Morgunblaðið - 08.01.1969, Síða 1

Morgunblaðið - 08.01.1969, Síða 1
24 :iÐUR 5. tbl. 56. árg. MIÐVIKUDAGUR 8. JANUAR 1969 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Viet Cong rænir 150 óbreyttum borgurum Eiga að flytja birgðir tyrir skœruliða Saigon, 7. janúar. NTB-AP. VIETCONG hefur rænt 150 óbreyttum borgurum frá þorpinu Binh Chau, 57 km suðvestur af Saigon, að því er talsmaður Suður-Vietnamstjómar skýrði frá í dag. Er talið sýnilegt, að þetta fólk eigi að nota til þess að bera birgðir fyrir skæruliða- sveitir, sem síðasta mánuð hafa verið á hreyfingu í átt til höfuð- borgarinnar. Sagði talsmaðurinn, að engir hermenn frá Súður-Vietnam hefðu vaxið þorpið, þar sem talið var, að það væri utan seil- ingar Vietconig. Þá var skýrt frá því, að banda rískir fótgönguliðar hefðu ráðizt á sveit Vieteongmanna við Cai Lanh á Mekong óshólmasvæðinu. Hefðu 54 skæruliðar verið felld- ir, en Bandaríkjamenn hefðu misst 8 fallna og 11 úr li'ði þeirra hefðu særzt. Suður-Vietnam hefur borið fram kvartanir yfir því við al- þjóða eftirlitsnefndina, að Norð- ur-Vietnamar hafi notað sprengjuhlé í norðri til þess að senda lið inn á hlutlausa beltið. Er því haldið fram, að Norður Vietnamar hafi farið 1.291 sinn- um inn á hlutlausa belti'ð á tíma- bilinu frá 1. nóvember til 31. desember. Hefur stjórn Suður- Vietnams farið þess á leit við nefndina, að hún geri ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir, að slíkt sem þetta endurtaki sig. Óeirðasamt hefur verið í Londonderry á frlandi, að undanförnu og harðir götubardagar orðið milli mótmælenda og kaþólskra. Mikið hefur verið um grjótkast og margir slasast, cg eins og sjá má skirrast óeirðaseggirnir heldur ekki við að eyðileggja bila hver fyrir öðrum. Wie? ncai,, Verður Smrkovsky formaður ,.0^.. í irnmmúnistaflokks Tékkóslóvakíu? BOÐUÐ hefur verið í Róma- borg gifting leikkonunnar \ I Audrey Hepburn og ítalska | I prófessorsins Andrea Dotti, sem er sérfræðingur í geð- ] lækningum við háskólann í \ Rómaborg. Audrey var gift leikaran- um Mel Ferrer í þrettán ár og ] a son með honum. — Ályktun þess efnis borin fram í gœr Prag, 7. janúar. NTB. FLOKKSRAÐIÐ í 1. borgarhluta Prag og önnur svæðaflokksráð, þar sem framfarasinnaðir komm- únistar ráða, báru í dag fram í ályktun, sem samþykkt hafði verið, tillögu um, að Josef Smrkovsky, sem var forseti fyrr- verandi þjóðþings Tékkóslóvak- íu, verði kjörinn formaður komm únistaflokksins í staðinn. Virðist greinilegt, að frjáls- lynd öfl haldi áfram baráttu sinni, eins og ekkert hafi í skor- Frakkar stöðva alla her- gagnasölu til Israel Fá ekki einu sinni varahluti í franskar flugvélar — Ákvörðunin harðlega gagnrýnd í frönskum blöðum París, 7. júní AP—NTB • Franska ríkisstjórnin hefur lagt algert bann við hergagnasölu til ísrael. I*ar meS eru taldir varahlutir í flugvélar en það kem ur sér mjög illa fyrir ísraels- menn þar sem flugher þeirra er að langmestu leyti búinn frönsk- um vélum. skyni vegna árásarinnar á flug- völlinn í Beirut. • ísraelsmenn viðurkenna að þetta sé áfall fyrir þá en telja sig samt færa um að „sjá fyrir Aröbunum" ef til þess komi. • Þessi ákvörðun frönsku stjórnarinnar hefur víða verið mjög gagnrýnd, ekki sízt í Frakk • Ríkisstjórnin segir þetta vera landi en Arabar eru í sjöunda gert í aðvörunar- og refsingar- himni. Biafra: Þessi ákvörðun verður aug- ljóslega til þess að sambúð Frakka og ísraelsmanna versnar til rnunia og hefur samkomulag- ið þó ekki verið gott upp á síð- kastið. Eftir sex daga stríðið gagnrýndi De Gaulle ísraels- menn harðlega fyrir að hefja stríðið og rauf samning um sölu 90 Mirage orrusituþotum til ís- rael þótt þær hefðu þegar verið greiddar að miklu leyti. Eftir síðustu árás ísraelsmanna hefur forsetinn svo ákveðið að stöðva alla hergagnasölu, en ísraels- menn hafa hingað til fengið mest an hluta hergagna sinna frá Frakklandi. Framhald á hls. 23 izt, til stuðnings Smrkovsky og í framangreindri ályktun er á- byrgðinni á þeirri pólitísku spennu, sem ríkir í landinu, varp að á forystu flokksins. Er sú spuming borin fram, hvaða hluta af endurbótaásetlun Alexanders Dubceks verði unnt að korna í framkvæmd, þrátt fyrir innrás Varsjárbandalagsríkj anna. I ályktuninni leggja endurbóta sinnar áherzlu á, að það sé flokks forystan, sem verði að bera ábyrgðina á öryggisleysinu í land inu, sökum þesg að hún hafi ekki skýrt þjóðinni frá því, sem væri a'ð gerasit. Hafa endurbóta- sinnar raunverulega krafizt þess, að flokkurinn skilgreini í hve miklum mæli frjálsræðisáætlun Eldur í logaro ELDUR kom upp í brezka tog aranum Othello út af Noregs ströndum á mánudagskvöld. Áhöfnin fór í björgunarbáta þar til annar togari „Ross Aquila kom á vettvang og tók Othello í tog, og varð engum þeirra meint af. Ross Aquila var á leiðinni til Þrándheims með Othello, í gærkvöldi. Dubceks hafi lifað af innrásina. — Eins og ástandið er nú, vilj- um við fá að vita, hvað unnt verði að framkvæma af fram- faraáætluninni. Sú staðreynd, að það hefur ekki verið skilgreint fyrir okkur, er raunverulega ástæðan fyrir ókyrrðinni nú, segir í ályktuninni, sem er birt í Framhald á hls. 23. Spónn nhui konungsríhi? | Madrid, 7. janúar — NTB — SPÆNSKI prinsinn Juan Carl 1 os, hefur lýst því yfir að hann ) sé fáanlegur til að taka við kon \ ungdómi á Spáni, þótt hann telji föður sinn Don Juan eiga 1 með réttu tilkalli til krún- unnar. Frankó hershöfðingi | hefur vald til að skipa eftir- mann sinn og talið er að hann ' sé að undirbúa fólkið undir ' að Juan Carlos taki við völd- I um þegar hann fellur frá. Don Juan býr í útlegð í Port úgal og Frankó hefur aldrei fyrirgefið honum að hann hef ur oft gagnrýnt stjórnarfar i hans. Juan Carlos sem hlaut menntun sína í Madrid og er giftur Sophíu prinsessu af Grikklandi hefur oft sagt að \ hann vildi ekki taka við kon- ungdómi meðan faðir hans væri á lífi, en hann virðist nú hafa skipt um skoðun. Ríkisstjórn Líbanon segir af sér Loftárás á sjúkrahús vegna harðrar gagnrýni eftir árás ísraelsmanna Cerð af ásettu ráði Genf, 7. janúar — NTB — FJÓRIR menn biðu bana og tveir særðust alvarlega, er flugvél sambandsstjórnarinnar í Nígeríu varpaði sprengjum á Rauða kross sjúkrahús í Biafra, sem Rauði krossinn í Genf starfrækir. Skýrði taslmaður Rauða kross- ins frá því, að Alþjóða Rauði segir í mótmœlum krossinn betfði borið fram mót- mæli vegna þessa við sambands- stjórnina. I mótmælunum segir, að sjúkrahúsið hafi greinilega ver ið merkt með merki Rauða kross ins og að á það hafi verið varp- að sprengjum af ásetitu ráði. Þau sem biðu bana á sunnudaginn, Frambald á bls. 23 Beirut 7. janúar, AP-NTB. RÍKISSTJÓRN Líbanon hefur sagt af sér vegna mikillar gagn- rýni sem á henni dundi eftir árás ísraelsmanna á flugvöllinn í Beirut. Það veikti aðstöðu henn- ar að mikil ósamstaða hefur ver ið innan stjórnarinnar, t.d. kenndi hver öðrum um að árás Israelsmanna skyldi koma svona gersamlega í opna skjöldu. Frétt- ir herma að Rashid Karame, fyrrverandi forsætisráðherra, hafi verið beðiim að taka að sér myndun nýrrar samsteypustjóm- þingmanna, en að hann hafi enn enn ekki gefið neitt svar. Abdulla Yafi, forsætisráðíherra Líbanon, laigði lausnarbeiðni sína fyrir Charles Helou, forseta, snemma í morgun, en forsetinn tók hana ekki strax til greina. Talsmaður forsetans sagði, að Yafi hefði beðist lausnar fyrir sig og stjórn sána vegna þess að hann teldi nýjar aðstæður gera nýja ríkisstjórn nauðsynlega. Honum fyndist forsetinn eiga að fátækifæri til að velja nýjan mann ef hann óska'ði þess. Stjómarskiptin koma ekki svo mjög á óvart, því rikisstjórnin hefur átt mjög í vök að verjast eftir árás ísraelsmanna, og bæði blöð og allur almenningur hafa gagnrýnt hana harkalega. Verzl- unum hefur verið lokað í mót- mælaskyni og námsmenn hafa farið í setuverkföli fyrir framan skóla sina. Þar við bættist að mikil ósamstaða var innan stjórn arinnar og kenndi hver öðrum Frambald á bla. 23

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.