Morgunblaðið - 14.03.1969, Qupperneq 1
32 SIÐUR
James Earl Ray, morðingi dr. Martins Luthers Kings, reynir
að skýla andliti sínu með handjámuðum úlnliðum á leið til
fangaklefa síns eftir að hafa verið sekur fundinn og dæmd-
ur í 99 ára fangelsi fyrir morðið á dr. King.
Lending Appollo tókst
eins vel og allt annað
Verður annari reynsluför sleppt
og haldið beint til tunglsins ?
Houston 13. marz NTB-AP
10 DAGA geimför Apollo 9.
lauk á giftudrjúgan hátt rétt
uin fimmleytið í dag er geim-
farið sveif til jarðar og lenti
í sjónmáli frá flugþiljuskip-
inu „Guadalcanal“, sem sendi
þyrlur þegar í stað á vett-
vang og fluttu þær geimfar-
ana um borð í skipið. Apollo
9. lenti á Atlantshafinu kl.
17:01 að ísl. tíma, og aðeins
um 5 km frá „Guadalcanal.“
Lendingarstaðurinn var um
480 km. norður af Puerto
Rico.
Segja má að með ferðaloum
Appollo 9. sé sfðustu æfingunni
lokið til undirbúnings þeim
sögulega áfanga, er fyirsti Banda
ríkjamaðurinn stígur fæti sín-
um á yfirborð tunglsins.
Geimskipið sjálft virtist all
sviðið eftir átökin við gufu-
hvolfið. Það lenti á Atlantshaf-
inu aðeins 1,5 km. frá fyrirhug-
uðum lendingarpúnkti, og tók
það froskmenn í þyrlum aðeins
örskamma stund að komast að
geimskipinu.
Áhöfnin um borð í „Guadal-
canal“ gat í nokkrar mínútur
fylgst me'ð geimfarinu, þair sem
það sveif í fallhlífum niður að
sjónum. Lendingin, sem talin er
hafa heppnazt að öllu leyti eins
vel og mögulegt var, er sjálf
táknræn fyrir alla ferð Apollo
9. Hafa nú nálega öll tæki, þar
á meðal tunglferjan sjálf, verið
reynd til þrautar.
Sérfræðingar eru á þeirri
skoðun, að þessi för hafi heppn-
azt svo vel, að í sjálfu sér sé
Framhald á bls. 31
Sendiráði Rússa
í Peking lokað ?
Tvívegis harðir bardagar
við Súezskurð
— í gœr — Stórskotaliði beitt, svo
og eldflaugum og sprengjuvörpum
Kaíró og Tel Aviv 13. marz
NTB—AP
f DAG kom tvívegis til harðra
átaka milli ísraelsmanna og Eg-
ypta við Súezskurð, og var í
þetta skiptið ekki aðeins beitt
stórskotaliði, heldur og eldflaug-
um og sprengjuvörpum, að því
er fregnir herma. Að vanda
kenna aðilar hvorir öðrum um
upptökin. I gær var aðeins um
smáskærur að ræða við skurð-
inn, en áður hefur komið til stór
skotaliðsátaka, og hafa eftirlits-
menn Sameinuðu þjóðanna lýst
því yfir, að Egyptar hafi átt
frumkvæðið að undanförnu.
Bardagarnir í dag og kvöld
blossuðu upp tvívegis. Talsmað-
ur ísraelsihers sagði að Egyptar
hefðu hafið skotlhríð meðfram
endilöngum skurðinum kl. 4 að
ísl. tíma, en hann er 110 km
langur.
Talsmaður ísraelshers sagði,
að fyrri átökunum hefði lokið kl.
hálf sex að ísl. tíma. Hann sagði
að þá hefðu eldar logað í olíu-
geymum í Port Suez, egypzkur
skriðdreki hefði sézt í björtu
Nixon ekki til
útlando í brnð
Washington, 13. marz NTB
TILKYNNT var í Washington í
dag, að Nixon Bandaríkjaforseti
hyggði ekki á aðra ferð til út-
landa í bráð. Talið er að með til
kynningu þessari hafi verið vís-
að á bug orðrómi, sem kviknaði
í gær um að fyrir dyrum stæði
„toppfundur“ þeirra Nixons og
Leonind Brezhnev, aðalritara
hommúnistaflokks Sovétríkjanna,
en fréttir um þetta bárust frá
Belgrad.
báli handan skiurðsins, og sum
hreiður egypzku leyniskytta
hefðu verið eyðilögð eða löskuð.
Ekki gat talsmaðurinn þess að
ísraelsmenn hefðu orðið fyrir
manntjóni.
Kaíróútvarpið sagði um átök
þessi, að Egyptar beittu fallbyss
um, eldflaugum, sprengjuvörp-
um og handvopnum í átökunum.
Sagði útvarpið að átökin hefðu
hafizt við E1 Quantara og síðan
breiðst út til Port Suez.
Egypzlka útvarpið varð fyrra til
að segja frá átökunum, sem
sigldu aðeins fáum klukkustund-
um í kjölfar tilnefningar Ahmed
Ismail í stöðu formanns herráðs
Egypta. Forveri hans í því em-
bætti, Abdel Moneim Riad, hers
höfðingi, beið bana er ísraelskt
fallbyssuskot hitti byrgi hans á
bakka Súezskurðar sl. sunnudag.
Kaíróútvarpið sagði, að ísraels-
menn hefðu átt upphafið að á-
tökunum í dag.
Eins og fyrr getur lauk átök-
Framhald á bls. 31
TÓKÍó 13. marz — AP.
Oleg Troyanovsky, sendiherra
Rússa í Peking, hefur gefið í
skyn, að Kínverjar hafi lokað
sovézka sendiráðinu í Peking og
að starfslið þess hafi sætt lík-
amsmieiðinguim, að þvi er tals-
maður japanska utanríkisráðu-
neytisins skýrði frá í dag.
Um þetta hefur ekkert venið
sagt í Mos'kvu, en að sögn Troy-
anovskys hefur sovétstjórnin
krafizt þess að sendiráðið í
Peking fái að hefja að nýju
venjuleg störf og varað við því
að annars muní samibúð land-
anna versna.
í dag skýrði kínvers'ka frétta-
stofan frá því að mótmælaað-
gerðirnar gegn Rússrum í Kína
hefðu náð nýju hmarki og að
alts hefðu 400 miilljónir Kín-
verja tekið þátt í þessum mót-
mælaaðgerðum síðan þær hófust.
Að sögn fréttastofunnar hefur
verið efnt til mótmælaaðgerða í
hverjiu þorpi, bæ og borg. í Pek-
ing var enn efnt til mótmæla-
aðgerða við sovézka sendiráðið í
dag, en þær voru óvenju frið-
sam-legar að þessu sdnni.
Að sögn kínversku fréttastof-
unnar er mjög mikili viðbúnað-
ur á landamærum Sovétríkjanna.
Sagt er að þúsundir vopnaðra
hermanna og borgara standi þar
vörð og að þeir hafi gert landa-
mærahémðin að ósigrandi járn-
vegg.
Kínverska sendáráðið í Moskvu
hefur haldið því fram að sovézk-
ir lögreglumenn komi í veg fyrir
að starfsmenn þess veiti erlend-
um fréttariturum og diplómötum
upplýsingar um árekstrana á
landamærum Kína og Sovétríkj-
anna.
Blað í Hong Kong hefur eftár
yfirmanná á sovézku farþega-
Framhald á bls. 31
BYLTINGIN ÉTUR BÖRNIN SÍN
— Slanskyréttarhöldin í Tékkóslóvakíu 1952, rifjuð upp
— Sjá ennfremur grein á blaðsíðu 14
A BLAÐSÍÐU 14 í Mbl- í
dag birtist 1. grein eftir
Josefu Slánska, eiginkonu
Rudolfs Slánsky, aðstoðar-
forsætisráðherra Tékkósló-
vakíu, en hann var hand-
tekinn árið 1951 og ákærð-
ur fyrir föðurlandssvik af
ýmsu tagi. Honum var gef-
ið að sök að hafa stundað
njósnir, hafa stutt „horg-
araklíku Gyðinga“, verið
hlynntur stefnu Titos og
Trotskys m.m. Tíu aðrir
háttsettir menn voru tekn-
ir af lífi að loknum þessum
frægu réttarhöldum. Þar á
meðal var Clementis, fyrr-
verandi utanríkisráðherra
og Rudolf Margolius, að-
verzlunarmálaráð-
Helzta sakargiftin
Rudolf Slánsky
sem Margolius játaði á sig
var að hafa gert fiskkaup-
samning við Island og ým-
is önnur vestræn ríki, með
það fyrir augum að koma
Tékkóslóvakíu undir
áhrifamátt auðvaldsríkja.
Frá þessu segir í Mbl. á
sínum tíma og var með-
fylgjandi mynd birt úr
tékkneska blaðinu „Lidova
Demokracie“, þar sem frá
þessu er skýrt.
Með þessum réttaiihöldum í
nóvember og desemlber 1952
og hengingu ellefu fyrrver-
andi forystumanna, var lokið
fyrsta þætti einíhverrar harð-
vítugustu valdabaráttu, sem
hafði geisað tvö árin á undan.
Gottwald forseti hafði þar
með losað sig við alla helztu
keppinauta sína og má ætla
Antonin Novotny
að hann hafi þótzt vera traust
ari í sessi en áður. Af þe-ss-
um keppinautum hans var
Slánsky vitanlega honum
lang hættulegastur. Þeir
höfðu verið nánir samstarfs-
menn í nokkur ár og staðið að
ótal hryðjuverkum og hreins-
unum og stóð Slánsky þar sízt
Framhald á bls. 3