Morgunblaðið - 14.03.1969, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1960
7
AÐ FINNA LÖGMÁL HEILBBIGÐINNAR
Matstofa N.L.F.R. í Kirkjustræti heimsótt
1 Margar eru matstofur og mörg
í veitingahúsin í Reykjavík, en
/ aðeins ein matstofa hefur á boð
l stólum eingöngu hið svokallaða
t náttúrulækningafæði, en það er
/ Matstofa NI.FR, sem er til
t húsa í hinum gömlu húsakynn-
i um Hótel Skjaldbreiðar við
Kirkjustræti. I»ar er framreidd
ur þessi kjarnamatur alla daga
frá kl. 11:30—1:30 og kl 6—8 Á
sunnudögum er þar á boðstól-
um svonefnt hlaðborð, og svign
ar þar stórt borð undan ótrú-
legri fjölbreytni af grænmetis
og jurtaréttum.
Við borðuðum þar á dögunum
þegar hlaðhorðið var, og vakti
það mikla undrun okkar fyrir
fjölbreytni og hve réttirnir
voru gómsætir. Matráðskonan heit
ir Ester Jónsdóttir og virðist
kunna vel til verka. Sérstaka
athygli okkar vakti flatbrauð,
sem í var haft fjallagrös, mais,
kartöflur, kim auk rúgsins, og
var sérlega gott. Þarna var einn
ig staddur Páll Sigurgeirsson,
skrifstofustjóri félagsins.
Þegar við höfðum borðað
nægju okkar, hittum við að máli
formann Náttúrulækningafélags
Reykjavíkur, önnu Matthíasdótt
ur, og báðum hana um að segja
okkur frá þessari starfsemi.
„Náttúrulækningafélag ís-
lands var stofnað árið 1939, en
tveim árum áður var að vísu
gerð tilraun til félagsstarfsemi
á Sauðárkróki. Þegar svo lands
sambandið var stofnað 1949, var
félagið í Reykjavík kallað Nátt
úrulækningafélag Reykjavíkur
(NLFR) Aðalatriðið í stefnu-
skrá eru að stefna að því að
lifa sem mest á jurta- ávaxta-
og mjólkurfæði, forðast allar
eiturnautnir, finna lögmál heil-
/ brigðinnar, fylgja þeim, leita út
1 til móður náttúru, stunda útivist
i og böð, herða líkamann í ljósi
og lofti, stefna að jákvæðu lífs-
viðhorfi yfirleitt
Matstofa NLFR hóf svo starf-
semi sína 31 október 1966. Til-
gangur þeirrar starfsemi er sú
fyrst og fremst, að svara margra
ára kalli og þörfum fólks, sem
telur sig hafa lækningu, mátt
og hollustu af neyzlu valinna
fæðutegunda.
Margir telja sig hafa endur-
heimt lífsþrótt og heilbrigði með
neyzlu þess fæðis, sem Matstof-
an býður nú upp á, enda fer
aðsókn að henni ört vaxandi,
enda eru allir velkomnir. Verði
er í hóf stillt, en auk þess geta
menn keypt sér afsláttarmiða,
og fá þannig 20prs, afslátt. Mat
stofan notar aðeins bezta fáan-
lega grænmetið á hverjum tíma,
ræktað við lífrænan áburð, og
gegnir garðyrkjustöð heilsuhælis
félagsins í Hveragerði því mikil
væga hlutverki að framleiða
jarðarávexti án eiturúðunar fyr
ir matstofuna. Ætlunin er, að
gamlar og óhollar drykkju-
og nautnavenjur eigi að víkja
fyrir aukinni heilbrigði- og
starfsgleði. Matstofan óskar að
taka þátt í slíku brautryðjenda
starfi".
„Eru nú ekki margir, sem mis
skilja starf ykkar og setja það
í samband við fordóma og ein
strengingshátt?“
„Jú, ekki er því að leyna. Ég
hef orðið þess ákynja, að marg
ir halda, að náttúrulækningastefn
an sé eingöngu fólgin í umbót-
um á mataræði, og félagsmönn
um borið á brýn, að þeir hugs-
uðu bara um munn og maga,
en slíkt er alrangt. Ef um hugs
andi fólk er að ræða, reynir
það einungis að gefa líkaman-
um sem heilnæmast viðurværi
og bezt lífsskilyrði, til þess
hann verði sem hæfastur að
leysa af hendi hugsjónir and-
ans. Það ber umhyggju fyrir
honum, sem góðum þjóni, en
hann á ekki að ráða. Dr. Jack-
son, ameríski læknirinn, sem er
mikill brautryðjandi í þessum
efnum, segir svo:
„Okkur skjátlast, er við höld
um, að við séum líkamar, sem
hýsum sálir. Því er öfugt farið
Við erum sálir með kraft og
hæfileika til þess að byggja okk
ar eigin bústaði, líkamana."
Leiðin upp úr feni sjúldóma
og ósamræmis, verður ekki fund
in fyrr en \við hættum að eitra
loftið sem við öndum að okkur
og jarðveginn, sem framleiðir
lífsviðurværi okkar.
Okkur er mikil þörf á þeim
skilningi, að við séum ekki ut-
an við tilgang lífsins, heldur
reynum að hafa áhrif til góðs,
bæði í nánasta umhverfi okkar
og í allri lífsheildinni.
Brautry ð j endur þessarar
stefnu hafa brugðið blysum á
loft, og í þeirri birtu sjáum við,
hvernig rangai lífsvenjur og
vanþekking hafa heft bæði ein-
staklinga og heilar þjóðir. Móð
ir náttúra virðist vera strangur
dómari, hún hegnir fyir öll
brot á lögmálum lífsins. Veik-
indi eu hættumerki. Einn framá
maður í félaginu hefur sagt, að
það væru ekki sjúkdómar, sem
við ættum í höggi við, heldur
slæmar og óhollar venjur Lag-
færið óheillavenjurnar og sjúk-
dómarnir hverfa. sagði hann“.
Þetta sagði Anna Matthíasdótt-
ir, formaður NLFR að lokum.
Og þá er ekki annað eftir en
þakka fyrir hinn góða mat, og
ég get ekki stillt mig um, að
hvetja fólk til að koma á mat-
stofuna í Skjaldbreið og reyna
þessa hollu fæðu. Sjón og bragð
og reynsla er sögunni ríkari og
allir eru jafnvelkomnir. Á-
nægjulegt var einnig að sjá við
hlaðborðið, hve margt af ungu
fólki snæddi þar, jafnvel ung
hjón með ung börn sín, heilu
fjölskyldurnar. Það er eitthvað
heilbrigt við þetta, sem þarna
fer fram. — Fr.S
SAMTAL VIÐ FORMANNINN, ÁSTU MATTHÍASDÓTTUR
Hér sést hið girnilega hlaðborð á matstofu NLFR að Hótel Skjaldbreið
maður félagsins Anna Matthíasdóttir.
Hjá borðinu stendur for-
FRETTIR
Kvenfélag Langholtssafnaðar
Fótsnyrting fyrir aldrað fólk í
Safnaðarheimilinu á þriðjudögum kl
8.30 — 11.30 f.h. Símapantanir í
síma 34102
Kvenfélag Grensássóknar
hefur fótaaðgerðir fyir aldrað
fólk í sókninni í safnaðarheimiil
Langholtssóknar á mánudögum kl.
9—12 f.h. Pantanir í síma 12924
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Fótaaðgerðir fyrir aldrað fólk í
LÆKNAR
FJARVERANDI
Karl Jónsson fjv. óákveðið. Stg.
Valur Júlíusson, Domus medica,
sími 11684.
Þórður Möller fjv. 10—15 marz.
Stg. Guðmundur B Guðmundsson
safnaðarheimili Hallgrímskirkju
miðvikudaga frá kl. 9—12 árdegis.
Pantanir teknar í síma 12924.
Kvenfélag Fríkirkjunnar i Rvík.
hefur hafið fótaaðgerðir fyrir aldr
sð fólk í Safnaðarheimili Langholts
kirkju alla miðvikudaga frá kl. 2-
I. Pantanir teknar í síma 12924.
Kvenfélag Bústaðasóknar
sóknar alla fimmtudaga frá kl. 8.30
II. 30 árdegis. Pantanir teknar í sím
32855
Spakmœli dagsins
Það er eitt af trúaratriðum mín-
um að ráða til rnín þann mann,
sem tekur ekkisjálfan sig, heldur
starf sitt alvarlega — M.C Cahill
VÍSUKORN
Þó báran sé kröpp og björgin há,
sem boðunum yfir rísa,
ég lofa nú Guð fyrir geislana þá
sem gegnum hríðina lýsa
E.B.
só N/EST bezti
Pétur vinnumaður var mikill munntóbaksmaður. Húsmóðir hans
sagði einu sinni við hann:
„Hvernig stendur á því, að þú skulir tyggja þessi ósköp af tó-
baki, maður?“
„Ætti ég kannske að vera eins og svín, alltaf með matarbragðið
í munninum?" svaraði hann.
SPÓNSKURÐARSÖG
Nýleg 3ja metra spónskurðar-
sög til sölu. Uppl. í síma
19977 og 31074.
4RA HERB. IBÚÐ
til leigu strax á fögrum stað
í borginni. Tilb. merkt:
„Suður 2861" sendist afgr.
Mbl.
HAFNARFJÖRÐUR
2ja herb. íbúð til leigu. Uppl.
í síma 50701.
LOFTUR H.F.
LJÓSMYNDASTOFA
Ingólfsstræti 6.
Pantið tíma í síma 14772.
Skrifborð
Unglingaskrifborðin vinsælu kom
in aftur. Framleidd úr eik og
teak. Stærð 120x60 cm.
G. Skúlason og Hliðberg h.f.
Sími 19597.
í
•ioímtjngo
HÁRÞURRKAN
FALLEG Rl • FLJÓTARI
• 700W hitaelemenL, stiglaus hitastilling
0—80°C og „turbo" loftdreifarinn veita
þægilegri og fljótari þurrkun • HljóÖlót
og truflar hvorki útvarp né sjónvarp •
Fyrirferðarlítil í geymslu, því hjólminn mó
leggja saman • MeÖ klemmu til festingar
ó herbergishurð, skóphurð eða hillu •
Einnig fóst borðstativ eða gólfstativ, sem
leggja mó saman • Vönduð og formfögur
— og þér getið valið um tvær fallegor
litasamstæður, blóleita (turkis) eða gulleita
(beige). • Ábyrgð og traust þjónusta.
FERMIIUGARGJÖF!
FYRSTA
FLOKKS
F R Á ....
SlMI 24420 -
FÖNIX
SUÐURG. 10 - RVlK
EIMSKIP
I | Fjölskyldur — einstaklingar!
| S Notið páskana til að ferðast * j
j j moð GULLFOSSI á skiðavik-
1 I
Á næstunni ferma skip vor j
til Islands, sem hér segir:
ANTVERPEN:
Bakkafoss 18. marz.
Reykjafoss 27. marz.
Skógafoss 7. apríl.*
ROTTERDAM:
Laxfoss 18. marz.
Bakkafoss 19. marz.
Reykjafoss 29. marz.
Skógafoss 9. apríl.*
HAMBORG:
Bakkafoss 21. marz.
Reykjafoss 1. apríl.
Skógafoss 12. apríl.*
LONDON:
Askja 24. marz.
Mánafoss 2. apríl.*
HULL:
Laxfoss 14. marz.*
Askja 26. marz.
Vcssel 3. apríl.*
LEITH:
Askja 28. marz.
GAUTABORG:
Tungufoss 28. marz.
KAUPMANNAHÖFN:
Gullfoss 15. marz.
ísborg 20. marz.
Gullfoss 28. marz.
Tungufoss 31. marz.
Vessel um 12. apríl.*
KRISTIANSAND:
Tungufoss 2. apríl.*
NORFOLK:
Lagarfoss 29. marz.*
Selfoss 3. apríl.
Brúarfoss 21. apríl.
NEW YORK:
Lagarfoss 2. apríl.*
Selfoss 10. apríl.
Brúarfoss 26. apríl.
GDYNIA:
Fjallfoss 25. marz.
HELSINGFORS:
Fjallfoss 18. marz.
VENTSPILS:
Fjallfoss 23. marz.
* Skipið losar í Reykjavik,
ísafirði, Akureyri og Húsa-
vík.
Skip, sem ekki eru merkt j
með stjörnu losa aðeins í
Rvík.
ALLT MEÐ
EIMSKIP