Morgunblaðið - 08.01.1969, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.01.1969, Qupperneq 10
10 MORGUNBliAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1969. „Ef viö getum bjargað mannslífi, er það skylda okkar“ — Almenn fjársöfnun talin æskileg til aðstoðar sveltandi Biafrabörnum. Hugmynd um þjálfun sjúkraliða hérlendis til aðstoðar. VEGNA síðustu frétta frá Bl- afra um dauða þúsunda bama á dagr, vegna hungurs ræddi Morgunblaðið við fólk á göt- unni og lagði fyrir það eftir- farandi spurningu: „Teljið þér að íslendingar eigi að aðstoða Biaframenn og ef svo er, þá hvemig“? Fara svör vegfarenda hér á eftir: Jökull Jakobsson Jökull Jakobsson rithöfundur: „Mér kemur helzt í hug að til að byrja með ættum við að senda flugflota íslendinga eins og eina ferð með skreið, sem íslenzka þjóðin gæfi þá Biaframönnum. Síðan mætti fylla vélarnar af Biafrabörn- um og flybja þau hingað til íslands. Bömunum yrði síðan dreift og um þau annazt á meðan ráðamenn em a'ð koma sér saman um endalok sóða- - skaparins. Fyrir utan mann- úðarstarf myndi líklega af hljótast mikil og lærdómsrík reynsla Þá kæmi til greina að senda vöruflutningaskip með mat- væli og t.d. mætti gjaman senda Gullfoss eina ferð í staðinn fyrir skemmtiferð til Amsterdam. Með þessu mynd- um við gefa gott fordæmi og sýna vilja til þess að bjarga þessum merkilega þjóðflokki, Iboum, sem er kjami Biafra." Ingólfur Guðmundsson Séra Ingólfur Guðmundsson: „Það á tvímælalaust að leggja Biaframönnum lið eins og við mögulega getum. Ég held að það sé eðlilegast að veita þá aðstoð, sem hægt er innan þess ramma sem reynt hefur verið að aðstoða á veg- um kirkjunnar og Rauða krossins. Annars er varla við því að búast að við getum mikfð að- stoðað, en hvert mannsiíf sem bjargast er mikils virði. Þær stofnanir, sem hafa gert eitthivað í þessu máli vita gerst hvernig aðstoð kemur bezt að notum, en líklega er helzt um að ræða peningia eða matvæli. Af hverju ekki að taka t.d. upp söfnun í kinkjunni. Það væri verðugt verkefni fyrir söfnuðina a'ð taka höndum saman í þessu efni og auð- vitað ætti hin ýmsu félaga- samtök sem leggja áherzlu á góðgerðastarfsemi að gera slíkt hið sama. Það hefði t.d. farið vel á þvi að safnað hefði verið pen ingum til Biafraaðstoðar víð messiu- á imdangengnum jól- um. Það er skylda okkar að gera eitthvað í þessu máli.“ Ragnhildur Kolka meina- tæknir: „Ég get eldci sagt að ég hafi mikla samúð með þessu fólki þama á meðan ástandið er eins og það er. Þegar það liggur ekki ljóst fyrir hvort að þetta fólk vill láta hjálpa sér eða ekiki. Mér virðast stjórnmálaflækjumar í Biafra U.n hérlendis sýnir líklega bezt hvað hver og einn getur af mörkum laigt.“ Jón Sigurjónsson Einar Steinarsson fram- kvæmdastjóri: „Mér finnst alveg sjálfsagt að hjálpa fólkinu í Biafra, sem þjáist af hungri. Ég tel í fljótu bragði að það þyrfti að koma af mörkum það sem hægt er. Ég myndi segja að við ættum að efna til samskota hérlendis á vegum félagasamtaka, sem teldu mál sem þetta verðugt viðfangsefni. Það þarf tafarlaust að leggja 'hönd á plóginn. I Biafra deyja nú þúsundir barna á hverjum degi úr hunigri og það er skylda okkar á smáum hnetti að bjarga þeim mannslífum, sem hægt er að bjarga. Annars er það óskiljanleg- ur glæpur að styrjaldir, sem þessar skuli beinlínis ekki vera stöðvaðar af alþjóðasam- tökum eins og Sameinuðu þjóðunum, en þau hcifa víst vart minnzt á ástandið í Biafra í alvöru.“ Steingrímur Hermannsson, framkvæmdastjóri: „Ég tel að við eigum að sýna mainindám okkar með því að gera það sem við getum Steingnmur Hermannsson Einar Steinarsson Ragnhildur Kolka vera það miklar að erfitt sé að veita yfirvöldum samúð. Aftur á móti hef ég mikla samúð með börnum Biafra og tel að við íslendimgar eigum að veita þá aðstoð þeim til handa sem við getum á þeim grundvelli, sem gert hefur ver ið að undanförnu á vegum er- lendra kirkjusamtaka og Rauða krossins“. Jón Sigurjónsson sjómaður: „Manni finnst það nú fjandi hart að svona nokkuð skuli geta átt sér stað. Það virðist ékki vanta fjármagnið, þegar verið er að koma þessum styrj öldum af stað, en það verður víst ekki alveg í bráð að fjár- magni þjóðanna verður frem- ur varið til uppbyggingar en niðurrifs. Við Islendfngar eigum að gera það sem við getum í þessu máli og styðja þau sam- tök sem hafa gert raunhæft í þessu máli. Almenn fjársöfn- á almennri fjársöfnun hér- lendis og kaupa síðan íslenzka skreið og senda hana út til Biafra. Líklega er vænlegast að dreifa skreiðinni með að- stoð þeirra samtaka, kirkju og Rauða krossins, sem hafa mest gert í þessu máli.“ Sigurður Sigurkarlsson gjaldkeri: „Ég tel sjálfsagt að leggja farið fram áður á vegum blaða og ýmissa félagssamtaka og hafa gefist vel. Það er hörmulegt að hugsa til þess hvað deyr af blessuð- um börnunum. Ég ímynda mér að það væri hægt að safna miklu fé með frjálsum samskotum og það hefur sýnt sig áður að íslend- ingar eru gjafmild þjóð.“ Guðjón Magnússon Guðjón Magnússon háskóla- borgari: „Mér finnat að við ættum að reyna að styðja af almætti þau samtök, sem hafa lagt þessu máli lið. í þessu tilfelli er um að ræða kirkjuna og Rauða krossinn. Ég er ekki hlynntur því að við eigum að Stofna sjálfstæðar hjálpar- stöðvar, heldur leggja obkar skerf ef einhver getur orðið til þeirra, sem hafa þegar lákipulagt starfsemi í þessa átt. Hin ýmsu félagasamtök eða t.d. blöðin ættu að taka þetta verðuga verkefni að sér. Þó að þjóðin standi kannski illa að vígi fjárhagslega í bili, þá getum við ekki staðið að- gerðarlaus í þessu máli.“ þessu fólki til aðstoðar, þó að það kunni bannski ekki að verða mikið. Mér finnst t.d. starf ís- lenzku flugmannanna í Biafra sýni góðan vilja.“ Brynjólfur Jóhannesson, leik- ari: „Það er nú kanmski erfitt að svara þessu í skyndi, en Sigurður Sigurkarlsson Brynjólfur Jóhannesson við íslendingar eruim alltaf að hjálpa eitthvað og mér finnst sjálfsagt að leggja fram það, sem okkur er unnit til þess að bjarga mannslífum. Al- menn fjársöfnun væri æski- leg og ámóta fjársafnanir hafa Jóhann Birgisson Jóhann Birgisson, bankastarfs- maður: „Ég tel varhugavert að hjálpa Biaframöninum, ef hæbta er á að hermenn geti vandræðalítið stolið þeim mat vælum sem send hafa verið til Biafra, en slíkt hefur sýnt sig í hjálparstarfinu. En mér finnst sjálfsagt að styðja af mætti börn og kon- ur í þessu hrjáða landi þar sem þúsundir deyja úr hungri daglega. Við íslendingar ættum að hefja almenna fjársöfnun nú þegar til kaupa á skreið og senda skreið frá íslenzkum skreiðarframleiðendum.“ Framhald á bls. 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.