Morgunblaðið - 22.02.1969, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. FEBRÚAR 1969,
25
Gullbrúðkaup í dag:
Súsanna Elíasdóttir og
Þorvaldur R. Helgason
í DAG, hinn 22. febrúar, eiga
þau hjónin Þorvaldur R. Helga-
son gkósmiður-og kona hans Sús-
anna Elíasúóttir, Vesturgötu 51b
hér í borg, fimmtíu ára hjúskap-
arafmæli, en auk þess varð brúð-
guminn nýlega 75 ára án >ess að
þess væri minnzt.
Gullbrúðkaup — það er 50 ára
samvera hjóna — er viðburður,
sem aðeins fáir upplifa og er því
stórmerkt afmæli, en þó alveg
sérstaklega þegar svo löng sam-
búð hefur orðið árekstrarlaust
samstarf tveggja samstilltra
sálna, svo að aldrei hefur borið
skugga á, eins og hér um ræðir.
Á þessum merku tímamótum
á æviskeiði þessara vina minna
finnst mér hlýða nokkur orð til
þeirra, þótt ég hljóti að viður-
kenna vanmátt minn í því efni
og ekki líklegt að ég geri það
eins vel og ég vildi og þau eiga
skilið.
Þorvaldur er innfæddur Reyk-
víkingur og Vesturþæingur eins
og frændi hans Erlendur Ó. Pét-
ursson myndi hafa sagt. Hann er
sonur Helga Teitssonar hafn-
sögumanns og konu hans Kristín-
ar Vigfúsdóttur.
Kristín Súsanna er dóttir Elí-
asar Elíassonar sjómanns í
Stykkishólmi og konu hans Önnu
Svandísar Jónsdóttur.
Þorvaldur og Súsanna giftu
sig hinn 22. febrúar 1919 og hófu
búskap í húsi Helga „Lóðs“. Hér
voru glæsileg hjónaefni, af sterk-
um óskyldum ættflokkum, gefin
saman. í því tilefni var stór-
veizla í Helgahúsi. Þvi miður
var ég þá ekki kominn í sam-
band við þessi ættmenni konu
minnar, en að hennar sögn stóð
sú veizla í 3 daga og var hún að
sjálfsögðu gestur alla dagana.
Þau 50 ár sem liðin eru frá
því þessi ungu hjón hófu búskap
á Vesturgötu 51 B, hafa þau
búið þar og þar munu þau verða
meðan heilsa og kraftar endast,
sem vónandi verður sem lengst.
Þar hafa þau eignast 5 mann-
vænleg börn og komið þeim upp.
Þar urðu þau fyrir þeirri sorg
að missa elztu dóttur sina, Önnu
Svandísi, 21 árs, sem var mjög
efnileg stúlka og mikill harm-
dauði foreldrum, systkinum og
öðrum vandamönnum. Hin fjög-
ur börn þeirra hjóna eru: Helgi,
skósmíðameistari, Birgir járn-
smíðameistari, Elías sjómaður og
Erla húsfrú. Öll eru þessi börn
vel heppnug og góðir og nýtir
borgarar og eru þegar búin að
gefa Þorvaldi og Sús'nnu 11
barnabörn.
Eins og vikið er að hér að
framan hefur sambúð þeirra Þor-
valdar og Súsönnu verið til
sannrar fyrirmyndar. Þau hafa
öll þessi ár verið sterkur hlekkur
í fjölmennum srystkina-, frænda-
og vinahópi og ávallt lífgað upp
alla vinafundi með léttri lund,
ánægju og velvilja.
Þessi hjón hafa þó ekki alltaf
baðað í rósum fremur en aðrir.
Þau hafa barizt með stóran
ibarnahóp og lítil efni, við
kreppu og lélega atvinnu og
veikindi. En þau hafa staðið
saman, stutt og styrkt hvort
annað í erfiðleikum hins daglega
brauðstrits og alltaf kunnað að
gleðjast með glöðum. Þau hafa
sigrað alla erfiðlei'ka og geta með
góðri samvizku litið yfir farinn
veg og björtum augum til kom-
andi ára. Þau geta þakkað ein-
stakt barnalán og hvort öðru
HALDINN var hrútasýning að
Meltungu í Kópavogi á vegum
fjáreiganda í Reykjavík og Kópa
vogi, sunnudaginn 10. nóv. siðast-
liðinn. Áhugi fjáreiganda fyrir
fjárrækt kom glögglega í ljós á
þessari sýningu. Á sýningu þessa
var komið með 44 hrúta og sýndu
niðurstöður sýningarinnar það
glögglega að fjáreigendur í
Reykjavík og Kópavogi hafa á
undanförnum árum unnið stefnu
fást að því að koma sér upp af-
urðasömum og góðum fjárstofni
eins og góðum sauðfjárbændum
ber að gera. f Reykjavík og Kópa
vogi voru á síðastliðinn vetur um
3000 ær á fóðrum og var meðal
fallþungi dilka um 13.5 kg.
Þetta er góður árangur þegar
haft er í huga að um 75% slátur-
lambanna voru tvílembingar og
jafnframt að sumarhagar fjárins
eru mjög þröngir og ofbitnir.
Niðurstöða sýningarinnar varð
sú að 16 hrútar hlutu 1. verðlaun,
16 fengu 2. verðl. 5 fengu 3. verðl.
og 7 hrútar hlutu engin verðlaun.
Bezti hrútur sýningarinnar var
Frakkur frá Meltungu. Hann var
122 kg. að þyngd með 115 cf.
brjóstmál og 27 cm. breidd á
spjaldhrygg. Frakkur er 3 vetra,
sonur Dreka frá Meltungu, af-
kómandi Hjalla frá Hofi á Kjal-
góða og trygga samfylgd.
Á langrí ævibraut verður ekki
hjá því komist að vinir og ætt-
ingjar týní tölunni. Þannig er
Þorvaldur, sem var yngstur af
11 börnum foreldra sinna einn
orðinn eftir, auk fóstursystur
sinnar, Kristínar Guðmundsdótt-
ur, sem enn er á meðal vor og
alltaf hefur fylgzt með þessari
fjölskyldu sem systir. Þá er að-
eins þrennt eftir af fjölmennum
systkinabörnum, sem var annar
ættliður frá Teiti Teitssyni og
3-uðrúnu Þorláksdóttur í Götu-
íúsum, það er: Þorvaldur, Guð-
nundur Marteinsson og Marta
Pétursdóttir.
Gullbrúðhjónin verða ekki
heima í dag. Þeim, finnst að nú
sé ekki nógu vítt til veggja í
gamla „Helgahúsá“ og hafa þau
tryggt sér salarkynni Hermanns
Ragnars danskennara á Háaleit-
isbraut 58 til þess að taka á móti
ættingjum, vinum og kunningj-
um, sem eflaust fjölmenna þar.
En nú getur ekki veizla staðið
í þrjá daga eins og forðum. held-
ur 3 tíma, milli kl. 17 og 20
[5—8 e. m.) en sennilega verða
öessir klukkutímar nýttir vel.
í tilefni þessara merkisafmæla
l sögu þessara hjóna, sendum við
hjónin okkar beztu hamingju-
óskir og þökkum þeim frábæra
viðkynningu og ánægjulegar
samverustundir á ævis'keiði okk-
ar. Það er ómetanlegt að eign-
ast góða og trygga ferðafélaga.
Guð blessi þau.
arnesi. Frakkur er stór fremur
gróf kynd, hyndur, gefur væn
sláturlömb. Annar beztur reynd-
ist Bósi frá Meltungu, 2 vetra
kollóttur hrútur sonur Gjafars
frá N-Hálsi í Kjós. Bósi er lág-
vaxinn holdahnykill. Hann var
105 kg. að þyngd með 115 cm.
brjóstmál og 24 cm. spjaldhrygg.
Þriðji beztur varð Kjammi, 4
vetra frá Vatnsenda, ættaður frá
Heiðarbæ í Þingvallasveit
Kjammi er kollóttur vigtaði 96
kg. og með 115 cm. brjóstmál og
25 cm. spjaldbreidd.
Fólk í Reykjavík. og Kópavogi
eru marir miklir áhugamenn um
fjárrækt og kom það greinileiga í
ljós á sýningunni, þar sem mik-
inn mannfjölda dreif að á sýning
arstað, til að skoða hrútana og
fylgjast með störfum dómnefnd-
ar. Létu menn þar óspart í ljós
áhuga á fjárrækt, þó með nokk-
urn ugg í brjósti um framtíðina,
þar sem mjög hefur verið þrengt
að sauðfjárhaldi Reykvíkinga
með ástæðulausu banni. Fjáreig
endur í þéttbýli eiga að fá að
stöðu til að geta haft kindur, sér
og Öðrum til gagns og gamans.
Það þarf að búa þannig um að
þeir geti stundað sína fjár-
mennsku í friði, því flestir fjár-
eigendur myndu sízt af öllu vilja
verða öðrum til óþæginda. Ég
til að fjáreigendur í þéttbýli eigi
sama tilverurétt og aðrir, og það
það ber að virða þann tilveru-
rétt, annað er einnig þungt á
metunum að fleiri en þeir einir
hafa gaman að kindum. Þeir
leggja sitt af mörkum í þágu
ræktunarstarfsins, ekki síður en
aðrir bændur. Þessu til sönnunar
er nýafstaðin hrútasýning að Mel
tungu í Kópavogi.
Fétur Hjálmsson.
- SHELEPIN
Framhald af bls. 17
áttu og ekki leið á löngu þar
til hann hafði verið sviptur
flestum valdastöðum sínum af
eldri flokksmönnum, sem töldu
hann of stóran fyrir skóna sína.
Síðan hefur lítið af Shelep-
in spurzt þar til sl. sumar, er
hann kom fram í dagsljósið sem
andstæðingur innrásarinnar í
Tékkóslóvakíu, að því er tékkn
eskar heimildir segja, og skip-
aði sér í því efni á bekk með
þeim Suslov og Ponomarev.
Síðustu vikurnar hefur Shel-
epin verið mjög umsvifamikill
utan hins eiginlega áhrifasviðs
síns. Það var hann, sem fór til
Kaíró til þess að ræða málefni
landanna fyrir botni Miðjarðar
hafs við Nasser, og hann var
ekki fyrr kominn aftur til
Moskvu úr þeirri ferð, en hann
lét mjög sjá sig í nærveru tékkó
slóvakísku sendinefndarinnar,
er þar var í heimsókn eigi alls
fyrir löngu.
Það var sl. sunnudag að
„Trud“ birti grein sína um í
hverju sovézkum flokksleið-
togum væri ábótavant. Þar á
ofan bætist, að þriðjudaginn í
sl. viku tók þetta sama blað
upp sjálfstæða stefnu, áð þvi
er virðist, varðandi ÞýzkaLanda
málin. Eftir að hafa látið hin
venjulegu orð falla um mann-
vonzku V-Þjóðverja, lét blað-
ið hjá líða að hafa uppi hót-
anir þær, sem fylltu síður ann-
arra sovézkra blaða þessa söra«
daga, og sagði þess í stað að
það sem þörf væri á, væri und
irbúningur á ráðstefnu um ör-
yggismál Evrópu. Til bragð-
bætis lét blaðið síðan fylgja ár
ás á landbúnaðarmálastefnu
Sovétríkjanna og þær afleiðing
ar, sem hún kynni að valda.
Fleiri teikn hafa einnig ver-
ið á lofti. Þannig hefur t.d.
Podgorny, forseti, sem komst í
stöðu sína að tilhlutan Brez-
nevs, haldið sig svo algjörlega
fyrir utan áróðursupphrópin í
Kreml, að athygli hlýtur að
vekja. Og svo sem öllum er
kunnugt, er nú Kosygin, for-
sætisráðherra, sem fyrir tveim-
ur mánuðum var á barmi þeas
að vera sparkað út (ekki í
fyrsta sinn á undangengnum
fjórum árum) ellegar hafði hálf
dregið sig í hlé með ólund, kom
inn aftur að skrifborði sínu í
Kreml.
Allt frá því á sl. sumri hefur
það verið augljóst, að æðsta
stjórn Sovétríkjanna hefur ver
ið klofin og óviss. Það er ekki
aðeins varðandi málin fyrir og
eftir innrásina í Tékkóslóvakíu
að hún hefur sýnt að stefnan
er óljós. Um tíma leit svo út
að Brezhnev-klíkan (aldrei hef
ur verið ljóst hvort Brezhnev
er húsbóndinn eða aðeins tæki
klíkunnar) hefði undirtökin.
En svo virðist ekki vera leng-
ur.
(Óbserver — öll réttindi áskil
in)
UNGÓ
KEFLAVÍK
ROOF TOPS
í UNGÓ í KVÖLD.
Loksins byrja vinsælu Ungó-böliin aítur.
Guðfinnur Þorbjörnsson.
Hrútasýning í
Kópavogi —
— Frakkur Drekason sigraði