Morgunblaðið - 04.03.1969, Page 27

Morgunblaðið - 04.03.1969, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1909. 27 Frá iþróttamálafundinum á Hótel Sögu. 50 þús. kr. styrkur — til útbreiðslu á verkum S. Þórðarsonar — ReYkjavikurborg Framhald af bls. 26 Með þeim samningum, sem tekizt hafa um eignaraðild að Laugardalshöllinni hefur Reykja víkurborg eignast 92% af hús- inu en ÍBR á 8%. Borgarstjóri sagði í ræðu sinni, að í raun hefðu hlutföllin raskast, þar sem fjárskortur fyrirtækja og hækk- aður byggingakostnaður gerði það að verkum, að Sýningarsam tökin gátu ekki aflað fjár til þess að standa undir sínum hluta af byggingarkostnaðinum. Geir Hallgrímsson sagði enn- fremur á íþróttamálafundi Heim- dallar, að tekjur Laugardalshall- arinnar af sýningum mundu auð vitað treysta rekstrargrundvöll hússins og þar með skapa íþrótta iðkunum í húsinu betri skilyrði. Þá sagði borgarstjóri, að fram- kvæmdir við húsið hefðu legið niðri um alllangt skeið meðan á þessum samningum stóð en nú mundi hafizt handa um að íull- gera það og yrði varið til loka- frágangs á þessu ári 5 milljónum króna af þeim 14% milljón, sem kostaði að fullgera húsið. Laugardalshöllin hefur þegar gert mikið gagn, sagði Geir Hall grímsson, fyrir íþróttastarfsem- ina og atvinnuvegina og án hennar hefðu alþjóðleg samskipti ekki tekizt jafnvel og raun ber vitni um. Sú staðreynd réttlætir þá ákvörðun að taka húsið í notkun þótt það væri ekki full- búið . Nánar verður skýrt frá fundi Heimdallar um Sþrótamál síðar, en miklar og fjörugar umræður urðu á fundinum og fundarsalur þéttsetinn. Byssumenn París 3. marz. AP. PARfSARLÖGREGLAN leitar nú dyrum og dyngjum að þrem- ur mönnum, sem óku um í bif- reið á sunnudagskvöld og skutu af vélbyssum og skammbyssum inn í fjögur kaffihús. Fimmtán gestir á veitingastöðunum meidd ust þar af sex alvarlega, og tals- verðar skemmdir urðu á kaffi- húsunum. - LANDBURÐUR Framhald af bls. 28 í dag um 20 mínútna stím frá Heimaey. Þegar blaðamaður Morgnnblaðsins brá sér á miðin í gaer voru nm 25 skip eina mílu undan Landeyjum. Margir bát- anna Iönduðu tvisvar í gær og sumir allt að fjórum sinnum. Þess voru dæmi, að bátar yrðu að henda afla, allt að hundrað tonnum, þar sem báfarnir voru orðnir yfirfullir og þá enn eftir loðna í nótinni — einn bátur sprengdi nótina. Þrær í Eyjum eru nú fullar og í kvöld var byrjað að aka loðnu út í hraun til geymslu, eins og jafnan er gert, þá landburður er af loðnu eða síld og þrær fyllast. Brætt hefur verið stöðugt alla vertíðina og strax fyrir helgi hófst útskipun á loðnumjöli og var mjölinu skipað út volgu. Hjá Fiskimjölsverksmiðjunní hf. lönduðu tólf bátar í dag, sum ir oftar en einu sinni Fiskimjöls- verksmiðjan hefur nú alls tekið á móti 15.500 tonnum. Hjá Fiskimjölsverksmiðju Einars Sig urðssonar voru þrettán bátar búnir að lánda í kvöld, sumir oft ar en einu sinni, og nokkrir biðu lödunar. — Á.J. STJÓRN Tónskáldasjóðs Ríkls- útvarpsins hefur samþykkt, að veita 50 þúsund króna styrk til útbreiðslu á verkum Sigurðar Þórðarsonar, tónskálds og fyrr- um skrifstofustjóra Ríkisútvarps ins. Lagos, Nígeríu, Umuahia, Biafra, 4. marz. AP, NTB. SAMBANDSSTJÓRNIN í Níger- íu bar í dag Frökkum á brýn, að þeir hefðu sent mikið magn her- gagna og vopna til Biafra. í yfir- lýsingu stjórnarinnar segir, að Frakkland hafi keypt þessar brigðir af Búlgörum og sent þær til Biafra. Segist stjómin munu gera ráðstafanir til að stöðva þessa vopnaflutninga. f fréttum frá Umuahia í Bi- afra segir, að sprengjuvélar Lag- osstjómar hafi enn gert árásir á óbreytta borgara og hafi að minnsta kosti fímm látizt og yfir þrjátíu særzt. Ein biaförsk heim ild sagði, að einni sprengjunni Kostningar í Rúmeniu — e/nn listi borinn fram Búkarest 3. marz. AP. ÞINGKOSNINGAR fóru fram í Rúmeníu um helgina. Kjörnir voru 465 þingmenn og fjöldi í bæjar- og sveitarstjórnir. Einn listi kommúnistaflokksins, var að venju borinn fram og hlaut að sjálfsögðu flest greidd atkvæði. Þegar ljóst var að kommún- istaflokkurinn hafði „sigrað“ stigu Ceausescu, flokksleiðtogi, og ýmsir aðrir háttsettir stjórn- málamenn villtan þjóðdans úti fyrir kjörstað tii að sýna fögn- úðinn. Slnsnðist nlvorlegn SJÖTUG kona slasaðist alvarlega í árekstri á laugardag. Hún var fhitt í Slysavarðstofuna og það- an | Borgarsjúkrahúsið og seint í |gær var hún enn ekki talin úr allri hættu. Áreksturinn varð á mótum Stóragerðis og Heiðargerðis. — Fólksbíi var ekið sunnan Stóra- gerðis og hugðist ökumaður hans beygja inn í Heiðargerði, en vegna hálku náði hann ekki beygjunni og rakst á annan fólks bíl sem kom upp Heiðargerði. Ökumaður fólksbílsins sem fyrr er getið slapp ómeiddur, en konan sem slasaðist var farþegi í hinum bílnum, ökumaður hans meiddist einnig lítillega. — Báðir Bílaarnir skemmdust mikið. „Vill stjórn sjóðsins með þess- ari styrkveitingu heiðra minn- ingu tónskáldsins og þakka stuðn ing þess vi'ð stofnun og starfsemi sjóðsins“, segir í fréttatilkynn- ingu Ríkisútvarpsins um þetta máL hefði verið varpað í næsta ná- grenni við sjúkrahúsið. f gær sagði málgagn Lagos- stjórnarinnar að Winston S. ChurchQ'l, sonarsonur brezka forsætisráðherrans sáluga, háfi sent fal'skar og ósannar fréttir frá Biafra og hann dreifi óhróðri um Lagos stjórnina, meðal annars með því að staðhæfa, að flug- vélar Lagosstjórnar hefðu gert árásir á óbreytta borgara. Þorkell Sigurðsson. Þorkell Sigurðs- son, vélstjóri lótinn ÞORKELL Sigmðsson, fyrrum véistjóri, l'ézt sl. laugardaig, sjö- tíu og eins árs að a/l'dri. Þorkeil laiuik burtfa’rarprófi frá Vélskóla ís’lands 1921 og var vélsitjóri á tagunum 1921 til 1933, en starfs- maður Hitaveitu Reykjaivitour eftir það. Þorkell var í stjórn Fanman na- og fistoimanaiasam- barads fslanidis frá 1953, í stjórn Varðar frá 1954 og varameð- dómandi í Sjódómi Reykjavífcur frá 1953 og enduirslkoðandi Spari sjóðs vélstjóra frá atofnun hans. Árið 1955 kom út rit eftir Þor- kel: Saga lian’dbelgisimáis ís- lainds og aiuðæfd islenzka haf- svæðisirts og einnig ritaði hanm mikið í blöð og tímiarit, eintoum um sjáivcu-útveigsrraál, landhelgis- mál og stjónnmál. Kvænrtur var Þoitoeffl Önruu Þorbjörgu Siigurðardóttuir, sem lifir mann simn. Logos-stjórnin gröm Frökkum — segir þá senda vopn til Biafra Úskipt ánægja með Evrópuferð Nixons — De Caulle þáði boð um að koma til Bandaríkjanna á nœsta ári Washington 3. marz. AP. RICHARD NIXON, Bandaríkja- fonseti, boðaði til blaðamanna- fundar í nótt (að- ísl. tíma). Þar (gerir hann grein fyrir Evrópu- ferð sinni og isvarar spurningum féttamanna um utanríkismál. Þá hefur Nixon boðað bandarísku öryggisnefndina saman tíl fund- ar á morgun, miðvikudag, og gef- ur ráðinu væntanlega skýrslu nm Evrópuferðina. Flugvéi Nixons lenti á Andr- ews flugvellinum aðfaranótt mánudags og lauk þar með átta daga Evrópuferð hans. Mikil ánægja hefur verið Iátin í ljós m«ð för Nixons og þá sérstak- lega þær góðu og hlýlegu viðtök- ur, sem hann fékk hjá de Gulle, Frakklandsforseta. Nixon sapði fréttamönnum við komuna til Andrews flugrvallar, að hann væri mjög þakklátur fyr ir þær ágætu móttökur, sem hann hefði hvarvetna hlotið og hann hefði þá trú að ný tilfinn- ing trausts og vináttu, væri að þróast með Bandarikjamönnum og þjóðum Evrópu. Á laugardag ræddi Nixon klukkus’tundum saman við de Gaulle og er það álit stjórnmála fréttaritara, að sambúð Banda- ríkjanna og Frakklands muni nú fara mjög batnandi eftir heim- sókn forsetans. Tilkynnt var, að Nixon hefði boðið de Gaulle að koma í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna á næsta ári, og þekktist Frakklandsforseti boðið. Talsmaður franska utanrikisráðu neytisrns staðfesti og að fundum þeirra forsetanna loknum, að - ÍÞRÓTTIR Framhaid af bls. 26 ferðinni; mikill hraði á báða bóga, mörk og vítaspyrna varin af Peter Bonetti. Daivid Webb skoraði fyrst fyrir Clhelsea eftir Id mín. leik, en Tony Brown jafn aði fyrir Albion stuttu síðar. Þá varði Bonetti vítaspyrnuna frá Jeff Astle, sem í síðari hálfleik ;koraði sigurmarkið. Markmenn beggja höfðu nóg að gera og undir lokin varði Os- born í marki WBA skot frá hin- um efnilega Peter Osgood. Þá fór fram einn leikur úr 5. uanferð, en það var hinn marg- frestaði leikur milli Leicester City og Liverpool á leikvelli Leicester, FiBbert Street. Leikur inn, sem endaði með jafntefli, þótti skemmtilegur og dável leik inn. Liverpool sótti mun meira framan af á ,,þungum“ velli, en yfir 19 tonn af sandi hafði verið dreift yfir hann fýrir leiknn. Heimamenn sóttu sig er á leik- inn leið og voru allskæðir undir lokin. Úrslit i deildakeppninni sl. laugar- dag urðn sem liér segir: 1. deild: Burnley — Nottingham Forest 3-1 Leeds — Southampton 3-2 Sheffield Wedn. — Arsenal 0-5 Sunderland — Stoke City 4-1 West Ham — Newcastle 3-1 Wolverhampton — Ipswich 1-1 2. deild: Aston Villa — Sheffield Utd. 3-1 Bolton — Oxford 1-1 Bristol City — Fulham 6-0 Carlisle — Bury 2-0 Crystal Palace — Cardiff 3-1 Derby — Blackburn 4-2 Hull City — Blackpool 2-2 Millwall — Charlton 3-2 Norwich — Birmingham 1-1 Portsmouth — Huddersfield 1-2 Preston — Middlesbro 1-2 Staðan í 1. deild er nú þessi: Leeds 32 22 8 2 54:23 52 Liverpool 31 20 6 5 50:19 46 Everton 29 17 8 4 63:26 42 Arsenal 30 17 8 5 43:18 42 West Ham 29 10 13 6 52:35 33 góðs og mikils árangurs væri að vænta í sambúð landanna. Blaða- fulltrúi Nixons, Ziegler sagði fréttamönnum, að meðal þeirra mála, s«m forsetarnir hefðu rætt væri deilur ísraels og Araba og hefði Nixon gert de Gaulle grein fyrir afstöðu stjórnar sinnar. Mikii áherzla er lögð á það, hve de Gaulle haf; lagt sig í framkróka við að sýna Nixon heiður og vinsemd og það er m. a. talinn mikill sigur fyrir Nixon, að de Gaulle féllst á að heim- sækja Bandaríkin á næsta ári. Á laugardagskvöld kom de Gaulle til veizlu í bandaríska sendiráð- inu í París, sem var haldin Nixon til heiðurs og á sunnudag fylgdi hann Nixon síðan til Orly flug- vallar og kvaddi hann með virkt- um. Stjórnmálafréttaritarar benda á að viðmót de Gaulle við Nixon hafí minnt á framkomu hans við hans nána vrn og banda mann Konrad Adenauer heitinn kanzlara. Á flugvellmum fluttu þeir báð ir Nixon og de Gaulle stutt kveðjuávörp. Nixon kvaðst þakka franska forsetanum fyrir vináttu og gestrisni sem hann og fylgdarlið hans hefði notið, og bað hann bera frönsku þjóð- inni kveðjur sínar og þakkir. Þá gerði Nixon það heyrum kunn- ugt, að de Gaulle hefði þekkzt boð sitt um' að koma í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna á næsta ári og kvaðst hlakka til að hitta hann þá aftur. De Gaulle saigðist vera í sjö- unda himni vegna heimsóknar forsetans, hún hefði tekizt vel og hann hefði þá trú að hún yrði þjóðum beggja að gagni. Meðan Nixon dvaldi | París ræddi hann í 45 mínútur við Ky, varaforseta Suður-Vietnam, og fjölluðu þeir vitaskuld um ástand ið í Vietnam, sókn kommúnista og sjálfheldu þá. sem Parísar- fundirnir virðast vera komnir í, svo að hvorki gengur né rekur. Að fundi loknum var Ky inntur eftir því, hvort hann væri bjart- sýnni eftir og sagði hann erfitt um það að segja, en viðræður hans og Nixons hefðu þó verið gagnlegar. Sömuleiðis ræddi Nixon við Henry Cabot Lodge, aðalsamn- ingamann Bandaríkjanna á Par- íesarfundinum, oig síðar á fund- inum komu eirmig þeir Rogers utanríkisráðherra og sérlegur ráðgjafi Nixons Kissinger. Eftir að Nixon hafði lokið við- ræðum sínum við de Gaulle flaug hann aftur til Rómaborgar og gekk þar á fund Páls páfa sjötta í Vatikaninu. Lenti þyrla forsetans á Péturstorginu og er það í fyrsta skipti í sög- unni að þyrla lendir þar. Þeir páfi og Nixon rædduet við í klukkustund, eða mun lengur en hafði verið gert ráð fyrir. — í orðsendingu, sem var gefin út að fundi þeirra loknum sagði að fjallað hefði verið um ýmie að- kallandi alþjóðamál. Páll páfi skoraði á Bandaríkjaforseta að hafa forgöngu um aukinn stuðn- ing Bandaríkjanna við þróunar- löndin og lýsti þakklæti og gleði með það sem þegar hefur verið lagt af mörkum. Páfi kvaðst vona, að Bandaríkjamenn gerðu sitt ítrasta til að leysa hin ýmsu alþjóðavandamál og hét forsetan um eindregnum stuðningi ka- þólsku kirkjunnar. Allmargt manna hafði safnazt saman þegar Nixon kom til Páfa- garðs og ekki kom til neinna óspekta. Flestir hylltu forsetannð en fáeinir höfðu uppi hróp eins og: Nixon farðu heim, þú ert morðingi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.