Morgunblaðið - 05.10.1968, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGTJR 5. OKTÓBER 196«
...‘lUJUyUMAIWIMW!
Pétur Friðrik með mynd sína„IIaust á Þingvöllum'
Góður kunningi listunnenda,
Pétur Friðrik, opnar sýningu
í Bogasalnum í dag klukkan 3
Á sýningunni eru 26 mál-
verk, og eru öll til sölu
Pétur Friðrik hefur verið að
mála frá því að hann var
barn að aldri, fyrstu olíu-
myndirnar gerði hann tólf eða
þrettán ára gamall.
Langflestar myndanna á
sýningunni eru málaðar á
þessu ári, og er verð þeirra
margra um 26-27 þúsund krón
ur og upp í 35 þúsund.
Pétur Friðrik sýndi myndir
í Hafnarfirði í vor, en í
Reykjavík hefur hann ekki
haldið sýningu síðan 1966.
Þetta er þrettánda sýningin
sem listamaðurinn heldur.
Sýning hans verður opin
daglega frá klukkan 2-22, og
lýkur henni sunnudaginn
þrettánda þ.m.
Útibúi Landsbankans
á Selfossi 50 ára
ÚTIBÚ Landsbanka íslands á
Selfossi hóf starfsemi sína hinn
4. október 1918 og átti því hálfr
ar aldar afmæli í gær. Það var
fyrsta bankaútibúið hér á landi
sem stofnað var í sveit, þvi að
þá var þar ekki önnur byggð en
bærinn að Selfossi, og veitinga-
og gistihúsið Tryggvaskáli. Eft-
ir að útibúið tók til starfa, fór
að myndast þarna þorp og nú um
langt skeið hefir Selfoss óumdeil
anlega verið höfuðstaður Suður
landsundir’lendisins í verzlun, ið
naði og samgöngum.
Bankastjórar Landsbankans,
þegar útibúið var stofnað, voru
þeir Magnús Sigurðsson og Bene
dikt Sveinsson, en aðalhvata-
maðurinn utan bankans að stofn
un þess var Gestur Einarsson
bóndi á Hæli.
Hlutverk útibúsins var frá
upphafi fyrst og fremst að
styðja landbúnaðinn í þeim þrem
sýslum sem starfssvið þess nær
yfir. Enn í dag er þetta höfuð-
markmið útibúsins, þótt breytt-
ir framleiðsluhættir hafi að sjálf
sögðu gert starfsemina fjöl-
breyttari.
Niðurstöðutölur efnahags-
reikninga fyrsta árið var 947
þús. krónur, en síðan hefir það
fylgt almennri þróun í peninga-
málum landsins, og var tilsvar-
andi tala um síðustu áramót 398
milljónir króna. Framari af var
aðalrekstrarfé útibúsins lánsfé
frá aðalbankanum í Reykjavík,
en smám saman jukust inneignir
héraðsbúa í sparisjóði. Við þetta
hefir skuld útibúsins við aðal-
bankann orðið hlutfallslega
miklu minni en áður, en þó mjög
mismunandi eftir árstíðum.
Um síðustu áramót var heild-
arinnlánsfé í útibúinu röskar
300 milljónir króna og er það
hærri fjárhæð en í nokkru öðru
útibúi Landsbankans utan
Reykjavíkur.
Útibúið hefir stutt margar
stórframkvæmdir á Suðurlandi,
og ber þar hæst aðstoð þess við
Mjólkurbú Flóamanna þegar það
var endurbyggt á árunum 1955-
1960, auk afurða- og rekstrar-
lána sem mjólkurbúið hefur
þarfnazt á hverjum tíma. Rækt-
unarsambönd og aðrir hafa og
fengið lán til kaupa á stórvirk-
um ræktunarvélum, auk þess
sem lán til verzlunar, fiskveiða,
iðnaðar og samgangna og marg-
víslegra menningarframkvæmda
hafa farið vaxandi eftir því sem
árin 'liðu.
Framan af voru viðskiptin nær
eingöngu lánaviðskipti og spari
sjóðsafgreiðslur, en á síðari tím
um hafa þau orðið miklu fjöl-
breyttari. Má nefna að 1919
voru inn og útborganir allt árið
aðeins rúmlega 2 milljónir króna
en árið 1967 var sambærileg tala
um 4 þúsund milljónir króna.
Fyrsta árið var útibúið í leigu
húsæði í Tryggvaskála en flutt-
ist 1919 í eigið húsnæði, stórt
timburhús við Austurveg. Það
húsnæði varð þó er árin liðu of
þröngt og óhentugt. Var þá reist
nýtt stórhýsi við Austurveg 20,
eftir teikningu Guðjóns Samúels
Vetrorstorf KFUM og KFUK
K.F.U.M. og K.F.U.K. hefja
margþaetta vetrarstarfsemi um
þessa helgi. Félögin eiga fjögur
félagsheimili hér í borg. Aðal-
stöðvar þeirra eru við Amt-
mannsstíg 2B. Auk þess eiga
þau félagshús við Kirkjuteig 22
Holtaveg 1 og Langagerði 1. Fé-
lögtn hafa barna og unglinga-
starf á öllum þvsusm stöðum svo
og í Arbæjarhverfi í félagsheim
ilinu við Hlaðbæ. Eru fundar og
samkomutímar einstakra deilda
nánar auglýstir í blaðinu.
Sunnudagaskóli félaganna að
Amtmannsstíg 2B er á hverjum
sunnudegi kl. 10.30 f.h. Vina-
deild er þar fyrir drengi 5-8 ára.
Yngridei'ld fyrir 9-12 ára. Ungl-
lingadeildir eru fyrir 13-16 ára.
sonar húsameistara ríkisins. Var
það tekið í notkun 8. ágúst
1953 og er það fyrir löngu full-
nýtt.
Útibússtjórar á Selfossi hafa
verið Eiríkur Einarsson frá Hæli
1918-’30, Hilmar Stefánsson (síð
an bankastjóri Búnaðarbankans)
1930-’35 og Einar Pálsson síðan
1935.
Fyrstu tvo áratugina var
starfsmannafjöldinn oftastnær 3,
en nú eru um 20 starfsmenn við
útibúið. Árið 1964 stofnaði Lands
bankinn útibú á Hvolsvelli, sem
enn er rekið sem deild úr úti-
búinu á Se'lfossi. Ennfremur er
afgreiðsla í Þorlákshöfn sem op
Útibú landsbankans á selfossi
in er einn dag í viku.
Til þess að minnast þessa á-
fanga í sögu útibúsins afhenti
bankaráð Landsbankans í gær
Búnaðarsambandi Suðurlands
stofnframlag að sjóði sem hafi
það hlutverk að styrkja ýmis-
konar starfsemi í þágu iandbún
aðarins i sýslunum þremur, Ár-
nes-, Rangárvalla- og Vestur-
Skaftafellssýslum, eftir nánari
reglum, sem settar verða í sam-
ráði við búnaðarsambandið. Hef-
ir bankinn með þessari gjöf vilj
að ‘leggja áherzlu á hin nártu
tengsl sem útibúið hefir ævin-
lega haft við land'búnaðinn, eins
og minnzt er á hér að framan. s
Aðaldeildir félaganna (fyrir
17 ára og eldri) halda fundi
einu sinni í viku. (KFUK þ á
riðjudögum og KFUM á fimmtu
dögum). Almennar samkomur
eru kl. 8,30 hvert sunnudags-
kvöld. Starfið fyrir þá eldri hef
ir aðsetur í húsinu við Amt-
mannsstíg.
Félögin hafa einnig deildir í
Kópavogi. Barnasamkomur eru í
Digranesskólanum kl. 10,30 á
sunnudagsmorgnum, en yngri
dei'ldir og unglingadeildir hafa
fundi sína í Sjálfstæðishúsinu.
Um þessa helgi og næstu daga
munu um 24 deildir félaganna
hefja vetrarstarf sitt og auk
þess ýmsir smærri hópar.
JAZZBALLETSKÓLI BÁRU
Stigahlíð 45 Suðurveri.
Domur — líkamsrækt
Megrunaræfingar fyrir konur á
öllum aldri.
Nýr þriggja vikna kúr að hefjast.
4 tímar í viku.
Dagtímar — kvöldtímar.
Góð húsakynni. — Sturtuböð.
SKÍRTEINAAFHENDING
verður í skólanum, laugardag
og sunnudag mili kl. 4—6.
Áríðandi að allir mæti.
ipSÍP*
Skólinn tekur ai fullu
til starfa 7. aktnber
Kennt verður í öllum aldurs-
flokkum. Barnaflokkar — tán-
ingaflokkar — byrjendaflokkar —
framhaldsflokkar.
Jazzballet fyrir alla!
StúJkur! Skólinn leitar eftir góð-
um hæfileikastúlkum í sýningar-
flokka.
Nú er síðasta tækifærið að láta
innrita sig.
Framhaldsnemendur hafi sam-
band við skólann sem fyrst.
Síðasti innritunardagur frá
kl. 9—7 í síma 8-37-30.
Jazz — Modern — Stage — Show Business