Morgunblaðið - 14.03.1969, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1969
BÍIALE1GANFALURnf
car rental service ©
22-0-22*
RAUÐARÁRSTlG 31
magimúsar
skiphoih 21 simar 21190
. eftír lokun iiml 40381
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastræti 13.
Sími 14970
GUSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmaður
Laufásvegi 8. — Sími 11171.
Tímataka
á vegum Skíðaráðs Reykjavíkur
verður í Skálafelli, laugardaginn
15. marz kl. 2.30, tímataka verður
einnig á sunnudag.
Heimilisstcrf í U8A
Ung kona óskast til léttra
heimilisstarfa og til að annast
þrjú ung böm 1—8 ára. önnur
hjálp á heimilinu til aðstoðar.
Minnst árs ráðningar óskað. Far
gjöld greidd, sextíu dollara laun.
Enskukunnátta nauðsynleg. Send
ið uppl. og meðmaeli ef fyrir
hendi eru til afgr. Mbl. merkt:
„U.S.A. 2813, fyrir mánudags-
kvöld".
[park)
Bofmogns-
hlntir
BEDFORD
TRADER
LAND ROVER
CORTINA
2EPHYR
VAUXHALL
GIPSY
EERGUSON.
Kristinn Guðnason hf.
Klapparstíg 27, sími 12314
Háaleitisbraut 12, sími 84755
(bensínstöð BP}.
Q Ungir menn ræða
vandamálin
„Sjónvarpshlustandi" skrilar:
í GÆRKVELDI hlustaði ég á
samtalsþátt þeirra Halldórs Blön
dal og Más Péturssonar í sjón-
varpinu. Oft er búið að hreyfa
við því máli, þ.e. dvöl erlendra
hermanna á Reykjanesskaga og
úrsögn úr Atlantshafsbandalaginu
bæði i ræðu og riti, en þó engan
veginn um of. Það er mál, sem
getur varðað sjálfstæði okkar ís-
lendinga og jafnvel tilveru okk-
ar sem þjóðar.
Ungu mennirnir, sem leiddu
saman hesta sína, reyndust vera
sammála um, að íslendingar ættu
ekki að segja sig úr Atlantshafs-
bandalaginu að óbreyttum aðstæð
um. Af þeirri yfirlýsingu af
hendi Más Péturssonar er ljóst,
að hann er ekki 1 hópi þeirra
ungu manna, sem almannarómur
hefir samið um hið alkunna
orðtak: .JFramsóknarmaður i sveit
kommúnisti í kaupstað".
Um dvöl varnarliðsins á Reykja
nesskaga og við gæzlu nokkurra
radarstöðva, voru ungu mennirn-
ir á öndverðum meiði. Már tal-
aði um „hersetu“ í því sam-
bandi, sem væri algjörlega óvið-
unandi á friðartímum og bæri
því skilyrðíslaust að segja upp
þar að lútandi samningum og
láta varnarliðið fara úr landi
með allan sinn herbúnað. í þessu
efni hafði hann sömu afstöðu og
kommúnistar hafa jafnan haft og
hafa enn, auk þess sem þeir einn-
ig krefjast úrsagnar okkar úr At
lantshafsbandalaginu.
Már sýndi dugnað í málflutn-
ingi sínum. Hann hafði augljós-
lega kynnt sér talsvert það mál,
sem hann ræddi um, og hafði
rök sín á takteinum, að svo
miklu leyti, sem hann taldi
heppilegt að svara.
0 „Skammbyssan í
Atlantshafi“
Spurningunni um það, hvort
við ættum sjálfir að stofna her.
okkur til varnai, ef Bandarikja-
menn yrðu látnir hverfa úr land-
inu, svaraði Már neitandi. Einn-
ig svaraði hann neitandi þeirri
spurningu, hvort við ættum að
hafa landið algjörlega vamar-
laust. Báðir ungu mennirnir gerðu
sér vel ljóst, að mjög mikið væri
um rússnesk skip: fiskiskip,
birgðaskip, svokölluð rannsóknar
skip og kafbáta allt í kringum
landið og auk þess væm rússn-
eskar flugvélar næstum daglega
á sveimi í kringum það. En Már
lagði áherzlu á, að þar sem við
værum í Atlantahafsbandalaginu
og yrðum það væntanlega áfram
um sinn, þá bæri því að veita
okkur hjálp, ef á landið yrði ráð-
izt, og þá væntanlega af Rúss-
um, þó að það væri ekki bein-
línis orðað svo, því að ekki ból-
aði á því í umræðunum, að nokk-
ur annar árásaraðili kæmi til
greina. Eru og í fersku minni ís-
lendinga þau ummæli framámanna
Rússa, að fsland „væri eins og
skammbyssa, sem miðað er á
Stóra Bretland og Norður Am-
eríku“. Verndaraðgerðirnar taldi
Már, að gætu auðveldlega komið
frá Skotlandi og Grænlandi, þar
sem Bandaríkjamenn hefðu Bæki
stöðvar og auk þess mundu þeir
hafa skip á hafinu kringum ís-
land. Á þessa afstöðu mátti líta,
en ég saknaði þess í umræðunum
að Már var ekki spurður að því,
hvort hann gerði ráð fyrir að
Skotar og Englendingar mundu
' þola „hersetu" Bandaríkjamanna
Enskunúm í Englnndi
Enskunámskeið verða á vegum Scanbrit á sumri komanda
I London og Brighton. Mjög hagstætt verð. Nemendum fylgt
á leiðarenda. Umsóknir þyrftu að berast sem fyrst.
Upplýsingar gefur Sölvi Eysteinsson, Kvisthaga 3, Reykjavík.
Sími 14029.
í-íííííííí'wX-ííííj
•tvXvlvX*' *X •- v,*V
jííí:::::;:::*:j¥íí
?:•:
ííííííííííííí:;
j*"******»*»*****»!***********!»%!*!*!*!»!*!*!*!*!*!*!»!*!*!*!*!*!*!»!»%%%!«^«!*
I Th« ap«ci«l cMvrgvnt tor »H waihing machina* vXvX|
WSL,
XXvX-XyXvX
8iV«V*%V«VWm
með DIXAN, þvottaduftið
fyrir allar tegundir þvottavéla;
því DIXAN er lágfreyðandi
og sérstaklega framleitt fyrir
þvottavélina yðar.
Með DIXAN fáið þér alltaf
beztan árangur!
í landi sínu til langframa, enda
þótt þeir væru í Atlantshafsbanda
laginu.
Spumingu andstæðings Más í
þá átt, hvort ekki mundi verða
að telja sanngjarnt, að íslending
ar létu sér ekki bara nægja að
standa aðgerðarlausir og styðja
sig við betlistaf, heldur sýndu að
minnsta kosti þann vott af mann-
dómi, að lána Bandarikjamönn-
um, eða Atlantshafbandalaginu,
nokkra hektara af einskisnýtu
hrauni á útskaga, til þess að auð-
velda vörn landsins, lét Már ó-
svarað.
• Ef . . . Ef . . .
Allir þorri þjóðarinnar vonar
og biður þess, að ekki verði ráð-
izt á land okkar og það um
leið gert að orustuvelii. En for-
dæmin eru mörg, gömul og ný-
leg — og hættuleg. Og ef, — ef
samt sem áður sá hörmulegi at-
burður gerðist, og Bandaríkja-
menn hefðu verið látnir fara burt
af landinu með herbúnað sinn,
flugvélar og radar, hvar stæðum
við þá. Það er vissulega ekki
svo friðvænlegt í heiminum nú,
sem andstæðingar varnarliðsins
vilja vera láta. Það eru ógnvekj-
andi blikur á lofti, bæði í Ev-
rópu og Asíu. Þessa dagana æpa
Austur-Þjóðverjar hótanir til Vest
ur-Þjóðverja úr handarkrika
Rússa. Fáir mánuðir síðan að
Rússar hertóku Tékkóslóvakxu,
fullvalda þjóð, af þeirri einu
ástæðu, að sem kommúnistaríki
væru þeir að gerast full frjáls-
lyndir, Bandaríkin hafa varað
Rússa við að fara eins að við
Rúmena. Og í Júgóslavíu hefir Tí-
tó lýst því yfir, að gefnu tilefni,
að Júgóslafar muni verjast, ef á
þá yrði ráðist. En þetta tilefni
-var yfirlýsing Rússa í septem-
ber s.l., að þeir teldu sig hafa
rétt til þess, að gera vopnaða
innrás í sérhvert kommúnistiskt
ríki, þótt fullvalda væri, — og
Vestur-Þýzkaland, ef þeir teldu
ástæðu tiL Lögfræðilegar vanga-
veltur af hendi annarra, kæmu þar
ekki til greina Þá eru Rússar
og eina þjóðin £ heiminum, sem,
að því er vitað er, stefnir bein-
línis að þvi að ná heimsyfirráð-
um, og samkvæmt kenningu Len-
ins, ber að gera það.
Q Hvað gæti gerzt . . .
Færi nú svo, sem allir sæmilegir
menn vona, að ekki verði, að
Rússar teldu sér nauðsynlegt, að
ná valdi á „Skemmbyssunni" í
NorðurAtlantshafi og þar væri
engri vörn að mæta gegn her-
námi, eftir að Bandaríkjamenn
hefðu verið látnir fara burt af
landinu, hvað mundi þá gerast?
Fordæmi eru fyrir hendi. Þjóð-
verjar undirbjuggu innrásina í
Noreg með því, m.a., að láta
fjölda skipa, málmgrýtisflutninga
skipa og annara venjulegra flutn
ingaskipa sigla norður með
ströndum Noregs, með hermenn
og herbúnað undir þiljum Fóru
skipin dreift, en á tilsettum tíma
spúðu þau hernámsliðinu á land.
Rússar eru gáfuð þjóð og hern-
aðartækni þeirra vafalaust á háu
stigi. Þeir mundu því ekki láta
sér yfirsjást að færa sér í nyt
staðsetningu fiskveiðiflotan slns
við ísland, ef þeir hyggðu á inn-
rás. Til viðbótar væru svo hundr
uð kafbáta og hundruð stórra
flugvéla. Líkt og Þjóðverjar not-
uðu Quislinga sína í Noregi, gætu
Rxissar látið fimmtu herdeild sína
á hnitmiðuðu augnabliki taka
radar, útvarp og síma í sínar
hendur, og hernumið allar strend
ur landsins á fáeinum klukkutim
um. Næsta skrefið yrði svo vænt-
anlega að taka a.m.k. annað
hvert hús í bæjum og þorpum
handa hernum, í trausti þess að
þá yrði síður varpað á þau atóm-
sprengjum Teknar yrðu allar op
inberar byggingar og sjúkrahxis
rýmd Flest hullhraust og vinnu-
fært fólk karlar og konur, yrði
tekið í nauðungarvinnu, en las-
burða fólk, börn og gamalmenni,
flutt burt eitthvað austur á bóg-
inn í hinum tómu skipum, kaf-
bátum og flugvélum. Þetta yrði
augljóslega gert til þess að spara
vistir, sem fyrir væru í land-
inu, en aðflutningar erfiðir, eftir
að árás væri hafin og Rússa
sennilega ekki úr hófi viðkvæm
ir varðandi aðbúð fólksins. Bar-
izt yrði í landinu, sennilega af
fullri heift. Rússar mundu berj-
ast til „síðasta manns“, eins og
það er venjulega orðað, heldur
en sleppa af „skarnmbyssunni".
Er hætt við að lítið líf yrði
eftir í „síðasta" íslendingnum að
þeim leik ioknum. Þjóðin þurrk-
uð út og landi sem eyðisker líkt
og Svalbarði er nú.
Þetta er sú mynd sem blasti
við í huga mínum, er ég hafði
hlustað á „ungu mennina" í sjón-
varpinu, og spurt sjálfan mig
þeirrar spurningar: Hvað getur
komið fyrir og hvað er líklegt
að verði, ef ísland er látið vera
varnarlaust og ný heimsstyrjöld
skellui yfir.
12. febrúar 1969
Sjónvarpshlustandi".
HÁDEGISVERÐAR
FUNDUR
Laugardagur
15. marz kl. 12.30.
Magnús J. Brynjólfsson
kaupm. ræðir um
SMASÖLUVERZLUN.
HOTEL
FUNDARST AÐUR WTS
VERZL. OG SKRIFSTOFUFÓLK, FJÖLMENNIÐ OG TAKIÐ
MEÐ YKKUR GESTI.