Morgunblaðið - 28.01.1969, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1969.
17
Hafísráðsteína
Framhald af bls. 24.
gefin út á ensku. En Almenna
bókafélagið mun gefa út erind-
in fyrir almennan markað á ís-
landi.
Hafstraumar og sjógerðir.
Fundarstjóri á ráðstetfnunni í
gær var Sveinbjörn Björnsson.
Dr. Unnsteinn Stefánsson flutti
fyrsta erindið á ráðstefnunni, um
hafstrauma og sjógerðir í Norð-
ur-fsh afinu, Norður-Grænlands-
hafi og íslandshafi. Lýsti hann
m,a. með skýringarkortum
straumakerfum vestan og norð-
an íslands á grundvelli íslenzkra
rannsókna á tímabilinu 1949—58
og gerði grein fyrir helztu sjó-
gerðum. Meðalstraumhraði á
landgrunnsvæðinu norðan fs-
lands væri áætlaður 4 sjómílur
á dag, sagði hann en nokkru
meiri í Austur-Grænlandsstraumn
um. f Grænlandssundi vestan-
verðu væri hraði Austur-Græn-
landsstraumsins allt að 20 sjó-
mílur á dag, þar sem hann er
mestur. Benti hann á mikilvægi
djúpsjávarrennslis yfir neðan-
sjávarhrygginn milli fslands og
Grænlands og íslands og Fær-
eyja fyrir endurnýjun djúpsjáv-
arins í Norðurhafi. Þá benti dr.
Unnsteinn m.a. á að yfir 60%
af þeim varma, sem Norðurhöf-
um berst flytjist þangað með haf
straumum, nokkuð berist út með
straumum, en meginhlutinn fari
til bræðslu og til upphitunar á
lofti yfir hafinu.
ísspár háðar veðurspám.
Þá flutti próf. Trausti Einars-
son_ erindi um hafísinn á Norð-
ur-íshafi og Grænlandshafi og ís
komu til fslands. Benti hann m.a.
á að skilyrði á svæðum norðar
en Jan Mayen virðist ekki hafa
veruleg áhrif á ískomu til fs-
lands og ískoma sé ekki veru-
lega háð heildarísmagni á Græn
landshafi. Oví til staðfestingar
hafði dr. Trausti kort, er sýndu,
mikið ísmagn við Svalbarða og
norður í hafi í febrúar 1966, en
síðan træðist það við Austur
Grænland og enginn ís kom til
íslands það ár og kort frá 1965,
er næstheitasti febrúarmánuður
færði okkur ís, vegna langvar-
andi SV-áttar á Grænlandssundi.
Meðalísár hafi verið norður frá,
þegar ís kom til íslands. Þurfi
sérstakar aðstæður, eins og vinda
til að reka ísinn til fslands.
Skipti próf. Trausti ískomu til
íslands í 3 tegundir: A) ískomu
að Horni og Vestfjörðum, sem
verður vegna vinda, straums og
ísþrýstings B) íss við Norður-
land, sem orsakast af suðvest-
lægum vindum og því að vind-
urinn tætir úr ísröndinni og
þjappar ísrekinu að íslandi og
C) fs við Austurland, þegar tota
teygir sig frá ísröndinni og suð
ur með Austfjörðum, en orsakir
geti þá verið þær sömu og í B
lið, en einnig geti norðaustan-
átt stundum rekið ísinn og þjapp
að honum og valdið þessu. Sagði
dr. Trausti, að ískoma virðist því
orsakast aðallega af sérstökum
Veðurskilyrðum á svæðiij, sem
ekki er langt frá íslandi, og að
möguleikinn til að segja fyrir
einstakar ískomur sé þá háður
veðurspám.
Er nýtt kuldatímabil hafiff?
Adda Bára Sigfúsdóttir, veður-
fræðingur, talaði um hitabreyt-
ingar á íslandi frá 1846—1968
og notaði athuganir frá Stykk-
ishólmi til viðmiðunar, þar sem
þar er um að ræða lengstar sam-
felldar veðurathuganir á íslandi.
Sýndu línurit Öddu Báru greini-
lega, að myndin af veðrinu
breytist snöggilega eftir 1920.
Eftir það eru engir vetur „mjög
kaldir“ og aðeins þrír „kaldir“,
en sl. þrír vetur eru þó undir
meðallagi. Skilin hinum megin
vir’ða.st eftir 1851 og 1852, þegar
eru hlýir vetur á undan langri
röð af köldum. Var mikið kulda-
tímabil 1853—1892, þegar eng-
inn hlýr vetur finnst, og annað
kalt tímabil, en þó heldur
hlýrra, 1893—1920, þegar skiptir
um. Varðandi síðustu ár tók
Adda Bára einnig fyrir hitamæl-
ingar á Akureyri og á Raufar-
hötfn, sem er berust veðurstöðva
fyrir hafísátt, og sýndi að sáð-
ustu 3—4 ár eru kaldari en við
áttum að venjast sl. 30—40 ár.
Eru öll árin 1 stig undir meðal-
lagi, ef allar veðurstöðvar eru
teknar á landinu. Ekki vildiAdda
Bára spá því hvort þama væru
oðin skil, úr því yr'ði framtíð-
in að greiða.
Framkvæmdastjóri hafísráð-
stefnunnar er Markús A. Ein-
arsson, veðurfræðingur. Hann
er hér í ræðustól, en á vegg er
mynd af Jóni heitnum Ey-
þórssyni, sem ráðstefnan er
helguð.
Lofthringrásir yfir N-íshafi.
Síðast talaði Helgi Bjönsson,
um hafís og veðufar við Sval-
barða síðustu áratugi. Gerði
hann grein fyrir ísnum við
Svalbarða og helztu rannsókn-
um á hegðun hans. Komst hann
að þeirri niðurstöðu, að engin
ástæða virtist til að ætla að ís
komi til íslands, þó mikill ís sé
þar nyrðra, og ekki sé neitt aug-
ljóst samband þarna á milli. En
ástæða sé til að hyggja að lotft-
hringrásum yfir Norðu-lshafi, til
að spá fyrir um ískomur hing-
að, svo og ísjaðrinum norður af
íslandi og vindum á þeim slóð-
um. Benti Helgi m.a. á að veru-
legan mun mætti sjá á vindum
ísaárin hér, þ.e. 1965 og 1968.
Þá hefðu verfð langvarandi
lægðir í Barentshafi, sem virðiist
hafa haft veruleg áhrif. Ekki
virðist þýða að líta á Svalbarðs-
svæðið eitt, heldur verði að líta
til alls norðursvæðisins, ef spá
eigi um ís við ísland. Þar flytji
vindur ís á milli straumakerfa
og gæti þess í Austur-Græn-
landsstraumi. Sagði hann í því
sambandi frá rannsóknum Þjóð-
verjans Klaus Strubing 1968 um
samband loftihringrásar yfir
Nor’ður-lslafi og ísmagns í Aust-
ur-Grænlandsstraumi.
Ráðstefnunni verður haldið
áfram á morgun og flytja þá 6
menn erindi: Hlynur Sigtry.gigs-
son, veðurfræðingur, Unnsteinn
Stefánsson, haffræðingur, Svend
Aage Malmberg, haffræðingur,
Páll Bergþórsson, veðurfræðing-
ur og Þorbjöm Karlsson.
Glæsilegur
dmælisfagnaður
Sunnufcórsins
SL. laugardag var haldið hátíð-
legt 35 ára afmæli Sunnukórs-
ins á ísafirði. Hófst samkvæmið
m<eð borðihaldi að Uppsölum kl.
8 um kvöldið. Jóhann Ármann
Kjartansson, formaður kórsins,
bauð kórfélaga og gesti þeirra
velkomna, en Ásgeir Sigurðsson
tók síðan við veizlustjórn. Ýmis
skemmtiatriði voru þarna um
hönd höfð.
Sunnuikórinn söng nokkur lög,
undir gtjórn Ragnars H. Ragnar,
og við undirleik Hjálmars Ragn-
arssonar. Frú Kristjana Jóns-
dóttir söng einsöng við undirleik
frú Elísabetar Kristjánsdóttur og
Gunnar Jónsson las upp. Síðan
var dansað til kl. 3, og lék
hljómsveit undir stjórn Vilbergs
Vilbergssonar fyrir dansinum
Samkoma þessi var öll hin
glæsilegasta og sátu hana um
130 manns.
Vinyl-aisbest-gólfflísar.
Linoleum- og hálflinoleumdúkur.
Vinyldúkur m. korkundirlagi m. a.
í glæsilegum parketmynstrum, ávallt
á lager frá
J. Þorláksson & Norömann hf.
<agsSSa»
SBS?5®’
■&
á sólarbring
aö bringiai
„ . „ Vr 500.00
leigaU a«e«'s ' öeins
;i8afbe«dumy*«
— og
mxnun
car rental serwice ©
Rauðarár'stfg 31 — Sími 22022