Morgunblaðið - 28.01.1969, Side 1
24 SIÐUR
22. tbl. 56. árg. ÞRIÐJUDAGUR 28. JANUAR 1969 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fjölda-
handtökur
á Spáni
/yrif íi-aman kistu Jans Palachs. — Myndin sýnir fólk ganga fram hjá kistu Jans Palachs, þar sem hún var látin liggja á við-
hafnarbörum fyrir framan Karlsháskólann í Prag. Við kistuna stóð heiðursvörður og til hægri sézt hluti af þeim mikla fjölda
minningarkransa, sem borizt höfðu frá fólki í Prag og alls staðar að i Tékkóslóvakíu til þess að minnast piltsins, sem 21
árs gamall hafði brennt sjálfan sig til bana til þess að mótmæla hernámi Sovétríkjanna í landinu.
Fjöldahandtökur í Prag um helgina
Madrid, 27. janúar. NTIB.
í OPINB'ERUM tilkynningum á
Spáni segir, að tæplega 100
manns hafi verið handteknir síð-
an Franco einvaldur lýsti yfir
neyðarástandi síðastliðinn föstiu-
dag. í óstaðfestum fréttum var
hinsvegar talið að millli 200 og
1000 hefðu verið handteknir.
Mikið er rætt um hvort Franco
muni segj a af sér á mæstumni, og
Juan Carlos, prins, þá krýndur
til konungs.
í óstaðfestum fréttum se-gir, að
rithöfundurinn Ajlfonso Comin og
Ramon Rubial, formaður verka-
mannasambandsins, séu meðal
þeirra handteknu. Einnig er þvi
haldið fram, að fjöldi presta og
stúdenta sitji nú í fangelsi. Lötg-
reglan virðist fara fremur róflegia
að störfum sínum og reýna að
komast hjá því að velkja athygli.
Har&ar aðgerdir boöa&ar gegn
uppþotum og mótmælaa&ger&um
Mörgum erlendum blaðamönnum
visað úr landi
Prag, 27. janúar. NTB-AP
£ Lögreglan í Prag yfir-
heyrði í dag 199 manns, sem
handteknir hafa verið eftir
útför Jans Palach. Kom til
mikilla óeirða á Wenceslas-
torgi á sunnudagskvöld, þar
sem lögreglan beitti táragasi
til þess að dreifa stúdentum,
en þeir hrópuðu á móti
„Rússneskir þorparar“ og
„Gestapo, Gestapo.“ Áttu
þessar óeirðir sér stað, eftir
að lögreglan hafði hindrað
stúdenta í að kveikja á kert-
um til minningar um Jan
Fimmtán hafa
fallið í Pakistan
Lögreglan beitir skotvopnum, táragasi og
bareflum — Óeirðirnar breiðast út
Karachi, Pakistain, 27. jan. AP
TUTTUGU og fjögurra srtunda
útgöngubann gekk í gildi á stór-
um svæðum í Karachi þegar
mótmælaaðgerðir gegn rikis-
stjórninni breiddust út í þessari
stærstu borg Vestur-Pakistan.
Það hafa einnig orðið óeirðir í
öðrum borgum og margir fallið
eða særzt í viðureign við lög-
regluna, sem hefur beitt skot-
vopnum. Herflokkar hafa verið
kvaddir út henni til aðstoðar.
Vandræðin byrjuðu sl. hausit
þegar stúdentar kröfðust endur-
bóta á menntamálum og ýmsu
öðru, sem stjómin þykir hafa
staðið sig slælega í. Stjómarand-
stöðuflokkarnir hafa rekið harð-
an áróður gegn ríkisstjórn
Ayuibs Khan, síðan nokkrir stjórn
málaleiðtogar voru handteknir
ihinn 13. nóv. sl., og ákærðir um
að hafa hvatt til óeirða. Kosning
ar eiga að fara fram í sept. nk.
Stjómarandstaðan krefst þess,
að stjórnin fari frá og fordæm-
ir harðlega þær skipanir til lög-
reglumanna að beita skotvopn-
um gegn þeim sem standa að
mótmælum. Verkfötl hafa verið
boðuð til að mótmæla aðger’ðum
stjórnarinnar og fleiri og fleiri
taka þátt í mótmæla-aðgerðum
gegn henni.
Öryggissveitir hafa verið kall-
aðar út í mörgum borgum Pak-
istan og þær ganga að því með
mikilli hörku að bæla niður alla
andstöðu við ríkisstjórnina. —
Beita þær bæði táragasi, byss-
um, kylfum og stöfum með stál-
oddum. Talfð er að minnsta kosti
15 manns hafa þegar lá.tið lífið
og tugir sœrzt.
Palach á styttu heilags Wen-
ceslas og við gosbrunn þann,
sem Palach brenndi sig
til bana en lögreglan var
þar að framkvæma fyrir-
mæli um, að öllum samúðar-
aðgerðum vegna Jan Palach
skyldi ljúka nokkrum
klukkustundum eftir að útför
hans hefði farið fram.
0 Útvarpið í Prag skýrði
frá því í gær, að verkamað-
urinn Josef Hlavaty, sem
borið hefði eld að sjálfum sér
í Plzen fyrra mánudag, væri
Framhald á bls. 3
Rifu göt ú
himininn'
ANKARA 27. janúar, AP. —
Fimm tyrkneskir bændur
hafa hótað að grýta sendiráð
Bandaríkjanna og Rússlands
hér, ef löndin greiði þeim
ekki skaðabætur fyrir tjón af
völdum flóða, sem þeir segja
hafa orðið vegna þess, að
Franlhald á bls. 16
Mikil reiöialda í Israel
— þegar fréttist um aftökurnar
— Óttast að þeir hefni sín grimmilega
Jerúsalem, Beirut, París, SÞ,
27. jan., AP-NTB.
• Geysileg reiði ríkir í ísrael
vegna aftöku mannanna fjórtán,
sem hengdir voru í írak, ásakað-
ir um að h«fa stundað njósnir og
skemmdarverk fyrir ísrael. Níu
hinna líflátnu voru Gyðingar.
• I.evi Eshkol, forsætisráðherra
sagði, að heimurinn allur bæri
ábyrgð „á þessum svívirðilegu
morðum“ og krafðist alþjóða
hjálpar til handa Gyðingum, sem
einangrazt hafa í löndum Araba.
• Mörg blöð í ísrael, svo og al-
menningur, krefst hefnda og ótt-
ast er að ísraelsmenn grípi til
einhverra harkalegra ráðstaf-
ana. Bent er á að ísraelsmenn
hafi aldrei dæmt arabiska njósn
ara eða skemmdarverkamenn til
dauða.
Þegar fregnir bárust til ísra-
el um að mennirnir fjórtán hefðu
verið hengdir, voru fánar dregn-
ir í hálfa stöng og mikil reiði-
aida reis meðal ibúanna. Eshkol,
forsætisráðherra sagði, að heim-
urinn allur bæri ábyrgð á verkn
aðinum og að aftökiurnar sýndu
ljóslega hvaða örlög Arabar ætl
uðu ísraelsmönnum ef þeir fái
frjálsar hendur og nú notuðu
þeir sér það að geta hefnt sín á
varnarlausum gtelum. Hann líkti
stjórnum Araba við stjórn na*>-
ista í síðari heimsstyrjöldinni og
sagði, að ekki væri nema von að
réttarhöldin hefðu farið fram fyr
ir liu'ktum dyrum, allir hinna
látnu hefðu verið saklausir.
Þeirra eini glæpur hefði verið að
þeir voru Gyðingar.
Framhald á bls. 16
Spáir gdöri síld-
veiöi við Noreg
Síldin mun koma upp að ströndinni um
miðjan febrúar — segir Finn Devold
Bergen, 27. janúar, NTB.
— Sildin mun koma upp að
ströndinni um miðjan febrúar og
sjávarhitinn meðfram strönd-
inni, sem stendur, er það heppi-
legur, að útlit er fyrir, að
sildin komi nálægt landi í ár,
segir í viðtali, sem NTB átti vlð
Finn Devold, forstöðumann
norsku síldarleitarinnar sl. laug-
ardag, en þá kom hann inn til
Bergen með rannsóknarskipinu
„Johan Hjort“.
Framhald á bls. 16