Morgunblaðið - 08.01.1969, Page 13

Morgunblaðið - 08.01.1969, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 1969. 13 Lúðvík Kristjánsson, rithöfundur: Hvað eiga sparif járeigendur ai gera? Nokkrar spurningar til stjórnar Seðlabanka ísl. MEÐ BOGIÐ BAK OG BROTINN STAF Miiklatorg íslenzks mannlífs hefur venju meira komið við sögu undanfarnar vikur, og ósennilegt er ekki, að svo verði enn um sinn. — Nepjudag einn á miðri jólaföstu stóð ég á mínu torgi, sem að vísu heitir einnig Miklatorg ,og beið þess að Hafn- arfjarðarvagninn renndi þar í hlað. Nú sem ég hinkraði þarna á torginu og einn aldrei þessu vant, sá ég að í átt til mín pauf- aðist bakboginn maður og studd- ist við staf. Þegar hann átti svo sem armslengd til mín, leit hann upp. starði eins og andartak á mig. og sagði síðan: Jæja, þar datt ég í það. Ekki átti ég von á þér hér og það í þessum andskotans belg'svelj- anda. eða er það ekki sem mér sýn sí, að þetta sé hann Lúlli. Ég kvað svo vera, og lagði nú í hi ndartakið alla þá alúð sem ég mátti. H/að heldurðu að það sé langt SÍðau við stóðum saman fynstu trollvaktina? Það get ég sagt þér, Fúsi minn. í maí síðastliðnum voru það ná- kvæmlega 40 ár, og þá vorum við vestur á Hala. Já. þær eru orðnar svo marg- ar blækurnar ,sem maður hefur flækzt með í 58 ár, að maður man ekki hvenær maður kynnt- ist hverri. Er nú Fúsi kominn í land fyr- ir fullt og fast? Já. Fúsi tók pokann sinn fyrir þremur árum. Þegar ég gat ekki lengur staðið í stykkinu, gengið að verki eins og aðrir vildi ég ekki vaeflast fyrir hi.num yngri eins og einhver drusla. Sivo mér fannst þá tími til kominn að segja far vel. Þú hefur auðvitað komið með ásláttarpoka í land í vertíðar- loikin? Ja. von er að þú segir það. — Onei, það var bara skaufi, reynd ar gHsskaufi, eftir •allt saman, að vísu dávænn, en þetta er orðinn langur tími, mikið púl og vos og miklar vökur. Ekki hefur öll híran farið fyr- ir grogg hjá þér? Nei, vertu í eilífri náðinni. Þótt maður hafi einstöku sinnum stungið út úr einni og einni grogg- eða bjórkollu í Cuxihaven eða Hull eða einhvers staðar annars staðar, einkum þegar mest var þörfin, eins og á öllum stríðsárunum, þá eru mörkin eða pundin, sem ég hef látið fyrir þá blessuðu hýrgun teljandi. Það er hvorki groggið eða bjórinn, sem veldur því, að ég kem ekki með ásláttarpoka í land í lokin. — Enga á ég kerlinguna og hef aldrei átt, og því er nú grevilsins verr, að ég hef aldrei dugað til þess að unga út svo miklu sem einum barnfugli. — En einhleyp- ingar fiá skatta og við þvi er ekkert að segja, og þá hef ég alltaf borgað upp á punkt og prik. Ég hef líka alltaf viljað vera heldur veitandi en þiggj- andi. Og hverjir eru það, sem eiga ekki eittíhvert skyldfólk? — Oft og einatt hafa verið með mér strákar, sem hafa verið við :iiám, sumir einhvers staðar í útlönd- um ,allt prýðis guttar, lausir við menntahroka. Þeir hafa verið að klóra 1 bakkann til þess að geta lokið námi. Þó ég segi sjálfur frá, hef ég rétt nokkrum þeirra kökubita og stundum drepið sæmilega ofan á hann. Sumir af þessum greyjum eru nú einhvers staðar í háum stöðum, líklega einhverjir hjá ríkinu. Þessir ang- ar draga flestir langan skulda- hala á eftir sér, þegar þeir loks- ina koma heim fíá námi. Og hánn Fúsi minn fer ekki að minna þá á, að hann hafi einhvern tíma stungið að þeim kökubita, hon- um er fyrir öllu að vita af því, að þeir vinni landi og lýð til gagns, og svo þykir mér vænt um, að þeir sniðgangi mig ekki, ef ég verð á vegi þeirra. En ef Fúlsi fréttir, að einhverjir af þess um gömlu kökuþurfum féfletti náungann, þá sVeiar hann sér í for og bak og segir, að þeir væru bezt komnir niðri á áttræðu. Ekki trúi ég því, að þú þurfir neinu að kvíða fjárhagslega og svo hjálpa nú Tryggingarnar. Já, víst eru þær góðar það sem þær niá, og sízt er ég að van- þakka það, sem frá þeim kemur. En hver getur-dregið fram lífið á ellilaununum? Ég þekki ekki þá mannskepnu. Hvers vegna hefurðu ekki sett peningana þína í eittlhvað fast, t.d. hús, sem þú hefðir svo getað leigt út? Það er von að þú spyrjir. En Fúsi befur nú áldrei verið neinn fjármálasnillingur. — Mín hugs- un hefur æ og alla tíð snúizt um að ná inn trollinu og koma bönd- unum fyrir í stíunum. Það sem aifgangs hefur orðið af mínum monningum, hefur alltaf farið í þá bláu, eða með öðrum orðum rakleitt í bankann. Mér hefur einhvern veginn Skilist, að frá bönkunum eða sjóðum í tengsl- um við þá lægju allir þræðir til skipakaupa, til flugvélakaupa, til húsbygginga, jó, til alls og alls, sem gæti orðið til þess að koma þessu þjóðarkríli upp úr pond- inu. Hafa ekki bankastjórar og leiðtogar þjóðarinnar verið að brýna fyrir fólki, einnig okkur togarajöxlunum, að sýna þegn- skap, svo sem með því að virða fornar dyggðir, eins og ráðdeild, sparsemi og nýtni, og þá fyrir alla muni að gleyma ekki bláu bókunum. Ég er af gamla skól- anum, meinlaus sauðarhaus, og hef því trúað að treysta mœtti þeim mönnum, sem settir eru yf- ir stórt. En nú er Fúsi farinn að verða blendinn í trúnni, ég er kall minn farinn að halda, að fleiri en verðugir hafi náð í suma þráðanspottana, sem liggja frá bönkunum og jafnvel ein- hverjir, sem sitja í fínum stof- um með harðviðarþiljum, geri það á kostnað bláu bókarinnar minnar. Þeir ættu að vita það blessaðir, að þegar þeir voru að klingja glösum á jólum í sín- um harðviðarmusterum, var ég og ótal margir aðrir kófsveittir í brunagaddi og bullandi ágjöf vestur á Hala við að berja ís- inn af dallinum, svo hann færi ekki niðúr með öllu draslimu. Heyrðu Fúsi, finnst þér heim- urinn hafa versnað, t.d. síðan við vorum fyrst saman? Vernsnað og versnað ekki. Ég neita því ekki, að það er ekki samanberandi að vera á togara núna eða fyrir hálfri öld, og sjáðu öll þessi hús, alla þessa bíia og hvað fólkið er orðið fint í tauinu. — Einu sinni lærði ég fjandans ári góða vísu, en nú er maður orðinn svo fjári gleym- inn, að ég man ekki nema seinni partinn: En orðheldnin hans Ingólfis brann til ösku á þeseum grunni. Já, hún hefur brunnið orð- _heldnin og brennur enn. Af því sýp ég seyðið og ég og ég gætu víst fleiri sagt. Þótt ég kæmi ekki nema með gilsskauifa í land í vertíðarlokin, trúði ég því, að það, sem í honum væri, nægði mér, þangað til ég væri kominn að rórinu á leið út hafið mikla. En sú von ætlar að verða sér til skammar. Var ekki gengisfelling í fyrra, og hún kom við skauf- ann minn, og var ekki önnur fyr- ir nokkrum vikum, já, önnur stærri og meiri. Ég skammast mín fyrir að minnaet á það við nokkurn mann, að ég haifi átt gils skaufa, eða ef ég á heldur að kalla hann bliáa bók. Hún hefur lengi verið eldsmatur. Eff við kikkum nú forút um gluggann í hólnum sýnist mér, að ekki verði lát á þessari miklu brennu á næstunni. Ég hafði ásett mér að damla svo yfir veraldarpollinn, að ég þyrfti ekki að leita á náð- ir annarra. En Fúsi er hættur að gera því skóna, nema forsjón- in grípi heldur fyrr en síðar í taumana. Þetta er ekki traustur staifur, Fúsi minn, sem þú gengur við. O, jæja, læt ég það nú vera. Hann brotnaði reyndar um dag- inn, og ég lét spengja hann. A maður ekki að vera nýtinn, á maður ekki að hugsa um þá bláu, á maður ekki að hugsa um þjóðina sína? Ég hafði sleppt fram hjá mér einum vagni, meðan við Fúsi ræddumst við, en nú var sá næsti kominn. Hann rann í suð- Fvrri hluti urátt, en Fúsi hélt upp til Hlíða, gamall og útslitinn, maður með bogið bak og brotinn staf. BANKABÖKIN Einn af nemendum Árna prófessors Pálssonar sagði um hann látinn: „Hann heff ég þekkt mennskastan allra manna“. — Veturinn 1929—11930 dvaldist Árni í Ameríku, og ég ætla í boði Vestur-íslendinga. Þar flutti hann marga fyrirlestra og fór víða um. Þegar Árni var aftúr heim kominn og sat eitt sinn í hópi kunningja, innti ein- hver hann eftir, hvað bóka hann hefði séð merkilegasta í för sinni. Árni bað menn geta. Marg ar voru nefndar, og þótti honum menn ekki getvísir. Þar að kom, að hann sagði með miklum þunga í röddinni: „Heyrið þið, piltar mínir, það var baníkabók- in hans Vals Benediktssonar“. Þegar ég heyrði sagt frá þessu tilsvari Árna, skauzt utan af jarðarsvæðum vitundar minnar bernskuminning. Guðrún Skúla, eins og hún var tíðast nefnd, var kona fríð sýnum, fyrirmyndar- húsmóðir, er þurffti að stjórna ein stóru heimili, þá er bóndi henn- ar var mánuðum saman víðs fjarri að manuera með sínum skakköllum á skonnortu Ix>vísu. Það er sem enn kveði við í eyra mér þessi setning sumra kvenna í Hólminum, þegar eittlhvað þótti vel gert og umtalsvert: Hvað er svo sem að tala um Guðrúnu hans Skúla. Og fyrir bar að bætt var við: Er það ekki annars hún sem á sparisjóðsbókina númgr eitt. Þetta innskot olli mér nokfkr um heilabrotum, og niðurstaðan varð sú, að sparisjóðsibók hlyti að vera bók bóka. — Reynslan hefur kennt mér, að þessi álykt- un mín hafi ekki verið eins mikil fjarstæða og ætla hefði mátt. Æxlast hefur svo, einhvem veginn aff sjál'fu sér, að í þrjá ára tugi hafa jafnan verið í minni vörzlu sparisjóðs- og bankabæk- ur ,sem aðrir hafa átt, stundum fleiri, stundum færri. Eigendur þeirra hafa yfirleitt verið aldrað fólk, konur sem karlar. —• Ég hef jafnan haft ánægju aff að um- gangast bækur, og ég held, að það sé ekíkert raup þótt ég segi, að á þessum þrjátíu árum hafi ég litið í marga bók. Bláu bæk- urnar, en svo nefni ég sem fleiri sparisjóðb- og bankaibækurnar, hafa einnig orðið mér lestrar- efni, en umfram aðrar bækur eru í þeim fólgin tilbrigði, þannig að í dag getur innilhald þeirra ver- ið annað en það vafi í gær. Þess vegna ættu bláu bækurnar að geta verið bækur unaðsstunda. Annað veifið hafa þær líka ver- ið mér það, en ég held þó oftar uppspretta angurs og ama. Eins og í vel gerðri skáldsögu getur orðið samfelldur stígandi L bláu bókinni, og maður bíður þesis spenntur, hvað hann ætli að ná hátt, hvað úr honum ætli að verða. En þetta ris bláu bók- arinnar gerist oftast ekki án átaka, ekki án erfiðis langra daga og margra, og stundum dkki án banáttu upp á lítf og dauða, ekki án sjálfsatfneitunar, nýtni og sparsemi. En eins og úthafsaldan dregur undir sig á langri leið að ströndu, faldar sivo hátt að af tekur allt land í miðj- ar hlíðar, unz hún kennir grunns ins og upp af henni kemfoir í Sömu lotu og hún brotnar og hníg ur, svo fer oft um upphatfning- una í bláu bókinni. — Innihald hennar er ekki einvörðungu töl- ur, á bak við þær er mennskt líf. Sökum þess geta þar komið við sögu áfiöll og óhöpp margvís- leg, sjákdómar, atvinnuleysi, stríð og friður, alls konar atburð ir úti í lítt kunnum löndium, einnig mismunandi viðhorf hér- landsmanna til viðtfangsetfna líð- andi stundar, að ógleymdri elli, þegar hendin, kreppt og lúin, er orðin svo máttvana, að hún fær aðeins stjórnað skeiðinni. En bláa bðkin er ekki ætíð það, sem hún sýnist vera. Hún getur stundum verið bók blekk- inga, jafnvel meir en aðrar bæk- ur, og í seinni tíð hefur sú ánátta hennar aukizt að miklum mun. Það sem í fyrra þótti sjálfisagt að tákna með sex eða sjö stafa tölu, getur verið óumflýjanlegt að greina með tíu statfa tölu í ár. Er þetta ekki skemmtilegur stíg- andi, er þetta ekki að stetfna rak- leitt inn í velferðarríkið. Stund- um geta verið kómiskar hliðar á ekta drama. En þegar rúgbrauð- ið, sem ég kaupi í dag er etf til vill fimimfalt dýrara en það, er ég keypti í fyrra eða hitteðtfyrra, þá fer a.m.k. hjá sumu bláubók- afifólkinu, að hætta að örla á kómikinni, og dramað er orðið gegnsýrt drama, sorgarleikur — harmleikur. Á bak við þörfina á margstafatölu bláufoókarinnar, eða kannski ætti heldur að segja gildi tölunnar, er einmitt þessi leikur berstrípaður. Margar af þeim bláu bókum, sem um skeið voru í minni um- sjá, eru það ekki lengur, sölkum þess að eigendur þeirra eru gengnir og grafnir. Eftir er í hug mér minnifigin um, hvernig þeir sinntu sínu hlutverki og þá jafnframt bláu bækurnar þeirra. ERFÐASKRÁIN Gí'sli Ólafisson skáld frá Eiríks- stöðum er einn af þeim mönnum, sem seint gleymast þeim, er hon- um kynntust. Fyrr á árum leit hann stundum inn til mín, þegar hann var á ferð hér syðra. Þá brást ekki, að hann gripi til stemmunnar og kvæði fyrir mig nokkrar vísur, ýmist etftir sjálfan sig eða aðra. Enginn hefiur í mín eyru skilað jafnivel efni og anda þessarar alkunnu vísu sem Gísli: Auðs þótt beinan akir veg, ævin treinist meðan, þú flytur á einum einis og ég allra seinast héðan. Lúðvík Kristjánsson Margt af mínu blláubókar fólki hetfur kunnað og kann þessa stöku. En þótt því hafi verið annt um bláu bókina sína, hefur aldrei að því hvarflað, að hún fylgdi því í kistuna líkt og Passíusálm- arnir hafa gert í þrjár aldir og ekki er örgrannt um að þeir geri enn. Stundum hefur nokkuð verið eftir í þeim bláu bókum, sem ég hef haft í vörzlu, þá er eigendur þeirra fóru að berja í nestið. Að sjálfsögðu kusu þeir að gera sín- ar ráðstafanir í tæka tíð, því að þeim stóð ekki alveg á sama, hvað um þessar krónur yrði, að lífsstríðinu loknu. Af því hefur leitt, að ég hef þrátfaldlega fyrir beiðni þessa fólks látið gera erfðaskrá. Oftast hefur það ver- ið auðvelt og ekki í mörg horn að líta, þar ®em viðkomandi hef- ur átt börn á lífi eða barnabörn. En sumt atf mínu bláubókartfólki hefur aldrei kvænzt eða gifst, né eignast börn, og því oft verið tvíátta eða jafnvel margátta í skoðun, þegar að arfleiðslugerð- inni hefur komið. Ég hirði ekki um að lengja mál mitt með því að rekja þau dæmi öll, en við hefur borið bg það oftar en í eitt sinn, að ég hef orðið að láta gera tvær og jafnvel þrjár ertfðaskrár fyrir sama manninn. Verðbólg- an og gengisfellingarnar hafa verið eins og draugar á hælum þeirra og þeir eins og á flótta með þetta lítilræði, sem þeir kynnu að skilja eftir sig. Á flóttanum hafa þeir verið að leita fyrir sér, hvar þeasir aurar þeirra kæmu að beztum notum. í gær töldu þeir sig koma auga á beztu lausnina, en í dag eygðu þeir aðra betri. Einn lét orð falla við mig á þessa leið: Eins og þú veizt var ég lengi formaður á tímum ára- bátanna og lenti oft í hrakning- um, stundum mjótt á munum, að maður næði landi. Ég held, að björgunarskúturnar séu lítfsnauð synlegar, og því er ég að hugsa um að láta einhvern björgunar- skútusjóð njóta þess, sem ég kann að skilja eftir. — Nokkru síðar hafði þessum sama manni snúizt hugur, og þá mælti hann: Heyrðu, verðbólgan er að soga þetta allt í sig, ég held, að björg- unarskútusjóðnum muni ekkert um þetta, og hver veit hvenær skútan verður smíðuð. Ég er nú samt að hugea um að sýna þesa- um sjóði lit, úr því að honum hafði á annað borð skotið upp í koll mér. En ég á ungan frænda, sem er fátækur. Ég held, að hann sé gott mannsefni, og hann hygg- ur á langnám. Láttu breyta skránni og ætlaðu honum mest- an hlutann af þessum krónum. — Ég gerði eins og fyrir mig var lagt. Nokkru síðar lézt þesisi mað- ur. Ég mætti fyrir hönd björg- unarskútusjóðsins hjá skiptaráð- anda. Þar var og einnig hinn arf- taki hins látna. Mér hló eins og Framhald á bls. 17

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.