Morgunblaðið - 05.10.1968, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. OKTÖBER 196«
27
Halldórsson, Dúna, Sigríður Eysteinsdóttir og Garðar Bjarnason, Hús <>ff skip.
(Ljósm. Mbi. Sv. Þorm.).
Landsþingi brezka Verkamannaflokksins lokið
Lýst yfir stuðningi við Wilson
en mikil óánægja með stefnu hans
Verkfall 3Vz milljónar málmiðnaðarmanna framundan
Þrír húsgagnaframleið
endur í nýju húsnæði
Blackpool, 4. október.
NTB-AP.
LANDSÞINGI brezka verka-
mannaflokksins lauk á þann
hátt, að þingfulltrúar hrópuðu
dynjandi húrrahróp fyrir Harold
Wilson forsætisráðherra. Lands-
þingið, sem staðið hefur þessa
viku, hefur liins vegar fellt flesta
þætti stjórnmálaáætlunar ríkis-
stjórnarinnar.
- TÉKKÖSLÓVAKÍA
Framliald af bls. 1
um viðræSurnar í sovézkum blöð
um, útvarpi eða sjónvarpi fyrr
en þeim var lokið. Aðeins var
frá því skýrt að tékkóslóvakíska
sendinefndin væri komin til
Moskvu, en ekki um tilgang
heimsóknarinnar. Meðan á við-
ræ'ðunum stóð birtu hinsvegar
ýms sovézk blöð harðorða gagn-
rýni á leiðtogana í Tékkóslóvak-
íu og tilraunir þeirra til að veita
íbúum landsins aukið frelsi.
í tilkynningunni, sem gefin var
út í kvöld að viðræðum loknum,
er gefið í skyn að Dubcek og fé-
lagar hans hafi fallizt á breyt-
ingar á stjórnarfarinu í Tékkó-
slóvakíu til samræmis við það,
sem ríkir í Sovétríkjunum. Segir
í tilkynningunni að tékkóslóvak-
íska sendinefndin hafi heitið því
að vinna a‘ð auknum áhrifum
kommúnistaflokksins og að herða
sóknina gegn and-kommúniskum
öfliím. Ennfremur mun ríkis-
stjórn Tékkóslóvakíu gera nauð-
synlegar ráðstafanir til að láta
öll fjölmiðlunartæki la*dsins
vinna í þágu sósíalismans, efla
flokkinn, og ráða þá menn í
þjónustu ríkisins, sem eru ein-
lægir áhangendur Marx-Lenin-
ismans, eins og segir í tilkynn-
ingunni.
Þá er tekið fram í tilkynning-
tmni að leiðtogarnir séu sammála
um að Moskvu-samninguTÍnn frá
26. ágúst sl.. skuli hafður til
híiðsjónar við að koma á e'ðli-
legu ástandi í Tékkóslóvakíu og
til að efla vinsamlegt samband
Tékkóslóvakíu og annarra sósíal
istaríkja við Sovétríkin.
Erlendir fréttaritarar í Moskvu
benda á að í tilkynningunni í dag
sé ekkert nánar um það sagt
hvenær Varsjárbandalagsríkin
skuli kalla heim hersveitit sínar
frá Tékkóslóvakíu, og séu því
tékkóslóvakísku leiðtogarnir
engu nær eftir heimsóknina.
Hinsvegar er ljóst að mjög hefur
verið hart að þeim lagt í viðræð
. unum, því þeir virðast hafa fall-
izt á flestar þær kxöfur, sem so-
vézku leiðtogamir hafa borið
fram a'ð undanfömu.
Þe,gar landsþinginu lauk í
dag, hvíldu yfir því skuggar ills
fyrirboða. Þrjár og hálf millj.
verkamanna í máimiðnaði lands-
ins hafa boðað verkfall 21. okt.
n.k., en, sem, svo að notuð séu
orð Hugh Scanlons, leiðtoga
málmiðnaðarmanna „bókstaflega
•stöðva allt efnahagslíf í þessu
landi“. Krefjast málmiðnaðar-
menn 6.5% kauphækkunar þrátt
fyrir það, að ríkisstjórnin hefur
ekki heimilað meira en 3.5%
hækkun á kaupi á éinu ári. Hef-
ur þingið veitt stjórninni laga-
heimild til þess að framfylgja
banninu við frekari kauphækk-
unum og væri samkvæmt því
unnt að fangelsa Scanlon og aðra
leiðtoga málmiðnaðarmanna, ef
þeir fylgja verkfalldboðuninni
eftir, en fáir eru þeirrar skoðun
ar, að Wilson muni láta fang-
elsa forystumann næststærsta
verkalýðssambands Bretlands.
Það mun nærri því örugglega
verða til þess, að öll verkalýðs-
hreyfingin í landinu snerist gegn
honum.
Á landsþinginu var lýst yfir
stuðningi við ályktun málmiðn-
aðarverkamanna og Wilson ig
stjórn hans á þann hátt veitt
hörð áminning.í ályktuninni er
hins vegar lýst yfir stuðningi við
stjórn Wilsons með fyrirvara,
sem felst í stjórnmálaávörðun-
um sameiginlegs ráðs verkalýðs-
sambandanna.
Wilson sagði í ræðu sinni á
landsþinginu í dag, að „vanhugs-
uð“ verkföll stofnuðu efnahags-
Viðreisn landsins í hættu, en
hvað eftir annað hefur komið til
verkfalla á undanförnum árum
í aðal iðngreinum Bretlands eins
og skipasmíðum og b.ílafram-
leiðslu. Sagði Wilson, að stjórn-
málaárangur flokksins „byggðist
á árangri á efnahagssviðinu".
Forseti landsþingsins, Jenny
Lee, ekkja Aneurin Bevan,
hvatti þingheim í þinglok að
hrópa húrra fyrir Wilson, sem
hún nefndi „forsætisráðherra
okkar nú, — og næsta forsætis-
ráðherra okkar“.
Wilson hefur 'samkvæmt fram
ansögðu beðið hvern ósigurinn
af öðrum á landsþinginu, en
hann hefur engu að síður frjáls-
ar hendur, að því er varðar að
framkvæma þá stjórnm^la-
stefnu, sem hann hefur lýst sig
fylgjandi. Honum tókst að draga
úr gagnrýni landsþingsins með
því að ráðast harkalega á íhalds
flokkinn og þá einkum á þá
stefnu innan íhaldsflokksins, sem
Enoch Powell og skoðanabræð-
ur hans hafa gerzt málsvarar
fyryir. Þá skírskotaði Wilson
einnig til samheldninnar innan
Verkamannaflokksins, svo að
flokkurinn gæti verið áfram við
völd og með því að veita tilslak-
anir gagnvart landsþinginu með
því að gefa því ráðgefandi vald,
að því er snerti ákvarðanir rík-
isstj órnarinnar.
- FINNLAND
Framhald af bls. 1
borgaraflokkarmir hafa um 55%
stjórnarfulltrúa, og er fylgi borg
araflokkanna mest í sveitunum.
Fylgi sósíalisku flok'kanna er
'hins vegar aðallega í borgunum,
þar sem þeir eru víðast hvar í
meirihluta.
Kosningunum lfkur klukkan
átta á mánudagskvöld, og er bú-
izt við fyrstu atkvæðatölum
tveimur tímum seinna. Ættu úr-
slit að liggja ljós fyrir um klukk-
an þrjú aðfaranótt þriðjudags að
staðartíma, þótt endanlegar tölur
verði ekkí kunnar fyrr en tíu
dögum eftir kosningarnar.
- UMSÁTRIÐ
Framhald af bls. 1
ættingjar hans inn í húsið, og
tókst einum þeirra að ná
haglabyssunni, af James og
kasta henni út um gluggann.
Ruddust þá 12 lögreglumenn
inn í húsið, þrif.u börnin fjög
ur og eiginkonuna, og báru
út. Segja fréttamenn að börn
in hafi verið mjög róleg, og
sum þeirra verið að skoða
myndabækur meðan þau voru
borin út.
Eftir að fjölskyldunni hafði
verið forðað út úr húsinu,
sneri lögreglan sér að James
bónda. Veitti hann enga mót-
spyrnu, og gekk út úr húsi
■sínu umkringdur lögreglu-
þjónum. Var honum síðan ek
ið til lögreglustöðvarinnar í
Wellington.
Skömmu eftir að umsátrið
hófst, gerðist slökkviliðsmað-
ur einn nokkuð nærgöngull,
að dómi James bónda, sem
skaut að gesti og hæfði hann
í lærið. Hlaut ’slökkviliðsmað-
urinn smávegis sár, og er
hahn sá eini, sem særzt hef-
ur í þessari löngu viðureign.
Hefur lögreglan ekki þorað
að ryðjast inn í húsið fyrr af
ótta við að James bóndi léti
það bitna á konu sinni og
börnum, eins og hann hafði
hótað. En James er talinn geð
veikur, og hefur dvalizt í geð
veikrahæli. Seinna bauðst
hann þó til að láta fjölskyldu
sína lausa, en þá neitaði kona
hans að fara frá honum.
ÞRÍR aðilar, sem í senn standa
að framleiðslu og innflutningi á
húsbúnaði, opna í dag sameigin-
legt verzlunar- og sýningarhús-
næði að Ármúla 5. Þessir aðilar
eru Húsgagnabólstrunin Dúna í
Kópavogi, Hús og skip, sem til
þessa hafa verið að Laugavegi 11,
og Krómhúsgögn, sem reka verzl
un að Hverfisgötu 82.
Aðalverzlun Dúnu verður
áfram í Kópavogi, en á liðlega
100 fermetra gólffleti að Ármúla
5 mun Dúna einnig hafa allar
Tvö umierðor-
óhöpp ú
Akureyri
Akureyri, 4. október.
TVÖ umferðaróhöpp hafa orðið
hér í bænum í kvöld. Um kl.
17.30 varð 8 ára drengur Guð-
mundur Björnsson, Skarðshlíð 18
fyrir fólksbíl á Glerárgötu á móts
við Eyraveg. Drengurinn var á
reiðhjóli og kastaðist af því á
götuna. Hann var fluttur í sjúkra
hús til rannsóknar, en reyndist
lítið meiddur og var leyft a'ð
fara heim.;
Klukkan rúmlega 19 var lög-
reglunni tilkynnt, að bíl hefði
verið ekið á ljósastaur á mótum
Hjalteyrargötu og Grenivalla og
hafði ökumaður sézt forða sér
burt af staðnum á harðahlaup-
um. Hann er ófundinn, þegar
þetta er ritað, en lögreglan leitar
hans. Bíllinn er mjög illa farinn
og óökufær. — Sv. P.
(4. okt. Þ3)
Iðnaðorbonkinn
í nýtt húsnæði
í Hafnaifirði
í DAG flytur útibú Iðnaðar-
bankans í Hafnarfirði starfsemi
sína í nýtt húsnæði að Strand-
götu 1. Útibú bankans í Hafn-
arfirði hefur starfað í leiguhús-
næði í tæp fjögur ár, en þar
sem vöxtur þess hefur verið mik
ill, var húsnæði þetta orðið of
lítið fyrir starfsemina.
Útibúið verður á neðstu hæð
hússins Strandgötu 1, en Iðnað-
arbankinn á hluta af húsinu.
Byggingu þess annaðiat Hús-
gagnaverzlun Hafnarfjarðar
undir verkstjórn Stefáns Rafns,
húsgagnasmíðameistara. Smíði
innréttinga var unnin af Gamla
kompaníinu, en Halldór Hjálm-
arsson, húsgagnaarkitekt teikn-
aði þær.
Forstöðumaður útibúsins er
Ástvaldur Magnússon. útibúið
annast hvers konar innlenda
hankastarfsemi.
Athugasemd
FYRIR skömmu urðu nokkur
blaðaskrif vegna éldsvoða, sem
varð á Kleppsspítalanum vegna
gáleysislegrar meðferðar á eld-
fimum efnum, sem notuð eru við
dúklagningu. í tilefni af þessu
óskar Félag veggfóðrarameistara
að koma þeirri athugasemd á
framfæri, að iðnaðarmenn þeri,
sem hér áttu hlut að mái hafa
ekki meistararéttindi í faginu
og eru ekki meðlimir í félaginu.
Ætti þetta að verða almenningi
og þá ekki síður opinberum
stofnunum til viðvörunar um að
láta ekki aðra menn en þá, sem
hafa meistararéttindi, taka að
sér iðnaðarstörf á þeirra vegum.
(Frá Fé'lagi veggfóðrarameist-
ara.)
framleiðsluvörur sínar til sýnis
og sölu. Hjá Dúnu vinna nú um
20 manns.
Hús og skip hafa til umráða
150 ferm. gólfrými innst í verzl-
unar- og sýningarsvæðinu að Ár-
múla 5. Þar verða á boðstólum
allar framleiðsluvörur fyrirtæk-
isins, einmig þær vörur, sem Hús
og skip hafa umboð fyrir.
Krómhúsgögn hafa til umráða
160 ferm. gólfrými að Ármúla 5,
þar sem fyrirtækið mun haafa
helztu framleiðsluvörur sínar til
sýnis og sölu. Jafnframt rekur
fyrirtækið áfram verzlun sína
að Hverfisgötu 82. Við venk-
smiðju Krómhúsgagna í Kópa-
vogi starfa nú 30 manns.
- MEXÍKÓ
t’rarahald af hls. 1
fyrir í íbúðum við torgið, eins
og um skipuleg mótmæli hafi
verið a'ð ræða.
Olympíuleikarnir hefjast i
Mexikóborg laugardaginn 12.
þessa mánaðar, og var í gær talið
hugsanlegt að þeim yrði frestað
vegna óeirðanna. Sat fram-
kvæmdaráð alþjóða Olympíu-
nefndarinnar lengi á fundi í gær
til að ræða ástandið, og síðar
gekk Avery Brundage, forseti al
þjóðanefndarinnar, á fund yfir-
Valda í Mexikóborg. Að þeim við
ræ'ðum loknum gaf Brundage út
yfirlýsingu, þar sem sagt er, að
leikarnir fari fram á tilsettum
tíma, og verði ekki frestað. „Sem
gestir Mexikó berum við fullt
traust til mexikönsku þjóðarinn-
ar,“ segir í yfirlýsingu alþjóða-
nefndarinnar. Segir þar einnig að
yfirvöld landsins hafi fullvissað
alþjóðanefndina um, að ekkert
gæti orðið til þess að koma í veg
fyrir að leikarnir fari friðsam-
lega fram.
Þrátt fyrir þessar yfirlýsingar
er óttazt að enn kunni að koma
til alvarkgra árekstra í Mexí-
kóborg. Höfðu samtök stúdenta
og verkamanna boðað til mót-
mælaaðgerða í dag, og einnig
hafa stúdentar hótað að leggja
undir sig Olympíuleikvanginn og
hindra að unnt verði að kveikja
Olympíueldinn þar daginn fyrir
setningu leikana. Segjast stúd-
entar ætla að safna saman 120
þúsund mana mótmælagöngu til
að taka leikvanginn. Þá hafa
þeir dreift flugmiðum með áskor
unum til borgarbúa um að
styðja aðgerðirnar.
- HERNÁMSÁRIN
Framhald af hls. 3
sjálfan sig. Lýst er einni mest
umtöluðu og frægustu orrustu,
sem háð var í síðari heimsstyrj
öldinni og lýsír yfirhershöfðingi
og aðalhetja annars bardagaað-
ilans aðdraganda og gangi átak
anna. Hér er átt við Selsvarar-
orrustuna og er hin fræga
kempa Pétur Hoffmann Salóm-
onsson í aðalhlutverki.
Kafli er um njósnir Þjóðverja
hér á landi og viðtöl við aðila
sem smyglað var í land af
þýzkum kafbátum að næturþelL
Þetta er atriði sem ekki hefur
verið í hávegum haft fyrr.
Þessi hluti myndarinnar er
heldur lengri en sá fyrri, tekur
u.þ.b. tvo tíma í sýningu. Spann
ar hún árin 1941-45, að viðbætt
um kafla sem tekinn var á þessu
ári og í fyrra, af ungu fólki á
íslandi í dag. Kannað er við-
horf þessa unga fó'lks til stríðs
áranna, nútíðar og framtíðar. Er
það í litum.
Vinna við myndina hefur stað
ið allt síðastliðið ár. Er hún
heldur seinna á ferKinni en áætl
að var upphaflega. Stafar það
af því hve erfitt reyndist að
afla mynda, sem gerðu það kleift
að láta alla myndina gerast hér
á landi.