Morgunblaðið - 09.10.1968, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 09.10.1968, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1968 15 l^vennadalk Sami klæ&naiur fyrir bæ&i kynin IUikill uppgangur í fataiðnaðinum SKAMMT er öfganna á milli í tízku okkar kvenfól'ksins, Við höfum nú séð stuttu pilsin í al- gleymingi og sýnist sitt hverj- um. En nú er að verða mikil breyting á klæðnði kvenna. Buxnadragtin er að leysa stuttu pilsin af hólmi, og getur nú eng- in kona talizt vel klædd, nema hún icigi a.m.k. eina buxnadragt. Tízka þessi hófst í París, en nú hafa bandarískar konur hrifizt af henni líka, enda þótt meiri- hluti kvenna haldi enn tryggð við pilsin. Buxnadragtin hefur verið 1 Buxnadragt frá Dior-tízkuhúsinu en þar voru buxnadragtir einnig mest áberandi fatnaðurinn. Hér er buxnadragt til kvöldnot- kunar, efnið er gyllt blúnda, frá Róm. tízku undanfarin ár, enda þægi- legur og klæðilegur búningur. Er nú svo komið, að buxnadragt ir voru algengari á sýningum helztu tízkuhúsanna en sjálfir kjólarnir. Meira að segja er sagt frá v;rzlun í Gneenwich Village, sem selur kven- og karlmanna- fatnað, (hvorttveggja) ætlað jafnt konum sem körlum. Á haustsýningunum í París voru buxnadragtirnar yfirgnæf- andi hjá öllum tízkuhúsunum, til þess ætlaðar að nota á morgn- ana, á daginn og á kvöldin. Þessi fatnaður var ekki einupgis fyrir þær ungu, heldur var hann fyrir konur á öllum aldri. Ekki voru þær heldur eins og hinar vanalegu síðbuxur, sem konur hafa hingað til klæðzt. Þessar nýju síðbuxur voru kallaðar borgar-síðbuxur (city-pants). Meira að segja sáust pokabuxur, stuttar, og sportsokkar upp að hnj ám. Hinn frægi tízkuteiknari, Yves St. Laurent, vakti mesta athygli því að það leit helzt út fyrir að hann befði enga kjóla teiknáð í þetta sinn, heldur að- eins buxnadragtir, og haft er eft- ir einum fréttaritara, sem horfði á sýninguna, að sýningin minnti hana helzt á karlmannafatasýn- ingu, en munurinn væri bara sá, að karlmannafötin væru orðin skrautl'egri. Dagfötin eru eins og karl- mannaföt hafa hingað til verið, aðallega í svörtum lit, dökk brún um eða gráum. Jakkarnir eru síðir og buxurnar fremur víðar. Þessi sýning hefur hlotið mis- jafna dóma, sumir eru orðlausir af hrifningu, aðrir segja hana hafa verið eins og hersýningu. En mikil eru áhrxf hins fræga St. Laurent, svo að við skulum vera við öllu búnar. Amerískir framleiðendur hafa hrifizt mjög af iþessum fötum og hafa hafið framleiðslu á þeim. Skoðanakönnun í bandarískum skólum gefur til kynna, að „borgar-buxnadragtin" eigi eftir að verða aðalklæðnaðurinn þar á næstunni. Blómkál í matinn ÞAÐ er gaman að búa til mat á þes/ium árstíma, þegar a'llt nýja grænmetið er til. Er nú um að gera að nota það í hverja máltið, þennan stutta tíma, sem það er á boðstólum. Blómkálið er sú grænmlitistegund, sem einna fyrst hverfur af markaðnum, því miður, og því tökum við það ein göngu til meðferðar í þetta sinn. Blómkál á að snöggsjóða, eins og annað grænmeti, láta það nið ur í sjóðandi saltað vatnið og soðið í 10-12 mínútur, sé það í heilu lagi. Mjög gott er að sjóða blómkál í málmpappír, þá er það lagt í pappírinn, salti stráð á og smjörbitar látnir yfir. Pappír- num þrýst val að grænmetinu og gengið vel frá samskeytum, soð- ið á venjulegan hátt. 'Þegar blómkál Lr soðið í heilu lagi í -saltvatni, er betra að láta höfuð snúa niður helming suðu- tímans, þá dökknar það síður. Dökk blómkál lýsast ef þau eru soðin í mjólk. BLÓMKÁLSGRATÍN. Þetta gratín lyftir sér vel, en má ekki bíða neitt, því að þá fellur það. 1 stórt blómkátóhöfuð 75 gr. hveit.i 3 dl. mjólk 2 dl. blómkálssoð salt og pipar 3 egg rasp og smjör. Blómkálið tekið í sundur, soð- ið þar til það er næstum því iw;yrt í létt söltuðu vatni, sett í sigti og soðið látið renna af. Uveitið hrært út með mjólkinni og soðinu kældu hellt saman við suðan látin koma upp og hrært stöðugt í á meðan. Potturinn tek inn af eldavélinni, kryddað, og eggjarauðunum bætt í einni í einu, hrært vel á mil'li. Síðan er stífþeyttum eggjahvítunum blandað varlega í. Kálið sett í smurt eldfast fat, og j-afningn- um hlíllt yfir það. R-aspi stráð á og bræddu smjöri hellt yfir. Gratínið bakað við jafnan hita í ca. 45 mínútur, borið fram strax með brúnuðu eða hrærðu smjöri. BLÓMKÁL MEÐ EGGJAHRÆRU 1 blómkálshöfuð 1 ds. rækjur eggjahræra: 5 egg 2 matsk. smjör 14 tsk. salt % tsk. pipar 5 matsk. rjómi. Blómkálið tekið í sundur í smábita og soðið í saltvatni. Þeyt ið saman eggin, kryddið og rjómann. Bræðið 1 matsk. smjör, hellið eggjahrærunni í og hrær- ið vel í á meðan. Þegar eggja- hræran er orðin eins og krtxm, er hún tekin af eldavélinni, síð- an hellt á heitt fat og. blómkál- inu dreift í kring. Stráið nú rækjum yfir og klippið graslauk, dill eða steinselju yfir. Með þess um rétti er gott að bera tómat- s-alat. BLÓMKÁLSSALÖT 1. 1 blómkál 1 lítill laukur nokkrar hreðkur 1 salathöfuð 2 tómatar Salatlögur á. Blómkál, laukur og hreðkur brytjað í grænmetiskvörn og komið fyrir á fati í hring sett salatblöð, tómatbátar þunnt sneiddar hreðkur og smátt brytj- uð steinselja sett yfir. ! "• i; Buxnadragt frá St. Laurent í ■§*■ % - París. Þessi dragt ber öll helztu jMiTnonn •]„--- i t ~ --1 „yr nr-.irrr-VTirjw ■ --- --i j- vr Þessi mynd þarf raunar engrar einkenni hans- Hturinn dökkur, skýringar við. Kven- og karl- síður jakki og fremur víðar Wmmmm engrar ; karl- mannatízkan er orðin mjög lík. buxur. Leikfangabyssur HIÉR á íslandi eins og víðast hvar annars staðar, hafa leik- fangaskotvopn af ýmsum gerð- um verið mjög vinsæl m-eþal drengja. Margir fullorðnir hafa jafnan litið þessi leikföng horn- auga, þó að þeir hafi g;fizt upp vegna þrálátra óska drengjanna. Aðrir hafa sagt -sem svo, að þetta eru aðeins leikföng, og geta því ekki haft nein áhrif á börnin, þeim er ekki of gott að leika sér. Því hefur verið haldið fram af Lúkfangaframleiðendum, að börn, sem léku sér með gerfi- byssur, og miðuðu þeim á leik- félagana, væru alls ekki líklegri en önnur til að grípa til byss- unnar, þegar þau etækkuðu. Nú er þó svo komið, að fyrirtæki í Bandaríkjunum, sem framleitt hafa leikfangabyssur um árarað- ir, hafa ákveðið að hætta þess- ari framleiðslu og vilja með því stuðla að því, að börn L:iki sér ekki að þessum hlutum, gera heimilin vopnlaus, eins og talað er um að gera heiminn. 2. 1 blómkál 1 gulrót 1 bolli grænar baunir majonnaise karsi. Gulrótin rifin gróft, blómkál skipt í mjög smáa.r gminar og er ásamt baunum hrært út í maj- onnaise. Karsa stráð yfir. LÖGUR Á SALÖT. Sítrónulögur. 2 matsk. olífuolía 3 matsk. rjóma. 1 matsk. sítrónusafL IINETULÖGUR. 3 matsk. olífuolía 1. matsk. hakkaðar möndlur 1. rnatsk. sítrónusafi. TÓMATLÖGUR. Kjarninn úr tómötum settur í Kjarninn úr tómötunum settur í grænmetiskvörn ásamt einum litlum lauk. Þetta er síðan hrært út í olífuolíu, eða súrum rjóma, kryddað með sellerisalti og sellerisalt og smátt brytjaðri steinselju. BLÓMKÁLSAFGANGUR. Ef afgangur er af soðnu blóm- káli, ;er igott að matbúa það á þann hátt að dýfa því í egg og rasp og steikja -síðan í plöntu- feiti líkt og kleinur. —J

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.