Morgunblaðið - 22.02.1969, Síða 24

Morgunblaðið - 22.02.1969, Síða 24
f 24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1969. - BORGARSTJÖRN Framhald af bls. 12 1969. Niðurstaða hennar gerir ráð fyrir rekstrarhagnaði að íjárhæð um kr. 515 þús. Nefndin varð sammála um að 6kipta .bæri um vélar í b.v. Þor- keli mána, enda vél hans svo lé leg að togarinn gæti stöðvast Ihvenær sem er. Þetta er þó bundið þeirri forsendu að hag- kvæm lán fáist til þessara fram- kvæmda, þannig að ekki þurfi sérstaklega að taka fé af út- svörum borgarbúa til þessarar framkvæmdar. FJÁRMÁL B.Ú.R. Þriðja meginatriðið, sem at- hugun nefndarinnar beindist að, voru fjármál BÚR, einkum sam- skipti BÚR við lánastofnanir og ríkisábyrgðarsjóð svo og fram- kvæmdasjóð borgarinnar. Um við ræður við ríkisábyrgðarsjóð og fiskveiðisjóð er ítarleg skýrsla í nefndarálitinu, sem ég tel ekki ástæðu *il að lesa hér upp. Þæx tvær stofnanir eru helztu lánardrottnar BÚR að því er stofnlán snertir. í viðræðum við þessar stofnanir var farið fram á, að eftirstöðvum lánanna yrði breytt í lengri lán og samið yrði um vanskilin, eins og nánar greinir. í skýrslunni. í stuttu máli sagt voru undirtektir ekki góðar. Nokkur fyrirgreiðsla fékkst þó hjá báðum þessum stofnunum, sem lýst er í nefnd- arálitinu, en engan veginn neitt í þá átt, sem farið var fram á. Var það greinilegt að þessar lánastofnanir töldu það ekkert ofverk borgarsjóðs að taka á sig þessar graiðslur, ef fyrir- tækið sjálft gæti ekki undir þeim staðið. Ekki er um umtalsverðar fjár hæðir að ræða í vanskilum eða eftirstöðvum hjá öðrum lána- stofnunum eða eftirstöðvum hjá öðrum lánastofnunum og fram- kvæmdastjórar BÚR töldu ekki rétt að rætt yrði við einstaka viðskiptamenn um sérstaka greiðslusamninga, en fram- kvæmdastjórarnir hafa með dag lega afgreiðslu þeirra að gera. Féllst nefndin á það sjónarmið. í þessu sambandi er rétt að geta þess að fulltrúar nefndarinnar áttu filnd með sjávarútvegsmála ráðherra til að ræða almennt Aim rekstrarvandamál togara. Mun ég nú víkja að lánum Bæjarútgerðarinnar hjá Fram- kvæmdasjóði Reykjavíkurborg- ar. Um skipti Framkvæmdasjóðs, Bæjarútgerðar Reykjavíkur og borgarsjóðs segir svo í nefnd- arálitinu: „Hinn 31.12. 1967 nam bók- færð skuld B.Ú.R. við Fram- kvæmdasjóð kr. 132.547 þús. Reikningslegu uppgjöri fyrir ár- ið 1968 er ekki lokið, en horfur eru á, að skuld þess muni hækka um EÚlt að kr. 30 millj. á því ári. Skuldin ííefur myndast allt frá árinu 1947, en rúmur helm- ingur hennar, eða um kr. 67 millj., er frá árunum 1964— 1967. Af skuld Bæjarútgerðarinnar við Framkvæmdasjóð eru kr. 30.6 millj. vegna vaxta. Fullir vextir hafa ekki verið reiknað- ir af skuldinni eins og hún var á hverjum tíma og yfirleitt hafa þeir verið mun lægri en út- lánsvextir banka. Þeirri reglu hefur verið fylgt, að Bæjarút- gerðinni hafa verið reiknaðir sömu vextir og Framkvæmda- sjóður hefur orðið að greiða borgarsjóði. Þar sem framlög til Fram- kvæmdasjóðs eru mun lægri en sú fjárhæð, er Bæjarútgerðin skuldar sjóðnum, og annað eig- ið fé Framkvæmdasjóðs brúar ekki bilið, hefur borgarsjóður orðið að lána Framkvæmdasjóði samtals um kr. 72.4 millj. miðað við árslok 1967. (Þar af eru kr. 7.0 millj. íærðar til skuldar á hlr. hjá Landsbankanum á reikningi Framkvæmdasjóðs í árslok 1967). Um útvegun þessa fjár hefur borgarsjóður ekki átt annars kostar en leita til lánastofnanna, aðallega í formi yfirdráttarláns á hlaupareikningi. Þau sjónarmið hafa komið fram, að framlag Framkvæmda sjóðs til Bæjarútgerðarinnar sé áhættufé, sem ekki beri að reikna til skuldar hjá útgerð- inni, og a.m.k. eigi ekki að reikna af því vexti. Einnig hefur verið á það bent, að skuld Bæj- arútgerðarinnar vegna þeirra togara, sem ekki eru lengur í eigu hennar, nafi í árslok 1967 verið tæplega kr. 67 millj. og verði sú krafa ekki gerð til þeirra atvinnutækja, sem nú eru i rekstri, að þau beri þennan skuldabagga. Enginn vafi er á því að það er mikill þáttur í greiðsluerf- iðleikum borgarsjóðs undanfar inna ára að hafa þurft að greiða þannig í Framkvæmdasjóð vegna Bæjarútgerðarinnar um 72.4 millj. króna miðað við árslok 1967 án þess að fyrir því hafi verið áætlað í fjárhagsáætlun. Nemur þetta svipaðri upphæð og yfirdráttarlán borgarsjóðs í Landsbanka fslands hefur hæst orðið. Ég viðurkenni að frá einhliða hagsmunasjónarmiði Bæjarút- gerðar Reykjavíkur væri hag- kvæmt fyrir útgerðina að fá þessa skuld strikaða út með öllu og þá um leið að hætt yrði að reikna vexti jf skuldum þessum. Eftir itarlegar viðræður við þá aðila, sem daglega fara með fjár mál borgarsjóðs og bókhald lét nefndin sannfærast um að s’’kt væri ekki unnt að gera með einu pennastriki. Það yrði að gera í áföngum þannig að unnt væri að áætla fyrir því, sem borgarsjóður hefði þurft að greiða umfram áætlun, þannig að borgarsjóður yrði ekki end- anlega sviptur þeim möguleik- um að ná inn með álögum því fé, sem hann hefur þurft að greiða vegna taps Bæjarútgerð- arinnar. Við ’eggjum því til að þessi afskrift skulda BÚR við Framkvæmdasjóð eigi sér stað í nokkrum áföngum. f árslok 1967 nam skuldin við Framkvæmdasjóð 132.5 millj. króna og reikna má með að hún muni hækka um allt að 30 millj. á árinu 1968. Þar af er skuld Bæjarútgerðarinnar vegna togara, sem ekki eru lengur í rekstri tæpJ. 37 millj. króna. Eig ið fé Framkvæmdasjöðs er um 61 millj. króna og það teljum við að unnt sé að afskrifa og leggjum ti'l að byrjað verði með 30 millj. króna við reikningsupp gjör 1968. ENDURMAT A EIGNUM Öfugur höfuðstóll Bæjarút- gerðarinnar í árslok 1967 nam 158.5 millj. króna. Þegar fram- kvæmd hefur verið tillagan í tölulið 3, lækkar þessi fjárhæð í u.þ.b. 91.5 millj. króna. Hér er miðað við bókfært verð eign- anna, en reikna má með raun- hæft mat á eignum útgerðar- innar, sem miðaðist við hugsan- legt söluverð eða endurnýjun- arverð að frádregnum afskrift- um myndi bíða til hækkunar á bókfærðu verði ýmissa eigna út- gerðarinnar einkum fasteigna og myndi þá öfugur höfuðstól] enn lækka tilsvarandi. Erfitt yrði að gera sér grein fyrir, hver yrði niðurstaða slíks mats og skal engu um það spáð. Það er þó ekki ósennilegt að hinn öflugi höfuðstóll myndi við það lækka í þá fjárhæð sem borgarsjóður hefur orðið að lána Fram- kvæmdasjóði vegna BÚR og er ég þá enn með uppgjör ársins 1967 í huga. Við leggjum til að þann mismun verði að áætía ár- lega í fjárhagsáætlun borgar- sjóðs til Bæjarútgerðarinnar og myndi þá það tvennt nást: að öfugur höfuðstóll hyrfi og skuld BÚR við Framkvæmda- sjóð minnkaði stórlega eða hyrfi. Al'lt verður þetta að miða við fjárhagsgetu Borgarsjóðs hverju sinni og borgarstjórn verður að meta slíkt framlag á hverjum tíma. Áður en ég hverf frá fjármál- um BÚR vil >-g vekja athygli á því að eins og fram kemur í reikningum BÚR frá ári til árs hefur fyrirtækið notið tiltölu- lega lítiilar fyrirgreiðslu við- skiptabanka. Ég hef að vísu ekki á reiðum höndum upplýsmgar um lánafyr irgreiðslu annarra útgerðarfyrir tækja, en mér segir hugur um að BÚR sitji þar ekki við sama borð og aðrir, sem útgerð hafa með höndum. Bar þar allt að sama brunni — að lánastofn aniir vilja koma því yfir á borg- arsjóð að veita þá fjárhagslegu fyrirgreiðslu, sem önnur útgerð- arfyrirtæki fá hjá bönkum. REKSTRARFOftM B.Ú.R. í samþykkt fyrir Bæjarútgerð Reykjavíkur frá 29. desember 1949 segir í 3. gr. að útgerðin hafi „aðskilinn fjárhag frá bæj- arsjóði og öðrum bæjarstofnun- um.“ f 1. gr. samþykktarinnar segir hins vegar, að Reykja- víkurborg beri ábyrgð á skuld- bindingum útgerðarinnar „með eignum bæjarins og tekjurn." Ekki hefur á það reynt, hvort hér er um að ræða sjálfskuldar- ábyrgð borgarsjóðs eða baká- byrgð. f reynd skiptir þetta þó ekki miklu, annars vegar vegna þess, að borgarsjóður (Fram- kvæmdasjóður) hefur iðulega orðið að hlaupa undir bagga til að forða rekstrarstöðvun út- gerðarinnar, en hins vegar vegna þess, að skuldir útgerð- arinnar umfram bókfærðar eign ir í árslok 1967 námu kr. 158.4 millj., eða kr. 25.9 millj. hærri fjárhæð en skuldin var þá við Framkvæmdasjóð. Auk framlags ins úr framkvæmdasjóði er þannig Reykjavíkurborg í 15.9 millj. kr. hærri fjárhæð en eignir útgerðarinnar nema. Tek- ið skal fram, að raunhæft mat á eignum útgerðarinnar hefur ekki farið fram og er því ekki um aðra viðmiðun að ræða en efnahagsreikninginn. Ef útgerðin hættir rekstri og fjármál hennar verða gerð upp er þannig viðbúið að borgar- sjóður þurfi að taka á sig veru legar greiðslur auk þess að af- skrifa með öllu skuldina við Framkvæmdasjóð. Nefndin hefur nokkuð haft til athugunar, hvort unnt væri að skera á þessi tengsl millli Bæj- arútgerðarinnar og borgarsjóðs í framtíðinni og í því sambandi rætt um breytt rekstrarfom fyr irtækisins. Hefur Þá hlutafélaga formið helzt komið til álita Að lögum getur borgarsjóð- ur einn ekki stofnað eða átt hlutaféiag. Lagabreytingu þarf því til að heimila slíkt rekstr- arform. Hins vegar er ekkert lagalega því til fyrirstöðu, að borgarsjóður í samvinnu við a. m.k. 5 einstaklinga — og e.t.v. með almennu hlutafjárútboði — stofni til reksturs hlutafélags, og er þá rétt að vekja athygli á breytingu, er gerð var á hluta- félagalögunum 1957, þess efnis, að sveitarfélög geta farið með meira en 1—5 hluta atkvæða í hlutafélagi. Ef til hlutafélags- stofnunar er gengið, annað hvort að fengnum nauðsynlegum laga- breytingum eða með einstakling- um, er eðlilegt, að hlutafé Reykjavíkurborgar verði greitt með eignum útgerðarinnar, skuld útgerðarinnar við Fram- kvæmdasjóð yrði að afskrifa að verulegu leyti a.m.k., og borg- arsjóður yrði áfram í ábyrgð fyrir öðrum skuldum útgerðar- innar eins og þær verða við yf- ifærsluna. Hins vegar bæri borgarsjóður ekki ábyrgð á skuldum, er útgerðin kynni að stofna til eftir breytinguna, nema með hlutaf járeign sinni, eða samkvæmt sérstökum sam- þykktum. Eins og framan greinir hefur niðurstaða nefndarinnar orðið sú, að halda beri áfram rekstri Bæjarútgerðarinnar og stuðla fremur að eflingu hennar, m.a. með kaupum á nýjum skipum ef hagkvæmt þykir. Nefndinni er hins vegar ljós sú hætta, er borgarsjóði kann að stafa af þeirri þróun er orðið hefur, einkum nú hin síðustu ár, í fjár- málum útgerðarinnar og enn fremur, að útgerðarfélögum ein- staklinga í Reykjavík, er ekki búin sama aðstaða og Bæjarút- gerðinni. meðan hún hefur borg- arsjóð að bakhjarli með þeim hætti, sem nú er. Við núverandi aðstæður tel- ur nefndin' ekki vera grundvöll til að mæla >neð því að borgar- sjóður stofni til hlutafélags um rekstur Bæjarútgerðarinnar með takmörkuðum fjölda einstakl- inga og að almennt hlutafjárút- boð sé ekki líklegt til árang- urs eins og rekstrarafkoma tog- aranna hefur verið að undan- fömu, en ástæða kann að vera til að athuga þann möguleika, ef breyting verður til batnaðar á rekstrargrundvelli og áfkomu togaranna og þá jafnframt sér- staklega, ef það leiðir til þess, að umsvif útgerðarinnar verða aukin t.d. með kaupum á nýj- um togurum. Þá er lagt til, að jafnhlíða því, sem skuld útgerðarinnar vegna seldra skipa verður af- skrifuð, eignir hennar metnar til raunverðs og borgarsjóður á næstu árum áætli fyrir fram- lagi til Bæjaútgerðarinnar jafn háu og nemur öfugur höfuð- stóli, verði borgarstjóra og borgarráði einnig falið að leita lagabreytinga, er heimili, að borgarsjóður geti með eða án þátttöku ann ura átt og rekið Bæjarútgerðina með takmark- aðri ábyrgð. Slæm reynsla borgarsjóðs af því rekstrarformi, sem verið hef- ur við lýði, kemur m.a. fram í stórauknum greiðslum úr borg- arsjóði utan við fjáhagsáætlun, jafnhliða sem horfa verður upp á að Bæjarútgerðin nýtur lak- ari fyrirgreiðslu hjá lánastofn- unum en önnur útgerðarfyrir- tæki. í þessu felst og hinsveg- ar mikill aðstöðumunur milli tog aaútgerðar bæjarins og ann- arrar togaraútgerðar, sem hefur ekki slíkan sameiginílegan sjóð borgarbúa til að sækja úr og er krafin um sína skatta og skyldur til borgarsjóðs. Tel ég það mun heppilegra að skera á þessi beinu fjárhagstengsl borgarsjóðs og útgerðarinnar. Hitt er svo annað mál að til þess getur þurft að koma á erf- iðum tímum að borgarsjóður þurfi að leggja útgerðinni til fjármagn, en þá þarf að horf- ast í augu við það og áætla fyrir því í fjárhagsáætlun, eins og t.d. Akureyrarbær gerir að því er snertir Útgerðafélag Ak ureyringa h.f. Hér er að mörgu leyti um rót- tæka breytingu að ræða frá nú- verandi fyrirkomulagi og skylt er að geta þess að nefndin taldi ekki ástæðu til slíkrar breyting- ar nema samfara fjármálalegri endurskipulagningu fyrirtækis- ins og jafnhliða endurnýjun á at vinnutækjum þess. Sú hug- mynd hefur verið rædd og kanna þarf hana betur að bind ast samvinnu við aðra útgerð- araðila í borginni og eigendur fiskvinnslustöðva um stórfellda uppbyggingu nýs og öflugs út- gerðarfyrirtækis, sem hugsan- lega gæti fengið nýtt fjármagn frá Alþjóðastofnunum og sjóð- um, sem við erum aðilar að og lána einmitt til slíkra fyrirtækja. Gæti það orðið upphaf að stór- felldri atvinnusköpun í borg- inni en allt hlýtur þetta að vera bundið þeirri meginforsendu að rekstrargrundv'llur verði tryggð ur við eðlilegar aðstæður. Niðurstöðu sínar um þetta atriði hefur nefndin orðað á þennan veg: Að fela borgarstjóra og borg- arráði að leita lagasetningar, er heimili borgarsjóði að eiga og reka útgerðarfyrirtæki sem hlutafélag með takmarkaðri á- byrgð, með eða án þátttöku ann- arra. Að fenginni slíkri heimild verður síðan tekin ákvörðun um framtíðarrekstrarform Bæjarút- gerðarinna um leið og fjáhags legur grundvöllur hennar ex treystu og ákvöðun tekin um endurnýjun á eignum útgerðar- innar.“ Góðir borgarfulltrúar. Ég hef hér gert grein fyrir tillögum BÚR-nefndarinnar, sem hún leggur fyrir borgarstjóm og gkýrt forsendur þessara til- lagna. Svo virðist vera að allir flokkar í borgarstjórn séu sam- mála þessum tillögum og geti að þeim staðið. Það gefur auga leið, að við nefndarmenn höfðum mis munandi skoðanir á ýmsum atr- iðum og allir okkar hefðu vafa- laust viljað orða eitthvert atriði tillagnanna á annan veg, kveða ýmist sterkar eða veikar að orði i ýmsum greinum. Úrslitum réð þó að ég held sameiginlegur vilji okkar allra til að ná nið- urstöðu, sem gæti orðið togara- útgerð í borginni, Bæjarútgerð- inni og borginni í heild til heilla í framtíðinni. Ég met mikils sam- ! starfsvilja nefndarmanna og þakka þeim gott samstarf- og veltur nú allt á, hvernig úr fram kværndum verður. HÆTTA Á NÆSTA LEITI eftir John Saunders og Alden McWilliams Það var mjög hetjulega gert að bjarga systur minni, herra Raven. Yður verður launað að verðleikum. 2. mynd) Einu launin sem við kærum okkur um er að fá viðtal við þann stóra . . . Ax el Athos. 3. mynd) Herra Troy, reynið ekki að krefjast þess að sjá föður minn. Gerið það fyrir mig að fara núna. Þið hafið bjargað lífi minu og nú er ég að nokkru leyti að endurgjalda greiðann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.