna, sjómanna
og verkamanna.
8. Skýrslur Hagstofu íslands um
nettótekjur af búrekstri skv.
verðlagsgrundvelU verðlagsár-
anna 1964-1965 — 1967-1968 ög
meðal nettótekjur búa í sénír-
taki hvert tekjuár 1965-1967
skv. landbúnaðarframtölum til
skatts.
Við ákvörðun verðlagsgrundvall
ar skiptir höfuðmáU, að fyrir
hendi séu sem öruggastar upplýs-
ingar um það, hvort þær tekjur,
sem framleiðendum voru ætlaðar
við fyrri verðákvarðanir hafi náðst
eða ekki. Áuðrgreindar skýrslur
Hagstofu íslands um nettótekjur
framleiðenda af búrekstri sam-
kvæmt verðlagsgrundvelli og nettó
tekjur búa eftir landbúnaðarfram-
Afurðamagn ákveðist: Mjólk
29.500 ltr., nautgripakjöt 455 kg.,
nautgripahúðir 40 kg., heimanot-
uð mjólk kr. 1.479.00, kindakjöt
2.754 kg., gærur 551 kg., ull 325
kg. og kartöflur 1.000 kg.
Gjaldahlið verðlagsgrundvallar-
ins ákveðist þannig:
í ofanskráðum fjárhæðum gjalda
hliðar er reiknað með 2-3 hlutum
hækkunar vegna innflutningsgjalds
skv. lögum um innflutningsgjald
o.fl. nr. 68 frá 3. sept. s.l., en 1-3
hluti bætist við þ. 1. desember n.k.
Vextir eru ákveðnir með hlið-
sjón af eiginfjárvöxtum í fyrri
verðgrundvelli og vaxtagjöldum
samkvæmt búreikningum.
Tímakaup bóndans er ákveðið
með hliðsjón af 3. taxta Dagsbrún-
ar og kauptöxtum iðnaðarstétt-
anna og þá sérstaklega hafður til
viðmiðunar tímakaupstaxti Tré-
smiðafélags Reykjavíkur. Orlof,
veikindadagar o.þ.h. er innifalið í
kaupi bóndans.
Verð á uU og gærum ákveðst
þannig í grundvellinum:
Ull kr. 10,00 hvert kg.
Gærur kr. 34,00 hvert kg.
Yfirnefndarmaður, Jón Þorsteins
son gerði ágreining varðandi 4 eft
irtalin atriði í framangreindum
grundvelli. Magn kjamfóðurs,
vinnutími bóndans, mjólkurmagn
og frádrátt vegna heimanotaðrar
mjólkur.
Yfirnefndarmaður, Ingi Tryggva
son, gerði ágreining varðandi eft-
irtalin atriði. Kostnað við vélar,
vexti, laun og áburð, en samþykkti
tvo síðastgreinda liði eftir að hans
tillögur um þau efni höfðu verið
feUdar.
Reykjavfk, 30. sept. 1968,
Guðm. Skaftason
(Sign.)
Ingi Tryggvason
(Sign.)
Jón Þorsteinsson
(Sign.)
1. Kjarnfóðnr:
a) Fóðurmjöl 1.160 kg. @ 8,91 kr. 10.335,00
b) Maismjöl 7.444 — - 6,72 — 50.024,00
c) Fóðurmjólk 350 — - 2,70 — 945,00 kr. 61.304,00
2. Áburður: a) Köfnunarefni 2.280 — - 16,98 38.714,00
b) Fosfórsýra 1.220 — - 10,80 — 13.176,00
c) Kali 810 — - 6,89 —■ 5.581,00 kr. 57.471,00
3. Viðhald og fyrning húsa: a) Timbur 1.947,00
b) Þakjám — 880,00
c) Málning — 730,00
d) Annað — 700,00
e) Fyrning (3% af 400 þús.) — 12.000,00 kr. 16.257,00
4. Viðhaid girðinga: a) Timbur 2.716,00
b) Gaddavir — 1.909,00 kr. 4.625,00
5. Kostnaður við vélar: a) Aðkeypt viðgerðarvinna 9.000,00
b) Varahlutir — 8.170,00
c) Benzín — 9.505,00
d) Díselolia — 2.382,00
e) Smurolía og frostlögur — 984,00
f ) Fyming (10% aí 200.470) — 20.047,00 kr. 50.088,00
6. Flutningskostnaður: kr. 21.459,00
7. Vextir: kr. 44.690,00
8. Annar kostnaður: kr. 18.912,00
9. Laun: a) Laun bónda 2900 klst. @ 78,00 226.200,00
b) Laun húsfr. 600 klst. - 56,06 — 33.636,00
c) Laun ungl. 1000 klst. - 35,00 — 35.000,00
d) Sjóðagjöld — 1.100,00 kr. 295.936,00
Útgjöld alls kr. 570.742,00
NÝTT ÞRASTAR- NÝTT
D sófasett með DACRON dún- D
A púðum — Kynnið ykkur gæði A
C og bægindi — Úrval sófasetta C
R - KOMIÐ OG SJÁIÐ - R
O — Hvað er DACRON-dúnn? — O
N HIMOTAIM N
- DÚNN ÞÓRSGÖTU 1 — SÍMI 20820. - DÚNN
LO FT U R H.F.
LJÓSMYNDASTOFA
Ingólfsstræti 6.
Pantið tíma í síma 14772.
SAMKOMUR
Bænastaður Fálkagötu 10
Samkomur sunnud. 6. okt.
Sunnudagaskólí kl. 11 f. h.
Almenn samkoma kL 4.
Bænastund alla virka daga
kl. 7 e. m.
Allir. velkomn jr.
Heimatrúboðið
Almenn samkoma að Óðins-
götu 6A sunnudaginn 6. okt.
kl. 20.30. Þá hefst sunnudaga-
skólinn á morgun kl. 10.30.
Verið velkomin.
Boðun fagnaðarerindisins á
morgun, sunnudag, Austur-
götu 6, Hafnarfirði kl. 10 f.
h Hörgshlíð, Reykjavík kl.
8 e.h.