Morgunblaðið - 05.10.1968, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1968
Þarna sérðu tengdamamma, Lilli litli þekkir þig orðið.
tortryggin, sagði hann. — Auð-
vitað _ þekki ég öll kven-undir-
föt. Ég verð að segja, svona í
allri hæversku, að ég hef haft
svo mikið með slíkt að gera, að
ég tel mig hálfgerðan fagmann
á því sviði.
— Já, ertu það?
— Mikið geturðu verið gamal-
dags, Jill mín góð. Þú veizt um
starf mitt, er ekki svo?
— Ég veit bara, að þú ert
fornfræðingur.
— Þar er ég nú varla nema
viðvaningur, sagði Oliver. — Það
hef ég bara mér til tilbreytingar
í fríunum mínum. En annars er
ég skurðlæknir.
— Skurðlæknir? Já, vitanlega.
— Hinir þurfa helzt að hafa
lækni með sér, ef eitthvað skyldi
koma fyrir, og ég þarf tilbreyt-
ingu, eftir heils árs þrældóm í
London. Svo að þetta kemur öll-
um vel. Ég var bara að spyrja
um náttklæðin þín, af því mig
langar til að kaupa handa þér
arabisku útgáfuna af náttklæðn-
aði. Kaftaninn er síður og víður
kjóll, sem þær fara í eftir að
hafa farið úr ytri fötunum. Svo
sniglast þær um húsið í honum
og svo, þegar þær fara að hátta,
þá leggjast þær bara niður í hon
um og vefja utan um sig einu
eða tveimur teppum. Þetta er
afskaplega þægilegt.
Og Jill fundust líka kaftan-
arnir fállegir, þegar gamli mað-
urinn fór að sýna þeim þá. Mjúka
silkið var í ýmsum fallegum lit-
um og svo voru á þeim legg-
ingar úr silfri eða gulli. Oliver
athugaði þá með henni. — Hann
vinur okkar hérna, gengur að því
sem vísu, að þú sért konan mín,
útskýrði hann. Loksins valdi Jill
einn rósrauðan, sem blikaði eins
og fallegt blóm. — ég hef aldrei
séð neitt líkt þessum lit áður.
Hann er dásamlegur, finnst þér
ekki? Heldurðu, að hann gæti
gengið?
— Já, áreiðanlega, sagði hann.
Hví ekki það? Þú ættir að fara
í eitthvað líflegt, til tilbreytingar
Jill. Ég hef ekki séð þig nema
í dauflitum fatnaði. Og þú kannt
vel við þetta eftir að hafa þræl-
að allan daginn við matseldina í
eyðimörkinni. Þá verðurðu í galla
buxum og skyrtu og strigastíg-
vélum til að verjast sandinum
og flugunum. Og þær eru afleit-
ar ef þær bíta mann.
— Þú ert svo góður við mig,
Oliver, sagði Jill, er þau gengu
það, sem eftir var leiðarinnar
og hún með kaftaninn á hand-
leggnum, þar eð það virtist ekki
vera til siðs þarna að setja um-
búðir um vörur. Og ég þakka
þér fyrir þetta.
— Ánægjan er mín, Jill. — Ef
þetta getur glatt þig eitthvað, er
ég feginn. Þú hefur verið eitt-
hvað niðurdregin öðru hverju.
Þú verður í þessu við kvöld-
matinn? Til þess að gleðja mig?
— Já, það þætti mér gaman.
En er það viðeigandi?
— Þetta ertu búin að segja
tvisvar á fáum mínútum, sagði
Oliver. — Hversvegna ætti það
ekki að vera viðeigandi? Marg-
aret Fallowman er alltaf í ara-
biskum klæðnaði. Og Enid líka,
þegar hún er með okkur. Farðu
nú i hann Jill. Þig langar hvort
sem er til að halda þér til fyrir
honum Graham, er það ekki?
— Geturðu lesið mig svona
niður í kjölinn? Ég á við, að
auðvitað vildi ég gjarnan vekja
aðdáun hans.
— Ráða yfir henni, stúlka mín
Vertu ekki svona andskoti hóg-
vær. Gefðu honum heldur beint
á hann. En nú þarftu að fá ilskó
með þessum kaftan. Við skulum
stanza hérna og vita, hvort ég
get ekki bætt úr því.
Þarna var önnur búð, ennþá
minni, þar sem ungur Arabi sat
á gólfinu og vaæ að sauma út
skó. Jill valdi sér flata svarta
skó með gylltum skeljum á, en
heimtaði að fá að borga þá sjáif.
— Ég á dálítið af peningum,
sagði hún einbeitt. — Eru þeir
ekki fallegir. Og sérlega þægi-
legir. En hversvegna skyldu þeir
vera hælalausir? Vilja arabarnir
he'ldur renna sér áfram?
— Það er þægilegast á marmara
gólfum og steinlögðum götum,
sagði Oliver. — Þú skalt reyna
það. Og þú lærir fljótlega að
líða áfram eins og þeir gera.
Þau komu nú til hússins og
Jill gekk til herbergis síns til
þess að íklæðast ö'llu þessu nýja
stássi sínu.
5. KAFLI.
Morguninn eftir fór Oliver út
á flugvöll, til þess að taka á móti
ungfrú Cater, sem var væntan-
leg frá Kairo. Graham fór til
Beirut til þess að semja um flutn
ingana.
— Það er betra að semja um
það á staðnum, sagði hann við
Jill, þegar pau hittust. — Og
nú verður þú víst í eldhúsinu
allan daginn, ti'l þess að venjast
eldavélunum hérna.
— Já, hann Suliman hefur lof-
að að túlka fyrir mig. Og þeir
ætla að kenna mér að matreiða
Fazzi-kjúklinga.
— Heldurðu, að þú gætir mat-
teitt venjulega kindasteik? sagði
Graham. — Okkar á milli sagt,
er ég orðinn dálítið leiður á þess
um þræ'lkryddaða mat.
— Það get ég vel ef ég hef
efni í það, sagði Jill. —- Og svo
heyri ég, að sumt af sætabrauð-
inu okkar sér raunverulega ara-
biskt. Svo get ég kannski líka
búið til eplaköku.
— Reyndu það. Og þér er betra
að vera komin að verki áður en
við förum. En svo bætti hann
við: — í kvöld ætla ég að sýna
þér hvar við veiðum fisk og svo
segja þér eitthvað meira um þenn
an leiðangur okkar. Strákarnir
veiða við ljós, og það er gaman
að horfa á það.
— Það þætti mér gaman. Þakka
þér fyrir, Graham.
— Við komum þá eftir kvöld-
mat. Og ég tek það sem hverja
aðra viðhöfn við mig, ef þú vilt
vera í þessum rauða kaftan. Lit-
urinn á honum fer þér vel.
Þau skildu nú, er drengurinn
kom og tilkynnti, að bíllinn væri
til reiðu. Jill gekk burtu í góðu
skapi. Hlýjan í málrómi Grahams
og augnatillit hans nægði eitt
saman til þess að gleðja hana.
Hún næstum dansaði yfir húsa-
garðinn og inn í eldhúsálmuna.
Þar beið Suliman hennar, reiðu-
búinn að útlista fyrir henni leynd
ardóma viðarkolavélarinnar og
kenna henni að steikja kjöt á
teini og sýna henni kistuna, sem
hafði inni að halda næstum hundr
að mismunandi kryddtegundir.
f litla húsagarðinum var elda-
vél þeirrar tegundar, sem notuð
er í eyðimörkinni, svo að Jill
fór þangað á eftir og burðar-
karlarnir komu þangað með það
sem hún þurfti til að búa til
eplaköku, og einhverskonar ket-
kássu. Enda þótt eplin í Líbanon
væru ekki eins og þau, sem Jill
hafði vanizt heima, var hún sarnt
ánægð með sjá'lfa sig, þegar að
kvöldverðinum kom. Hún var nú
búin að vera í þessu góða skapi
allan daginn.
Jill fór snemma upp í kvenna-
herbergin og Alisha hjálpaði
henni að baða sig og klæða,
eins og venjulega. Þegar Jill var
komin í kaftaninn og stakk fót-
unum í fíngerðu ilskóna, kink-
aði sú arabiska kolli til sam-
þyklcis, og dró ofurlítið glas út
úr fellingunum á klæðum sínum.
Hún dró langa tappann varlega
úr og strauk honum yfir ennið
á Jill, og sætur blómailmur fyllti
herbergið.
Það var ekki kominn kvöld-
BIKARKEPPNIN
K. S. Í. MELAVÖLLUR K. K. R.
Örslitaleikur
Bikarkeppninnar
fer fram á Melavellinum í dag kl. 2.30
með leik milli
KR og ÍBV
Mótanefnd.
VÖRUSKEMMAN, Grettisgötn 2
Mjög mikið úrval af peysum á börn og fullorðna 20 gerðir,
30 litir, lágt verð. Crepehosur barna kr. 15 og kr. 25, ullarbolir
barna kr. 29, herrasokkar kr. 35, herranærföt kr. 30, frottésmekk-
ir kr. 35, sokkabuxur barna kr. 90, amerísk brjótahöld kr. 115,
barnaúlpur kr. 290, gallabuxur kr. 120, stretchbuxur frá kr. 150,
erepestyrktar ullarhosur kr. 55, Rimmel snyrtivörur kr. 30 stk.,
shampoo kr. 10, furunálabað kr. 50, bangsabarnabað 3 gerðir
kr. 65, barnabaðmottur kr. 35, fótraspar kr. 10.
Skódeild mikið úrval af ódýrum skóm frá kr. 50 til kr. 280.
Leikfangadeild, leikföng á mjög hagstæðu verði, mikið úrval.
Evlan gólfteppi kr. 495 fm. með svampfilti, aðeins 3 litir eftir.
5. OKTÓBER
Hrúturinn 21. marz — 19. aprfl
Dagurinn byrjar ekki sem bezt, en lagast fljótlega. Hjarta-
gæzkan verður yfirsterkari. Bjóddu heim í kvöld.
Nautið 20. apríl — 20. maí
Neitaðu þér um að sleppa stærri áformum. Gerðu einhverja smá-
breytingu. Hreinsaðu til í öllu, sem setið hefur á hakanum.
Hugsaðu ráð þitt í kvöld.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júni
Leitaðu ekki langt fyrir skammt eitthvað, sem þú hefur átt ó-
gert fyrr á deginum horfir betur, svo að þú getur sinnt mikil-
vægari málefnum, er á líðurívertu fámáll).
Krabbinn 21. júni — 22. júli.
Ábyrgðin sem hvílir á þér vegna mála, sem þú hefur byrjað á
virðast ætla að vaxa úr sér. Haltu þér við dagleg störf. Nú er ekki
tíminn til að blanda sér í stórmál.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Gott er, ef þú getur haldið kyrru fyrir í dag. Betra er, ef þú
getur stillt þig um að þrasa við ættingja þína. Og ef þú ofgerir
engu, er það allra bezta, sem komið getur fyrir.
Meyjan 23. ágúst — 22. sept.
Farðu vel yfir reikninga þína til að forðast misfellur. Reyndu
að vinna upp, það sem niður hefur fallið. Reyndu að kaupa inn
til heimilisins í dag.
Vogin 23. sept. — 22. okt.
Loksins byrjar einhver dagur rólega. Að ástæðulausu er maki
þinn ennþá tilbúinn að mótmæla hérumbil hverju sem er. Þetta
kemst þó í lag, er á líður.
Sporðdrekinn 23. okt. — 21. nóv.
Þú færð aukaverk að vinna nokkuð snemma dags. Þú ert neydd-
ur til að láta þér það lynda. Eldra fólk er í vegi fyrir þér.
Forðastu sýndarmennsku. Leitaðu einveru í kvöld.
Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des.
Leggðu tómstundaiðju á hilluna í bili, það er of margt, sem
bíður ógert. Fólk virðist eitthvað rótlaust framan af.
Steingeitin 22. des. — 19. jan.
Forðaztu að láta vinnu þína rekast á skyldur þinar við heimilið.
Hvíldu þig, þegar þú getur, og reyndu að finna leið til að
komast aftur á sporið.
Vatnsberinn 20. jan. — 18. febr.
Ef þú heldur þér við eigin áform, fer allt vel. Allir aðrir hafa
aðrar hugmyndir um hlutina, svo að þú skalt fara þér hægt.
Ferðaztu ekkert fyrr en áliðið er.
Fiskarnir 19. febr. — 20. marz.
Mikilvægt er að hugsa ráð sitt vandlega. Vanafesta þln og
framsýni koma að góðu gagni. Neitaðu þér um að setja allt úr
skorðum með skyndiaðgerðum.