Morgunblaðið - 14.03.1969, Síða 3

Morgunblaðið - 14.03.1969, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 19©9' 3 Lokafundur Verzlunarmálaráð- stefnunnar veröur í næstu viku — Fjölmargar fyrirspurnir til ráðherra og borgarstjóra VERZLUNARMALARAÐ- STEFNU Sjálfstæðismanna var haldið áfram í gær í Vík- ingasal Hótel Loftleiða en lokafundur ráðstefnunnar - BYLTINGIN ÉTUR Framhald af bls. 1 að baki Gottwald í grimmd og harðýðgi. Þó að Gottwald kæmi Slánsky og fleir- um fyrir kattarnef, héldu þó handtökur og hreinsanir áfram og meðal þeirra, sem urðu fyrir barðinu á tor- tryggni Gottwalds voru tveir núverandi forystumenn í Tékkóslóvakíu, þeir Josef Smrkovsky, sem þá var yfir- maður heimavarnarliðsins og Ludvik Svoboda, forseti, sem hafði gegnt stöðu landvarnar- ráðherra um hríð. Þó að handtaka Slánsky3 kæmi ekki með öllu að óvör- um, vakti hún þó engu að síð- ur óhemju eftirtekt. Árum saman hafði hann verið einn dyggasti stuðningsmaður Stalínsstefnunnar og Moskvu- lærður í stríðinu. Hann hafði einnig verið aðalritari komm- únistaflokksins og gekk því næstur Gottwald. í september 1951 var honum vikið úr rit- arastöðunni og þóttust menn sjá, að ýmsar blikur væru á lofti. Ljóst hafði verið að mikil innbyrðis valdastreita var milli Gottwalds og Slán- ®kys og má kannski telja það tilviljun, að Gottwald varð fyrri til að láta hreinsa Slari- sky og ekki hið gagnstæða. Baráttan milli þeirra hafði íarið furðuihljótt utan landsins og mun naumast hafa byrjað að marki fyrr en eftir dauða Masaryks, en flestir eru þeirr ar skoðunar ,að þar hafi þeir kumpánar staðið að baki. Allt fram að 1950 hafði vegur Slánskys farið vaxandi og ruddi hann úr vegi ýmsum stuðningsmönnum Gottwalds, sem reyndi auðvitað að gjalda i sömu mynt. BARÁTTAN KEMST 1 ALGLEYMING Haustið 1950 var orðið ljóst, að markmiðum , tékknesku fimm ára áætlunarinnar yrði ekki náð, enda var efnahag- ur landsins í rústum. Mundi þvi ekki takast að verða við kröfum Rússa um útflutnings magn til Sovétríkjanna. Slán- sky tók sér þá ferð á hendur verður miðvikudagskvöld 19. marz n.k. og verða þá af- greiddar ályktanir ráðstefn- unnar. Fundarstjóri á fundi ráðstefn unnar í gær var Birgir Kjaran alþm. Hófst fundurinn með há- degisverði en sfðan skýrði Gunn ar Árgeirsson frá störfum um- ræðuhópa daginn áður. Þá flutti prófessor Guðmundur Magnús- son erindi tun áhrif EFTA-aðild- ar á inn- og útflutningsverzlun landsmanna og svaxaði hann síðan fyrirspurnum fundar- manna. Að þeim loknum var gert nokkuð hlé- en síðan hófst fyrirspurnartími. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins og borgar- stjórinn í Reykjavík svöruðu fyrirspurnum þátttakenda en stjórnandi var Gísli V. Einars- son, viðskiptafræðingur. Mikill fjöldi fyrirspurna kom fram og stóðu umræður og svör við fyr- irspurnum í fulla tvo klukku- tíma. Svo sem fyrr segir verður lokafundur ráðstefnunnar í næstu viku. til Moskvu til að ávinna sér traust Stalíns og Beria. Þar hét hann að gera víðtækar hreinsanir á ótryggum flokks mönnum og hættulegum svik- urum og láta í öllu að vilja Kremlbænda, ef þeir styddu hann í því að bola Gott- wald frá. Samtímis hafði Gottwald samband við Kremi og gaf þar svipuð loforð. Hann benti á, að gefa yrði sér svigrúm til að reisa við efnahag landsins og sagði, að svo illa væri nú komið sem raun bar vitni um, vegna þess, að Slánsky hefði ráðið of miklu. Eftir heimkomu Slánskys frá Moskvu hitnaði enn í kol- unum og hættan á borgara- styrjöld virtist yfirvofandi í febrúar 1961 gerðist sá fá- heyrði atburðu", að Lavrenti Bería, yfirmaður sovézku Klement Gottwald öryggislögreglunnar, kom í skyndiiheimsókn til Prag og má af því marka, að mikið hefur þótt liggja við. Hjá Bería reyndist ákvörðunar- valdið vera og hann ákvað, að Moskva veitti Gottwald stuðn ing. Þar með var málið í raun og veru útkljáð, þó að hand- taka Slánskys drægist fram í nóvember það ár. SAKBORNINGAR JÁTUÐU VIÐSTÖÐULAUST Á SIG ALLAR SAKIR Réttarhöldin yfir Slánsky, Margulius, fyrrv. verzlunar- málaráðherra, Clementis^ fyrrv. utanrikisráðherra, en hann hafði verið handtekinn hálfu öðru ári áður, og tólf háttsettum öðrum hófust svo í nóvember 1952. Voru þeir sakaðir um hina fáheyrðustu glæpi, svo sem minnzt er á í upphafi. Vegna áburðar ákær anda um samstarf þeirra við „borgaraklíku Gyðinga“ töldu margir réttarhöldin og dóm- ana bera keim af Gyðingaof- sóknum og var á þeim for- sendum mótmælt víða um lönd. í réttarhöldunum játuðu ákærðu viðstöðulaust á sig allar sakir og tekið er fram í fréttum frá þessum tíma, að. þeir Clementis og Margulius hafi verið fjálgir í að játa á sig sem fjölskrúðugust myrkraverk. Bréf sem var lesið upp í réttinum vakti óhemju andstyggð. Það var sagt vera frá 16 ára syni eins sakborningsins, Ludvigs Frejka, fyrrv. formanni við- skiptanefndar flokksins. í bréfinu krefst drengurinn þess, að faðir sinn verði um- svifalaust tekinn af lífi, þar sem svik hans og glæpir séu meiri en svo, að hann eða þjóðin geti nokkru sinni fyr- irgefið þá. Þessi aðferð komm únista til að brjóta niður leif- arnar af viðnámsþrótti Frejka vakti hrylling með mönnum utan Tékkóslóvakíu, þótt hún sé aðeins eitt dæmi af mý- mörgum um aðferðir og hugs- unarhátt kommúnista. HÖFUÐSYND MARGOLIUS VAR FISKKAUPSAMNING- UR VIÐ ÍSLAND OG FLEIRI AUÐVALDSRÍKI í Morgunblaðinu þann 5. desember er birt fréttin um glæp Rudolfs Margolius og er haft eftir honum orðrétt við yfirheyrslurnar um glæpi hans, þar sem hann vrkm ao íslandi: „Skemmdarverk mín voru fyrst og fremst fólgin í því að gera viðskiptasamninga við auðvaldsríki og reyna með þeim hætti að koma Tékkó- slóvakíu undir áhrifamátt landvinningaríkja. Þessu 'hélt ég þó vandlega leyndu fyrir foringjum flokksins. . . . Sem dæmi má nefna, að ég sam- þykkti að gera verzlunar- og viðskiptasamninga við auð- valdsríkin Svíþjóð, Noreg, Belgíu, Holland og ísland. Þessa samninga gerði ég með það fyrir augum, að Tékkó- slóvakía bindi öll viðskipti sín við auðvaldsheiminn og yrði þannig þeim undirgefin á efnahagssviðinu“.. Svo mörg voru þau orð og væntanlega hefur það ekki oft gerzt, jafn- vel ekki í kommúnistaréttar- höldum, að em'bættismaður sé dæmdur til lifláts fyrir að hafa átt skipti við ísland. VARÐ NOVOTNY TIL FRAMDRÁTTAR Þann 4. desember 1962 var aftakan framkvæmd og Gott- wald gat nú hrósað sigri um sinn. Vert er að geta þess, að valdabarátta þeirra Gott- walds og Slánskys varð und- anfari þess, að Antonin No- votny, næsti forseti landsins, komst til áihrifa. Meðan hreinsanirnar stóðu sem hæst á árunum 1951 og 1952 vakti framganga yfirmanns komm- únistadeildarinnar i Prag sér- staka hrifningu. Sá maður var Antonin Novotny og fór nú stjarna hans óðum hækk- ■ andi, þótt Gottwald tækist að halda völdum með ógnar- stjórn þar til hann lézt árið 1953. Novotny notaði tækifær ið og tryggði sér embætti hans og síðan tók við ný ógn- arstjórn, Novotnyskeiðið . . . <§> KARNABÆR TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS — TÝSGÖTU 1 — SÍMI 12330. Aukin þjónustu Opið til kl. 4 eh. d morgun Nýjai vörur teknar upp DÖMUDEILD * TWEED-KAPUR I LITLUM OG STÓRUM NÚMERUM ★ TWEED-SiÐBUXUR SAMSTÆÐAR KAPUM ★ FERMINGARKJÓLAR OG ULLARKJÓLAR * STAKAR BUXUR i MIKLU ÚRVALI. HERRADEILD * STAKAR TERYLENE & ULLARBUXUR i GEYSIFJÖLBREYTTU ÚRVALI — NÝ SNIÐ ★ SAUMUM FÖT EFTIR MALI, VERKSMIÐJUVERÐ SNIÐMEISTARI COLIN PORTER AFSLATTUR FYRIR FERMINGARDRENGI. STAKSl n\/UÍ Ndnari skýringa þörf Framsóknartilaðið ýelur sig svara í forystugrein í gær at- hugasemdum Morgunblaðsins um getu atvinnufyrirtækjanna til þess að taka á sig launahækk- anir. Segir blaðið að hægt sé að spara á öðrum rekstrarliðum en kaupgjaldsliðnum einum, og í- trekar enn að lækka eigi vexti, svo að fella megi niður fjöl- marga skatta, sem lagðir hafi verið á atvinnuvegina á undan- förnum árum. Jafnframt telur blaðið, að atvinnuvegina skortl stórlega lánsfé til að koma á ýmis konar hagræðingu. Þeirri spurningu skal enn beint til Framsóknarblaðsins, þar sem það hefur ekki svarað henni á full- nægjandi hátt, hvaða samræmi sé í því, að lækka vexti, þ. á m. innlánsvexti, sem í raun þýðir minna innlánsfé í bankana og krefjast um leið stóraukinna lán- veitinga’ til atvinnufyrirtækj- anna en geta viðskiptabankanna til að lána atvinnuvegunum byggist auðvitað fyrst og fremst á þeim innlánum, sem bankam- ir fá frá sparifjáreigendum. — 1 öðru lagi er Tstæða til að spyrja Framsóknarmenn að því, hvaða skatta þeir vilja fella niður hjá atvinnufyrirtækjunum. Vilja þeir t. d. fella niður launaskattinn, sem rennur til húsnæðismála- lána? Þetta eru spumingar, sem Framsóknarmenn verða að svara. Bæta þarf kjör hinna lægstlaunuðu Framsóknarblaðið spyr hvort meðalfjölskylda geti lifað sæmi- legu lífi á 12—19 þúsund króna mánaðarlaunum. Þessari spurn- ingu er fljótsvarað. Morgunblað- ið hefur lýst því yfir, að það telji nauðsynlegt að bæta hag hinna lægst launuðu. Jafnframt hefur Morgunblaðið bent á að finna verði leiðir til þess að veita hinum lægstlaunuðu kjara- bót, án þess að sú kjarabót breið ist út yfir allt þjóðfélagið. Ólafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins, hefur sett fram kröfu um að greidd verðl full verðlagsuppbót á öll laun í landinu. Með þessari kröfu er Ólafur Jóhannesson að krefjast þess, að hálaunamenn í laun- þegastétt fái í rauninni miklu mciri kjarabætur heldur en lág- launamenn. ÖHum er ljóst að þessar kröfur Framsóknarfor- ingjans eru fjarstæða ein og ó- hugsandi, að þjóðfélagið geti staðið undir þeim eins og nú er ástatt. En það sýnir hug Fram- sóknarmanna til hinna lægstlaun uðu, að foringi Framsóknar- flokksins krefst meiri kjarabóta til handa hálaunamönnum en fyrir lágiaunamennina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.