Morgunblaðið - 09.10.1968, Page 24
I
I
I
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA
SÍMI ID'IOD
MIÐVIKUDAGUK 9. OKTÓBER 1968
Þing sett á fimmtudag
FORSETI íslands hefur sam- fram að lokinni guðsþjónustu
kvæmt tillögu forsætisráð- í Dómkirkjunni, er hefst kl.
herra kvatt reglulegt Alþingi 13.30. Séra Sigurður S. Hauk-
1968 til fundar fimmtudaginn dal, sóknarprestur, mun pre-
10. þ.m., og fer þingsetning dika.
Ekki fæst sjúkrahús-
læknir til Noröfjaröar
Síldarflotinn eykur enn þörfina á lœkni
NESKAUPSTAÐUR 8. okt.
Nýlega lét af störfum yfirlæ'knir
sjúkrahússins hér, Rögnvaldur
Þorleifsson, en hann hafði gegnt
þessu starfi sl. 3 ár með mikilli
prýði, sem dugandi læknir.
Strax, er Rögnvaldur Þorleifsson
sagði upp stöðu sinni í sumar,
var auglýst eftir yfirlækni við
sjúkrahúsið hér. Var auglýst
bæði í blöðum og útvarpi og
eins var leitað fyrir sér meðal
íslenzkra lækna erlendis, en
ennþá hefur enginn fengizt. Er
nú að skapast hið alvarlegasta
ástand í málum Norðfirðinga og
reyndar Austfirðinga.
Kristin Guttormsson, sem ver-
ið hefur aðstoðarlæknir við
sjúkrahúsið hér síðan 1963, er
að vísu enn starfandi við sjúkra-
húsið, en það gefur augaleið, að
Aukafund-
ur hjá SÍF
í gær komu stjórn og varastjórn
SÍF saman á fund, þar sem
stjórnarformaðurinn Tómas Þor-
valdsson og framkvæmdastjór-
inn, Helgi Þórarinsson, gáfu
skýrslu, en þeir eru nýkomnir
úr söluferð, svo sem fyrr hefur
veri'ð frá skýrt.
Á þessum stjómarfundi var
endanlega ákveðið að halda auka
fund hjá SÍF. Verður hann boð-
aður í dag og haldinn svo fljótt
sem félagslög heimila.
ein manneskja getur engan veg-
inn annað öllu þessu starfi, þar
sem hún að auki verður að
starfa sem héraðslæknir, því sl.
2 ár hefur enginn héraðslæknir
verið hér, nema þá stuttan tíma
í einu.
Núna, þegar haustar að má
búast við síldarflotanum fyrir
Austurlandi. Og samkvæmt upp-
lýsingum sem ég hef fengið,
Framhald á bls. 23
Svona leit hann út bíllinn, sem rakst á handriðið á brúnni yfir Vallalæk í Ölfusi í fyrrakvöld.
Sá sem sat hægra megin fram í skarst mikið á andliti, hinir tveir meiddust minna og fengu
að fara heim af Slysavarðstof unni. Þetta voru þrír Svíar nýkomnir til landsins, og á leið
austur í Búrfell, er slysið varð.
Millisíld flökuö á Seyðisfirði
— til vinnslu í Norðurstjörnunni h.f.
í gær flakaði Hrólfur h.f. á
Seyðisfirði 100 tunnur af síld
fyrir Norðurstjörnuna í Hafnar-
firði og er það fyrsta síldin, sem
flökuð er fyrir það fyrírtæki á
jAusturlandi. Norðurstjarnan lét
fyrir tveimur vikum setja upp
hjá Hrólfi h.f. tvær flökunar-
vélar, sem fengnar voru að láni
hjá Bjelland í Noregi. Pétur
Pétursson, framkv.stj. sagði í sím
tali við Morgunblaðið, að þeir
gerðu sér vonir um að geta
á þennan hátt tryggt sér milli-
síld, sem hentar þeim vel, og
fyllt þannig með Austurlands-
síld inn í eyðurnar í veiðunum
fyrir Suðurlandi, og söltunar-
stöðin fyrir austan fær á þann
hátt hærra verð fyrir sína milli-
síld.
Hrólfur h.f. hefur á leigu
frystihúsið á SeySisfirði og hef-
ur tekið að sér að leggja Norður
stjörnunni til millisíld. Eru
flökin fryst og sett í geymslu
fyrir austan og verða flutt eftir
hendinni til Hafnarfjarðar. Er
Hrólfur með söltun í frystihús-
inu og gefur það tilefni til heppi
legrar samvinnu, þar sem stóra
síldin er söltuð og smásíldin fer
í bræðslu, en með því að flafea
til vinnslu hjá Norðurstjörnunni
má fá betri nýtingu úr millisíld-
inni.
Pétur Pétursson sagði að Norð
urstjarnan hefði sérstaklega ósk
að eftir því, að fá millisíld hjá
öðrum söltunarstöðvum á Seyðis
firði, og hefði verið vel tekið í
það. Yandamál Norðurstjörn-
unnar væri, að afla nægilega
mikils hráefnis til að framleiða
úr fyrir Ameríkumarkaðinn, þar
sem eftirspurnin er svo mikil
eftir þessari framleiðslu.
Hægt gengur nð
nn Surprise út
Fréttaritari Mbl. Eggert Hauk
dal á Bergþórshvoli, kom á
strandstað á Landeyjafjöru í
gær, en þá var stórstreymt og
átti að nota strauminn til að ná
Surprise út. Sagði Eggert að ver
ið hefði sterk norðanátt, sem
hefði dregið heldur úr sjónum,
svo ekki varð eins hátt í og
ella. Gengur björgunarstarfið
hægt. Vélar togarans voru í
gangi í gær, en sandur lagðist
að skrúfunni og þurfti að moka
frá með ýtu. Tilraunin til að ná
I skipinu út í gær tókst semsagt
' ekki.
Togarosalo
TOGARINN Egill Skallagrímsson
seldi í Bremenhaven 91,4 tonn
fyrir 86.00 mörk, sem er ágæt
sala.
hvað á ég að kaupa mat1
börnunum?" ■
Síldarskipin f lest í höf n
Samtal við Kristján Ragnar Sigurðsson
eiganda Ásmundar CK 30, sem greiða
á 3,3 millj. kr. vegna upptöku bátsins
eða á leið til heimahafna
Á MIÐUNUM eru NA 6 vind-
stig og flest skipin farin af síld-
„Týnda“ konon
gisti í bænum
f GÆRMORGUN var farið að
kalla út leitarsveitir í Reykjavík
og í Hafnarfirði og undirbúin leit
að konu, sem ekki hafði komið
heim til sín í Kópavogi síðan
kvöldið áður. Var eitthvað farið
að leita um morguninn, en um há
degi voru kallaðir út allir leit-
arflokkar. Eftir hádegi kom kon-
an svo fram, hafði gist í bænum
um nóttina.
armiðunum. Flest lágu inni á
Austfjarðahöfnum, en mörg voru
lika á leið til heimahafna á Suð
urlandi. Síldarleitin á Dalatanga
sagði, að skipin dreifðust á hafn
irnar, flest lægju þó á Seyðis-
firði.
I gærmorgun höfðu 5 skip til-
kynnt afla frá fyrri sólarhring-
um, samtals 130 lestir: Gjafar
VE 15 lestir, Huginn II 35 lest-
ir, Hafrún ÍS 10 lestir, Súlan EA
45 lestir, Kristján Valgeir NS
25 lestir.
Á Seýðisfirði var saltað. í gær
morgun kom Súlan með 200 tn.,
sem salað var hjá Ströndinni, og
Fönn og Fiskiðjan söltuðu innan
við 100 tunnur. Á mánudag kom
Ásgeir með 300 tunnur, sem salt-
aðar voru hjá Sunnuver. •
— ÉG sé ekki fram á ann-
að en eina úrræðið verði að
segja sig til sveitar. Ég er
með konu og fjögur börn á
framfæri mínu og ef þeir fara
að taka kaupið mitt upp í
þessar skuldir, er eins gott að
hætta að vinna — sagði
Kristján Ragnar Sigurðsson,
bílstjóri í Grindavik, eigandi
vb. Ásmundar, er gerður var
upptækur vegna Ásmundar-
smyglisins.
— Allar skuldirnar, sem
hvíldu á bátnum falla á mig.
Mér finnst þetta vera einna.
líkast því, ef einhver brytist
inn í verzlun og verzlunar-
eigandinn missti hana fyrir
vikið. Þessir menn, sem leigðu
bátinn til fiskveiða beinlínis
stálu honum, því að þeir
höfðu aldrei mitt leyfi til þess
að sigla utan.
— Ég keypti bátinn upp-
haflega fyrir 3,5 milljónir
króna. Ég verð nú að greiða
að því er mér telst til 3,3
milljónir króna og er þar inni-
falinn ýmis kostnaður m. a.
við viðgerðir, auk þess sem ég
missi allt sem ég hafði eign-
ast í bátnum. í sumar ætluðu
innheimtumennirnir að taka
kaupið mitt, en unnt var að
fá því frestað, unz hæstarétt-
ardómurinn félli. Nú veit ég
ekki hvað tekur við, og ef
þeir ætla nú að taka kaupið,
veit ég ekki hvað ég á að
hafa til að kaupa fyrir mat
handa börnunum.
— Ég er búinn að leigja
fjórum aðilum bátinn, síðan
ég hætti sjálfur að gera hann
út. Af þessum leigjendum
hefur aðeins einn staðið í skil-
um. Skattstofan hefur hins
Kristján Ragnar Sigurðsson:
Allar skuldirnar falla á mig.
vegar reiknað mér alla leig-
una til tekna og skattlagt
hana. Býst ég við að þurfa
að greiða allt að 100 þúsund
krónur í skatt vegna leigunn-
ar. Þessi leigumál eru nú öll
fyrir dómstólunum, nema mál
ið gegn núverandi leigjanda,
en hann hefur þó ekki staðið
í skilum. VirðLst vera svo sem
Framhald á bls. 23