Morgunblaðið - 28.01.1969, Page 10
10
MORGUN'BLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JAN'ÚAR 1969
Hafrannsóknir á skipum Eimskips
Rannsaka sjávarhita, plöntu- og dýrasvif í sjónum
EIMSKIPAFÉLAG íslands hef-
Kristján Aðalsteinsson skipstjóri á Gullfossi við rannsóknar-
tækið á Gullfossi, sem kemur til með að mæla sjávarhita
niður á 500 metra dýpi: Ljósmynd Mbl. Á. J.
ur nú tekið að sér að framkvæma
ákveðnar rannsóknir fyrir
skoskn Hafrannsóknarstofnunina
í sambandi við söfnun sýnis-
horna á plöntu og dýrasvifi í
sjónum á siglingaleiðum skipa
Eimskips. Þá verður auk þess
sérstakt tæki um borð í Gull-
fossi, sem kemur til með að mæla
sjávarhitann í hafinu á siglinga-
leið skipsins og mun sjávarhitinn
mældur allt niður á 500 metra
dýpi. í gær var unnið að því að
ganga frá tækjunum um borð í
Gullfoss.
Á fundi með blaðamönnum í
gær sýndi Guðmundur Jónsson að
stoðarmaður hjá Hafrannsóknar-
stofnun íslands tækin, en fulltrúi
fré skosku Hafrannsóknarstofnun
inni skýrði tilgang rannsóknanna.
Kristján Aðalsteinsson skipstjóri á
Gullfossi var einnig á fundinum,
en eins og kunnugt er hafa skip
Eimskipafélagsins um langt ára
skeið aðstoðað við ýmiskonar
rannsóknarstarfsemi á sjó. Frá
1957 hafa skip Eimskips siglt um
183 þús. mílur með ýmis haf-
rannsóknartæki og þar af hefur
Gullfoss siglt 58 þús. mílur.
Tækið sem notað verður til
þess að rannsaka plöntu og dýra
svif í hafinu á siglingaleiðum
skipa Eimskips verður dregið á
eftir skipunum í taug. Þetta tæki
mun einnig safna upplýsingum
um átumagn og göngur fiskteg-
unda.
Tækið sem mælir hitastigið í
sjónum er sérstakur hólkur, sem
er skotið í þar til gerðri byssu í
djúpið. Fremst í hólknum er hita
mælirinn, sem er sjálfriti og send
ir upplýsingar í gegn um 500 m.
langan vírþráð, sem rekst út frá
hólknum á leið hans niður í djúp-
ið, en annar eradi vírsins er
tengdur í mælitækið í skipinu,
sem ritar niður hitastigið. Þeg-
ar hólkurinn er síðan kominn
niður á 500 metra dýpi slitnar
vírþráðurinn og mælingunni í
það skipti er lokið.
Allar rannsóknirnar á skipun-
um munu framkvæmdar af yfir-
mönnum skipanna, en þær munu
standa yfir í mörg ár. Hafrann-
sóknarstofnun íslands mun að-
stoða skosku Hafrannsóknarstofn
unina eins og þarf.
Fulltrúi skozku Hafrannsókn-
arinnar gat þess að það væri
ákaflega áríðandi og mikilvægt
í sambandi við þessar rannsókn-
ir að þessar tilraunir væru gerð
ar í íslenzku skipunum þar sem
þau sigldu á siglingaleiðum sem
engin önnur skipafélög sigldu
stöðugt á og kostnaður við að
halda úti sérstökum rannsóknar-
skipum væri svo gífurlegur að
það kæmi vart til greina í þess-
um rannsóknum einum. Hér er
mesta áherzlan lögð á siglinga-
leiðirnar frá Reykjavík til New
York annars vegar og til Ev-
rópu hins vegar, en auk veður-
skipa eru íslenzku skipin svo til
þau einu, sem framkvæma þess-
ar rannsóknir á þessu svæði
Norður-Atlantshafsins.
Alls 6 þjóðir aðstoða Skota
við þessar rannsóknir á Atlants-
hafssvæðinu, en það eru: fslend-
ingar, Danir, Hollendingar,
Bandaríkjamenn, Bretar og Norð
menn.
Árið 1957 hófust ýmsar rann-
sóknir á vegum skozku Hafrann-
sóknarstofnunarinnar á Norður-
Atlantshafinu og þá kom í ljós
að mikið magn af t.d. karfalirf-
um var á vissu svæði í hafinu.
Árin 1961 og 1963 var svo gerð
HANDBÓK bænda 1969 er kom-
in út. Þetta er nitjándi ár-
gang-ur bókarinniar. Mangir ráðu
nautar og sérfræðinigar hafa lagt
efni af mörkum í bókina. Helztu
greinair að þessu sinini eru:
Þróum landbúnaðarins, þar er
skýrt fré helztu fraimleiðsluiþátt-
um búgkaparins, tl skýringa eru
biintar litmyndir af töfkum, sem
sýndar voru í þróumardeild
Landbúnaðarsýningarinn.ar ’68.
Haigfræðákaifla bókarirmar akrif-
ar Ketill Hanmesson, þar eru
birtar niðunstöður búreikminga
frá árimu 1967. Þar sést hvað
bændur höfðu í kaup, og reksír-
araflkoma búanma og kostnaður
við eimdtalka búgreinar, ftarlegar
leiðbeiningar eru um færslu bú-
reikninga. Þá eru áburðarleið-
beiningar, þáttur um niðursttöður
ti'lrauma. KaÆli er um tækni-
ur út víðtækur leiðangur frá
mörgum þjóðum til þess að
kanna þetta til hlítar og á svæð
inu frá 300-500 mílur suðvestur
af Reykjanesi fundust mestu
karfalirfur, sem hafa fundist á
Atlantshafinu, en ekki hafði áð-
ur verið vitað með vissu um
hrygningarsvæði karfans. Um
þetta svæði er einmitt siglinga-
leið Eimskipafélags-skipanna til
Ameríku og því er eru rannsókn
ir frá þessum skipum svo mikil-
vægar í þessu efni.
Eins og fyrr getur eru þessar
rannsóknir á vegum skozku Haf-
rannsóknarstofnunarinnar, en
Hafrannsóknarstofnun íslands
hefur milligöngu um þær að
nokkru marki.
Los Angeles, 23. janúar. AJP.
RÉTTARHÖLDIN yfir Sinhan
Sirhan, ganga fremur seint og í
dag var enn ekki búið að velja
í kviðdóminn. Að vísu var búið
að velja tólf manns fyrir notkkru,
en verjendur og sækjendur hafa
haft ýmislegt við það val að
athuga og neitað nokkrum.
Báðir aðilar eru mjög varkárir
við val kviðdómenda og spyrja
þá margra spurninga um álit
þeirra á málinu. Ef þeir virðast
hafa einhverjar fastmótáðar skoð
anir, með eða gegn sakbomingn
um, fá þeir ekki sæti í kvið-
dómnum.
nýjungar. Stutbur kafli er fyrir
garðynkjubændur, síðan er ítar-
leg grein um fóðrum mjól'kuirkúa
og önnur um ræktum á ailhvítu
fé og fleiri greiinar um búfjár-
rækt. Fyrir húsmóðurina er
grein um frystimgu grænmetis.
Birt er regiugerð um elátrum,
mat og meðferð sláturafurða.
Þessa reglugerð þurtfa bændur
nauðsynlega að kymma sér til
hlítar. Auk efnisins, sem að
framam greinir em margar
stuttar greinar í bókimmi.
Handbkkin er 384 blaðsíður,
þar af eru 32 litmyndasíður.
Ritstjóri er Agmar Guðmasom.
Prentun anmaðisit Prentsmiðja
Jóns Helgasomar. Bókin fæst hjá
Búnaðarfélagi fslamds í Bænda-
höilinni og hjá fiiestum búnað-
arfélagsfonmönmum.
(Frá Búnaðarfélaigi íslamds).
skipum Eimskipafélagsins og mun svifið siast í tækinu frá sjón
um og lenda í sérstakri grisju sem vefst upp á hólk, en hólk-
urinn er í formalíni. Þannig mun svifið geymast án þess að
rotna. Á meðfylgjandi mynd sést tækið í sjónum tengt við skip.
Handbók bænda komin út
Áiit Trudeaus í hættu
Hann virðist ekki eins kaldur og
rólegur og áður og vill nú vera í friði
FYRSTA opinbera utanlands-
ferð hins nýja forsætisráð-
herra Kanada, Pierre Elliott
Trudeau, hefur valið almenn-
um vonbrigðum. Stjórnarand-
stæðingar hafa gagnrýnt hann
harðlega fyrir að hafa látið
lítið að sér kveða á samveld-
isráðstefnunni í London.
Blaðamenn, sem hafa verið
honum mjög vinsamlegir, hafa
snúizt öndverðir gegn honum.
Síðast en ekki sízt hefur hann
lækkað í áliti hjá mörgum
Kanadamönnum, sem hafa
haft mikið dálæti á honum
vegna frjálslegrar og óþving-
aðrar framkomu hans.
Trudeau hefur haft orð fyr
ir að vera „kaldur og rólegur
menntamaður”, sem berst mik
ið á í klæðaburði sem öðru.
Blaðamenn hafa átt hvað
mestan þátt í því að hann hef
ur fengið þessa sérstæðu
frægð, sem hefur aflað honum
gifurlegra vinsælda og átti
hvað mestan þátt í sigri hans
í þingkosningunum í Kanada
í fyrra. Nú hefur Trudeau
veitzt að blaðamönnum fyrir
ósæmilega framkomu, og þessi
frægð hans er í hættu.
Að sögn fréttaritara New
York Times í Ottawa hafa
landar hans mestar áhyggjur
af því, að hann virðist hafa
glatað þeim hæfileika sem
hann hefur verið dáðastur fyr
ir, að vera alltaf kaldur og ró-
legur. Á síðasta blaðamanna-
fundi sínum í London úthúð-
aði Trudeau blaðamönnum,
sem fylgt höfðu honum hvert
fótmál úr einni veizlunni í
aðra af mikilli þrautseigju.
Hann neri þeim því um nasir,
að þeir hefðu verið dónalegir
við stúlkur, sem hann átti
stefnumót með á sama tíma
og hann hafði lofað að tala við
blaðamenn.
Að sögn fréttaritarans hafa
hugsandi Kanadamenn mestar
áhyggjur af því, hversu mjög
honum virðist nú annt um að
einkalíf hans sé látið í friði.
Mörgum finnst einkennilegt,
jafnt vinum hans sem andstæð
ingum, að hann virðist nú
vilja slökkva á ljósunum, sem
lýstu upp braut hans til frægð
ar og frama. Fyrir aðeins einu
ári datt fáum í hug, að Tru-
deau yrði forsætisráðherra.
í kosningabaráttunni í fyrra
vor börðust stjórnarandstæð-
ingar fyrst og fremst fyrir mál
efnum, en Trudeau vann
geysimörg atkvæði með fram
komu sinni. Hann hugsaði ekk
ert um borgaralegan virðu-
leik og gerði það sem honum
datt í hug: klæddist leðurjökk
um, dýfði sér í sundlaugar of
an af háum stökkpöllum og
dansaði við fallegar stúlkur.
★
Hann efndi til þingkosn-
inga upp á von og óvon og
veðjaði rétt á þann möguleika,
að Frjálslyndi flokkurinn, sem
kjörið hafði hann leiðtoga
sinn eftir að Lester B. Pear-
son sagði af sér, fengi hreinan
meirihluta. Litríkur persónu-
leiki hans kom af stað„tru-
deaumaníu", sem stuðlaði að
sigri frjálslyndra. Á þeim
tíma átaldi hann blaðamenn
fyrir að taka sig of hátíðlega.
Eftir heiimkomuna varð
Trudenau að stríða í ströngu
á þingi. En hann hefur ekki
fengizt til að gera nánari
grein fyrir þeim reiðilegu
ummælum gínum, að ef
blaðamenn haldi áfram að
rannsaka einkalíf sitt, ætti
hann ef til vill að safna upp-
lýsingum um ^inkalíí þeirra.
Vafasamt er að Trudeau geti
haldið einkalífi sínu leyndu
og aðskildu frá opinberu lífi.
Þar vegur hann að undirstöð-
um vinsælda sinna.
Hvað sem því líður stendur
Tr.udeau andspænis erfiðum
ákvörðunum. Þagar mikilvæg
vandamál hafa borið á góma,
hefur hann alltaf vikið sér
undan að svara á þeirri for-
sendu, að athugun fari fram
á stefnu stjórnarinnar.
Pierre Elliott Trudeau: Hann
á nú ekki upp á pallborðið
lengur hjá blaðamönnum.
1 einu mikilvægu máli,
þátttöku Kanada í Atlants-
hafsbandalaginu, hefur hann
aðeins heitið því, að engin
fækkun verði í herliði því,
sem Kanada leggur til banda-
lagsins, um eins árs skeið.
Um framlag landsins til
bandalagsins eftir þann tíma
verði tekin ákvörðun, þegar
ríkisstjórnin hafi lokið rann-
sókn sinni á utanríkisstefn-
unni, sennilega í vor.
Hann vill, að Kanada við-
unkenni Peking-stjórnina, en
hefur augsýnilega ekki á-
kveðið hvernig koma eigi því
til leiðar.
f utanlandsferð sinni gekk
Trudeau á fund Páls páfa og
lagði til við hann, að Kanada
og Vatíkanið skiptust á sendi-
herrum, en hann tók skýrt
fram að hann yrði fyrst að
ræða málið við ríkisstjórn
sína.
★
Síðan samveldisráðstefn-
unni lauk hafa þær grun-
semdir andstæðinga Trude-
aus út röðum íhaldsflokksins
aukizt um allan helming, að
hann sé í raun og veru fylgj-
andi því að Kanada verði
gert að lýðveldi þrátt fyrir
það lof, sem hann hefur borið
á samveldið þess efnis, að
það sé „klúbbur“, þar sem
28 forsætisráðherrar geti
skipzt á skoðunum. Andstæð-
ingar hans hafa einnig heyrt
íiann láta í ljós aðdáun sína
sem lögfræðingur á stjórnar-
skrá Bandaríkjanna, einfcum
því valdi, sem hún veitir
hæstarétti.
Erfiðasta viðfangsefni Trud-
eaus er að leysa Quebec-
vandamálið, sem alltaf er ná-
lægt. f næsta mánuði iheldur
hann fund með forsætisráð-
herrurn hinna 10 fylkja Kan-
ada, og þá mun reyna á alla
hæfileika hans sem sérfræð-
ings í stjórnlögum, þegar
hann verður að mæta kröf-
um um sérstök völd til handa
frönskumælandi Kanadamönn
um, sem eru sterkastir í
Quebec, en um leið að varð-
veita einingu Kanada. Ský-
lausasta skuldbindingin, sem
Trudeau hefur tekizt á hend-
ur, er að varðveita þjóðar-
einingu.