Morgunblaðið - 04.03.1969, Síða 28
or£tmþTníní»
AUGLYSIHGAR
SÍMI SS*4*SO
ÞRIÐJUDAGUR 4. MARZ 1969
Rússar spá lélegrí síldveiði
næstu árin
— Finn Devold er bjartsýnn og Jakob
segir Norðmenn og Rússa hafa stundað
— ofveiði á smásíld við Norður-Noreg
— telur hins vegar góð teikn á lofti
um Suðurlandssíld
RÚSSAR segja, að veiðihorf-
ur í Norðuríshafi, Barentshafi
og við ísland séu mjög
ískyggilegar næstu árin. Eng
inn sterkur árgangur hafi
bætzt í síldarstofninn að und-
anförnu og því megi ekki
húast við að Iifni yfir veið-
inni, fyrr en í fyrsta lagi 1975.
Norðmaðurinn Finn Devold,
segist ekki hafa trú á þessu
og er ekki svo svartsýnn, sem
Slys ú
miðunum
rússneskir vísindamenn.
Jakob Jakobsson, fiskifræð-
ingur sagði í viðtali við Mbl.,
að þessar spár Rússa kæmu
alls ekki á óvart, þar sem eng
inn sterkur árgangur hefur
bætzt við síðan 1960 til ’61 og
telur hann að gífurleg veiði
Norðmanna og Rússa við
Norður-Noreg og norður-
strönd Rússlands á smásíld,
hafi haft úrslitaáhrif á árgang
ana.
Hér fer á eftir frétt NTB-
fréttastofunnar, sem vi'ðtal átti
við rússneskan fiskifræðing:
Murmansk, 2. marz. NTB.
Veiðihorfur í Norðuríshafi,
Barentshafi og á miðunum um-
hverfis ísland eru mjög lélegar
á næstu árum að sögn sovézka
vísindamannsins dr. Konstantins
Ljamin, en hann er varaforstjóri
rannsóknardeildar sjávarlífs- og
haffræðistofnunarinnar í Mur-
mansk. Kemur þetta fram í við-
tali dr. Ljamins við norsku frétta
stofuna NTB. Segir Ljamin að
sovézkir vísindamenn telji að
þjóðir þær, sem stunda veiðar á
þessum miðum, megi búast við
minnkandi afla næstu árin.
Aðal'ega eiga þessar spár
sovézkra visindamanna vi'ð um
síldveiðarnar vegna þess hve
gengið hefur verið á stofninn á
undanförnum árum. Telja vís-
indamennirn-ir að það verSi ekki
fyrr en um árið 1975 að síld-
araflinn fari á ný vaxandi.
Eitt helzta verkefni haffræði-
stofnunarinnar í Murmansk er að
Framhald á bls. 3
Vestmannaeyjum, 3. marz.
UNG-UR Vestmannaeyingur,
Inigi Einarsson, hlaut mikil
höfuðmeiðsl um borð í Kap
II, VE, á miðunum í dag þeg-
ar dreki slóst í höfuð hans.
Hélt Kap þegar til Eyja og
Lóðsinn fór á móti með lækni
sem svo fór um borð í Kap
og fylgdist með sjúklingnum
í land. Sjúkraflugvél frá
Reykjavík sótti Inga til Eyja
og var hann lagður inn í
Landakotsspítala. í gærkvöldi
var líðan Inga mjög sæmileg
eftir atvikum. — Á.J
Nauisynlegar lagfæringar
á Þjóðminjasafnshúsinu
KOSTNAÐUR við nauðsynlegar
lagfæringar á Þjóðminjasafns hús
inu mun nema allt að 5 millj. kr.
Er húsið allt i mjög slæmu
ástandi og hefur lítt verið vand-
að til byggingar þess á sinum
tima. Nú þarf t. d. að skipta um
alla jglugga í byggingunni og
setja í þá tvöfalt gler, auk þess
sem mikla lagfæringu þarf að
gera á hita- og Ioftræstingakerfi.
Þgera hefur verið varið um
1 millj. kr. til viðgerðarinnar.
Framangreindar upplýsingar
komu fram í umræðum á Alþingi
í gær er frumvarp um breytingu
á lögum Listasafns íslands kom
til 2. umræðu í neðTÍ deild. —
Menntamálanefnd deildarinnar
hafði fjallað um frumvarpið og
Samþykkt stjórnar B.S.R.B.
Ekki grundvöllur fyrir
árangri af viiræðum
lögfrœðingi B.S.R.B. falið að fara
með málið fyrir Félagsdóm
um og Farmannasambandinu.
Samþykkt þá, sem fulltrúar
Framhald á bls. 10
skilaði sameiginlegu og sam-
hljóða nefndaráliti. Kom fram í
því að nefndarmenn fóru í heim
sókn í Listasafni’ð og kynntu
sér húsakynni þess og aðstöðu.
Birgir Kjaran mælti fyrir
nefndarálitinu. Gat hann um
listaverkaeign safnsins í upphafi
máls síns. Sagði hann að safnið
ætti nú 680 olíumálverk eftir ís-
lenzka listmálara, 182 olíumál-
verk eftir erlenda listamenn,
298 vatnslita- og krítarmyndir
eftir íslendinga, 357 slíkar mynd
ir eftir erlenda listamenn, 96
höggmyndir og skúlptúrverk eft
ir innlenda listamenn og 85 eftir
erlenda. Væru því í safninu um
1700 listaverk. Sagði Birgir að
mörg þessara verka væru meðal
ágætustu verka viðkomandi lista
manna, og mjög verðmæt. Skýrði
Birgir síðan frá heimsókn nefnd-
armanna í safnið, og sagði að
þeir hefðu komizt að raun um að
húsakynni safnsins væru ónóg
og einnig mjög slæm. Loftræst-
ingar- og hitakerfi hússins væri
stóngallað og þak þess læki. Væri
„Oft vindar eik þjá
ef að hún er mjög há;
stórir turnar föll fá
frekar en hús smá“,
kvað séra Stefán Ólafsson 1 ’
í Vallanesi eitt sinn.
(Ljósm. Mbl. ÓŒ. K. M.) |
nauðsynlegt að koma þessum
málum í betra horf hið fyrsta og
hefði nefndin orðið sammála um
að beina þeirri áskorun til ríkis-
stjórnarinnar að leysa húsnæðis-
vndræði safnsins og veita því þó
aðstöðu, sem íslenzkri myndlist
sæmdi. Værj hið fyrsta sem gera
þyrfti að tryggja nýju safnhúsi
lóð, og byggja síðan hús í áföng-
um, eftir því sem efni og ástæð-
Framhald á bls. 3
Eldur í Gurðabæ
Reykjanesvita, 3. marz.
ELDUR kom upp í íbúðarhúsinu
að Garðbæ í Höfnum um þrjú-
leytið í dag. Hafði húsmóðirin
brugðið sér frá andartak og
þegar hún kom aftur, var mikiU
reykur í eldhúsinu. Slökkvilið
frá Keflavík og Keflavíkurflug-
velli komu á vettvang og gekk
slökkvistarf greiðlega en miklar
skemmdir urðu inni í húsinu;
einkum í eldhúsinu.
Eldsupptök eru enn ókunn.
— Sigurjón,
FULLTRÚAR B.S.R.B. og fjár-
málaráðuneytisins mættu á stutt
um fundi með sáttasemjara í gær.
Á fundinum afhentu fulltrúar
B.S.R.B. sáttasemjara samþykkt
stjórnar B.S.R.B , þar sem segir,
að fyrr en nýir samningar milli
vinnuveitenda og verkalýðsfé-
laga hafa tekizt telji bandalags-
stjórnin engan grundvöll fyrir
árangri af viðræðum milli ráðu-
neytisins og B.S.R.B. Nýr fund-
ur þessara aðila hefur verið boð
aður klukkan 14 í dag. — Þá
var í gær og boðað til funda í
dag með A.S.Í., Vinnuveitend-
Landburður af
loðnu í Eyjum
— þrœr fullar — loðnu ekið út í hraun
Vetmannaeyjum, 3. marz.
Á ÁTTUNDA þúsund tonn af
loðnu bárust tii Vestmannaeyja
frá sunnudagsmorgnj til mánu-
dagskvölds og hafa þá alls um
25.500 tn. borizt til Eyja á þess-
ari vertíð. Aðalveiðisvæðið var
Framhald á bls. 27
Reykjavíkurborg tekur viö
hlut Sýn ingarsamta kanna
— / Laugardalshöllinni
— Hafizt handa um lokafrágang hússíns
— sagði Ceir Hallgrímsson, borgarstjóri,
á íþróttamálafundi Heimdallar
A fjölmennum fundi Heim-
dallar FUS um íþróttamál,
sem haldinn var að Hótel
Sögu sl. laugardag skýrði
Geir Hallgrímsson, borgar-
stjóri frá því, að samningar
hefðu tekizt milli Reykjavík-
urhorgar og Sýningarsamtaka
atvinnuveganna um að horgin
yfirtaki eignarhluta Sýningar
samtakanna í íþrótta og sýn-
ingarhöllinni í Laugardal.
Borgarstjóri lagði áherzlu
á, að þrátt fyrir þessa hreyt-
ingu mundi Laugardalshöllin
áfram verða notuð að sumar-
lagi fyrir sýningar á vegum
atvinnuveganna.
Frambald á bls. 27