Morgunblaðið - 06.10.1968, Page 17

Morgunblaðið - 06.10.1968, Page 17
MORGU'NBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. OKTÓBBR 1968 1 „Draumurinn um Ameríku44 Tor heitinn Myklebost sendi- herra skrifaði á Washingtonárum sínum bók um Bandaríkin, sem hann nefndi „Drömmen om Amerika", og kom hún út á ár- inu 1953. Að forminu til er bókin einskonar saga bandarískra bók- mennta og þó einkum skáldsagna ag skáldsagnahöfunda á þessari öld. En aðalviðfangsefni höfund- ar er að sýna fram á, hvemig þjóðfélagsaðstæður — þróun þjóðfélagshátta, efnahags og stjórnmála — hafi mótað skáldin og verk þeirra, og þau aftur átt sinn hlut að því, að bæta úr því, sem miður fór. Myklebost rekur hvernig innflytjendur hafi komið til Ameríku vegna hugmynda sinna €©3 drauma um nýtt og betra líf. Þessir draumar hafi ekki nema að nokkru leyti rætzt og geti aldrei í okkar ófull- komna heimi rætzt að fullu. Hann telur, að enda þótt mörgu sé ábótavant í Bandaríkjunum, þá sé þó miðaS ■við aðstæður, m.a. það hversu þjóðin sé ósam- stæð að uppruna, samansett af ótal þjóðarbrotum, og enn séu milljónir manna, er ekki tali sjálft tungumál landsins, samt undursamlegt hversu miklu hafi fengizt áorkað. Þetta telur Mykle bost ekki sízt hinum bandarísku rithöfundum að þakka, hiklausri og óvæginni gagnrýni þeirra og stöðugri hvatningu tij umbóta. Þessar huglefðingar gerkunnugs manns í Bandaríkjunum er á- stæða til að ryfja upp nú vegna alls- í senn: Andláts hins ágæta höfúndar; innsýnar þær, sem hug leiðingar hans veita um muninn á frjálsu og ófrjálsu þjóðfélagi, frjómagn bókmenntanna í hinu frjálsa en takmarkað gildi þeirra í hinu ófrjálsa svo sem hjá Sovétmönnum; og loks eru Bandaríkin nú ofarlega í hugum flestra vegna kosninganna, sem þar standa fyrir dyrum. Aj<rif píslarvættis Brezkur rithöfundur, Parkin- son, sem kunnur varð vegna gagn rýni sinnar á útþenslu skrifstofu báknsins, er hann að gamni sínu setti saman „Parkinsons lögmál- ið“ um, hefur nýlega ritað bók, sem hann nefnir „Left Luggage". Bókartitillinn er raunar orðaleik ur, því að hann getur í senn tnerkt „Eftirskilinn farangur" eða „Vinstra dót“. Meginefni bók- arihnar er hörð gagnrýni á sósíal istískar kenningar nú á dögum óg greinir hann þó ekki mjög á milli flokka heldur ræðzt á tíð arandann. Sumt er réttmætt í þeirri gagnrýni en höfundur gengur allt of langt í aðfinning- um vfð lýðræðislega stjórnar- hætti yfirleitt og spillir þar með málflutningi sínum. Einna at- hyglisverðast í bókinni, sem skrif úð er nokkrum mánuðum fyrir morðið á Robert Kennedy, er það, sem höfundur heldur fram um fallvaltleika lýðræðisins í Bandaríkjunum. Hann bendir á, að keisaradæmi hafi komist á í Róm skömmu eftir morðið á Caesar, með því að ungur ná- frændi hans Oktavíanus, síðar Augustus, hafi verið hafinn til keisaratignar. Parkinson vill heimfæra þennan lærdóm upp á Bandaríkin í náinni framtíð. Því verður ekki neitað, að framgang- ur hinna yngri Kennedy-bræðra minnir mjög á þessa fomu at- burði. Robert Kennedy var að vísu áhrifamikill stjórnmálamað ur fyrir eigin verðleika. Forset- inn, bróðir hans, var á sínum tíma mjög gagnrýndur fyrir að gera þennan unga bróður sinn að dómsmálaráðherra Bandaríkj- anna. En ekki fór á miUi mála, að Robert Kennedy varð skjót- lega á meðal áhrifamestu og sennilega hæfustu manna, er þá stöðu hafa skipað. Engu að síður virtist augljóst, að píslavætti Johns Kennedys kæmi Robert bróður hans mjög að gagni I bar áttunni fyrir forsetadæminu á sl. vori. Ef dæma mátti af sjón- varpsmyndum var hrifning æsku lýðs af Robert Kennedy naumast einleikin og langt umfram það, sem orð hans sjálfs og verk gáfu efni til. Hin brostna draumsýn, sem menn tengdu við hans myrta bróður var hér áreiðanlega afl- vakinn. Hið sama lýsir sér enn áþreifanlegar um yngsta bróður- inn Edvard Kennedy, sem raunar sýndist vera óvenju geðslegur ungur maður. en hefur þegar sökum aldurs ekki átt neinn kost á því að sýna, hvort í hon- um býr efnivfður og styrkleiki til að standa í valdamestu og vandasömustu stöðu, sem mann- kynið hefur yfir að ráða. Engu að síður telja flestir, að ef hann hefði gefið kost á sér til forseta framboðs, mundi hann hafa átt kosningu vísa. Ekki er um að villast, að skýringin á þeim vin- sældum er píslarvætti eldri bræðra hans. Fyrsíi haustsnjórinn í Esju. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.) REYKJAVÍKURBRÉF Eldskírn gagnrýninnar Játa verður, að vinsældir bygg'ðar á slíkum grunni eru hæpin forsenda fyrir vali á manni í forsetastöðu voldugasta stórveldis heimsins. Það er og hinum unga Kennedy til lofS, að hann skyldi ekki láta leiða sig út í slíkt ævintýri. Allt annað mál er, hvort hann gefur kost á sér til framboðs síðar, þegar hann hefur betur kynnst sínum eigin kröftum og kjósendur geta dæmt um hann af verkum hans sjálfs. Eðlilegt er, að allar þessar bolla leggingar veki hjá mönnum hug leiðingar um veilur lýðræðisins. Ekki sízt vegna þess, að nafn hins unga manns hefur svo mjög verið nefnt af því, að frambjóð- endurnir, sem um er a'ð velja, vekja takmarkaða hrifningu. Þar sker Wallace sig þó úr. Ætla mætti, að hann hefði dæmt sjálf an sig úr leik, þegar hann lýsti því yfir, að ef hann yrði forseti, mundi hann hiklaust láta bíl sinn aka áfram yfir mótmæl- endur, sem legðust á veginn fyrir framan forsetabílinn! Fylgi Wallace á skýringu sína í mótmælahug og leiða kjós- enda. Það er svipaðs eðlis og fylgi nazista og kommúnista í frjálsum Evrópulöndum. Um þá Nixon og Humphrey gegnir allt öðru máli. Menn geta haft um þá ólíkar hugmyndir, en áreiðan lega eru báðir mikilhæfir menn og margreyndir í vandasömum störfum. Okkur kann að finnast ýmislegt í tali þeirra yfirborðs- legt, en á það er áð líta, að til forsetaframbjóðenda eru gerðar nærri yfirmannlegar kröfur um stöðug ræðuhöld og fjöldinn svo mikill og margvíslegur, sem til þarf að ná, að ýtarlegar rökræð- ur koma að litlu haldi. Þrátt fyr- ir alla gallana er það hin stöðuga gagnrýni, sem bezt tryggir lýð- ræðið. Meðal annars vegna þess hversu hún er margþætt og mögu leikarnir til hennar vendilega tryggðir, þá ver'ður að ætla, að lýðræðið í Bandaríkjunum standi traustum fótum. Fjörráð breyttu ekki fyl^ispekt Um síðustu helgi mynntust menn að vonurn víðsvegar 30 ára afmælis Munchensáttmálans. Af því tilefni voru viðhöfð mörg köpuryrði í garð Neville Cham- berlains og fjölyrt um framsýni hinna, sem frá upphafi gagn- rýndu gerðir hans. Þjóðviljinn slóst í þann hóp og hældi sjálf- Laugardagur 5. okt um sér fyrir andstöðu gegn Munchensáttmálanum og ámælti Morgunblaðinu fyrir að hafa fagn að því, að heimsfriðnum tókst að bjarga haustið 1938. Morgunblað ið þarf sízt að skammast sín fyrir samfylgd þess yfirgnæfandi meirihluta mannfólksins, sem 1938 vonaði og vildi trúa, að komið hefði verið í veg fyrir nýja heimsstyrjöld. Nú orðið er mönnum ýmist ókunnugt um e'ða þeir gleyma því, að deila Tékkó slóvakíu og Þýzkalands 1938 var engan veginn eins einföld og t.d. Sovét-Rússlands og Tékkóslóvak íu nú. t Tékkóslóvakíu bjuggu þá milljónir manna af þýzkum uppruna, sem aldrei höfðu sætt sig við að verða þegnar þess lands. Tékkóslóvakia varð fyrst að sjálfstæðu ríki eftir fyrri heimsstyrjöld, en hafði áður ver- ið hluti af Austurríki, þar sem þýzkumælandi menn voru mest ráðandi. Þýzka þjóðarbrotið var stöðugur óróavaldur í Tékkó- slóvakíu. Einmitt af þeim sökum gerðu Tékkar Þjó’ðverja land- ræka eftir seinni heimsstyrjöld- ina. Það var harðhent lausn og ekki möguleg fyrr en eftir ósigur Hitlers en þá líka skiljanleg og öllum til öruggrar framtíðar- heilla. En eins og málin stóðu haustið 1938 höfðu Þjóðverjar nokkuð til sín máls. Það var ekki fyrr en með rofum Hitlers sjálfs á Munchensáttmálanum og töku allrar Tékkóslóvakíu eftiráramót in 1939, sem óseðjandi árásar- hneigð hans varð óumdeilanleg. Þá sá Chamberlain einnig að sér. En Hitler fékk nýja formæl- endur. Stalín og Hitler fóru að vingast strax eftir hernám hins sfðarnefnda á Tékkóslóvakíu vet- urinn 1939. Þá um vorið fóru þeir kumpánar að þreifa fyrir sér um að slá saman reytum sín- um. Þeim áþreifingum lauk með vináttusamningnum í ágúst 1939. Þann samning lét Stalín undir- búa samtímis því, sem hann þótt ist vera að semja við vesturveld- in um aðgerðir gegn áframhald- andi valdbeitingu Hitlers. Fáum dögum eftir, að vináttusamning- urinn hafði verið undirritaður hóf Hitler, — í skjóli Stalíns, —* seinni heimsstyrjöldina. Sú styrj öld hefði sennilega aldrei orðið, ef atbeini Stalíns og fylgifiska hans hefði ekki komið til. Kommúnistar á Íslandi réðu að sjálfsögðu engu um allt það atferli. En þeir réðu eigin orð- um og hugsunum. Fjörráð Stal- íns gegn mannkyninu breyttu engu um blinda fylgisspekt þeirra við hann. Takruarkið náðist ekki Seinni heimsstyrjöldin hófst með því, að Bretland og Frakk- land ætluðu að hindra, að Pól- land hly.ti sömu örlög og Tékkó- slóvakía. Úr því að styrjöld varð á anna'ð borð vonuðu flestir, að henni myndi lykta með því, að Tékkóslóvakía hlyti frelsi á ný, jafnframt því, sem komið yrði í veg fyrir frelsissviptingu Pól- lands. Því miður varð raunin sú, að hvorugt tókst. Það voru ekki einungis þessi tvö þjóðlönd, sem hafa síðan farið á mis við raunverulegt frelsi, heldur hafa Eystrasaltslöndin þrjú, Eistland, Lettland og Lithauen, hlotið enn ömurlegri örlög og Ungverjaland, Búlgaría og Rúmenía ámóta eða li.tlu betri. Vonbrigði manna yfir því að bjartsýni Chamberlains haustfð 1938 reyndist óraunhæf háfa orðið honum til áfellis og menn bera saman barnalega bjart sýni hans og hina raunsæju böl- sýni Churchills. Þessi samanburður verður Chamberlain enn óhagstæðari af því, að hann reyndist Churchill svo miklu deigari forustumaður þegar út í ófrið var komið. Hitt verður engum til varanlegs lasts að hafa viljað halda frið svo lengi sem nokkur kostur var. Sjálfur átti Chamberlain ekki sök á þeim meinsemdum, svo voru aðal orsakir seinni heims- styrjaldarinnar. Versala-samning arnir 1919, heiftrækni Frakka, dugleysi brezkra stjórnmála- manna, sem sáu betur og ein- angrunarstefna Bandaríkja- manna áttu verulegan þátt í því að ýta Þýzkalandi út í öfgar og efla Hitler til valda. Þó hefði hann sennilega aldrei náð völd- unum, ef aðstoð kommúnista hefði ekki einnig komið til. Þýzk ir kommúnistar gerðu að fyrir- lagi Stalíns allt, sem þeir gátu til þess að rífa niður lýðræði í Þýzkalandi í þeirri fáfenglegu trú, að sjálfir mundu þeir eiga allskostar við Hitler á eftir. Sagt er, a'ð þýzkir herforingjar mundu hafa steypt Hitler, ef stríð hefði orðið út af Tékkóslóvakíu 1938. Um það verður aldrei sagt með vissu, hvort úr því hefði orðið. Víst er, að þeir gerðu það ekki 1939 og mistókst tilraunin 1944. En aðalásökunarefnið gegn brezk um valdamönnum verður ekki, a'ð sumir vildu reyna að koma í veg fyrir stríðið, heldur að þeir reyndu ekki bæði fyrr og síðar að semja við þá þjóðverja, sem hefðu getað hindrað valdatöku Hitlers og síðan þá, er vildu steypa honum. Gerir p!æ(umuninn Allt þangað til 1932 voru í Þýzkalandi við völd menn, sem lögðu á það megináherzlu, að ná samkomulagi við hinar vestrænu lýðræðisþjó'ðir. Þessum mönn- um var lengst af gert sem erfið- ast fyrir af Vesturveldunum. Þess vegna misstu þeir tökin áður en yfir lauk. Það, sem gert hefur gæfumuninn eftir seinni heimsstyrjöldina, er það, að nú hafa Vesturveldin, einkum og fyrst og fremst fyrir forgöngu Bandaríkjanna, tekið upp nána samvinnu við þýzka lýðræðis- menn. Aðild Þýzkalands að Atlantshafsbandalaginu er einn bezti ávöxtur þeirrar samvinnu. Ekki hefur þó skort gagnrýni á það samstarf. Bæ'ði kommúnistar og ýmsir aðrir hafa stöðugt ver- ið með hrakspár um vaxandi gengi nazista í V-Þýzkalandi. Fyrir fáum dögum voru enn magnaðar hrollvekjur um yfir- vofandi stórsigur nýnazista í sveitarstjórnarkosningum í nokkr um hluta Þýzkalands. Allar urðu þær hrakspár sér til skammar. Öryggið, sem Þýzkaland hefur fengið með aðild að Atlantshafs- bandalaginu, leiddi þvert á móti til þess, að nýnazistar töpuðu í þessum sveitarstjórnarkosning- um, rétt eftir hernám Sovét- Rússlands á Tékkóslóvakíu. At- burðarásin varð þess vegna þver öfug vfð það, sem kommúnistar höfðu sagt fyrir. Sovétmenn reyna að styrkja völd sín í Austur-Evrópu með því að ógna mönnum stöðugt með nýju her- hlaupi eða árás frá V-Þýzka- landi, en leidddu sjálfir Austur- þýzka herskara inn í Tékkó- slóvakíu rétt fyrir 30 ára afmæli Munchensáttmálans! 10 ára uppgjafar- afinæli nálgast Svo er að sjá sem Tíminn sé þegar farinn að undirbúa að halda hátíðlegt 10 ára uppgjafar afmæli vinstri stjórnarinnar. Eins og menn muna, hrökklað- ist hún frá með hinni frægu yfir lýsingu Hermanns Jónassonar í desemberbyrjun 1958. Tímanum verður tíðrætt um þessa upp- gjöf nú og ætlast til þess, að rík isstjórnin minnist hennar me’ð því að fara að á sama veg. Óþarft er að fara mörgum orð- um um, hversu fráleit þessi til- ætlunarsemi Tímans er. Nú stend ur allt öðruvísi á en þá. Árið 1958 var hið mesta uppgangsár, sem þá hafði enn orðið í efnahag íslands allt frá því að land byggð ist. Engu að síður hélt vinstri stjórnin þannig á málum, að skap ast höfðu óvfðráðanlegir erfið- leikar. Innan ríkisstjórnarinnar var ekki samkomulag um nein úrræði gegn þessum erfiðleikum, að því er Hermann Jónasson for sætisráðherra sjálfur lýsti yfir í sölum Alþingis. Nú hefur þjóðar búið hins vegar orðið fyrir meiri áföllum sl. 2 ár, en áður eru dæmi til eftir að nútíma þjóðfé- lagshættir komust hér á. Það er þess vegna undir það tekið af öllum nema harðsvírúðustu kommúnistum, að ráðlegt sé að kanna, hvort samkomulag fáist um sameiginleg viðbrögð gegn þessum vanda. Sú könnun gefur engan veginn til kynna, að nú- verandi ríkisstjórn hafi gefist upp, heldur einungis, að hún telur það horfa til þjóðarheilla að koma á sem viðtækustu sam- komulagi. Ef það næst ekki, þá mun hún ekki hlaupa af hólmi. Það væri heldur ekki tii góðs, heldur þvert á móti til glund- roða og ófarnaðar, ef stjómin segði af sér, meðan verið er að kanna hvort víðtækt samkomu- lag næst. Þegar stjórn Hermanns Jónas- sonar var 1938 að leita eftir svip uðu samkomulagi, datt engum í hug að stjórnin þess vegna ætti að segja af sér, Þá var stjórnin þó minnihlutastjórn og studdist einungis við lítinn hluta lands- fólksins. Þess vegna hefði mátt færa rík rök að því að slík stjórn hefði átt að segja af sér, en a.m.k. kom engum Framsóknar- manni það þá til hugar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.