Morgunblaðið - 22.02.1969, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. PEBRÚAR 1969.
5
Frá sveit til sjávar
Verkfallsíjötrar leystir
NÚ er sem þjóðlíf allt hafi
verið leyst úr fjötrum. All-
ir anda léttar og fagna því
að hið þjóðhættulega verk
fall er um garð gengið. Að
sjálfsögðu er það ekki hin
æskilega lausn á vinnudeil
um, að þær skuli þurfa að
leysa með lagasetningu, en
hér var of mikið í húfi fyr-
ir þjóðarheildina.
Hitt er sivo annað mál, að
það ber ríka nauðsyn til að
endurskoða löggjöfina um
samskipti vinnuveitenda og
vinnuþiggjenda. Það hlýtur
að vera hægt að finna lausn
á þeim vanda sem við er að
glíma, þegar til launasamn-
inga kemur. Um lagasetningu
í þessu efni þarf að vera víð-
tækt samstarf launastétta og
vinnuvpitenda, því þess geng-
ur enginn dulinn að verkföll
eru böl, sem við leiðum yfir
okkur sjálf, böl, sem enginn
græðir á og sem í raun réttri
bitnar á hverjum þjóðfélags-
þegn, hvort sem hann er beinn
aðili að vinnudeilunni eða
ekki.
Þarna er fyrir hendi óleyst
verkefni, sem verður að
finna lausn á sem fyrst, en
þó ekki þannig að hrapað
sé að neinu. Nú vona hinsveg
ar ailir að vertíðin verði gjöf-
ul og blessunarrík og þá mun
vá atvinnuleysisins víkja frá
dyrum okkar.
Þróttmikill iðnaður
íslenzkur iðnaður hefir á
undanförnum árum átt í
harðri baráttu við frjálsan
innflutning. Forystumenn iðn
aðarmála í landinu hafa að
vísu talið samkeppni þessa
talsvert miskunnarlausa, en
þó engan veginn svo, að hún
hafi komið iðnaðinum á kré.
Þessi atvinnugrein hefir hins
vegar staðist raunina og er
nú undir stærri og veigameiri
átök búin. Þegar rétt hlutfall
er komið milli erlends og inn-
lends gjaldmiðils kemur í
ljós, að íslenzki iðnaðurinn er
í mjög mörgum greinum fylli
lega samkeppnisfær við iðnað
nágrannalanda okkar, jafnvel
þótt íslenzki iðnaðurinn þurfi
að vinna úr erlendu hráefni,
sem nemur allt upp í 70
hundraðshluta. Erlenda sam-
keppnin hefir einmitt knúið
innlenda iðnaðinn til þróun-
ar. Hann hefir verið vélvædd
ur og allri hugsanlegri hag-
ræðingu fyrir komið. Og það
sem er hvað gleðilegast, er,
að hann hefir fyrst og fremst
bætt samkeppnisaðstöðu sína
þegar um vandaðar vörur er
að ræða.
Stóriðja er eitt af glæsileg-
ustu verkefnum framtíðarinn-
ar og við bindum miklar von-
ir við að stóriðjan eigi eftir
að verða einn áhrifaríkasti
þátturinn í stöðugleika okkar
efnahagskerfis. Það er svo
annað mál að stóriðjan krefst
mikillar fjárfestingar og fjár-
festingin þar verður meiri en
í flestum öðrum atvinnugrein
um miðað við þann fólks-
fjölda, sem getur vænzt at-
vinnu við hann.
V innumarkaður
Það er alkunna að mikill
fjöldi fólks kemur árlega inn
á vinnumarkiðinn og þessu
fólki verður að sjá fyrir störf-
um. Það er einmitt hinn al-
menni iðnaður, bæði vet'k-
smiðjuiðnaður og smáiðnaður,
sem að langmestum hluta
verður að taka við þessu fólki.
Það er því einkar gleðilegt að
nú skuli iðnaður okkar vera
kominn á þð stig tækni og
hagræðingar, að hann eigi fyr
ir sér bjarta framtíð. Með
gengisfellingunni eða samræm
ingu erlends og innlends gjald
miðils, hefir iðnaðurinn nú
sína miklu möguleika. Það er
sitthvað að leysa rekstrarfjár-
skort blómlegrar atvinnugrein
ar, sem hefir allar líkur til
að gefa góðan arð, heldur en
veita stöðugt fé til starfsemi
sem er á vonarvöl. Að sjálf-
sögðu verður rekstrarfé ekki
fengið sem manna af himn-
um ofan, en engin efnahags-
starfsemi verður rekin á heil-
brigðan hátt á íslandi, nema
jafnvægi sé milli erlends og
innlends gjaldmiðils.
Nátengd iðnaðinum, og
raunar grein á sama meiði, er
verzlunin. Gegn henni hefir
verið rekinn þjóðhættulegur
áróður um áratugi. Það má
Skákþing Reykjavíkur, úrslitakeppni:
Jón Kristinsson sigurstrnnglegur
JÓN Kristinsson hefur nú næst-
um tryggt sér sigur í úrslita-
keppninni á Skákþingi Reykja-
víkur þetta árið. Jón vann Ha-jv
ey Georgsson í sjöundu umferð
mótsins og hefur nú 6 vinninga
af sjö mögulegum, unnið 5, gert
2 jafntefli og engri tapað.
Önnur úrslit í 7. umferð urðu
þau að Björn Þorsteinsson vann
Gunnar Gunnarsson og Gylfi
Magnússon vann Björn Sigur-
jónsson, en Frank Herlufsen og
Bragi Halldórsson eiga biðskák.
Ólafur H. Ólafsson sat yfir.
í áttundu umferð, sem tefld
var í fyrrakvöld vann Björn Þor
steinsson Frank og Björn Sigur-
jónsson Gunnar. Skákir Braga og
Harveys og Ólafs og Gylfa fóru
í bið og stendur Ólafur betur í
skák sinni viS Gylfa.
Staðan eftir átta umferðir er
þannig: Jón Kristinsson hefur 6
(af 7), sem fyrr segir, Gylfi 5 (7)
Gunnar 4 (7), Björn S. 3% (6),
Björn Þ. 3 (7), Bragi 2 (5), Frank
og Ólafur IV2 (5) hvor og Harvey
1% (6).
Biðskákir verða tefldar í dag,
en síðasta umferðin á morgun
og þá tefla saman: Jón og Bragi,
Harvey og Björn Þ., Frank og
Björn S. og Gunnar og Ólafur
en Gylfi situr yfir.
MYNDAMOT hf.
PRENTMYNDAGERÐ
AÐALSTR/ETI 6
SÍMI 17152
öllum ljóst vera, að enginn iðn
aður væri til, ef engin verzl-
un væri. Iðnvarningurinn hef-
ir ekki sýnt ágæti sitt fyrr en
hann er kominn gegnum verzl
unina í hendur neytenda. Það
er því vegið að öllum grund-
vallaratvinnuvegum okkar
um leið og vegið er að verzl-
uninni. Það er jafn fávíslegt
að kalla verzlunarstéttina arð-
ræningja, afætur eða verð-
mætasóandi atvinnustétt, eins
og að kalla sjómenn, iðnaðar-
menn og bændur niðrandi
nöfnum. Það vita allir að
hvarvetna er misjafn sauður
í mörgu fé og framhjá því
komumst við ekki í verzlun-
arstéttinni, fremur en öðrum
stéttum. Hitt er svo staðreynd
að íslenzkir verzlunarrekend-
ur eru yfir höfuð vel mennt-
aðir og færir í sínu starfi og
fólk verður að skilja það, að
í einni þjóðfélagsbyggingu er
verzlunarmaðurinn engu þýð-
ingarminni starfsmaður en
sjómaðurinn, bóndinn eða
verkfræðingurinn. Hinn gróni
og illkvitni áróður í garð
verzlunarstéttárinnar er ekki
annað en ofstæki vanþroska
fólks, sem ekki skilur, eða
vill skilja, eðli og uppbygg-
ingu frjáls þjóðfélags.
Hættulegur dróður
gegn verzluninni
Okkur fslendingum ætti að
vera allra manna ljósust þýð-
ing farsællar og öflugrar verzl
unar. Á mest'a niðurlægingar-
tímabili þjóðarinnar var lé-
leg verzlun hennar mesta
helsi. Aldamótaáróður fram-
sóknar gegn kaupmannastétt-
inni er nú orðinn snara um
háls þeirra eigin óskabarns,
samvinnuhreyfingarinnar.
Annað þýðingarmesta atrið-
ið í sambandi við rekstur eðli
legrar og heilbrigðrar verzl-
unar er afnám kerfis jafnaðar
mennskunnar í formi verðlags
ákvæða. Af langvarandi
bundnum verðlagsákvæðum
leiðir ekki annað í þjóðfélag-
inu en óheilbrigða verzlunar-
hætti. Verðlagsákvæði eiga
engan rétt á sér annan en sem
ráðstöfun að grípa til á hættu
tímuim, þegar ógnandi verð-
sveiflur eiga sér stað eða vöru
skortur og þá aðeins þann
tíma, sem mesta hættuástand-
ið ríkir.
Okkur Íslendingum ríður á
að efla allar okkar atvinnu-
stéttir og virða þær og meta.
Sá fráleiti öfundaráróður að
níða þá, sem komast í efni og
álnir, verður að leggjast nið-
ur, því okkur er ekkert eins
nauðsynlegt, til grundvallar
góðri afkomu almennings,
eins og efnahagslega sjálfstæð
ir atvinnurekendur, bæði ein-
staklingar og félög, hvort sem
eru stór eða smá. Að merg-
sjúga atvinnuvegina er það
sama og svelta þjóðina í hel.
Hvaö er
I Tollending-
urinn
Henri aö
lier?
Henri? Henri Wintermans auðvita'ð. Hollenzkur og er
frægur um allan heim.
Henri Wintermans er hollenzkur vindill - eða
fremur - úrval margra stærða hollenzkra vindla.
Sumir eru stuttir og grannir, aðrir langir; en svo
Iengi, sem þeir bera nafnið Henri Wintermans,
veiztu atS gæðin eru tryggð. Þess vegna selst Henri
Wintermans betur en nokkur annar hollenzkur vindill
f löndum svo flarri hvort öðru sem Bretland og Ástralfa..
Kynnizt Henri Wintermans Short Panatella
Rétta stærðin fyrir alla. Hæfllega langur. Hæfllega
gildur. Hæfllega bragðmikill. Hæfllega mildur.
Seldur 1 5 stykkja pökkum.
Kynnizt Henri Wintermans Cigarillos
(Við kölluðum þá áður Senoritas)
£ lengd við “King-Size” vindling, en gildari. Ekta
hollenzkur smávindill, með hinu milda og gðða Henri
Wintermans bragði.
Seldur í 10 stykkja pökkum.
HENRI WINTERMANS
HIlsTN ALÞJÓÐLEG-I HOLLENDING-TJIl
Umboðsmenn: GLOBUS H/F.