Morgunblaðið - 09.10.1968, Síða 12
12
MORCUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 196®
Útgeíandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjómarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgrei’ðslg
Auglýsingar
Askriftargjald kr. 130:00
í lausasölu
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Sigurður Bjiarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Árni Garðar Kristkisson,
Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
á mánuði innanlands.
Kr. 8.00 eintakið.
SAMI GRAUTUR I
SÖMU SKÁL
,að verður ekki sagt með j þess að tæki þeirra verði
* sanni að nýjar og sjálf-
stæðar hugmyndir komi fram
í málflutningi stjórnarand-
stöðublaðanna um þessar
mundir. Dag eftir dag er þar
staglast á sömu staðhæfing-
unum, um að stjórnarstefna
núverandi ríkisstjórnar sé
röng og hafi leitt yfir þjóð-
ina alla þá erfiðleika, sem að
henni steðja nú. Þetta er
sami grautur í sömu skál,
sem Framsóknarmenn og
kommúnistar hafa borið
fram fyrir þjóðina sl. 9 ár.
Yerður ekki sagt að þetta sé
lystilegur réttur. Hvergi örl-
ar á nokkurri sjálfstæðri
hugmynd, eða ábyrgri tillögu
úm það, hvernig skuli snúast
við vanda, sem allir hugsandi
menn vita að fyrst og fremst
sprettur af áföllum. er stjórn
arstefnan hefur engan þátt
átt í að skapa. Stórkostlegt
verðfall, afiabrestur og erfitt
árferði eru ekki sök ríkis-
stjórnarinnar.
Enginn ætlæt t;! þ°ss að
niður sé látin falla ábyr<7
gagnrýni á þá sem með völd-
in hafa far'ð. Hitt er höfuð-
synd að gleyma skyMum sín-
um við framtíðina, en á-
stunda þess í stað viku eftir
viku og mánuð eftir mánuð,
sálarlaust pex um fórtíðina.
En það er þetta. sem Fram-
sóknarmenn og kommúnistar
hafa gert sig seka um. Þess
vegna fer ekki hjá því að trú
almennings í landinu verði
stöðugt minni á það, að þess-
ir flokkar séu líklegir til þess
að líta raunsætt á þjóðarhag
og fást til þess að eiga þátt
í lífsnauðsynlegum aðgerð-
um til þess að mæta hinum
miklu áföllum og koma í veg
fyrir vaxandi vandræði.
En hvað er það, sem fyrst
og fremst þarf nú til bragðs
að taka?
Það er að gera hiklausar
ráðstafanir til þess að út-
flutningsframleiðslan stöðv-
ist ekki og atvinnuleysi og
bágindi haldi innreið sína í
landið.
En hvaða leiðir á að fara í
þessum efnum?
Það er eðlilegt að þannig
sé spurt. Flestir gera sér ljóst
að ekki er hægt að sigrast á
erfiðleikunum og tryggja
rekstur atvinnutækjanna,
sem lífskjör og afkoma alls
almennings byggjast á, án
þess að þjóðin í heild leggi
á sig einhverjar byrðar. Þetta
þýðir það að færa verður yf-
ir til útflutnings-atvinnuveg-
anna nægilegt fjármagn til
1 rekin með skaplegum hætti.
Vitanlega vilja allir ábyrg-
ir menn koma í veg fyrir að
hér skapist atvinnuleysi og
skortur og þrengingar haldi
' innreið sína á þúsundir heim
ila í !andinu. En það er lítið
gagn í því að mála atvinnu-
leysisdrauginn á vegginn, en
j gera ekkert til þess að bægja
: honum frá dyrum þjóðarinn-
ar.
I Það, sem nú skiptir megin-
máli, er að þing og stjórn
; geri sér ljóst eðli vandamáls-
i ins og gangi síðan hiklaust
; að því að ráða fram úr vand-
anum. Það gerði Viðreisnar-
i stjórnin 1959 og 1960, þegar
vinstri stjórnin hafði leitt al-
| gjört efnahagsöngþveiti yfir
íslenzkt þjóðfélag í mesta
j góðæri, sem yfir landið hafði
komið. Viðreisnarstjórnin
gerði þá víðtækar ráðstafan-
ir til þess að skapa jafnvægi
í efnahagsmálunum og tókst
það. f kjölfar þeirra ráðstaf-
ana rann upp mikið velmeg-
unartímabil, með stórbættum
lífskjörum og margháttuðum
framkvæmdum og umbótum
í landinu.
Sama hátt verður að hafa
j á nú, hvaða leiðir sem farn-
; ar kunna að verða. Það væri
íslendingum ekki vanzalaust,
; ef þeir glúpnuðu fyrir stund-
j arvanda, eftir að hafa búið
I við velmegun, uppbyggingu
og framfarir í nær heilan
áratug.
Sannleikurinn er líka sá,
i að þjóðin ætlast til þess af
þing og stjórn að þannig
verði á málunum haldið.
j
j
..SÓSÍALÍSKUR
LÝÐRÆÐIS-
FLOKKUR"
:
17' ommúnistablaðið skýrir
frá því í gær, að á ráð-
stefnu ungra Alþýðubanda-
lagsmanna í Borgarnesi um
síðustu helgi hafi verið sam-
þykkt að Alþýðubandalagið
skuli vera „sósíalskur lýðræð-
isflokkur“.
Það vekur athygli, að með-
al helztu forustumannanna á
þessari ráðstefnu var Hjalti
nokkur Kristgeirsson, sem
dvaldi í Ungverjalandi þegar
frelsishreyfing Ungverja var
kæfð í blóði árið 1956. Það
voru rússneskir skriðdrekar
og hríðskotabyssur, sem unnu
w ( JTfl iN Ú R H IEIMI
Forsaga Rhodesíudeilunnar
RHODESÍUMALIÐ er nú aft-
ur að komast mjög á dagskrá
og því ekki úr vegi að rifja
upp í stuttu máli það sem
skeð hefur síðan Ian Smith
fór fyrst að hugsa um að lýsa
yfir sjálfstæði landsins.
September 1964: Ian Smith
fékk aðvörun frá London ög
var tilkynnt áð litið yrði á
einhliða sjálfstæðisyfirlýsingu
sem uppreisn.
’ Október: Fundur ættarhöfð
ingja lýsti sig fylgjandi ein-
hliða sjálfstæðisyfirlýsingu.
Harold Wilson vaxaði opinber
lega við því.
Nóvember: Kosningar með-
al þeirra sem kosningarétt
hafa í Rhodesíu leiddu í ljós,
að 58.091 voru fylgjandi sjálf-
stæðisyfirlýsingu en 6.096
voru á móti. Bretland var þó
ekki ánægt með þessi úrslit
vegna þess, að ekki var tek-
ið tillit til svertingjanna í
landinu.
Febrúar 1965: Brezki sam-
veldismálaráðherrann, Art-
hur Bottomley og forseti
lávarðadeildarinnar, Gardin-
er, lávarður, hittu a’ð máli
hvíta Rhodesíumenn, ættar-
höfðingja og handtekna leið-
toga þjóðernissinna. Hinir
síðastnefndu voru mjög fylgj-
andi meirihlutastjóm fyrir
sjálfstæðisyfirlýsinguna.
Júní: Forsætisráðherrar
samveldislandanna hittust í
London og mæltu með stjórn
arskrárumræðum.
Október: Ian Smith flaug
til London, en ekkert sam-
komulag náðist.
11. nóvember: Smith lýsti
yfir sjálfstæði Rhodesíu.
Bretland greip til efnahags-
þvingana og setti stjóm
Smiths frá völdum. Smith
hins vegar setti hinn brezka
landstjóra í Rhodesíu frá völd
um og setti Clifford Dupont
sem eftirmann hans.
17. desember: Bretland set-
ur olíubann á Rhodesíu.
Apríl 1966: Öryggisráð Sam
einuðu þjpðanna samþykkir
að leyfa Bretum valdbeitingu
til að hindra olíuflutninga til
Rhodesíu.
September: Forsætisrá'ðherr
ar samveldislandanna styðja
kröfu brezkra stjórnarvalda
um að landið taki aftur upp
löglega stjórnarhætti.
2. desember: Wilson og
Smith hittast um borð í
brezka herskipinu „Tiger"
fyrir utan Gíbraltar, en Ian Smith heilsar Arthur Bottomley,
Smith neitar að samþykkja herra, í febrúar 1965.
tillögur Wilsons um lausn á
deilunni.
21. desember: Wilson dró til
baka öll fyrri tilboð og lýsti
því yfir að Rhodesía væri
ekki sjálfstæð fyrr en meiri-
hlutastjórn sæti þar við völd.
3. marz: Elísabet, Englands-
drottning, náðaði þrjá svert-
ingja sem dæmdir voru til
dauða, en þeir voru samt
hengdir 6. marz.
9. maí 1968: Flokkur Smiths,
Rhodesíufylkingin, lagði fram
frumvarp til laga, sem myndi
tryggja alger yfirráð hvítra
manna. Ályktun, með 23
greinum um refsiaðger'ðir
gegn Rhodesíu var einróma
samþykkt í örygigsráði SÞ.
17. júní 1968: Stjórn brezka
Verkamannaflokksins fékk
stuðning neðri deildar þings-
ins til að herða efnahags-
þvinganirnar.
17. júlí: Rhodesíufylkingin
birti opinberlega frumvarp
um nýja stjórnarskrá, sem
felur í sér að landið lýsi sig
óháð lýðveldi.
6. september: Frumvarpið
er samþykkt með 217 atkvæð
um gegn 206.
18. september: Flokkur
Smiths vinnur stóran sigur í
mikilvægum aukakosningum
í Gatooma. iSá sigur var mik-
ið áfall fyrir hægri arm
flokksins.
23. september: Umræður
hefjast í Salisbury milli
Smiths og vara-samveldisráð-
herrans James Bottomley.
Brezka stjórnin hefur hva’ð
eftir annað lýst því yfir, að
ef lausn eigi að frnnast á deil-
unni verði að leggja eftirfar-
andi sex atriði til grundvall-
ar:
1) Þróun til meirihluta-
stjórnar verði óhindruð, svo
sem segir í stjórnarskrá
Rhodesíu frá 1961.
2) Tryggt sé að síðari
stjórnarskrárviðbætur veiki
ekki aðalatriði stjórnarskrár-
innar.
3) Tafarlaus endurbót
verði ráðin á stjórnmálalegri
aðstöðu Afríkumannanna.
4) Kynþáttamisrétti verði
smám saman útrýmt.
5) Bretland verði að fá
sönnun fyrir því að öll þjóð-
in sé fylgjandi sjálfstæði.
6) Trygging verði gefin fyr
ir því að meirihlutinn kúgi
ekki minnihlutann, hver sem
litarhátturinn sé.
samveldismálaráð-
þetta óhæfuverk, sem allur
hinn frjálsi heimur horfði á
með fyrirlitningu í djúpri
sorg.
En Hjalti þessi Kristgeirs-
son var á annarri skoðun.
Hann stóð með Rússum og
mönnunum, sem frömdu blóð
baðið í Ungverjalandi. Nú
segist þessi maður ætla að
stuðla að því að „Alþýðu-
bandalagið verði skipulagt
sem sósíaliskur lýðræðis-
flokkur“.
Hvílík býsn og fádæmi.
Það verður fallegur „lýðræð-
isflokkur“, sem þessi maður
og skoðanabræður hans
skipuleggja!!
ZATOPEK LEYSIR
FRÁ SKJÓÐUNNI
íþróttamaðurinn heimsfrægi,
Tékkinn Emil Zatopek er
nú gestur alþjóða Olympíu-
nefndarinnar vestur í Mexi-
kó. Hann hefur leyst frá
skjóðunni um afstöðu sína til
hernáms Varsjárbandalags- '
ríkjanna í Tékkóslóvakíu. ■
— Yfir mér vofði fangelsi og
jafnvel dauði, sagði íþrótta-
garpurinn, er ég gagnrýndi ]
hernám Sovétríkjanna og
fylgiríkja þeirra í heima-
landi mínu fyrir 6 vikum.
Ég talaði á götuhornum og í
sjónvarpi. Vinir mínir vör-
uðu mig við hættunni, sem
yfir vofði, en ég var ekki
hræddur. Ég sagði við vini
mína að Rússar væru hrædd-
ari en við, að verknaður
þeirra væri sprottinn af ótta,
að þeir væru hræddir við að
stjórnkerfi þeirra yrði frelsi
og félagslegum framförum
að bráð.
Þetta voru ummæli hins
mikla afreksmanns. Hann
hikaði ekki við að segja sann-
leikann um frelsisránið og
svívirðuna í Tékkóslóvakíu.
En nú verður hann að dvelja
landflótta, fjarri ættlandi
sínu. Þannig hefur frelsis-
ránið í Tékkóslóvakíu bitn-
að á ágætustu íþróttamönn-
um heimsins.