Morgunblaðið - 28.01.1969, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.01.1969, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 1969 Klukkan tvær mínútur yfir átta, tók hún handtöskuna sína og ullarkápuna og gekk hægt niður stigann. Þegar hún kom í forsalinn, kom hún auga á bretti með böndum þvers yfir, en und ir böndin var stungið bréfum á stangli. Hún gekk að því og sá stórt blátt umslag sem á var rit að „Hr. Peter Fraser Verður sótt“. Síðustu orðin voru krotuð í vinstra hornið með kvenhendi. Einhver forvitni, blandin af- brýðisemi greip hana sem snöggvast. Húii óskaði þess inni lega, að hún ætti heldur að vera að fara að hitta unga Nýsjá- lendinginn. Hann var svo ungur hreinskilinn og blátt áfram. En þegar hún sá stóra dökk- hærða manninn standa við bar- inn, vissi hún samstundis, að þarna var hún ekki hreinskilin við sjálfa sig. Blake McCall var að tala við barþjóninn. Hún sá nú aftur hve hörkulegur vangasvipurinn var — Næstum grimmdarlegur, en þegar hann leit við og sá hana, varð hún fegin að hafa komið. Það fór um hana einhver gleðistraumur, og hún minntist eins jólakvölds end ur fyrir löngu. Þá fékk hún í fyrsta sinn að vera á fótum, eft- ir að dimmt var orðið og þá var farið með hana til að taka móti föður hennar, sem var að koma með skipi.Hún var nú löngu búin að gleyma, hvernig sam- fundir þeirra gengu fyrir sig, en ferðina í myrkrinu mundi hún muna til æviloka. Flugstjórinn brosti og fékk henni stól að sitja á. Hann spurði hana ekki, hvað mætti bjóða henni, en pantaði eitthvað og bauð henni vindling. Lísa reykti sjaldan, en þá samt eina til þess að hafa eitthvað að gera við hendurnar á sér, sem voru taugaóstyrkar. Hún fann líka þörf á því að beina augum hans frá andlitinu á sér, ef hún skyldi ekki geta leynt tilfinn- ingum sínum. Martini-kokteilinn var mjög ljós, en kaldur og bragðgóður. Hún gat aðeins merkt dauft bragð ið af sítrónuberkinum á tungubroddinum. — Er þetta í lagi? spurði hann. — Já, ágætt. Þessi drykkur var ekkert líkur öðrum með sama nafni, sem hún hafði stund um fengið í samkvæmum. — Skál þá fyrir Bretlandi! Hún saup aftur á. — Skál! Hún tók nú að gerast rólegri til sveitarstjórna Vér leyfum oss að hvetja þá aðila, sem hafa með höndum verklegar framkvæmdir, að hefja nú þegar lokaundirbúning þeirra framkvæmda sem ráðgerðar eru á þessu ári. Hagstætt hefur reynzt að bjóða verk út snemma árs. Fást þá jafnan hagstæð boð og auk þess vitneskja um fjárþörf til viðkomandi fram- kvæmda. Vinsamlega hafið samband við oss sem fyrst varðandi undirbúning sumarframkvæmdanna. H.F. ÚTBOÐ OG SAMNINGAR Sóleyjargötu 17, Reykjavík og fór að spyrja hann nánar um þetta samkvæmi, sem þau ætl- uðu í. Hann sagði henni, að það yrði nú ekki í sendiráðinu sjálfu, heldur í húsi manns, sem héti Edward Beamish og væri fyrsti sendiráðsritari. Svo vildi til, að Beamishjónin væru skyld hon- um, sagði hann, en útskýrði samt ekki þann skyldleika neitt nánar. Þau ættu heima í tyrkn- esku húsi, fornlegu, með falleg- um garði við, rétt á árbakkan- um. Konan héti Roxane. Hún væri frönsk-kanadisk að þjóð- erni og hefði gaman af að halda veizlur. Líklega yrði dansað eft- ir mat. Hann sagði þetta rétt eins og honum þætti sá mögu- leiki eitthvað miður. Lísa afþakkaði annað glas, en horfði með athygli á barþjón inn þegar hann blandaði í glas handa flugstjóranum. En rétt í þessu bili komu fleiri af áhöfn inni inn í salinn. Félagi hennar afsakaði sig og gekk yfir gólfið til hinna, sem sátu lengst í burtu Benny og loftskeytamaðurinn veifuðu hendi til hennar. Hana langaði til að fara þangað líka, en þá hefði flugstjórinn nefnt það, hefði hann ætlazt til, að /7 hún færi með honum. Og ef hún færi nú, yrðu hin öll að standa upp. Þau voru sýnilega eitthvað að tala um viðvíkjandi starfinu. Bezt fyrir hana að halda kyrru fyrir þar sem hún var komin. Allt í einu benti flugstjórinn barþjóninum að koma með glös handa áhöfninni, en kom sjálfur til hennar aftur. Hann flýtti sér að tæma glasið, borgaði reikn- inginn, leit á úrið sitt og sagði, að nú væri tími til kominn að fara. Af því að áhöfnin horfði á hana, var hún því fegnust, að hann skýldi ekki hjálpa henni niður af stólnum. Þau brostu öll til hennar og hún veifaði til þeirra. Benny rétti upp þumal- fingurinn, svo að lítið bar á. Ekki vissi hún hvað hann vildi gefa tiil kynna með þessu, en hann var vinur hennar, sem hún vissi að væri henni velviljaður. Við útgöngudyrnar var vegg- ur alsettur speglum og potta- jurtir stóðu á járnhillum og breiddu út blöðin. Lísa horfði á glæsilega mynd samferðamanns síns í speglinum. Hún strauk háriokk, sem ætlaði að fara að fiFUNA VARI ELDVARNAR MALNING FUNAVARI er plastbundin eldvarnarmálning, er blæs upp við hita og myndar frauð. sem logar ekki en einangrar vel gegn hita. FUNAVARI tefur því mjög fyrir íkviknun í efld- fimum vegg- og loftklæðningarefnum og hindr- ar þannig lengi vel útbreiðslu elds. Á sama hátt einangrar FUNAVARI stálbita og járnhurðir og varnar því að málmurinn hitni og leiði hita til ' reiðslu elds. MALNING 9 KÚPAVOGI Sími 40460 vera eitthvað óþægur og lagaði kápuna á öxlunum. — Verið þér ekki að þessu snurfusi! hvæsti Blake MrCall snögglega til hennar. Þér vitið ósköp vel sjálf, að þér ltið ágæt- lega út. Verið þér bara róleg! Ég skal segja til ef eitthvað dett ur utan af yður. —Taxi! Áður en hún vissi af því, sátu þau í fínum amerískum bíl, sem maður ók, með eitthvað, sem líktist karklút um höfuðið. Útvarpið var í gangi í bíln- um. Einhver vel'lutónlist, sjálf- sagt, en Lísa kunni samt vel við hana. Þessi tónlist rétt eins og mýkti ofurlítið allt þetta harkalega umhverfi, en þó ekki harðneskjulegan vangasvipinn á McCall. Öðru hverju benti hann á eitthvað framandlegt, sem sást út um gluggann, svo sem nakt- an krakka, sem þambaði Coca Cola eða þá akfeitan gamlan mann, sem hélt á kippu af brúð- um eða loftbelgjum og þá mýkt- ist svipurinn á honum ofurlítið og þau hlógu bæði. Við endann á aðálstrætinu, beygðu þau til vinstri og Lísa þekkti aftur brúna, sem þau höfðu séð á leiðinni frá flugvell inum. Skömmu seinna var enn beygt til vinstri og óku nú fram með ánni, og staðnæmdust brátt við mjög stórt hús með flötu þaki. Stóri forskálinn var upplýst- ur af boglömpum, sem foru fald- ir einhversstaðar í runnunum við hliðið. Steinsúlur beggja megin við innganginn voru þaktar sterklitum dökkrauðum blómum, sem uxu út úr trjábol, sem líktist vínviði. Þjónar í tyrkneskum búningi fylgdu þeim gegn um geysistór an forsal og út í opinn húsa- garði. Gestgjafinn, gildvaxinn fyrirmannlegur maður kom að fagna þeim. Lísa var kynnt og Edward Beamish og fylgdarmað ur hennar heilsuðust með því að gefa hvor öðrum olbogaskot og hnippingar og tala eitthvað í hálfum hljóðum. Gestgjafinn af- sakaði, að konan sín væri ekki við, rétt í bili og eftir stutt sam tal,bað hann Blake að fylgja Lísu gegn um húsið og út í garð- inn. Hrúturinn 21. marz — 19. apríl Þær ákvarðanir, sem þú kannt að taka í dag, munu hafa æv- arandi áhrif, svo að ven er að vanda sig. Gættu heilsu þinnar vel. Nautið 20. apríl — 20. maí Þú hefur talsverða vinnu af því að endurskipuleggja fjár- mál þín. Vandamál gamla fólksins krefjast framlags þíns. Þú ert að hressast. Tvíburarnir 21. maí — 20. júní Þú getur fengið góð ráð, ef þú athugar vel aðstæðurnar. Leggðu eitthvað fyrir reglulega, ef þér er það mögulegt. Krabbinn 21. júní — 22. júlí Syndu nú hæfileika þina. Láttu flest flakka, þvl að fólk kann að meta þig. Þér verður vel ágengt I líkamsræktinni, ef þú byrj- ar fyrir alvöru. Þér gengur vel heima fyrir. Ljónið 23. júlí — 22. ágúst Athyglisverðar manneskjur verða á vegi þínum. Þér verður vel ágengt í ýmsu nýju, þótt þú ráðir ekki við það allt. Þín- ir nánustu koma þér á óvænt. Meyjan 23. ágúst — 22. sept. Byrjaðu snemma á því, sem þú laukst ekki við í gær, og er þú skipuleggur dáiítið betur, gengur þér eftir þvi. Eldra fólk leggur þér nokkurt lið. Vogin 23. sept. — 22. okt. Málefni er varða innanrikismál og ískaldur veruleikinn eru ofarlega á baugi. Fylgdu fast eftir, það kann að verða þér happa- drjúgt. Fólk leitar ráða hjá þér. Farðu varlega með fjölskyldu- máietni. Sporðdrekinn 23. okt. — 21. nóv. Þú færð heilmikinn innblástur snemma dags. Bjóddu vin- um þínum heim til skrafs og ráðagerða í kvöld, en farðu I rúmið á kristilegum tíma fyrir það. Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des. Framtíðaráætlanir, einkum er varða ferðalög og breytingar ganga vel. Ljúktu við heildaráætlun, en láttu smáatriðin bíða. Steingeitin 22. des. — 19. jan. Það er ekki ástæða til að rasa um ráð fram. Þú hefur sand af smáatriðum að fara í gegnum. Kannski ættirðu að fá ein- hverr. til þess að aðstoða þig við fyrstu atrennu f þeim efnum. Hættu samt það snemma að þú ofþreytir þig ekki. Vatnsberinn 20. jan. — 18. febr. Það gengur hægt með framkvæmdirnar, en það er verið að leggja síðustu hönd á þær. Þú verður hagsýnni. Haltu áfram I sama dúr. Fiskarnir 19. febr. — 20 marz Eðiishvötin er sterk og getur leitt þig á nýtt spor. Og ei þú kryfui málið til mergjar, hefurðu ekki nein vandamál við að glíma við lengur. Þú hittir skemmtilegt fólk í kvöld, einhvem, sem þér þykir gaman að tala við.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.