Morgunblaðið - 08.01.1969, Qupperneq 8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1969.
8
Árni- Helgason, aðal-
ræðismaður-Minning
Dr. Árni Helgason aðalræðis-
maður íslands í Chioago, lézt
þar í borg 11. desember s.l.
Ámi var fæddur í Hafnarfirði
16. marz, 1891, foreldrar hans
voru Helgi Sigurðsson og kona
hans Sigríður Jónsdóttir frá Set
bergi við Hafnarfjörð.
Hann ólst upp í Hafnarfirði,
hóf nám í skósmíði hjá Oddi
heitnum ívarssyni, síðar póst-
meistara í Hafnarfirði, einnig
kenndi hann sund um skeið og
munu margir Hafnfirðingar hafa
lært fyrstu sundtökin hjá Árna.
Ttil Vesturheims hélt Árni ár-
ið 1912 og dvaldist þar það sem
eftir var æfinnar í Kanada og
Bandaríkjunum, fyrstu árin við
allskonar vinnu.
Eftir að hafa verið sendur til
vígvallanna í Frakklandi nokkru
fyrir stríðslok 1918, hóf hann
við heimkomu nám í verkfræði
og lauk B.S. prófi í vélaverk-
fræði frá North Dakota State
Col'lege, Fargo, N.D. 1924 og M.
S. prófi í rafmagnsfræði frá Uni
versity of Wisconsin, Madison,
Wis., 1925.
Að námi loknu var hann verk
fræðingur hjá Thordarson Elec-
trical Manufacturing Company,
Chicago, Illinois, 1925 til 1928,
en þá stofnaði hann ásamt 3 fé-
lögum sínum fyrirtækið Chica-
go Transformer Corporation, þar
sem hann var fyrstu árin yfir-
verkfræðingur og síðar fram-
kvæmdastjóri, þar til hann hætti
störfum 1953.
Ræðismaður íslands í Chicago
varð Arni 1942 og aðalræðismað
ur síðar. Árni varð heiðursdokt-
or við North Dakota State Coll-
ege 1940, harun var sæmdur ridd
arakrossi Fálkaorðunnar 1939 og
Stórriddarakrossi hennar 1944.
Árni kvæntist eftirlifandi
konu sinni Chrisitine Johanns-
son (Stínu) 30. nóvember 1929,
hún er fædd í Mountain North
Dakota, faðir hennar var Jo-
hann Johannsson bóndi þar, ætt
aður úr Skagafirði.
Ég kynntist Árna og Stínu
vorið 1940 er ég fór vestur í leit
að efni fyrir Rafha, en stríðið
hafði þá, svo sem kunnugt er, lok
að öllum leiðum til efnisöflunar
frá Evrópulöndum. Ég naut i
þessari ferð slíkrar fyrirgreiðslu
og hjálpar Árna að mér er til
efs að tekisf hefði að afla nauð-
synlegs efnis til áframhaldandi
rekstrar Rafha, ef ekki hefði til
komið kunnátta Árna og þekking
á þörfum okkar, ásamt einlægum
vilja til að hjálpa okkur.
Árni var dæmigerður iðnrek-
andi, sívinnaindi, glöggur og
fljótur að gera sér grein fyrir
mönnum og málefnum, það var
engin tilviljun að hann valdist
til forystu í fyrirtæki þeirra fé-
laga, enda þróaðist það og dafn
aði undir stjórn hans og á stríðs-
árunum komst fjöldi starfs-
manna upp yfir 2500 og árið
1943 hlaut Chicago Transformer
Corporation „E“ merki hers og
flota Bandaríkjanna fyrir afrek í
framleiðslu til hernaðarþarfa.
Áhugi Árna fyrir iðnþróun
fslands var mikilll, hann fylgdist
vel með framförum hér, hann var
meðal hluthafa Eimskipafélags-
ins í^Vesturheimi og þegar Raflha
í Hafnarfirði var stofnuð gerðist
hann meðstofnandi og reyndist
þar alla tíð áhugasamur og hjálp
fús fé'lagi. Mikill fjöldi íslend-
inga hefir heimsótt þau Árna og
Stinu á heimili þeirra í nám-
únda við Chicago og notið þar
frábærrar gestrisni þeirra fyrr
og síðar og ávallt var Árni
reiðubúinn til aðstoðar fslend-
ingum er til hans leituðu.
Árni og Stína heimsóttu fs-
land oft og hér áttu þau marga
vini og kunningja, eftir að Árni
hætti störfum heimsótti hann fs-
land jafnaðarlega einu sinni á
ári og var alltaf aufúsugestur.
Síðast kom hann til íslands í
júní s.l.
Eins og fyrr segir kynntist ég
Árna og Stínu fyrst vorið 1940
með okkur tókst þá strax vin-
átta sem efldist með hverju ári
og nú þegar hann er fallinn í
valinn sakna ég góðs og tryggs
vinar, en geymi minningarnar
um margar og ánægj'luegar sam-
verustundir. Stínu og öðrum að-
standendum sendi ég og fjöl-
skylda mín innilegustu samúðar-
kveðjur.
Axel Kristjánsson.
FLOTTAMAÐUR
HANDTEKINN
Tirschenreuth, V-Þýzkalandi,
3. janú ar (AP)
YFIRVÖLD í Bayem skýrðu frá
því í dag að tékkóslóvakískir
landamæraverðir hafi bersýni-
lega elt flóttamann um 600
metra leið inn í Vestur-Þýzka-
land, handtekið hann þar og dreg
ið hann með sér inn fyrir tékkó-
slókavísku landamærin. Notuðu
landamæraverðirnir hund til að
rekja spor flóttamannsins.
Þjóðverjar, sem búa við landa
mærin, tilkynntu vestur-þýzkum
landamæravörðum að þeir hefðu
heyrt skothvelli og síðar ein-
hvern kalla á hjálp. Fóru verð-
irnir þegar á vettvang, og röktu
slóð tékkóslóvakísku varðanna
að landamærunum. Talsverður
snjór var á þessum slóðum, og
bentu sporin til þess að tékkó-
slóvakísku verðirnir hefðu dreg
ið flóttamanninn á milii sín.
Þýzku landamæraverðimir
fundu fataslitrur, meðal annars
rifið vesti, ermi af jakka og
hluta úr buxnaskálm, við slóð-
ina, og segja að slóðin eftir fang
ann hafi verið blóði drifin. Hef-
ur landamæravörðunum verið
fyrirskipað að hafa samband við
starfsbræður sína handan landa-
mæranna og bera fram opinber
mótmæli vegna „innrásarinnar".
Hollenzkur
háskólostyrkur
Hollenzk stjómvöld bjóða fram
styrk handa íslendingi til háskóla
náms í Hollandi námsári'ð 1969—
70. Styrkurinn er einkum ætlað-
ur stúdent, sem kominn er nokk-
uð áleiðis í háskólanámi, eða
kandidat til framhaldsnéms. Nám
við listaháskóla eða tónlistarhá-
skóla er styrkhæft til jafns við
almennt háskólanám. Styrkfjár-
hæðin er 500 flórínur á mánuði
í 9 mánuði, og styrkþegi er und-
anþeginn greiðslu skólagjalda.
Þá eru og veittar allt að 200 flór
ínur til kaupa á bókum eða öðr-
um námsgögnum. Til greina kem
ur að skipta styrknum milli
tveggja umsækjenda, ef henta
þykir.
Umsóknir um styrk þennan
skulu hafa borizt menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6.
Reykjavík, fyrir 15. febrúar n.k.,
og fylgi staðfest afrit próf-
skírteina ásamt meðmælum og
heilbrigðisvottorði. Umsókn um
styrk til myndlistar- eða tónlist-
amáms fylgi sýnishorn eða ljós-
mynd af verkum umsækjanda.
Sérstök umsóknareyðublöð fást í
menntamálaráðuneytinu.
(Menntamálaráðuneytið
2. janúar 1969).
FASTEIGNASALAN
GARÐASTRÆTI ,17
Símar 24647 - 15221
TIL SÖLU
Við Njörvasund 2ja til 3ja
berb. jarðhæð, sérhiti, útb.
250 til 300 þúsund.
Við Úthlíð 3ja herb. rúmgóð
risíbúð.
Við Hraunbæ ný 4ra herb.
íbúð á 1. hæð (3 svefnher-
bergi), fallegar og vandaðar
innréttingar. íbúðin er laus
strax.
Við Laugarnesveg 5 herb.
íbúð í steinhúsi á 1. hæð
ásamt vinnurými í kjallara,
útb. 500 þúsund.
Við Rauðalæk 5 herb. hæð
(4 svefnherbergi) á 2. hæð,
s'érhiti, laus strax.
Við Sörlaskjól 4ra herb. ris-
íbúð, nýmáluð, laus strax.
Eignaskipti
Parhús í Kópavogi með 2
íbúðum 5 herb. og 2ja herb.
í skiptum fyrir 4ra herb.
íbúð. Nýjar fallegar og
vandaðar íbúðir.
Árni Guðjónsson, hrl.
Þorsteinn Geirsson, hdl.
Helgi Ólafsson, sölustj.
Kvöldsími 41230.
TRÉSMÍÐA-
VERKSTÆÐI
2 húsgagnasmiðir óska að
taka á leigu lítið verkstæði
ásamt vélum. Kaup koma til
greina, Tilboð merkt „Verk-
stæði 6205“ sendist blaðinu
fyrir nk. laugardag._
Bókosýning
Sýningartíminn styttist óðum.
Kaffistofan opin daglega kl.
10—22. Um 30 norræn dagblöð
liggja frammi.
Norrænn húsið
Einknritnri
Ung kona með 7 ára reynslu
sem einkaritari óskar eftir
starfi há'lfan daginn (eftir
hádegi). íslenzk og ensk hrað-
ritun. Góð meðmæli. óskir um
viðtöl sendist Mbl. fyrir 13.
þ. m. merkt „Reynsla 6204“.
16870
Einbýli&hús við Efsta-
sund. Húsið er kjallari,
hæð og ris. Mögulegt að
hafa 2ja herb. íbúð eða
vinnupláss í kjallara.
5 herb. endaíbúð á 1.
hæð við Safamýri. Suð-
ur og vestur svalir. Sér-
hitaveita, bíls'kúr.
4ra herb. 108 ferm. íbúð
á 4. hæð við Háaleitis-
braut, sérhitaveita.
4ra herb. 116 fierm. enda
íbúð á 3. hæð við Eski-
hlíð.
4ra herb. 100 ferm. sér-
hæð við Skipasund. Ný
teppi, fokheldur bílsk.
4ra herb. 107 ferm. enda
íbúð á 2. hæð við
Kleppsveg. Sérþvotta-
herbergi á hæðinni.
4ra herb. 115 ferm. íbúð
á jarðhæð, herbergi í
kjallara fylgir, sérhita-
veita.
FASTEIGNA-
PJÓNUSTAN
IAusturstræti 17 ÍSilli 4 Valdi)
fíagnar Tómasson hdl. simi 24645
sölumaður fasteigna:
Stefán J. fíichter simi 16870
kvöldsimi 30587
f.RB RIKISIN
Ms. Esja
fer vestur um land til ís,a-
f jarðar 14. þ. m. Vörumóttaka
miðvikudag, fimmtudag og
föstudag til Patreksfjarðar,
Tálknafjarðar, Bíldudals, Þing
eyrar, Flateyrar, Súganda-
fjarðar og ísafjarðar.
Skíðamenn!
Mullersmót 1969 fer fram
sunnudaginn 19. jan. næstk.
kl. 13.30 við Skíðas'kálann í
Hveradölum. Þátttökutilkynn-
ingar verða að hafa borizt til
SKRR fyrir 13. þ. m.
Skíðaráð Reykjavíkur.
Umrœðufundur í Félagsheimili Heimdallar F.U.S.
fimmtudaginn 9. /anúar kl. 8.30
♦
9
Halldór Blöndal
Fyrsti fundur uu:
Fundarefni:
Frummælendur:
„Siðbót í íslenzkum stjórnmálum“.
„Er pólitskt vald í nefndum og ráðum hins
opinbera óhóflegt?“
Halldór Blöndal og Jón E. Ragnarsson.
Félagar eru eindregið hvattir til þess að fjölmenna.
Stjórn Heimdallar F.U.S.
Jón E. Ragnarsson