Morgunblaðið - 14.03.1969, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1969
Sigurbjarni Ketilsson
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar,
púströr og fleiri varahlutir
í margar gerðir bifreiða.
Bílavörubúðin FJÖÐRIIM
Laugavegi 168. - Simi 24180.
Minning
Fæddur 23. ágúst 1920
Dáinn 6. marz 1969
FRÆNDI minn, Bjarni Ketils,
eins og hann var alltaf kallaður,
fæddist á Seyðisfirði. Sonur hjón
anna Sigríðar Sigurðardottur og
Ketils Bjarnasonar trésmiðs.
Hann missti föður sinn 1925, og
f’yzt þá með móður sinni og
svstrum að Gesthúsum á Álfta-
nesi, til föðurbróður síns Ólafs
Bjarnasonar, sem síðar varð
stjúpfaðir hans. Ólst hann þar
upp.
Bjarni heitinn fæddist mál-
haltur. Fór hann á málleysingja-
skólann 10 ára gamall, útskrifað-
ist þaðan 17 ára. Á skólanum
kynntist hann mörgum sínum
beztu vinum og þau vináttubönd
brustu aldrei. Þar kynntist hann
kærri vinkonu, Pálu Michelsen,
sú vinátta hélzt þar til yfir lauk.
Einnig átti hann góðan vin, mál-
lausan, Ólaf Guðmundsson, og
hjá honum og ráðskonu hans,
Guðbjörgu, átti hann alltaf at-
hvarf. Frá þeim fór hann í sína
síðustu og örlagaríku för með
togaranum „Hallveigu Fróða-
dóttur“.
17 ára byrjar hann sinn sjó
-mannsferil á Tryggva gamia
með frænda sínum, Snæbirni Ól-
afssyni, og er með honum alla
hans skipstjórnartíð eftir það.
Skömmu eftir að ég byrja til
sjós, 1945, verðum við Bjarni
skipsfélags á Tryggva gamla. og
segja má, að við höfum að mestu
fylgzt að á togurum síðan. Bj arni
heitinn var afbragðsgóður sjó-
maður, hann var sérstaklega góð-
ur netamaður og lagtækur við
smíðar, þó hann léti lítið á því
bera. Alla tíð var Bjarni eftir-
sóttur sjómaður. Bjarni var greið
ugur maður, og vildi öllum gott
gera, enda vinsæll af skipsfélög-
um sínum og öðrum.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu bæjarfógetans á Akureyri, dr. Hafþórs Guð-
mundssonar hdl., tollstjórans í Reykjavík og Arnar Þór
hrl., verða bifreiðarnar A-1464 Scanía Vabis ’63, Y-2134,
R-14392 og R-21990 seldar á opinberu uppboði sem
haldið verður við Félagsheimili Kópavogs í dag föstu-
daginn 14. marz 1969 kl. 15.00.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
íbúðir óskast
Við höfum sérstaklega verið beðnir að auglýsa eftir neðan-
skráðum fasteignum:
Húsi með tveimur til þremur tbúðum.
5—6 herb. íbúð, helzt í Háaleitishverfi.
3ja og 4ra herb. íbúðum í sambýlishúsi.
3ja og 4ra herb. íbúðum sem mest sér.
2ja herb. íbúð í háhýsi eða í Háaleitishverfi. I öllum tilvikum
er um góðar útborganir að ræða, og jafnvel staðgreiðslu.
Fasteignasalan
Hátúni 4 A.
Jón Bjarnason
hæstaréttarlögmaður
Hilmar Valdimarsson
fasteignaviðskipti
Símar 21870—20998.
r
Tæknipróf
L
Göteborgs Tekniska Institut
Tækniskóli
SÉRGREINAR
Mótorfræði, vélfræði, rafmagnsfræði, byggingafræði, efna-
fræði og efnatæknifræði.
NAMSTlMI
Með stúdentsmenntun 1-J ár, með gagnfræðapróf 2 ár, með
unglingapróf 3 ár.
Tekið er á móti umsóknum fyrir hausttímabilið 1969, sem
hefst um 25. ágúst.
GÖTEBORGS TEKNISKA INSTITUT
Vasagatan 16, 411 24 Göteborg, Tel. 031/ 17 49 40.
1
I
I
I
I
I
I
I
PLYMOUTH VALIANT
Höfum til afgreiðslu nú þegar nokkrar af hinum vinsælu VALIANT
árgerð 1968 á lækkuðu verði.
Tryggið yður trausta — endingargóða og sparneytna 6 manna
ameríska bifreið fyrir sumarið.
Þér gerið beztu bílakaupin í dag með því að kaupa VALIANT 1968 —
ATH. 1969 árgerð allt að um 85.000.— dýrari. — Allar frekari upp-
lýsingar á skrifstofu vorri.
CHRYSLER
WjHW international
VÖKULL H.F., Hringbraut 121,
sími 10600,
Glerárgötu 24 Akureyri,
sími 21344.
Alla tíð átti hann heima hjá
móður sinni að Gestshúsum, en
nú búa þar Einar Ólafsson, hálf-
bróðir han-s og kona hans Ásta
Guðlaugsdóttir, og hafa þau
reynzt Bjarna heitnum afar vel,
enda þótti honum mjög vænt
um fjölskyldu sína, ættingja og
vini á Álftanesi. Ég vil svo að
síðustu þakka Bjarna heitnum
vel unnin störf um borð og ein-
læga vináttu alla tíð við mig og
mína.
Guðbjörn Jensson.
drengur góður horfinn er.
Okkar hinztu kveðju klökkva
kæri vinur sendum þér.
Viðmót þitt og vinsemd alla
af veikum mætti þökkum vér.
Þá í valinn vinir falla
vitum bezt hvað glatað er.
Krjúpandi að lágu leiði
að lokum okkar bænin er.
Fósturjörðin fagra breiði
faðminn sinn á móti þér.
Kveðja frá mágkonu og
fjölskyldu.
Ennþá út á djúpið dökkva
Ljúft. þig dreymi í legstað þínum
létt þér verði dauðans nótt.
Um tíma og eilífð guð þig geymi
góði vinur — sofðu rótt.
Hjúkrunnrkonui
Hjúkrunarkonur, sem vildu taka að sér hjúkrun sjúkra í heima-
húsum, í nágrenni heimilis síns óskast. Vinna hluta úr degi,
eftir samkomulagi, möguleg.
Nánari upplýsingar gefur forstöðukona Heilsuverndarstöðvar-
innar í sima 22400.
Heilsuverndarstöð Reykjavikur.
Danskennarasamband Islands D.S.I.
Fj ölsky lduskemmtun
í Súlnasal Hótel Sögu
n.k. sunnudag 16.
marz kl. 3 e.h.
14 dansatriði frá öll-
um ballett- og sam-
kvæmisdansskólum
innan sambandsins.
■kr Stórt leikfangahappdrætti.
Dans, leikir og keppnir fyrir börnin.
UPPSELT.
BORÐ EKKI TEKIN FRÁ.
HÚSIÐ OPNAÐ KL. 2,30 E. H.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
ðrvul of svefnbekkjum
. . . BEZTA VERÐIÐ
. . . BEZTU BEKKIRNIR
~J<\aupl(i) pennincjarýjöpina
hjá
ohh,
ur
SVEFNBEKKJA
Laufásvegi 4 — Sími 13492.