Morgunblaðið - 05.10.1968, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 196«
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
f Ritstjórar
Ri-tstj órnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgrei'ðsla
Auglýsingar
Askriftargjald kr. 130.00
í lausasölu
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Sigurður Bjamason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Arni Garðar Krktinsson.
Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
á mánuði innanlands.
Kr. 8.00 eintakið.
SJÁLFSTÆÐISSTEFN-
AN OG ÆSKAN
k ndstæðingar Sjálfstæðis-
flokksins eiga erfitt með
að átta sig á því, hvers vegna
hin öfluga hreyfing ungs
fólks, sem risin er, skipar sér
undir merki Sjálfstæðis-
flokksins. Þeir skilja ekki,
hvers vegna æskan er stað-
ráðin í því að berjast fyrir
því, að áhrif sjálfstæðisstefn-
unnar stóraukist í íslenzku
þjóðlífi. Þetta er þó ofurein-
falt og auðskilið mál, og skal
Morgunblaðið í nokkrum
orðum skýra þetta fyrir and-
stæðingum Sjálfstæðismanna.
Rauði þráðurinn í ummæl-
um ungra manna um þessar
mundir er sá, að of mikið
vald hafi safnazt á hendur
stjórnmálamanna og embætt-
ismanna; einstaklingum og
atvinnufyrirtækjum hafi ekki
verið eftirlátin þau yfirráð
yfir fjármagni og áhrifum,
sem nauðsynlegt sé til að
hæfileg dreifing valdsins sé
í þjóðfélaginu og hinar ýmsu
stofnanir þess sem sjálfstæð-
astar gagnvart ríkisvaldinu.
Hér er með öðrum orðum
um að ræða kröfu þess efnis,
að áhrif sjálfstæðisstefnunn-
ar aukist, en grundvöllur
hennar er einmitt sá að forð-
ast ofurvald ríkisins og
tryggja sem bezt sjálfstæði
einstaklingsins gagnvart op-
inberu valdi.
Unga fólkið gerir sér þarin-
íg glögga grein fyrir því, að
hugsjónir þess rúmast hvergi
nema innan Sjálfstæðis-
flokksins. Það er frábitið
kommúnísku ofbeldi, það
hlær að kenningum „ungra“
Framsóknarmanna um að
hverfa beri 30 ár aftur í tím-
ann og það er andvígt auknu
ríkisvaldi, sem sósíaldemó-
kratar boða.
En hvers vegna rís þessi
alda nú, eftir að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur verið í rík-
isstjórn í 9 ár, og hvers
vegna gagnrýna hinir ungu
menn einnig Sjálfstæðisflokk
inn? Því er í fyrsta lagi til
að svara, að það er ekki nýj-
ung að ungir Sjálfstæðis-
menn gagnrýni forystu flokks
ins fyrir það að koma ekki
fram stefnumálum flokksins í
nægilega ríkum mæli og eigi.
erfitt með að sætta sig við
það, að Sjálfstæðisflokkurinn
verði verulega að slá af kröf-
um sínum í samstjórn við
aðra flokka. Þannig hefur
það einmitt verið í áratugi,
allt þar til er viðreisnin
hófst 1960 og Sjálfstæðis-
flokkurinn náði mesta
árangri, sem hann nokkru
sinni hefur náð, í að marka
stefnu sína og framfylgja
henni.
í annan stað er þess að
gæta, að í íslenzku efnahags-
og stjórnmálalífi hafa skipzt
á tímabil frjálsræðis og hafta.
Um þetta hefur Jónas Har-
alz ritað mjög athyglisverða
grein, þar sem hann talar um
tímabil frjálshyggju og tíma-
bil skipulagshyggju. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur barizt
fyrir frjálshyggjunni, en hin-
ir flokkarnir fyrir meiri og
minni skipulagshyggju. Því
er ekki að leyna, að nú á
allra síðustu árum hefur sig-
ið nokkuð í átt til skipulags-
hyggju og þar með vaxandi
pólitísks valds og afskipta,
þótt ólíku sé saman að jafna
og því ófremdarástandi, sem
áður fyrr skapaðist hér á tím-
um vinstri stefnu.
Þegar svo umræður eru
uppi um myndun þjóðstjóm-
ar, er ekki óeðlilegt að æsku-
lýðurinn, sem aðhyllist
stefnu frjálsræðisins, Sjálf-
stæðisstefnuna, óttist að
skipulagshyggjan muni senn
ríða húsum í íslenzkum
stjórnmálum, og einmitt þess
vegna beitir æskan sér fyrir
öflugum aðvönmum.
Hitt er svo annað mál, að
það er skoðun Morgunblaðs-
ins, að rétt hafi verið að
reyna á það, hvort unnt yrði
að ná þjóðarsamstöðu til að
bjargast yfir þann erfiða
hjalla, sem leitt hefur af áföll
um þeim, sem yfir okkur hafa
dunið, þótt ekki sé slík sam-
staða kaupandi svo dýru
verði að hverfa aftur yfir í
óstjórn vinstri stefnunnar.
En vissulega er eðlilegt að
æskulýðurinn óttist einmitt
það, svo rækilega sem stjórn-
arandstæðingar hafa undir-
strikað, að þeir vilji grund-
vallarbreytingu í efnahags- og
viðskiptamálum, vilji fara
„hina leiðina", eins og Fram-
sóknarforinginn Eysteinn
Jónsson komst svo snilldar-
lega að orði, þ.e.a.s. leið haft-
anna og spillingarinnar.
Hinn öflugi stuðningur við
Sjálfstæðisstefnuna, sem nú
ríkir meðal íslenzkrar æsku,
verður Sjálfstæðisflokknum
að sjálfsögðu hvöt til þess að
beita sér enn meir en ella
fyrir framgangi stefnu sinn-
ar. En íslenzk æska verður
hins vegar að gera sér grein
fyrir því, að engin von er til
þess, að það þjóðskipulag,
sem hún krefst, verði hér upp
byggt í einu og öllu, nema
Sjálfstæðisflokkurinn hljóti
Vindsveipur hefur lyft hægri væng vélarinnar og hún byrjar að beygja. Myndin er tekin nokkr
um augnablikum áður en hún hrapaði niður á húsaþyrpinguna.
6 létu lífið
SEX menn létu lífið þegar þessi
flugvél fórst. Það má telja það
heppni, að fórnarlömbin skyldu
ekki verða fleiri því að slysið
varð á flugsýningu, þar sem um
16000 áhorfendur þjöppuðu sér
saman. Flugsýningin var í Farn-
borough í Englandi og véiin var
af gerðinni Breguet Atlantic, frá
franska flughernum. Flugmaður
inn, sem var franskur, var að
sýna flug á einum hreyfli, en það
hefur hann oft gert áður. í þetta
skipti mistókst honum. Snarpur
hliðarvindur feykti vélinni til og
hún byrjaffi aff sveigja á stöffv-
affa hreyfilinn.
Flugmaðurinn dró þegar úr
eldsneytisgjöfinni til hreyfilsins,
sem var í gangi um leið og hann
ræsti hinn, en vélin var of lágt
svo að það vair um seinan. Með
Eldhaf og svartir
sem vélin hrapaffi.
reykbólstrar umlykja húsaþyrpinguna, þar
ógurlegri sprengingu skall hin 40
lesta þunga flugvél á litla húsa-
þyrþingu, sem samstundis hvarf
í eldhaf og svarta reykbólstra.
Það var aðeins einn maður í
einu húsanna, hin voru auð. Og
þessi eini lét lífið og fimm manna
áhöfn vélarinnar.
Nokkrum mínútum síðair flugu
nökkrar orrustuþotur yfir sýn-
ingasvæðið og í kjölfari þeirra
voru marglitir reykborðar. Þot-
urnar léku ýmsar listir og mann-
fjöldinn klappaði. Eins og þeir
segja þarna úti: „The show must
go on“.
til þess nægan styrk á
Alþingi íslendinga. Þess
vegna þurfa æskumenn að
herða sóknina og berjast ötul-
lega á öllum vígstöðvum.
ÓÞÖRF
VIÐURKENNING
að er alþjóð kunnugt að
undanfarin ár hefur
miklu fé verið varið til fram-
’kvæmda í skólamálum lands-
manna. Fjöldi nýrra skóla
hefur verið byggður um land
allt, þannig að óhætt er að
fullyrða að aldrei hafi verið
unnið jafn markvisst að skóla
málum.
Vitanlega hefur ekki verið
til fé til þess að hægt væri
að gera allt í einu og ráðast
í allar þær framkvæmdir,
sem að kalla og nauðsynleg-
ar eru.
En þrátt fyrir þetta er það
staðreynd, sem ekki verður
sniðgengin að fjölmargt er
enn ógert í skólamálum okk-
ar. Hér í blaðinu og í sam-
þykktum ungra Sjálfstæðis-
manna hefur verið á þetta
bent. Hefur þar jafnframt
verið lögð áherzla á, að end-
urskoða þyrfti sjálft skóla-
kerfið og gera á því marg-
víslegar breytingar í ljósi
þeirrar reynslu, sem fengizt
hefur síðan skólalöggjöfin
var sett fyrir rúmum 20 ár-
um. Landsprófið hefur sér-
staklega verið gagnrýnt og
nauðsyn talin vera á veruleg
um breytingum á því.
Allur almenningur í land-
inu veit, að þetta er satt og
rétt. Hvergi er nauðsynlegra,
að eðlileg þróun og breyting-
ar eigi sér stað en einmitt í
skólamálum, sem ekki aðeins
snerta hag, þroska og vel-
ferð æskunnar heldur þjóð-
ina í heild og framtíð henn-
ar.
Þegar þessa er gætt, sætir
það ekki lítilli furðu, að mál-
gagn menntamálaráðherrans,
Alþýðublaðið, skuli hvað eft-
ir annað stökkva upp á nef
sér vegna fyrrgreindrar gagn
rýni. Slík viðkvæmni er
vissulega óþörf. Það er sjálf-
sagt að meta það, sem vel
hefur verið gert, en hitt er
jafn eðlilegt, að augun séu
höfð opin fyrir því, sem á-
bótavant er og miður fer. Ef
Alþýðublaðið er hæstánægt
með allt, sem gerist í ís-
lenzkum skólamálum, eða lát
ið er ógert, þá er það þess
mál. Hins vegar munu allir
sanngjarnir og hugsandi
menn viðurkenna, að heil-
brigð gagnrýni er frumskil-
yrði þess, að aðkallandi um-
bótum verði komið fram. Og
kjarni málsins er, að enginn
er ofgóður til þess að hlusta
á hóflega gagnrýni, sem fyrst
og fremst er borin fram af
áhuga fyrir framgangi þjóð-
þrifamála.
Stirð sombóð
skæruliða í
Suður-Vietnam
Saigon, 3. október. NTB.
AGREININGUR milli suffur-
vietnamskra hermanna Viet Cong
og vopnabræffra þeirra frá Norff-
ur-Vietnam hefur vakið ugg í
yfirstjórn skæruliffaherjanna, aff
því er talsmaður bandarísku her
stjónarinnar hélt fram í dag.
Skjöl, sem náðst hafa af skæru-
liðum sýna aff Viet Cong-menn
telja Norffur-Vietnama silalega
og klaufska og gert er gys aff mál
lýzku þeirra.
I einu skjalinu sagði, að Viet
Cong-foringi hefði opinberlega
skammað nokkra Norður-Viet-
nama og sums staðar hafa kaup-
menn hækkað verð á vörum, sem
þeir hafa selt Norður-Vietnöm-
um, sem Bandaríkjamenn telja
80% skæruliðahersins í Suður-
Vietnam. Skjölin eru tvö, annað
sex mánaða gamalt en hitt eins
mánaðar, og virðist sambúðin
hafa batnað á þessum tíma, en
er þó enn talin stirð.
Ófafsfjarðar-
prestakall laust
BISKUP íslands hefur auglýst
Ólafsfjarðarprestakall í Eyja-
fjarðarprófastdæmi laust til um-
sóknar og er umsóknarfrestur til
31. október, n.k.